Fréttablaðið - 18.03.2008, Blaðsíða 56
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
Þverflauta er töff hljóðfæri, um það hef ég aldrei efast enda spil-
að á slíkan grip af miklum móð í
gegnum tíðina. Í kringum fermingu
var ég þó orðin ögn þreytt á enda-
lausum laglínum sænska tónsmiðs-
ins Bellmans sem skólabækurnar
innihéldu og áhuginn dofnaði í öfugu
hlutfalli við áhuga á strákum og
reykingum. Líklega tafði fátt för
mína að partíum jafn mikið og kaup
á bók sem innihélt útfærslur Bítla-
laga fyrir flautu.
LENNON var lengi minn maður í
Bítlunum. Hann höfðar jú frekar til
uppreisnargjarnra unglinga sem
aðeins hafa eitt markmið, að gæta
sín á að gera engum til hæfis. Lög
hans stúderaði ég út í óendanleik-
ann. En lagasmíðar McCartneys
afgreiddi ég sem smáborgararusl,
enda var lagið Ob-la-di, ob-la-da
spilað í Life Goes On, sykurvellunni
um Corky Thatcher og fjölskyldu.
Síðar á ævinni hef ég æ betur áttað
mig á því að McCartney er minn
maður í Bítlunum.
MCCARTNEY var ófeiminn við að
semja um hversdagsvandamál
venjulega fólksins sem hægt er að
samsama sig án þess að hafa notað
ofskynjunarlyf. Því er nú haldið
fram að maðurinn sem samdi Yester-
day og Hey Jude hafi lamið einfætta
konu sína eins og harðfisk. Ég held
að það sé ekki fótur fyrir því.
PAUL var 24 ára þegar lagið When
I’m Sixty-Four tók að óma á plötu-
spilurum heimsins. Í laginu spyr
ástfangin ung manneskja maka sinn
hvort hann verði enn til staðar þegar
þau verða 64 ára og hvort þau muni
ekki hafa það ægilega notalegt
saman í sumarbústað ásamt barna-
börnunum. Lagið var sumsé fagur
óður til hversdagsfólks sem helst
dreymir um áhyggjulausa daga í
faðmi ástvina sinna og eins ólíkt óði
Lennons um eilífa jarðarberjaakra
sem kom út á sama tíma og elli-
smellurinn.
VESALINGS Paul verður 66 ára í
sumar og má nærri geta að spurn-
ingunum sem hann varpaði fram
sem unglingur hafi verið svarað á
annan veg en hann óskaði. Ég veit
þó ekki hvor var lánsamari af
Bítlunum, McCartney eða Lennon.
Sá fyrrnefndi er loksins sloppinn
undan fégráðugri skækju, nokkrum
milljörðum fátækari. Mig grunar þó
að Lennon hafi ekki enn náð úr sér
hrollinum sem hlaust af því að fylgj-
ast með ekkju sinni úti í Viðey með
vasaljós og Villa í haust. Öll hjálpar-
meðul Lúsíu í skýjum með demanta
gætu ekki slegið á aulahrollinn sem
þessu fylgdi og hefur fylgt vesal-
ings Sjálfstæðisflokknum í borginni
allar götur síðan.
Hetja okkar
smáborgara
• Öflug 170 hestafla dísilvél
• Ný og glæsileg innrétting
• Hátt og lágt drif
• 5 þrepa sjálfskipting
• ESP stöðugleikastýring
• 16" álfelgur
• Vindskeið og þokuljós
• Hraðastillir
• Þakbogar
• 3.500 kg dráttargeta
FÁRÁNLEGA
GÓÐ JEPPAKAUP
„Nýr Kia Sorento er magnaður jeppi. Maður þarf ekki að vera kjarneðlisfræðingur
til að sjá að þetta eru ekki bara góð kaup. Þetta eru fáránlega góð kaup“.
KIA • Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is KIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
+ Garmin GPS 250 W EURO með Ísla
ndskorti
+ Dráttarbeisli
+ Vetrardekk
GLÆSILEGUR AUKAPAKKI FYLGIR:
Ó
!
·
11
26
0
7.34 13.36 19.38
7.19 13.20 19.23
Í dag er þriðjudagurinn 18. mars,
78. dagur ársins.