Fréttablaðið - 07.04.2008, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 07.04.2008, Blaðsíða 18
18 7. apríl 2008 MÁNUDAGUR MÁN timamot@frettabladid.is ADHD-samtökin sem nú fagna 20 ára afmæli hétu upphaflega Foreldrafé- lag misþroska barna. Samtökin eru til stuðnings börnum og fullorðnum með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar rask- anir sem falla undir ADHD, (Attention Deficit Hyperactivity Dis order.) Fé- lagar eru yfir eitt þúsund hér á landi. Að sögn Ingibjargar Karlsdóttur, for- manns samtakanna, berast beiðnir um inngöngu vikulega. En hvernig ætla samtökin að halda upp á afmælið? „Það er gaman að segja frá því að við ætlum að vera með opið hús á Háaleitisbraut 13 þar sem skrifstofa samtakanna er ásamt ráðgjafarmiðstöðinni Sjónarhóli og fleiri félögum. Fjórða hæðin verð- ur tekin undir teitið sem stendur milli klukkan 15 og 18. Þar verðum við með afmælistertu og fleira gott. Síðan verð- ur fræðslustund fléttað inn í afmælis- haldið. Dr. Urður Njarðvík sálfræðing- ur ætlar að flytja fyrirlestur kl. 16 um börn með ADHD og kvíða. Börn með athyglisbrest eru nefni- lega ekki öll ofvirk og með hegðun- arvanda heldur finnur ákveðinn hluti hópsins til kvíða, framtaksleysis og depurðar. Einnig getur fylgt árátta og þráhyggja. ADHD er svo flókið fyrir- brigði og hver og einn einstaklingur er með sína samsetningu af einkennum.“ Ingibjörg segir orðið misþroska hafa verið greiningarheitið yfir þetta allt saman í byrjun. „Svo fleygði rannsóknum fram. Þá komu ný hug- tök inn í,“ segir hún. „Nýjustu rann- sóknir benda til að heili í einstakling- um með ADHD sé um þremur árum á eftir í þroska fram yfir tvítugt. Þetta er samhljóða því sem margir foreldr- ar hafa haft á tilfinningunni lengi og skýrir heilmikið. Þetta er erfitt á upp- vaxtarárunum samtímis því að glíma við einkenni ofvirkninnar og athygl- isbrestsins. Lífið er ekki einfalt hjá þessu fólki.“ Yfir sjö prósent íslenskra barna greinast með ADHD samkvæmt rann- sóknum Íslenskrar erfðagreiningar. Ingibjörg segir kvillann arfgengan og hann fylgi mörgum til fullorðinsára. Það uppgötvaðist þó ekki fyrr en fyrir áratug. „Ef um ADHD er að ræða hjá barni er annað foreldrið með einhver einkenni í 40% tilfella,“ segir hún. „Við réðum sálfræðing í hálft starf því þegar þeir fullorðnu fara að takast á við sinn vanda og fá ráðgjöf þá skil- ar það sér til fjölskyldunnar í heild.“ Ingibjörg segir fólki oft létta við að fá greiningu á sínum vanda. „Þetta er fólk með eðlilega greind en hefur kannski ekki náð að nýta sína hæfi- leika því athyglisbrestseinkennin hafa truflað það í námi, starfi, samskiptum og samböndum.“ Þótt hvatvísi geti verið til vandræða þá getur líka fylgt mikill kraftur fólki með ADHD að sögn Ingibjargar. „Það er mjög mikilvægt að fólk finni sitt áhugasvið og vinni út frá styrkleikum sínum,“ tekur hún fram. „Þá finnur það oft leiðir til að minnka áhrif at- hyglisbrestsins og ná góðum árangri í lífinu.“ gun@frettabladid.is Togarinn Gulltoppur fann björgunarbát þennan dag árið 1941 með 32 (eða 33) manns um borð. Hann var um 45 sjómílur suðvest- ur af Reykjanesi. Mennirnir höfðu verið í bresku flutn- ingaskipi sem fórst er kaf- bátur sökkti því. Fjörutíu og tveir menn í tveimur björg- unarbátum af sama skipi náðu landi við Öndverðar- nes á Snæfellsnesi. Um þetta sama leyti fundu bátar frá Hellissandi björgunarbát frá öðru flutn- ingaskipi sem hafði verið skotið í kaf suður af Íslandi. Í þeim báti voru 16 Norð- menn. En fleiri skipbrots- menn björguðust vorið 1941 við Ísland eða fyrir at- beina Íslendinga eftir hrak- farir sem tengdust stríð- inu og þá einkum af völd- um kafbáta. Þann 1. apríl bjargaði togarinn Hilmir tíu mönnum af norsku olíu- skipi sem kafbátur hafði grandað við strendur Eng- lands. 5. maí bjargaði vél- báturinn Sigurfari 17 manns úr björgunarbáti fyrir vest- an land og Brúarfoss bjarg- aði 34 skiptbrotsmönnum af bresku skipi sem hafði verið sökkt við suðurodda Grænlands. ÞETTA GERÐIST: 7. APRÍL 1941 Bjargað eftir kafbátaárás MERKISATBURÐIR 1795 Frakkar taka upp metra- kerfið til lengdarmælinga. 1906 Sextíu og átta sjómenn farast á þremur reykvísk- um skipum á Faxaflóa, Ingvari, Emilie og Sophie Wheatley. 1906 Eldgos í Vesúvíusfjalli leggur Napólí í rúst. 1943 Laugarnesspítali í Reykja- vík brennur til kaldra kola. 1946 Sjúkrahús bandaríska hersins á Vogastapa brennur. 1963 Togarinn Millwood sigl- ir á varðskipið Óðin en skemmdir eru ekki veru- legar. 1963 Júgóslavía er lýst sósíal- istalýðveldi og Tító út- nefndur forseti til lífstíðar. MEGAS ER SEXTÍU OG ÞRIGGJA ÁRA Í DAG. „Það dæmir enginn tunglið eftir dimmu hliðinni.“ Megas heitir réttu nafni Magnús Þór og er Jóns- son. Hann er þjóðþekkt- ur fyrir snjalla texta og flutning sinn á þeim. Íslandspósturinn er einn meginstyrktaraðili átaks- ins Karlmenn og krabba- mein. Átakinu lauk nýlega og var það Krabbameinsfé- lag Íslands sem stóð fyrir því. Markmiðið var að vekja athygli á mikilvægi þess að karlar fylgist með einkenn- um krabbameins og bregð- ist rétt við þeim. Póstur- inn tók virkan þátt og voru slaufur til styrktar átakinu seldar í útibúum Póstsins. Einnig keypti fyrirtækið slaufur handa starfsmönn- um sínum og dreifði kynn- ingarbæklingum átaksins endurgjaldslaust í öll hús landsins. Framlag Póstsins til átaks Krabbameinsfélagsins var alls 2,4 milljónir króna sem Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, af- henti Guðrúnu Agnarsdótt- ur, forstjóra Krabbameins- félags Íslands, formlega í Ráðgjafarþjónustu Krabba- meinsfélagsins skömmu fyrir helgi. Af því tilefni sagðist Ingimundur fagna því að Krabbameinsfélag Ís- lands hafi farið af stað með átaksverkefnið Karlmenn og krabbamein. Hann sagði jafnframt Íslandspóst með gleði leggja sitt af mörkum til þessa mikilvæga verkefn- is. Og styður þannig í verki þetta mikilsverða forvarn- arstarf. „Íslandspóstur er mjög fjölmennur vinnustað- ur og okkur er mjög annt um okkar fólk. Við leggj- um mikla áherslu á heilsu- eflingu af ýmsu tagi. Stuðn- ingur við þetta verkefni Krabbameinsfélagsins fell- ur því vel að okkar stefnu- miðum,“ segir Ingimundur og bætir við að hann von- ist til að með átakinu takist að vekja athygli íslenskra karlmanna á mikilvægi for- varna á þessu sviði sem öðrum.Guðrún Agnarsdótt- ir, forstjóri Krabbameins- félags Íslands, tók fram að félaginu þætti dýrmætt að eiga samstarfsaðila eins og Póstinn. Þá kom einnig fram að Pósturinn hefur áður lið- sinnt félaginu myndarlega eins og nú við að dreifa mik- ilvægum skilaboðum til landsmanna. Átakið Karl- menn og krabbamein stóð yfir dagana 7. til 21. mars. Auk sölu slaufunnar var opnaður vefur á slóðinni www.karlmennogkrabba- mein.is. Pósturinn styrkir krabbameinsfélagið Söguslóðir 2008 - Getið í eyðurnar er yf- irskrift málþings á vegum Samtaka um sögutengda ferðaþjónustu, SSF. Þingið verður haldið 10. apríl næstkomandi í Þjóðmenningarhúsinu og er í samvinnu við iðnaðarráðuneyti og hagnýta menn- ingarmiðlun við Háskóla Íslands. Fjallað verður um söfn og sögusýn- ingar á Íslandi. Túlkun þeirra á sögu lands og þjóðar frá ýmsum sjónarhorn- um, auk þess sem danskir sérfræðing- ar miðla af reynslu sinni. Meðal þeirra sem ávarpa eru; Rögnvaldur Guð- mundsson, formaður SSF. Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri. Eggert Þór Bernharðsson, sagnfræðingur. Laurent Mazet-Harhoff, fornleifafræðingur hjá Lejre Forsøgscenter í Danmörku, Jutta Eberhards, leikstjórnandi hjá Lejre Forsøgscenter í Danmörku, Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur og lektor við HÍ og stjórnandi Skriðu- klaustursrannsókna, Helmut Lugmayr, leiðsögumaður og ferðaskipuleggjandi, Már Jónsson sagnfræðingur, Brynhild- ur Guðjónsdóttir, leikari og höfundur, Björn G. Björnsson sýningahönnuður, Þór Vigfússon, sagnamaður og fyrr- verandi skólameistari, og Skúli Björn Gunnarsson. Fundarstjóri er Ásborg Arnþórsdóttir. Málþingsgjald er 3.000 kr eða 1000 kr fyrir nemendur og fé- laga í SSF. Kaffiveitingar innifaldar. Skráning hjá Kristínu Sóleyju Björns- dóttur. ksb@akmus.is Málþingið Söguslóðir 2008 SÖGUTENGD FERÐAÞJÓNUSTA Fræðsla upplif- un og menning er sífellt tengdari ferðaþjón- ustu. Ísland hefur þar margt að bjóða sem rætt verður um á málþinginu. DÝRMÆTIR SAMSTARFSAÐILAR Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, afhendir Guðrúnu Agnarsdóttur, forstjóra Krabbameins- félags Íslands, styrkinn. ADHD-SAMTÖKIN Á ÍSLANDI: FAGNA TUTTUGU ÁRUM MEÐ OPNU HÚSI Í DAG Svo fleygði rannsóknum fram INGIBJÖRG KARLSDÓTTIR, FORMAÐUR ADHD-SAMTAKANNA. „Nýjustu rannsóknir benda til að heili barna með athyglisbrest sé um þremur árum á eftir í þroska fram yfir tvítugt.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdadóttir, systir og mágkona, Bára Traustadóttir frá Fáskrúðsfirði, Kjarrhólma 20, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðviku- daginn 2. apríl. Útförin fer fram frá Hjallakirkju mið- vikudaginn 9. apríl kl. 15.00. Guðbjartur Guðbjartsson Ívar Örn Róbertsson Sigurvin Guðbjartsson María Jóhannesdóttir Ottó Valur Kristjánsson Margrét Samsonardóttir Sjöfn Traustadóttir Eysteinn Stefánsson Óðinn Traustason Guðrún Erlendsdóttir Þórir Traustason Aðalheiður Sigurbjörnsdóttir Björg Traustadóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.