Fréttablaðið - 08.02.2008, Síða 11

Fréttablaðið - 08.02.2008, Síða 11
FÖSTUDAGUR 8. febrúar 2008 11 DANMÖRK Nyhedsavisen er nú mest lesna dagblaðið í Danmörku. Í frétt á viðskiptavefnum business.dk kemur fram að í janúar lásu 604 þúsund Danir blaðið á hverjum degi. „Það er frábært að við erum í fyrsta sæti. Nú höldum við áfram,“ er haft eftir Morten Nissen Nielsen, forstjóra á Nyhedsavisen. Nielsen hafnar því að það hafi hvetjandi áhrif á tölurnar að Nyhedsavisen sé í þann mund að fara að segja upp „helmingnum af starfsmönnum á ritstjórn og loki dreifingunni í Óðinsvéum,“ eins og segir í fréttinni á vefnum. „Þessu upplagi er dreift annars staðar í landinu svo að við höld- um upplaginu í meira en 500 þús- und blöðum.“ Í kynningu til fjárfestanna hafa stjórnendur Nyhedsavisen látið í ljós væntingar um að ná 700 þús- und lesendum í maí og 800 þús- und lesendum í nóvember. Mor- ten Nissen Nielsen vill ekkert ræða um þau markmið. „Ég vil bara segja að ég er númer eitt,“ segir hann. Næstflestir lesa 24 timer eða 554 þúsund manns en það blað hefur minnkað upplagið og dregið úr dreifingunni síðustu mánuði. Jyllands-Posten kemur í þriðja sæti með 508 þúsund manna dag- legan lestur og MetroXpress er í fjórða sæti með 501 þúsund lesendur á hverjum degi. - ghs Ný lesendakönnun sýnir yfirburðastöðu Nyhedsavisen í Danmörku: Mest lesna dagblaðið í Danmörku ÁTTA STÆRSTU BLÖÐIN Dagblöð fjöldi lesenda Nyhedsavisen 604.000 24 timer 554.000 Jyllands-Posten 508.000 MetroXpress 501.000 Politiken 456.000 Urban 428.000 Ekstra Bladet 421.000 B.T. 386.000 Heimild: www.business.dk YFIR SEX HUNDRUÐ ÞÚSUND Meira en sex hundruð þúsund manns lásu Nyhedsavisen daglega í janúar. TAÍLAND, AP Ár rottunnar gekk í garð í gær samkvæmt kínversku dagatali og stendur til 29. janúar 2009. Í tilefni undirbúnings hátíðarhalda hins nýja árs rýkur rottukjöt af nýslátruðu út. Rotturn- ar eru veiddar á hrísgrjónaökrum og eru því hreinni, kjötmeiri og fitusnauðari en ættingjar þeirra af ruslahaugum borganna. Rottukjöts- básar eru nú almenn sjón við vegarkanta hraðbrauta. Kílóið kostar um 320 íslenskar krónur. Fólk frá fátækum sveitahéruðum þekkir þetta þó vel því það hefur lengi nýtt sér rottukjöt yfir vetrartímann þegar lítið er um mat. - kka Ár rottunnar: Hrátt rottukjöt aldrei vinsælla ALÞINGI Hugmyndir um jarðgöng til Vestmannaeyja voru til umræðu á fundi samgöngu- nefndar Alþingis í gær. Nefndin hafði ekki áður fengið kynningu á málinu og segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir formaður að nefndin ætli í framtíðinni að eiga oftar frumkvæði að því að taka upp mál. Slíkt sé til þess fallið að styrkja störf þingsins. Árni Þór Sigurðsson, VG, segir Eyjagöng ekki vera í neinum sérstökum pólitískum farvegi og að langt sé í að taka þurfi afstöðu til málsins. - bþs Eyjagöng rædd í þingnefnd: Langt í að taka þurfi afstöðu STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR LEIKSKÓLAR Ástandið í leikskóla- málum í Reykjavík hefur batnað. Ráðið hefur verið í um fimmtíu stöðugildi á leikskólum borgar- innar, gróflega áætlað, þannig að nú vantar fólk í um áttatíu stöðugildi. Fólk vantaði í 130 stöðugildi um síðustu áramót. Ingunn Gísladóttir, starfs- mannastjóri á leikskólasviði, segir að dregið hafi úr lokunum deilda á leikskólum þar sem ástandið hafi verið verst enda séu nýir starfsmenn óðum að taka til starfa. Nú þurfi aðeins þrír til fjórir leikskólar að senda börn heim og það færri daga en áður. - ghs Leikskólar í Reykjavík: Ráðið í fimmtíu stöðugildi ALÞINGI Það er fjármálaráðherra sem fer með forræði kjarasamn- inga fyrir hönd ríkisins. Sjónar- mið menntamálaráðherra í þeim efnum eru því ekki sjónarmið ríkisstjórnar- innar. Þetta sagði Árni M. Mathiesen fjár- málaráðherra á Alþingi í gær. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, innti hann eftir stefnumótun stjórnarinnar í kjaraviðræðum í ljósi yfirlýs- inga Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráð- herra á fundi með samflokks- mönnum sínum á laugardag. Þar sagði hún að hækka þyrfti laun kennara. - bþs Árni M. Mathiesen: Ljóst hver fer með forræði kjarasamninga ÁRNI M. MATHIESEN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.