Fréttablaðið - 21.12.2007, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
FÖSTUDAGUR
21. desember 2007 — 347. tölublað — 7. árgangur
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
Föstudagur
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í ágúst–október 2007
Lestur meðal 18–49 ára
á höfuðborgarsvæðinu*
40%
B
la
ð
ið
/2
4
s
tu
n
d
ir
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
43%
70%
BB
Ánægð með velgengni
síðustu ára
Regína Ósk Óskars-
dóttir söngkona er
þrítug.
TÍMAMÓT 42
JÓLIN KOMA
Streitulaus jól
Sérblað um jól og jólahald
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ JÓLIN KOMA O.FL.
Þórunn Kjartansdóttirf
Hvetur aðra til dáða
Þórunn unir sér best í eldhúsinu. Hér er hún að elda fiski-súpu kokksins sem er tilvalinn forréttur.
JÓLASVEINADANSDansjólasveinninn Kláus býður upp á nýjan dans á hverjum degi í desember.
JÓL 3
SKÖTUVEISLAÞeir sem vilja borða skötu á Þorláksmessu en líkar ekki lyktin geta skellt sér á skötuhlað-borð.
JÓL 2
FR
ÉTTAB
LA
Ð
IÐ
/VALLI
jólin komaFÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2007 Mín mæta MaríuvísaAuður Ólafsdóttir rithöfundur tók nýlega kaþólska trú. BLS. 6ÞÓRUNN KJARTANSDÓTTIR
Hvetur alla
til dáða
matur jól
Í MIÐJU BLAÐSINS
Svarthvít
tilvera
Þórunn Högna-
dóttir í Innlit/Út-
lit opnar heimili
sitt.
FYLGIR FRÉTTA-
BLAÐINU Í DAG
Erfið stormviðratíð
Siggi stormur segir gráu hárunum
hafa fjölgað við að spá óveðri á
fætur óveðri.
FÓLK 70
VÆTA FYRIR HÁDEGI Í dag
verður sunnan strekkingur vestan til,
annars heldur hægari. Víða rigning
með morgninum, einkum sunnan
og vestan til, en úrkomulítið eftir
hádegi. Hiti 4-10 stig að deginum.
VEÐUR 4
WWW.E-LABEL.IS
TÓNLIST Tónlistarmaðurinn Örn
Elías Guðmundsson, Mugison, á
bestu íslensku plötu þessa árs.
Þetta er
niðurstaða
sautján sér-
fræðinga
Fréttablaðsins.
Platan, Mugi-
boogie, fékk
yfirburðakosn-
ingu sem besta
platan. Fyrstu
plötur Sprengju-
hallarinnar og
Hjaltalín urðu í
öðru og þriðja
sæti kjörsins.
Báðar plötur
Megasar
komust inn á topp tíu.
Mugison var ánægður með
niðurstöðuna þegar Fréttablaðið
ræddi við hann: „Ég veit ekki
hvort þetta er einhver hunda-
heppni eða hvort fólk er að gera
mér aumingjagreiða,“ sagði
hann. - hdm/ sjá síðu 52
Sérfræðingar Fréttablaðsins:
Mugiboogie
plata ársins
MUGISON
Gefst ekki upp
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari
kvennaliðs Stjörnunnar,
hefur kært dóm aga-
nefndar yfir sér og er
til í að fara með
málið fyrir al-
menna dómstóla
reynist þess þörf.
ÍÞRÓTTIR 64
MENNING „Svo ég segi bara mína skoðun þá eru
ákveðnar helgimyndir eða stólpar innan Ríkisútvarps-
ins. Maður hreyfir ekki við skaupinu,“ segir Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra.
Eflaust sé það til marks um íhaldssemi hennar, en hún
hrífist bara ekkert af þeirri hugmynd yfirstjórnar
RÚV að selja auglýsingar inn í mitt áramótaskaup.
Yfirmenn RÚV hafi vissulega lagaheimild til þessa,
en þeir eigi að stíga gætilega til jarðar.
„Skaupið er hluti af því að byggja upp góða ímynd
Ríkisútvarpsins og styrkir það. Eitthvað um 95
prósent þjóðarinnar sameinast fyrir framan sjón-
varpið til að horfa á skaupið. Þá verða menn að fara
varlega,“ segir hún.
Spurð hvort þetta verði framtíð skaupsins segir
Þorgerður að dagskrárvaldið sé ekki í hennar
höndum. Hins vegar sé ákvörðunin ekki komin í gegn.
„Og það getur vel verið að þeir breyti þessu, ég veit
ekki hvaða samningar búa þarna að baki. En mér
finnst þetta afar óheppilegt svo vægt sé til orða
tekið.“ Þorgerður ræðir málin nánar í helgarviðtali
við Fréttablaðið á morgun. - kóþ
Menntamálaráðherra hvetur til þess að varlega sé farið með stólpa Ríkisútvarps:
Maður hreyfir ekki við skaupinu
VEÐRIÐ Í
Slökkviliðið kallað á vettvang:
Eiturefni láku
úr plastkeri
UMHVERFISSLYS Um tvö hundruð
lítrar af efni sem inniheldur 53
prósent af saltsýru lak úr
plastkeri við fyrirtækið Tandur á
Hesthálsi í gær. Kerið var í gámi
og urðu starfsmenn Tandurs
varir við lekann þegar þeir
opnuðu hann.
„Það skapaðist aldrei hætta en
þetta hefði getað farið verr ef
lekinn hefði verið meiri eða ef
um sterkari blöndu hefði verið að
ræða,“ segir Birgir Örn Guð-
mundsson, gæðastjóri hjá Tandri.
Svo virðist sem kerið hafi
skemmst í sjóflutningum.
Saltpéturssýra er mikið notuð við
hreinsun í matvælaiðnaði. Að
sögn slökkviliðsins getur það
valdið miklum óþægindum í
augum, slímhimnum, öndunar-
færum og jafnvel í húð ef
blandan er sterk. - jse
STJÓRNSÝSLA Árni Mathiesen, settur
dómsmálaráðherra, skipaði í gær
Þorstein Davíðsson, fyrrverandi
pólitískan aðstoðarmann Björns
Bjarnasonar dómsmálaráðherra, í
embætti héraðsdómara. Þorsteinn
er sonur Davíðs Oddssonar seðla-
bankastjóra.
Nefnd sem metur hæfi umsækj-
enda í héraðsdóm taldi þrjá
umsækjendur hæfari í starfið en
Þorstein. „Ég veit ekki til þess að
áður hafi verið gengið í berhögg
við umsögn nefndar innar með
þessum hætti,“ segir Eggert
Óskars son, einn nefndarmanna.
Þrír skipa nefndina; einn til-
nefndur af hæstarétti, annar af
dómurum og þriðji af lögmönnum.
Þeir skipa umsækjendum í fjóra
flokka; óhæfur, hæfur, vel hæfur
eða mjög vel hæfur.
Umsækjendurnir Guðmundur
Kristjánsson hæstaréttarlög maður,
Halldór Björnsson, aðstoðar maður
hæstaréttardómara, og Pétur Dam
Leifsson lektor voru allir metnir
„mjög vel hæfir“ af nefndinni.
Ragnheiður Jónsdóttir, fulltrúi
sýslumanns, og Þorsteinn voru
metin „hæf“.
„Ég er ósammála hæfnis-
umsögnunum,“ segir Árni
Mathiesen. „Ráðherranum er ætlað
að skipa, en dómnefndinni að gefa
umsögn.“
Árni telur skipta miklu máli að
Þorsteinn hafi verið aðstoðar maður
Björns, það gefi honum víðtæka
reynslu, sem ekki margir hafi.
„Hann hefur verið aðstoðarmaður
héraðsdómara, hann er saksóknari
og deildarstjóri hjá lögreglustjóra-
embætti höfuðborgarsvæðisins,“
segir Árni. Við síðasta starfinu tók
Þorsteinn í haust.
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra skipaði Árna settan dóms-
málaráðherra í málinu. Árni hefur
setið í ríkisstjórn með Birni Bjarna-
syni frá 1999 og sat með Davíð
Oddssyni í sex ár.
Þorsteinn hefur störf í janúar
með 75 prósenta starfsskyldu í hér-
aðsdómi Norðurlands eystra og 25
prósent í héraðsdómi Austur lands.
- sgj
Valinn héraðsdómari
fram yfir þrjá hæfari
Árni Mathiesen skipaði í gær Þorstein Davíðsson í embætti héraðsdómara.
Matsnefnd úrskurðaði þrjá umsækjendur hæfari en Þorstein. Árni er ósammála
og segir reynslu Þorsteins sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra skipta miklu.
SLÖKKVILIÐSMENN HREINSA EITUREFNI Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna eiturefnaslyss við Hestháls um klukkan
þrjú í gær. Engin hætta var á ferðinni en að sögn slökkviliðsmanna var mikið mildi að veður var stillt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
21 DES
Þórunn Högnadóttir sjónvarpskona opnar heimili sittSTÍLHREINT OG SMART