Fréttablaðið - 14.12.2008, Blaðsíða 8
14. desember 2008 SUNNUDAGUR
Tvöfaldir punktar
með AMEX í Nettó!
Verið velkomin í Nettó
Mjódd - Salavegi - Hverafold
Akureyri - Höfn - Grindavík
ww.netto.is
Góðar bækur á betra verði!
TILBOÐIN GILDA 14. DESEMBER
w
w
w
.m
ar
kh
on
nu
n.
is
VERNDARGRIPURINN
FRÁ SAMARKAND
2.594 kr
3.990 kr
35%
afsláttur
HLJÓMAGANGUR
3.887 kr
5.980 kr
35%
afsláttur
VALKYRJUÁÆTLUNIN
2.587 kr
3.980 kr
35%
afsláttur
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
4
43
91
1
1/
08
JÓLAGJÖFIN
SEM FLÝGUR ÚT
JÓLAPAKKAR ICELANDAIR
VERÐ FRÁ 26.900 KR.
+ Ferðatímabil er frá 10. janúar til og með 31. mars 2009.
+ Eftir að ferðatímabili lýkur gildir jólagjafabréfið sem inneign
upp í fargjöld með Icelandair.
+ Pantaðu jólapakkann á www.icelandair.is
I EF ÞÚ BORGAR JÓLAPAKKANN MEÐ VILDARKORTI VISA
OG ICELANDAIR FÆRÐU 5.000 AUKA VILDARPUNKTA.
I ATHUGIÐ AÐ HÆGT ER AÐ GREIÐA FYRIR HÓTELGISTINGU MEÐ VILDARPUNKTUM,
FRÁ 14.000 PUNKTUM Á NÓTT FYRIR TVO.
Traustur
íslenskur ferðafélagi
* Innifalið: Flug fram og til baka, skattar og önnur gjöld. Sölutímabil er til 24. des. 2008 kl. 18:00. Bókunartímabil er frá 22. desember til og með 23. jan. 2009.
Jólapakkatilboð gildir til Boston, New York, Kaupmannahafnar, Stokkhólms, Oslóar, London, Manchester, Frankfurt, Parísar og Amsterdam.
Lágmarksdvöl er aðfaranótt sunnudags nema á Saga Class. Takmarkað sætaframboð. Sjá nánari skilmála á www.icelandair.is. Þessar ferðir gefa 750–11.200 Vildarpunkta.
ÍRAK, AP Robert Gates, varnar-
málaráðaherra Bandaríkjanna,
hefur varað andstæðinga Banda-
ríkjanna við því að efna til vand-
ræða í von um að hrista upp í rík-
isstjórn Baracks Obama.
„Hver sá sem heldur að næstu
mánuðir henti vel til að reyna á
þolrif nýju stjórnarinnar er að
gera alvarleg mistök,“ sagði
Gates á ráðstefnu með leiðtogum
ríkja í Persaflóa í Bahrain.
„Obama forseti og hans þjóðar-
öryggislið, þar á meðal ég, verður
tilbúið til að verja hagsmuni
Bandaríkjanna og vinaþjóða
okkar um leið og hann tekur við
embætti 20. janúar.“
Joe Biden, væntanlegur vara-
forseti Bandaríkjanna, varaði við
því í kosningaherferðinni í haust
að reynt yrði að prófa Obama með
erfiðu alþjóðlegu vandamáli um
leið og hann tæki við embætti,
rétt eins og gert var með John F.
Kennedy, fyrrum Bandaríkjafor-
seta, og Kúbudeiluna.
Á fundinum í Bahrain sagði
Robert Gates að málefni Mið-
Austurlanda og Persaflóa verði
áfram í brennidepli hjá Banda-
ríkjastjórn. Hann neitaði því jafn-
framt að Bandaríkjamenn ætluðu
að koma stjórnvöldum í Íran frá
völdum. Engu að síður vildu þeir
að Íranar endurskoðuðu stefnu
sína og hegðuðu sér öðruvísi.
Gates hefur fengið mikið lof
bæði frá demókrötum og rep-
úblikönum fyrir það hvernig hann
hefur tekið á málum varðandi
aukinn fjölda hermanna í Írak.
Einnig hefur hann fengið lof fyrir
dvínandi ofbeldi í landinu.
freyr@frettabladid.is
Varar andstæðinga
Bandaríkjanna við
Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir það mikil mistök ef
andstæðingar þeirra ætli að gera nýrri ríkisstjórn Baracks Obama grikk.
BARACK OBAMA Obama tekur við embætti forseta Bandaríkjanna hinn 20. janúar,
eða eftir rúman mánuð.
VIÐSKIPTI Stjórn tölvufyrirtækis-
ins CCP ræddi um möguleika á
flutningi móðurfélags fyrirtækis-
ins frá Íslandi á stjórnarfundi í
London á fimmtudag. Til umræðu
kom að flytja félagið til Hollands,
Bretlands eða Delaware í Banda-
ríkjunum.
Á fundinum var ákveðið að bíða
átekta um sinn í þeirri von að
gjaldeyrishömlum verði aflétt
sem fyrst, segir Vilhjálmur Þor-
steinsson, stjórnarformaður
félagsins. Vonandi þurfi ekki að
koma til þess að ræða þurfi það
mál í fullri alvöru.
CCP, sem hannaði og rekur
tölvuleikinn Eve Online, ætlar að
fara í alþjóðlegt hlutafjárútboð á
öðrum ársfjórðungi næsta árs.
„Við ætlum að halda okkur við
það,“ segir Vilhjálmur, en miðað
við þau gjaldeyrishöft sem nú eru
í gildi virðist það ómögulegt. Vil-
hjálmur segir að breytist reglurn-
ar ekki þurfi CCP að sækja um
undanþágu. Gangi það ekki verði
að fara aðrar leiðir.
Vilhjálmur segir gjaldeyrishöft-
in valda CCP miklum erfiðleikum.
Seðlabankinn hafi reyndar skýrt
reglurnar þannig að bein fjárfest-
ing erlendra aðila í íslenskum fyr-
irtækjum sé heimil, en viðkom-
andi geti ekki selt aftur og tekið
féð úr landi. Þá séu erlendar lán-
tökur útilokaðar. Hann vonist því
til að hömlunum verði aflétt sem
fyrst, í síðasta lagi í mars 2009. - bj
Stjórn CCP ræddi um útfærslur á því að flytja móðurfélag fyrirtækisins úr landi:
Ákváðu að bíða áfram átekta
EVE ONLINE Fjölþátttökutölvuleikurinn
Eve Online hefur notið mikilla vinsælda
frá því að CCP setti upprunalega útgáfu
hans á markaðinn árið 2003. MYND/CCP