Fréttablaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 30
HEIMILISHALD
HREFNA SIGURJÓNSDÓTTIR
● Forsíðumynd: Auðunn Níelsson tók mynd á heimili Bryn-
hildar Guðmundsdóttur Útgáfufélag: 365 miðlar ehf., Skafta-
hlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Roald Eyvindsson
roald@frettabladid.is, Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.
is Auglýsingar: Hlynur Þór Steingrímsson s. 512 5439 Útlits-
hönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is.
● heimili&hönnun
Silja Hendriksdóttir, nemi á
hönnunar- og listabraut Iðnskól-
ans í Hafnarfirði, er listræn að
eðlisfari og hefur lengi lagt stund
á myndlist. Hún fær líka útrás
fyrir áhugann með ýmsu öðru
móti, meðal annars með söfn-
un staupglasa, sem eru í mestu
uppáhaldi hjá henni heima fyrir.
„Ég keypti mér nokkur glös í
byrjun og svo fór ég að fá fleiri
frá öðrum löndum,“ segir hún og
bætir við að söfnunin hafi staðið
yfir í nokkur ár.
Sum staupglösin hefur Silja
keypt sjálf en önnur hefur hún
fengið að gjöf frá vinum og
vandamönnum. „Ég kaupi mér
glösin þar sem ég ferðast. Fólk
gefur mér líka glös þegar það
kemur heim frá útlöndum,“
segir hún og rifjar upp kaup á
staupglösum frá Flórens. „Við
vorum næstum því búin að
missa af lestinni á flugvöllinn.
Vegna þess voru svolítið mikil
læti, þannig að ég missti tösk-
una mína og eitt glasið brotnaði.
Ég límdi það saman því þetta var
svo skemmtileg ferð. Nú er það
minningarbrotið.“
Glösin, sem eru 29 talsins, eru
af ýmsum stærðum og gerðum.
„Ég á nokkur sem eru stærri en
venjuleg staupglös. Þau eru tvö-
föld,“ upplýsir Silja og bætir við
að hún noti staupglösin aldrei
í hefðbundnum tilgangi held-
ur geymi þau uppi í hillu sem
stofustáss. Enda eru sum þeirra
hreinasta listasmíði og skreytt
með myndum sem tengjast þeim
stöðum sem Silja, vinir hennar
og vandamenn hafa heimsótt
í gegnum árin. „Ég á nokkur
með landslagsmyndum frá Bar-
celona, önnur frá Flórens með
myndum af brúm og glasið mitt
frá Kúbu er með mynd af kirkju
á eyjunni.“ - mmf
Minningarbrot frá Flórens
● Silja Hendriksdóttir safnar staupglösum frá öllum heimshornum og hefur sem stofustáss.
Silja hefur mikinn áhuga á hönnun, sérstaklega grafískri hönnun, og gæti vel hugsað
sér að starfa við hana í framtíðinni. Hér heldur hún á staupglasi frá St. Pétursborg
þar sem hægt er að sjá borgina í gegnum hlið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
hönnun
H
elgarnar eru dýrmætur tími sem flestir reyna að nota til
að slaka á, hitta vini og fjölskyldu og njóta lífsins. Sumarið
getur þó verið annasamt þar sem í boði er mikið af veislum
og vinamótum og margir sem fara í sumarfrí ætla þá aldeilis
að láta hlutina gerast!
Oft er dagskráin skipulögð út í ystu æsar þar sem ætlunin er að
komast yfir sem mest. Þess ber þó að gæta að taka ekki stressið með
í sumarfríið með því að útbúa ofhlaðna dagskrá. Listin að segja pent
nei getur stundum komið sér vel. Frítími er dýrmætur og verður sí-
fellt dýrmætari í erilsömu þjóðfélagi. Nauðsynlegt er að staldra við
og íhuga hvað við viljum raunverulega fá út úr lífinu. Eflaust eru
margir sem myndu gjarnan vilja eyða meiri
tíma með vinum og fjölskyldu í rólegheitum
þar sem ekki þarf að hafa áhyggjur af klæðn-
aði, veisluundirbúningi, fjárútlátum eða öðru
sem getur valdið streitu, þótt vissulega gleðji
það stundum líka. Þá er gott að huga að litlu
einföldu hlutunum í lífinu sem gefa samt
mikið af sér.
Að fara í freyðibað með góða tónlist og
kertaljós er bæði slakandi og endurnærandi.
Að setjast út á svalir með blóm í potti og ilm-
andi kaffi í bolla er unaðslegt. Að færa elsk-
unni sinni morgunmat í rúmið er alltaf nota-
legt. Þegar fjölskyldan sameinast við kvöld-
verðarborðið er gott að gefa sér tíma til að
ræða um daginn og veginn og njóta matar-
ins, ekki flýta sér að ná einhverjum þætti í sjónvarpinu eða stilla
fréttirn ar í hæstu hæðir. Að horfa á litlu dúlluna sína busla í þvotta-
bala úti í garði og leika sér er hin mesta skemmtun. Að lesa góða
bók, annað hvort úti í lystigarði þar sem hægt er að fylgjast
með mannlífinu eða í uppáhalds stólnum, er
gefandi og nærir andann. Göngutúrar standa
alltaf fyrir sínu og kosta ekkert. Ekki
er nauðsynlegt að flýja heimilið í leit
að nýrri lífsreynslu þótt það geti
verið gaman af og til. Oft leitar
fólk langt yfir skammt og áttar
sig loks á að það sem það leitaði
að var alltaf fyrir framan nefið á
því. Vert er að íhuga hvað er okkur
mikilvægast og hvernig við nálgumst það.
Verum góð við okkur og gefum okkur tíma.
Tíminn er þeim nægur
sem nota kann
Þegar fjölskyldan
sameinast við
kvöldverðarborðið er
gott að gefa sér tíma
til að ræða um
daginn og veginn og
njóta matarins, ekki
flýta sér að ná
einhverjum þætti í
sjónvarpinu eða stilla
fréttirnar í hæstu
hæðir.
● FRAMSÆKINN HÖNNUÐUR Stólarnir hér eru eftir hinn merka danska
hönnuð Verner Panton, sem var fæddur í Danmörku þann 13. febrúar árið 1926.
Panton er talinn vera einn áhrifamesti húsgagna- og innanhússhönnuður 20.
aldarinnar. Hann nam arkitektúr við „Det Kongelige Danske Kunstakademi“
í Kaupmannahöfn. Í byrjun ferils síns vann hann í tvö ár hjá Arne
Jacobsen. Sagan segir að hann hafi ekki staðið sig
vel þar, því hann hafði meiri áhuga á að vinna
að sinni eigin hönnun en fyrir aðra. Eftir að
hafa unnið hjá Arne Jacobsen setti hann á fót
sína eigin stofu.
Hann varð mjög fljótt þekktur vegna frumlegrar hönnunar og naut
mikilla vinsælda. Verner Panton lést 5. september 1998. Frumleg hönnun
hans mun lifa um ókomna tíð.
Vinnufatabúðin
Fagmennska og þjónusta í fyrirrúmi
5. JÚLÍ 2008 LAUGARDAGUR2