Fréttablaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 16
16 28. júlí 2008 MÁNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
MERKISATBURÐIR
1662 Á Kópavogsfundinum ritar
Árni Oddsson lögmað-
ur tárvotum augum undir
skuldbindingarskjal um
einveldi Danakonungs hér
á landi.
1895 Þjórsárbrú hjá Þjótanda er
vígð og opnuð til umferð-
ar að viðstöddu á þriðja
þúsund manns.
1957 Hallgrímskirkja í Saurbæ á
Hvalfjarðarströnd er vígð.
Hún var reist til minninar
um sálmaskáldið Hallgrím
Pétursson.
1960 Norðurlandaráðsþing er
haldið á Íslandi í fyrsta
sinn en ráðið var stofnað
1952.
1985 Íslandsmet er sett í fallhlíf-
arstökki er fimm stökkv ar-
ar mynda stjörnu sem þeir
halda í 45 sekúndur.
Hátt í sextíu þús-
und manns mættu á
þjóðhátíð á Þingvöll-
um þennan mánað-
ardag árið 1974 til að
fagna ellefuhundruð ára
byggð á Íslandi. Fjöld-
inn svaraði til fjórðungs
þjóðarinnar þá. Hátíðin
þótti takast með ágæt-
um, verður var frábært
og framkoma hátíðar-
gesta til sóma.
Á þingfundi á Lög-
bergi var samþykkt til-
laga um þjóðargjöf
sem fólst í að verja einum milljarði króna til efl-
ingar landgræslu og gróðurvernd á næstu fjór-
um árum. Lúðrasveitir léku, karlakórar sungu og
ræður fluttu Kristján
Eldjárn forseti, Halldór
Laxness nóbelsskáld,
Indriði G. Þorsteinsson
formaður þjóðhátíðar-
nefndar og Ólafur Jó-
hannesson forsætis-
ráðherra. Tómas Guð-
mundsson fór með
hátíðarljóð og sinfóníu-
hljómsveitin lék verð-
launaverk Herberts H.
Ágústssonar og Jónasar
Tómassonar.
Þjóðarganga var ofan
úr Almannagjá, íþrótt-
ir voru iðkaðar og hátíðinni lauk með því að Ís-
land farsælda frón var blásið í lúðra af efri barmi
Almannagjár.
ÞETTA GERÐIST 28. JÚLÍ 1974
Þjóðhátíð á Þingvöllum
Antikhúsinu er ein þeirra verslana
sem setja svip á Skólavörðustíginn
í Reykjavík. Kaupkona þar er Fjóla
Magnúsdóttir. Fjölmargir staldra við
hjá henni bæði til að blanda við hana
geði og spá í hina fögru muni í búðinni
hennar. Þegar blaðamann ber þar að
garði er hún að þurrka af.
„Ég er alltaf með tuskuna á lofti,“
viðurkennir hún og sýnir nýfægð-
an silfurborðbúnað í einum skápn-
um. „Eitt ömmubarnið sagði eitt sinn
við mig. „Amma, þú talar og pússar,“
og það eru áreiðanlega orð að sönnu,
ég er oft óafvitandi að pússa eitthvað
meðan ég tala við viðskiptavinina.“
Starfsemi Antíkhússins er 20 ára
um þessar mundir. Sumarið 1988 reif
Fjóla sig frá því að starfa í lögfræði-
deild Búnaðarbankans og stofnaði til
verslunarinnar ásamt manni sínum
Ólafi Steinari Valdimarssyni ráðu-
neytisstjóra sem andaðist fyrir um
tíu árum. „Ég fékk kennitölu versl-
unarinnar í júlí og við opnuðum um
haustið í Þverholti 7. Þetta fór rólega
af stað en vatt fljótt uppá sig og búðin
var orðin mitt annað heimili áður en
varði. Bóndi minn var líka vel liðtæk-
ur í að lagfæra læsingar og annað sem
þurfti,“ lýsir hún.
Fjóla er borinn og barnfæddur
Reykvíkingur og ólst upp í litla Skerja-
firði, „eiginlega í gamla Tívolí,“ eins
og hún orðar það. Þrjú af fjórum börn-
um hennar búa erlendis þar sem þau
sinna veigamiklum embættum. Móðir
þeirra segir þá kenningu á lofti að þau
hafi flutt út til að forðast að bera hús-
gögn alla daga! Hún kveðst hafa verið
með búðina í Þverholtinu í tíu ár en svo
keypt á Skólavörðustígnum. „Ég hugs-
að mér húsnæðið hér sem sýningarsal
en fljótlega snerist dæmið við. Sýn-
ingarsalurinn varð að búð og Þver-
holtið lager. Staðsetningin var
svo miklu
betri hér,“
segir hún.
Nú hefur hún
geymslu við
hliðina á búð-
inni og minnist
þess varla að hafa
farið á mill húsa án
þess að burðast með
eitthvað!
Dönsk húsgögn höfða
til Íslendinga að sögn Fjólu
sem kaupir allt inn í Dan-
mörku. En er endalaust fram-
boð af gömlum munum þar?
„Já, svo merkilegt sem það er þá
er þetta stöðug hringrás,“ segir hún.
„Danir voru svo oddhagir og á tíma-
bilinu frá 1914 til 1940 voru háir tollar
á innfluttar mublur í Danmörku. Það
varð til þess að húsgagnasmiðir þar
fóru á flug en samkeppnin milli þeirra
var hörð svo þeir urðu að vanda sína
vinnu.“
Spurð hvort fólk sé alltaf jafn spennt
fyrir antik svarar Fjóla: „Það gengur
í bylgjum. Fyrir 20 árum vildu allir
antik. Síðan kom naumhyggjutíma-
bilið og stóð í nokkur ár en nú er að
lifna yfir þessum markaði aftur. Fólk
er farið að blanda antik með nýmóðins
hlutum á heimili sín. Fær sér kannski
eitt ljós sem er þá öðruvísi en aðrir
eiga. Ef foreldrarnir hafa átt antik erf-
ist oft áhuginn til barnanna,“ segir
Fjóla sem selur ekki aðeins mu-
blur, klukkur og
lampa heldur
líka silfur og
danskt post-
ulín sem
hún segir
vinsælt hér
á landi.
Viðtalið
gengur frek-
ar hægt því
stöðug um-
ferð er um
búðina auk
þess sem
síminn hringir af og til. Fjóla er óspör
á tíma sinn og hvort sem af viðskipt-
um verður eða ekki fara allir hressir
af hennar fundi. „Nú fer að styttast í
að Skólavörðustígurinn verði opnað-
ur fyrir umferð aftur eftir gagnger-
ar endurbætur svo það eru bara bjart-
ir tímar fram undan,“ segir hún bros-
andi.
gun@frettabladid.is
ANTIKHÚSIÐ Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG: REKSTURINN TUTTUGU ÁRA
Fer varla milli húsa án þess
að burðast með eitthvað
KAUPKONAN FJÓLA GUÐMUNDSDÓTTIR Fólk er farið að blanda antik með nýmóðins hlutum. fær sér kannski eitt ljós sem er þá öðruvísi en aðrir
eiga.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ODDUR ÓLAFSSON BLAÐAMAÐUR
ER SJÖTÍU OG FIMM ÁRA Í DAG.
„Það er ekki hlutverk frétta-
manna að feta í fótspor hroll-
vekjusmiða sýndarveruleik-
ans né fullnægja þörfum
þeirra sem líta á gróf ofbeld-
isverk sem skemmtiatriði.“
Oddur starfaði sem blaðamað-
ur á Alþýðublaðinu, Tímanum,
Degi og DV og var aðstoðarrit-
stjóri Tímans um skeið. Einnig
er hann ljósmyndari og vann við
það fag um tíma.
Hand-
málað
postulín
frá Royal
Copenhagen,
ártalið er 1935.
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er
auðsýndu okkur samúð og hlýju við andlát
og útför ástkærs eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Eiríks Alexanderssonar
frá Grindavík, Prestastíg, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á
krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut og
hjúkrunarþjónustu Karitas. Guð blessi ykkur öll.
Hildur Júlíusdóttir
Almar Eiríksson Kittý Magnúsdóttir
Leifur Eiríksson Þórey G. Guðmundsdóttir
Margrét B. Eiríksdóttir Edvard G. Guðnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku hjartans drengurinn okkar, bróðir,
barnabarn og frændi,
Bjarni Páll Kristjánsson
Ægisíðu 107, Reykjavík,
sem lést á krabbameinslækningadeild Landspítalans
við Hringbraut þriðjudaginn 15. júlí, verður jarðsung-
inn frá Neskirkju fimmtudaginn 31. júlí kl. 13.00. Þeim
sem vildu minnast hans er bent á Styrktarsjóð skáta hjá
Bandalagi íslenskra skáta.
Kristján Geirsson Droplaug Guðnadóttir
Anna Björk, Birkir, Baldvin
Anna Gísladóttir Geir Kristjánsson
Ásta Ólafsdóttir Guðni Þ. Valdimarsson
Margrét Geirsdóttir Haukur K. Bragason
Guðrún A. Guðnadóttir Sigurjón H. Hauksson
Valdimar Guðnason Páll Guðnason
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
ástvinur, amma og langamma,
Pálína Margrét
Hafsteinsdóttir
Furugrund 66, Kópavogi
Sem lést á heimili sínu þriðjudaginn 22.júlí. Verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 30.júlí
kl. 15.00
Bára Þórðardóttir Hörður Sveinsson
Hafsteinn Þórðarsson Steinunn Guðnadóttir
Laufey Þórðardóttir
Sæmundur Björnsson
og fjölskyldur