Fréttablaðið - 08.02.2008, Síða 42

Fréttablaðið - 08.02.2008, Síða 42
 8. FEBRÚAR 2008 FÖSTUDAGUR Bodyshaker er undratæki sem er að ryðja sér til rúms á líkams- ræktarmarkaðnum en því er haldið fram að tíu mínútur í því jafnist á við klukkutíma hlaupa- æfingu. Stjörnur á borð við Madonnu og Claudiu Schiffer og leikmenn Manchester United eru sagðir nota tækið til að halda sér í góðu formi. Að halda sér í formi er auðvelt ef maður hefur tíma til þess. Mörgum reynist þó þrautinni þyngri að koma æfingum inn í tímaáætlun dagsins. Því hafa frumkvöðlar í framleiðslu á líkamsræktartækjum púlað við að hanna og framleiða tæki sem henta hraða nútímans og svo gæti verið að lausnin sé fundin. Fyrir nokkru kom á markaðinn tæki sem hristir mann í form. Erlendis er þetta tæki kallað Bodyshaker eða Vibration Plate, en blaðamanni Fréttablaðsins finnst íslenska þýðingin vöðva- víbrinn við hæfi þar til málsnyrt- ar landsins finna hentugra heiti. Vöðvavíbrinn er þannig hann- aður að tíu mínutur í tækinu eiga að jafnast á við klukku- tíma hlaupa- æfingu og samkvæmt heimasíðu Bodyshaker, www.bodyshaker.com og www. powerplate.com vinnur tækið á öllum vöðvaflokkum líkamans, þökk sé hristingnum sem heldur stöðugu áreiti á vöðvana meðan þolandinn er í tækinu. Styrking líkamans er þó ekki það eina sem vöðvavíbrinn gerir því framleiðendur tækisins halda því fram að hann vinni á app- elsínuhúð, haldi öldrunarein- kennum húðarinnar í skefj- um, auki úthald og haldi fólki almennt í góðu skapi. Tæknin var þróuð af rúss- neskum vísinda- manni sem hann- aði fyrstu útgáf- una fyrir geimfara. Hugmyndin var sú að geimfararnir gætu notað tækið án mikillar áreynslu á ferðum sínum til að fyrirbyggja vöðvarýrnun. Síðar greip Hollendingur hugmyndina á lofti og hóf framleiðslu á tækinu fyrir almennan markað. Stjörnur á borð við söngkonuna Madonnu, fyrirsætuna Claudiu Schiffer og nánast allir meðlimir fótbolta- liðsins Manchester United eru meðal þeirra sem hafa notað þetta nýja tæki til að koma sér í form. Þess má geta að sumir sér- fræðingar telja að tækið eitt og sér komi þó ekki í stað venjulegra líkams- æfinga. Því megi ekki líta á það sem kraftaverkalausn sem komi mönnum í form á sem skemmstum tíma. Hins vegar telja sér- fræðingarnir gott að nota það í bland við önnur tæki ásamt því að æfa. Vöðvavíbrinn hefur þegar verið tekinn í notkun á líkamsræktarstöðvum hérlendis. Sennilega verð- ur þess ekki langt að bíða að hægt verði að kaupa tækið inn á hvert heimili og halda allri fjölskyldunni í formi á meðan horft er á fréttirnar. - kk Tæki sem hristir og kætir Vöðvavíbrinn á að styrkja vöðvana, vinna á appelsínuhúð, halda öldrunarmerkjum húðarinnar í skefjum, auka úthald og koma fólki í gott skap. Upphaflega hannaði rússneskur vísindamaður vöðvavíbrann fyrir geimfara. Hollendingur greip hugmyndina á lofti og markaðs- setti tækið fyrir almennan markað. Ferðamannabólusetningar og ráðgjöf tímapantanir í síma: 535-7700 Læknasetrið Mjódd, Þönglabakka 1 www.ferdavernd.is ferdavernd@ferdavernd.is ferðavernd Ferðamannabólusetningar og ráðgjöf tímapantanir í síma: 535-7700 Læknasetrið Mjódd, Þönglabakka 1 www.ferdavernd.is ferdavernd@ferdavernd.is ferðavernd S. 440-1800 www.kælitækni.is Okkar þekking nýtist þér ... Blandarinn sem allir eru að tala um! Mylur alla ávexti, grænmeti klaka og nánast hvað sem er Hnoðar deig Býr til heita súpu og ís Hraðastillir Lífstíðareign! Verð kr. 53.974 Uppskriftarbók og DVD diskur fylgir frunsuplástur! Nýjung - Byltingarkenndur plástur Fæst í apótekum www.compeed.com Umbo›s- og sölua›ili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is Birkiaska Efalex eflir einbeitingu og sjón og stuðlar þannig að betri námsárangri. Vönduð blanda fiski- og kvöldvorrósarolíu sem eflir og styrkir: • Hugsun • Einbeitingu • Sjón • Hormónajafnvægi Einstakt gegn lesblindu og ofvirkni. Hentar fólki á öllum aldri. Fæst í fljótandi formi og hylkjum í lyfja- og heilsuverslunum. Efalex er einstök samsetning úr hreinni kvöldvorrósarolíu og fiskiolíu sem innihalda þrjár mikilvægar fitusýrur, DHA, AA og GLA ásamt tveimur öflugum andoxunarefnum, E-vítamíni og tímían olíu sem vinna saman að viðhaldi lífsnauðsynlegra fitusýra í líkamanum. Nægt magn þessarra olía í líkamanum stuðla að skarpari hugsun og betri einbeitingu sem eykur færni okkar til þess að læra. Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.