Tíminn - 30.12.1982, Síða 6
FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1982
á vettvangi dagsins
■ Aðalfundur Skógræktarfélags ís-
lands er haldinn ár hvert - gjarnan
nálægt mánaðamótum ágúst-september.
Svo var og nú á þessu ári.
Á Akureyri v^r aðalfundurinn haldinn
að þessu sinni og sótti hann fólk
víðsvegar af landinu, eins og jafnan
áður:
Við sunnlendingarnir héldum hópinn
á fundinn, norður hálendið - Sprengi-
sandsleið, frá Sigöldu um hlaðið á Mýri
í Bárðardal og þaðan sem leið liggur
eftir vegi númer 1 til Akureyrar. Þangað
komum við um sólsetursskeið eftir
ágæta en fremur tíðindasnauða ferð Um
öræfaslóðir mið-hálendisins þar sem fátt
minnir á líf og gróður, utan kyrkingsleg -
ar mosateygingar á stöku stað. Það var,
jú helst í Nýjadal, innvið Tungnafells-
jökul, sem litbrigði öræfagróðurs skáru
sig ögn frá svartri auðninni.
Fyrsta sauðféð sem við sáum á leið
okkar norðan heiða var hvít tvílemba,
innst í Klifberadrögum. Ekki voru
þessar langferða kindur öfundsverðar af
sínu hlutskipti þarna í auðninni. Hins-
vegar virtist bresk fjölskylda lifa
áhyggjulitlu lífi í sæluhúsinu í Nýjadal.
Hafði jafnvel cinn í hópnum orð á því
að veturseta þar í öræfakyrrðinni væri
þessu fólki mjög að skapi.
Fjölmiðlanefndin hlaut
ekki árangur sem erfiði
Aðalfundurinn á Akureyri hófst kl. 10
árd. föstudaginn 27. ágúst með hefð-
bundnum hætti: Söng, skýrslum og
reikningum. Seinna komu framsöguer-
■ Fræbeð af lerki í nýju gróðurhúsi Skógræktarfélags Eyfirðinga á Kjarna.
FRODLEG KYNNINGAR- OG
SKODUNARFERD UM EYFIRSK
SKÓGRÆKTARSVÆÐI
indi, ávörp gesta og umræður. Nefndir
störfuðu eftir kvöldverðarhlé þennan
dag.
Við Magnús H. Gíslason frá Frosta-
stöðum í Skagafirði, blaðamaður í
Reykjavík, vorum tilnefndir í svokallaða
fjölmiðlanefnd - sem eins og nafnið
bendir til, áttum að miðla fréttum af
fundinum til fjölmiðlanna-ásamt þriðja
manni sem aldrei kom í leitirnar, enda
við önnur skyldustörf, að sögn, þessa
dagana og er hann því úr sögunni.
Við Magnús tókum brátt til starfa við
fjölmiðlafræðin en fengum fljótt að
reyna að ekki verður ávallt árangur sem
erfiði: Föstudags-síðdegi erekki vænlegt
til árangurs í þessu efni. Það var
Mogginn einn blaða sem átti óráðstafað
pláss í laugardagsblaðinu. Önnur blöð
höfðu fyllt sínar síður, flest, framyfir
helgi. Jafnvel ríkisfjölmiðlarnir , útvarp
og sjónvarp áttu í erfiðleikum með að
uppfylla óskir okkar. Ágæt rödd í
„Útvarp Akureyri1' lofaði þó að athuga
málið og fulltrúi sjónvarpsins þar í bæ
lofaði að „athuga málið við þá fyrir
sunnan", sem hann og gerði en með
harla litlum árangri.
„Já, það er annað Jón eða séra Jón“
var sagt fyrrum.
Eftir að við Magnús höfðum kannað
og kynnt okkur fjölmiðlafræðin í höfuð-
stað Norðurlands og leiðirnar þaðan
(allt til hádegis næsta dag, með litlum
árangri) vörpuðum við áhyggjum okkar
á herðar forustumanna félagsamtakanna
með úrbætur eftir helgina. Tókum gleði
okkar á ný og ákváðum að láta eitt yfir
báða ganga, uns fundi væri lokið og
fræðsluferð í boði skógræktarfélags Ey-
firðinga um skógarsvæðin þar í næsta
nágrenni.
Samkvæmt dagskránni átti að leggja
af stað í fræðslu og kynnisferð þessa eftir
hádegisverð laugardaginn 28. ágúst.
Fyrst.átti að skoða Vaðlaskóg, en hann
liggur í brekkunni austan við Pollinn
gegnt Akureyri. Þá var fyrirhugað að
aka að Grund og skoða Grundarskóg og
síðast á áætluninni var Kjarnaskógur
skammt sunnan við Akureyri. Gátu
menn valið um bílferð frá fundarstað í
Vaðlaskóg, eða sjóferð yfir Pollinn,
hvað flestir kusu, enda var Akureyrar-
pollur spegilsléttur í lognkyrri veður-
blíðunni, svo ótti um sjóveiki var með
I Hluti fundarmanna hlýðir ú mál Hallgríms Indríðasonar, framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Eyfirðinga (lengst t.h.) í Vaðlaskógi. Greinarhöfundur,
Stefán Jasonarson, er með hatt, hægra megin á myndinni. (Myndir S.BÍ.)