Fréttablaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 68
36 24. apríl 2008 FIMMTUDAGUR Páskauppreisnin var vopn- uð uppreisn af hálfu Íra gegn breskum yfirráðum á Írlandi. Uppreisnin hófst 24. apríl á öðrum degi páska. Með henni vildu herskáir lýð- veldissinnar ná fram sjálfstæði Ír- lands með valdi. Það var ,,Hið írska bræðralag lýðveldisins” sem skipulagði uppreisnina. Þeir tóku yfir pósthús borgarinnar og lýstu þar yfir sjálfstæði Írlands. Lýðveldissinnarnir náðu smátt og smátt yfirráðum víðs vegar um borgina. Bretar sneru vörn í sókn og nokkrum dögum seinna var uppreisnin brotin á bak aftur. Uppreisnarmennirnir nutu ekki mikils stuðnings meðal almenn- ings, því litið var á þá sem óá- byrga ævintýramenn. Almenn- ingsálitið snerist þó á sveif með uppreisnarmönnunum eftir að það spurðist út að fimmtán þeirra höfðu verið teknir af lífi. Vopnuð átök héldu áfram næstu árin og Írar fögnuðu svo sjálf- stæði árið 1922 með stofnun lýðveldis. ÞETTA GERÐIST: 24. APRÍL 1915 Uppreisn á ÍrlandiKELLY CLARKSON TÓNLISTAR-KONA ER 26 ÁRA. „Guð mun aldrei láta þig fá eitthvað í hendurnar sem þú ræður ekki við. Svo ekki hafa neinar áhyggjur.“ Kelly Clarkson hefur gert garð- inn frægan á söngsviðinu. Hún var fyrsti keppandinn sem sigr- aði í Idol-keppninni í Banda- ríkjunum, sem nýttist henni til frægðar og frama. Eden í Hveragerði þekkja allir Íslendingar sem hafa tekið sunnudagsbíltúr austur fyrir fjall. Enda vinsælt að stoppa þar og rétta aðeins úr sér. Nú eru fimmtíu ár liðin frá stofn- un Eden og því verður fagnað með pompi og prakt. „Ég tók við rekstrinum í mars síðastliðnum en þá opnaði Eden aftur eftir mikla andlitslyftingu,“ segir Arnþór Jón Egilsson, rekstrarstjóri Eden. Lokað hefur verið í allan vetur og var opnað aftur í mars. Margir nýir hlutir hafa komið inn og aðrir verið endurnýjaðir. Mjög vel hefur gengið eftir að Eden opnaði og tölur sýna að fjöldi gesta hefur aukist frá sama tíma fyrir ári. „Við höfum fengið mjög góðar viðtökur hvað varðar breyt- ingarnar og það er hið besta mál og trúlega ástæðan fyrir þessari aukningu á gestunum. Við búumst við góðu sumri. Frá upphafi hafa aðeins tveir eigendur verið á Eden og segir það um ágæti rekstursins. Sumardaginn fyrsta verður mikið um dýrðir en þá eru fimmtíu ár frá því að Bragi Einarsson stofnaði Eden en hann rak Eden og átti í 48 ár. Fyrir tveim- ur árum keypti Egill Gunnar Jónsson Eden og tók við rekstr- inum og nú í vetur var farið í þessar endurbætur á staðnum. Hjá Eden hefur Valgerður eða Gógó unnið í eldhúsinu í heil þrjátíu og sex ár. Í eldhúsinu hefur hún stjórnað alveg snilld- arlega og er enn á fullu,“ útskýrir Arnþór. Á hverju ári heimsækja þrjú hundruð og fimmtíu til fjög- ur hundruð þúsund manns Eden og sú tala hefur hækkað ár frá ári. Erlendir ferðamenn eru þar stór hluti enda vin- sæll áfangastaður fyrir ferðamenn sem fara hinn svokallaða Gullna hring. Breytingarnar felast í því að svæðið fyrir al- menning hefur stækkað. „Við höfum einnig stækkað gróð- urhúsið og komið fyrir leiktækjum fyrir börnin. Við höfum endurnýjað alla klósettaðstöðuna og opnað inn í gróðurhúsið. Verslun með minjagripi er enn til staðar og eru það erlendir ferðamenn sem sækja í hana þó að nokkrir Íslendingar séu þarna inn á milli,“ segir Arnþór. Í Eden starfa frá tíu til þrjátíu manns. Yfir veturinn er auðvitað minna að gera og vinna þá um tíu en á sumrin þre- faldast sú tala og þrjátíu manns sinna því ýmsum þjónustu- störfum sem til falla í eldhúsinu, verslun og sjoppunni. „Apinn Bóbó er ennþá í fullu fjöri og stendur fyrir sínu og er alltaf jafn vinsæll hjá yngri kynslóðinni. Það má segja að Bóbó karlinn sé ódauðlegur og verður til staðar svo lengi sem Eden verður til,“ útskýrir Arnþór. Sumardaginn fyrsta verður þessu fimmtíu ára afmæli staðarins fagnað með ýmsum uppákomum í Eden. Því er kjörið tækifæri að skella sér í Eden og sjá herlegheitin, fá sér ís eða aðrar veitingar og ekki má gleyma að heilsa upp á hann Bóbó. mikael@frettabladid.is EDEN Í HVERAGERÐI: FAGNAR 50 ÁRA AFMÆLI Í DAG Vinsælt á leiðinni austur BÓBÓ ENN Í FULLU FJÖRI Arnþór Jón Egilsson, rekstrarstjóri Eden, segir apann Bóbó alltaf jafn vinsælan hjá yngri kynslóðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Gyða Vestmann Einarsdóttir er lést 16. apríl sl. verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 25. apríl kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Hjartavernd. Anna Björg Þorláksdóttir Stefán Böðvarsson Þór Þorláksson Áslaug Gunnarsdóttir Einar Þorláksson Margrét Thelma Guðjónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Arnbjörg Hermannsdóttir Ólafsbraut 30, Ólafsvík, andaðist á Dvalarheimilinu Jaðri, Ólafsvík, miðviku- daginn 16. apríl. Útförin fer fram frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 26. apríl kl. 14.00. Gylfi K. Magnússon Guðrún Blöndal Elísabet Magnúsdóttir Björg Magnúsdóttir Einar Kristjánsson Hermann Magnússon Svanhildur Pálsdóttir Trausti Magnússon Jóhanna K. Gunnarsdóttir Steinþór Magnússon Sigrún Harðardóttir Ágústa Magnúsdóttir Jón Guðmundsson Svanur Magnússon María S. Pétursdóttir Kristín Magnúsdóttir Jón Axelsson ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Þorkell Páll Pálsson lést laugardaginn 19. apríl. Útför fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 2. maí kl. 13.00. Þórhildur Lilja Þorkelsdóttir Jón Gunnar Þorkelsson Sigrún Haraldsdóttir Herdís Þorkelsdóttir Einar Einarsson Ágústa Þorkelsdóttir Ólafur H. Óskarsson Páll Vikar Þorkelsson Lilja Þorkelsdóttir Garpur Dagsson og afabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, Bjarni Hlíðkvist Jóhannsson Blásölum 24, Kópavogi, sem andaðist á Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi, sunnudaginn 20. apríl, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju mánudaginn 28. apríl kl. 13.00. Guðný Þorgeirsdóttir Íris Bjarnadóttir Kristmar Ólafsson Jóhann Bjarnason Sigríður Vilhjálmsdóttir Björgvin Bjarnason Guðbjörg Elín Þrastarsdóttir Skúli Eyjólfur Bjarnason Guðný Bjarnadóttir Sveinbjörn Sigurðsson Guðrún Bjarnadóttir Þorgeir Reynisson Hjördís Bjarnadóttir Ingi Þór Guðmundsson afa- og langafabörn. Hjartans þakkir færum við öllum sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við fráfall okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengda- móður, ömmu og systur, Kristínar Marteinsdóttur Hafraholti 30, Ísafirði. Einnig þökkum við ómetanlega hjálp frá ættingjum og vinum. Svanbjörn Tryggvason Brynjar Svanbjörnsson Bára Berg Sævarsdóttir Marteinn Svanbjörnsson Elín Hólm Tryggvi Svanbjörnsson Aron Svanbjörnsson barnabörn, systkini og fjölskyldur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, Björg Rögnvaldsdóttir frá Miðfirði í V-Húnavatnssýslu, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði 22. apríl sl. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 3. maí kl. 14.00. Guðfinna Margrét Óskarsdóttir Stefán Dan Óskarsson Rannveig Hestnes Brynjólfur Óskarsson Selma Olsen Rögnvaldur Þór Óskarsson Védís Geirsdóttir Már Óskarsson Bryndís G. Friðgeirsdóttir Arnar Óskarsson Anna Magnea Hreinsdóttir og ömmubörnin. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Einar A. Evensen sem andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi þann 18. apríl sl. verður jarðsunginn frá Blönduóskirkju laugardaginn 26. apríl kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Orgelsjóð Blönduóskirkju eða að leyfa Parkinsons-samtökunum að njóta þess. Anne Jóhannesdóttir Erla B. Evensen Guðmundur Haraldsson Þorvaldur I. Evensen Charlotta Evensen Jóhann K. Evensen Elísabet Jónsdóttir afabörn og langafabörn. LEGSTEINAR OG FYLGIHLUTIR Mikið úrval Yfi r 40 ára reynsla Sendum myndalista Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ingibjörg Pálsdóttir frá Björk, Grímsnesi, Grænumörk 5, Selfossi, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 26. apríl kl 15.30. Jarðsett verður að Stóru-Borg. Guðrún Tryggvadóttir Hörður Smári Þorsteinsson Tómas Tryggvason Þórdís Pálmadóttir Páll Tryggvason Sigríður Björnsdóttir barnabörn og langömmubörn. timamot@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.