Fréttablaðið - 05.07.2008, Qupperneq 47
LAUGARDAGUR 5. júlí 2008 25
mér leið vel og var örugg og þá
leið þeim vel. Við undirbjuggum
þær svolítið og sögðum þeim
hvernig þetta yrði, ég sýndi þeim
myndir og útskýrði að barnið gæti
verið svolítið bláleitt þegar það
kæmi í heiminn og þess háttar. Í
einum rembingnum heyrðist svo-
lítið morr í mér. Þá sagði sú stutta
við aðra ljósmóðurina: „Það er eins
og mamma sé að morra eins og
múmínpabbi.“
Fæðing er ekki sjúkdómur
Ann segir að margir hafi varað
hana við að fæða heima, bæði vinir
og kollegar á sjúkrahúsinu. „Fólk
hafði áhyggjur af því að þetta
væri ekki nógu öruggt fyrir mig
og barnið. Ef engir áhættuþættir
eru fyrir hendi tel ég að það sé
jafn öruggt að fæða í heimahúsi
eins og á sjúkrahúsi enda gæta
ljósmæðurnar alltaf fyllsta örugg-
is og taka enga áhættu. Ég hef
lesið mér heilmikið til um þetta og
flestar rannsóknir sem ég komst
yfir sýndu að það væri jafn öruggt
að fæða heima eins og á hátækni-
sjúkrahúsi. Á sjúkrahúsum er oft
mikið um inngrip og það er oft þá
sem vandamálin koma upp,“ segir
Ann. Hún telur að viðhorf til fæð-
inga utan sjúkrahúsa sé að breyt-
ast. „Það að ganga með barn er
ekki sjúkdómur og fæðingin er
ekki sjúkdómur. Konur eru fædd-
ar til þess að fæða börn en síðustu
áratugina hefur verið svo mikil
áhersla á tæknina og það að fæða
á hátæknisjúkrahúsum með allar
græjur við höndina. Það liggur við
að þegar móðirin kemur inn á
sjúkrahús fái hún strax næringu í
æð. Mér finnst þetta nærri því
komið út í öfgar. Konur hafa val
um það hvernig þær vilja fæða
börnin sín. Ég ber mikla virðingu
fyrir þeim sem kjósa að gera það á
sjúkrahúsum með öll tækin við
höndina en það er ekki þar með
sagt að það henti öllum. Margar
konur verða óöruggar þegar þær
koma inn á spítala og sjálfri fannst
mér best að vera þar sem mér
líður best - heima. Að fá að gera
þetta svona eftir mínu eigin höfði
var ofboðsleg andleg upplifun og
það að taka sjálf á móti var nátt-
úrulega frábært.“
Sjálf starfaði Ann á hátækni-
væddri fæðingardeild áður en hún
átti Bjarka en nú langar hana að
breyta til. „Minn draumur er að
vinna við náttúrulegar fæðingar.
Mér finnst svo mikilvægt að
fæðingin sé jákvæð upplifun fyrir
konur, sérstaklega í dag þegar
konur eignast fá börn. Í starfi
mínu á sjúkrahúsinu finn ég að
margar konur upplifa fæðinguna
á mjög dramatískan hátt og finnst
þær kannski óöruggar. Margar
eru ósáttar við að fá ekki að
stjórna ferðinni meira,“ segir
Ann.
Blaðberinn minn
kemur oft með mér í bíltúr
Núna er ekkert mál að endurvinna!
Blaðberi Fréttablaðsins er handhæg taska undir dagblöð og ýmsan
annan pappír sem fellur til á heimilinu. Blaðberinn kostar ekki neitt
og kemur þér á lagið með að endurvinna dagblaðapappír.
Nældu þér í Blaðbera og geymdu hann á góðum stað. ...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24, alla
virka daga, frá kl. 8-17, á meðan birgðir endast.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
MÖMMUKOSS Systurnar
Sunneva og Íris fylgdust með
fæðingunni og stóðu sig að
sögn móðurinnar vel.
GLÆNÝR „Vinkonur mínar voru hissa
á því að ég vildi hafa ljósmyndara við-
staddan. Mér fannst það ekkert mál og
hann tók þessar yndislegu myndir sem
er ómetanlegt að eiga,“ segir Ann.
HJÁLPAÐ TIL Þegar Bjarki var kominn
upp úr vatninu hjálpuðu ljósmæðurnar
og Ingi til við að klippa á naflastrenginn.
... árið 2006 fæddust 46 börn í
heimahúsum á Íslandi. Það er
1,05 prósent allra fæðinga.
... árið 2002 fóru 0,6 prósent
allra fæðinga á Íslandi fram í
heimahúsum og 25 börn fæddust
heima. Aukning milli ára er því
nokkur.
Vissir þú að...
M
YN
D
/R
O
B
ER
T PETER
SO
N