Fréttablaðið - 07.04.2008, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 07.04.2008, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 7. apríl 2008 15 UMRÆÐAN Heilbrigðismál Líkt og margir aðrir svæfingar-hjúkrunarfræðingar stend ég á vissum tímamótum á mínum starfsferli. Vinnuveitandi minn hefur farið fram á að ég lækki verulega í launum samfara auk- inni vinnubyrði, allt í nafni hag- ræðingar og fjölskylduverndar. Þar sem hjúkrunarfræðingar eru þegar vanlaunaðir miðað við menntun og ábyrgð er það ekkert annað en móðgun við stéttina að skerða kjörin. Stjórnvöld halda LSH í fjár- svelti til að réttlæta aukna einka- væðingu. Bornar eru saman tölur úr einkarekstri og ríkisreknum spítalarekstri þar sem skiljanlega hallar verulega á spítalann. Gerð- ar eru kröfur um frekari sparnað ár eftir ár án skerðingar á þjón- ustu og þegar botninum er náð er seilst í vasa starfsfólks. Öfugt við það sem gildir í einkarekstri þá ráðum við ekki okkar sjúklinga- hópi. Sem betur fer þá tökum við við öllum sem þurfa þess með. Við förum ekki fram á visst heilbrigði til að sjúklingurinn komist að og krafa um heimferð samdægurs er ekki uppi á borðinu. Heilbrigðis- kerfið í þeirri mynd sem við þekkj- um það er einn af hornsteinum samfélagsþjónustunnar. Við hljót- um að vilja standa vörð um það. Svæfingarhjúkrunarfræðingar eru að meðaltali með hæsta starfs- aldur innan hjúkrunar. Þetta hefur verið mjög vinsælt svið og oft hafa færri komist að en vilja. Vinnutíminn hefur haft þar mikið að segja. Æ erfiðara er að manna stöður innan hjúkrunar þar sem vaktavinnu er krafist. Fólk sækir í fjölskylduvænni störf þar sem samvera við fjölskyldu á kvöldin og um helgar er sett í öndvegi. Því er það mér óskiljan- legt af hverju tillögur LSH lúta í þá átt að færa vinnutilhögun í átt að vaktavinnu og starfsemi skurðstof- anna sett í uppnám. Stjórnendum LSH hefur brugðist boga- listin þegar kemur að mannauðsstjórnun. Það er ekki nægjanlegt að einblína einvörð- ungu á tæknivædda steinsteypu því hún er einskis virði án þess mannauðs sem þar á að starfa. Þegar svona stórvægileg breyting er gerð á starfi og kjörum starfs- manna er grundvallaratriði að það sé gert í samráði við starfsmenn þannig að viðunandi lausn fáist sem allir geta sætt sig við. Það var ekki gert hér. Að auki voru breyt- ingarnar ekki fullmót- aðar og mátti túlka þær á ýmsa vegu. Það segir sig sjálft að það er óðs manns æði að sam- þykkja breytingar sem eru ekki fastmótaðar og túlkunar- atriði getur haft veruleg áhrif á fjárhagsafkomu einstaklings. Eftir uppsagnir 96 hjúkrunar- fræðinga af 104 af skurðstofum LSH var óskað eftir tillögum frá starfsfólki. Við hjúkrunarfræð- ingar getum ekki og viljum ekki koma með tillögur sem hafa í för með sér lækkuð laun og skerta þjónustu við sjúklinga. Þetta hefur þegar valdið mikilli gremju og úlfúð sem ekki sér fyrir endann á. Þónokkrir hugsa sér til hreyfings og mun þetta hafa neikvæð áhrif á starfsemina hver svo sem niður- staðan verður. Vel menntað og metnaðarfullt starfsfólk hlýtur að vera eftir- sóknarvert hverjum stjórnanda. Til að forðast atgervisflótta úr heilbrigðisstéttum þarf að meta fólk að verðleikum. Ég vænti þess að það verði stefna stjórnenda LSH um ókomna framtíð. Höfundur er svæfingarhjúkrunar- fræðingur. Mannauðsflótti vegna fjársveltis UMRÆÐAN Kjaramál Söguleg-um áfanga er náð í mannrétt- indabar- áttu öryrkja. Tengingu við tekjur maka var hætt í almanna- tryggingum nú um mánaðamótin í samræmi við stefnuyfirlýsingu rík- isstjórnarinnar. Þar með er endir bundinn á baráttu sem staðið hefur um langt árabil og af miklum þunga nú í á annan áratug. Þegar við horfum um öxl er það ótrúlegt að stórum hópi Íslendinga sem stríða þurfti við fötlun var jafnframt gert að leita til maka síns um að framfleyta sér ævilangt. Fólki voru ætlaðar innan við 20 þús- und krónur á mánuði til sinna þarfa og þegar Öryrkjabandalagið benti stjórnvöldum á ósómann var ekki farið í lagfæringar heldur varnar- stríð fyrir óréttlætið. Það stríð unnu öryrkjar í Hæstarétti eins og frægt varð og minnst verður um langa framtíð. Í þeim dómi voru staðfest grundvallaratriði um rétt hvers og eins til lífs og framfærslu. Eftir dóminn var dregið úr tekju- tengingunni, en henni eigi að síður viðhaldið. Með breytingunum nú er hún afnumin að fullu og öllu og hefur veruleg áhrif til kjarabóta fyrir þá sem minnstan stuðning hafa til þessa fengið úr almanna- tryggingakerfinu. Meirihluti þeirra sem breytingarinnar njóta eru konur því hinar ósanngjörnu teng- ingar við tekjur maka hafa í meira mæli bitnað á þeim. Það er oft á brattann að sækja í baráttu fyrir kjörum fátæks fólks og mannrétt- indum minnihlutahópa. Þeim mun meiri ástæða er til að fagna þegar varanlegir áfangar nást í þeirri bar- áttu eins og núna. Það breytir þó ekki því að betur má ef duga skal og verkefnið fram undan er að tryggja lífeyrishöfum almennt þær kjara- bætur sem fengust í kjarasamning- um. Höfundur er alþingismaður Samfylkingar í Reykjavík og öryrki. Sjálfstæð- ir öryrkjar ÞÓRA ÞRÁINSDÓTTIR Þegar við horfum um öxl er það ótrúlegt að stórum hópi Íslendinga sem stríða þurfti við fötlun var jafnframt gert að leita til maka síns um að framfleyta sér ævilangt. HELGI HJÖRVAR 0% 10% 20% 2003 2004 2005 2006 2007 2003 2004 2005 2006 2007 2003 2004 2005 2006 2007 2003 2004 2005 2006 2007 19,2 13,8 15,6 17,7 2,0 15,8 14,6 8,1 11,1 4,9 7,9 9,3 10,3 8,9 11,7 19,219,1 13,6 17,5 3,4 13,5 10,8 9,6 4,6 14,6 Ávöxtun Frjálsa lífeyrissjóðsins Markaðsaðstæður á árinu 2007 voru erfiðari en undanfarin ár. Verð hlutabréfa lækkaði á árinu en þó skiluðu allar fjárfestingarleiðir Frjálsa lífeyrissjóðsins jákvæðri ávöxtun. Þrátt fyrir áframhaldandi erfiðar markaðsaðstæður á fyrsta ársfjórðungi 2008 var ávöxtun allra fjárfestingarleiða jákvæð á því tímabili. Ávöxtun sjóðsins hefur verið góð síðastliðin fimm ár eins og sjá má á ofangreindri mynd. Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn 29. apríl nk. kl. 17.15 í höfuðstöðvum Kaupþings, Borgartúni 19. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar 2. Kynning ársreiknings 3. Tryggingafræðileg athugun 4. Fjárfestingarstefna sjóðsins 5. Kjör endurskoðanda 6. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins 7. Laun stjórnarmanna 8. Önnur mál FRJÁLSI LÍFEYRISSJÓÐURINN Meginniðurstöður ársreiknings 2007 í milljónum króna Efnahagsreikningur 31.12.2007 Eignir: Verðbréf með breytilegum tekjum 40.636 Verðbréf með föstum tekjum 24.052 Veðlán 553 Verðtryggður innlánsreikningur 0 Húseignir og lóðir 15 Fjárfestingar alls 65.256 Kröfur 222 Aðrar eignir 832 Eignir samtals 66.309 Skuldir (281) Hrein eign til greiðslu lífeyris 66.028 Yfirlit um breytingar á hreinni eign til greiðslu lífeyris fyrir árið 2007 Iðgjöld 5.635 Lífeyrir (1.055) Fjárfestingartekjur 2.124 Fjárfestingargjöld (201) Rekstrarkostnaður (89) Hækkun á hreinni eign á árinu 6.414 Hrein eign frá fyrra ári 59.614 Hrein eign til greiðslu lífeyris 66.028 Lífeyrisskuldbindingar skv. niðurstöðu tryggingafræðings 31.12.2007 Eignir umfram áfallnar skuldbindingar -41 Í hlutfalli af áföllnum skuldbindingum (%) -0,3% Eignir umfram heildarskuldbindingar 1.559 Í hlutfalli af heildarskuldbindingum (%) 3,8% Kennitölur Eignir í ísl. kr. (%) 71,1% Eignir í erl. mynt (%) 28,9% 1) Fjöldi virkra sjóðfélaga 10.994 Fjöldi sjóðfélaga í árslok 40.385 2) Fjöldi lífeyrisþega 1.055 1) Meðaltal fjölda sjóðfélaga sem greiddi iðgjald á árinu. 2) Meðaltal lífeyrisþega sem fékk greiddan lífeyri á árinu. Ávöxtun síðustu 5 ára Frjálsi 1 ,Frjálsi 2 9,6Frjálsi 3 1Tryggingadeild Frjálsi lífeyrissjóðurinn var valinn besti lífeyrissjóður Evrópu í flokknum Uppbygging lífeyrissjóða árið 2005 í árlegri keppni á vegum tímaritsins IPE (Investment & Pension Europe). Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins verða birtar á www.frjalsilif.is og verða aðgengilegar í höfuðstöðvum Kaupþings tveimur vikum fyrir ársfund. Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn. M eð al áv öx tu n M eð al áv öx tu n M eð al áv öx tu n M eð al áv öx tu n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.