Tíminn - 10.07.1983, Blaðsíða 23

Tíminn - 10.07.1983, Blaðsíða 23
EGO ECHO GRYLUR — og DEILD I á þrumugóðum tónleikum í Laugardalshöll ■ Rúmlega 1600 manns mættu til leiks í Laugardals- höll s.I. laugardagskvöld á þrumugóða tónleika Echo and the Bunnymen , EGÓ, Grýlnanna og Deildar 1 en að mati undirritaðs var EGÖ tvímælalaust hljóm- sveit kvöldsins þetta kvöld, tveir nýjir menn hafa gengið til liðs við þessa vinsælustu sveit landsins og útkoman er alveg dúndurgóð. Er undirritaður stikaði inn á spóna- lagt gólf Hallarinnar þetta kvöld voru Grýlumar, með Ragnhildi Gísladóttur í broddi fylkingar að fríka liðið út en þær eru nýlega komnar úr hljómleika- för um „Baunaland". Á undan Grýlun- um léku Deild 1 en þeir munu ekki hafa verið í besta formi, þetta kvöld að dómi kunnugra þannig að maður missti víst ekki af miklu. Prógrammið hjá Grýlunum var hæfi- leg blanda af Mávastellum, öðrum stellum og nýjum lögum og hefur þessi eina kvennagrúppa landsins, að ráði, skipað sér naglfastan sess í tónlistarlíf- inu hérlendis. Frábært EGÓ Greinilegt var að mikill hluti gesta var þama kominn til að berja EGÓ augum og byrjuðu öskrin eftir þeirri sveit um leið og Grýlumar hættu. Tveir nýjir menn eru komnir í EGÓ þeir Gunnar Reynisson (úr KIKK) á hljómborð og trommuleikarinn Jökull Úlfsson (áður með BG frá ísafirði). Tónlist EGÓ hefur breyst vemlega með tilkomu þessara tveggja manna eins og glöggt heyrðist í Höllinni. Hún er mun „mýkri“ en hún var áður og fjölbreytnin höfð í fyrirrúmi. Breytingin er að stórum hluta til- komin vegna trommuleikarans nýja en hann er ekki eins taktfastur á húðimar eins og Magnús, trommuleikurinn orð- inn nettari og fyrir þá sök á Bubbi Morthens mun auðveldar með að beita sér í söngnum, Magnus átti það til að tjúna sveitina svo upp að Bubbi varð að öskra mikinn hluta tímans til að láta heyra vel í sér. Eflaust em margir til sem ekki líkar þetta allskostar vel en inn um hlustir undirritaðs rennur þetta eins og kattar- skítur á flísagólfi. Allt prógramm EGÓ þetta kvöld voru ný lög, þar á meðal tvö af sólóplötu Bubba, Fingraför, í rokkút- gáfu. Þetta voru lögin Paranoia og Hvað er klukkan? ef ég man rétt en það síðamefnda var lokalagið, sem dæmi um fjölbreytnina má nefna að á prógramminu er eitt rockabilly lag, alveg bráðhuggulegt, eitt lag þar sem Bubbi talar textann, Strákamir á Borginni, og lagið Lítið serbneskt blóm þar sem lagt er út af störfum Títós í textanum. Á heildina litið þá leggur EGÓ nú mest upp úr liðsheildinni, allir em með allsstaðar, t.d. vom engin gítarsóló að finna í flutningi þeirra og eftir sem áður eiga þeir sennilega auðvelt með að halda stöðu sinni í „bransanum". Echo-keyrsla Eftir öskrin og stappið að loknum flutningi EGÓ leið nokkuð langur tími þar til aðalnúmerið Echo and the Bunnymen komu fram en þegar þeir komu loksins var það svo um munaði, þeir vom tvöfaldir, átta í stað þeirra fjögurra sem maður átti von á. Fyrir utan aukatrommurleikara voro þeir með fiðluleikara og sellóleikara. Gífurleg keyrsla setti mestan svip á tónlist þeirra Ian McCulloch og félaga í Höllinni þetta kvöld, trommuleikar- ■ Ian McCuUoch og félagar léku nýbylgjurokkið með mikilli keyrslu. amir, með góðri aðstoð bassaleikarans lömdu hlustir áheyrenda sundur og saman og þar sem undirritaður dingl- aði, á miðju gólfinu, lá við að hávaðinn skæri í eyrun, sérstaklega framan af þegar hljóðblöndunun var í hálfgerðu rusli en þetta lagaðist að mun seinni part flutnings þeirra. Hvað prógrammið varðaði þá tóku þeir nokkur lög af nýjustu lp-plötu sinni Porcupine en annað var nýtt af nálinni flest allt á „keyrslukantinum", og þar sem undirritaður hefur lúmskt gaman af hröðu og nokkuð hráu ný- bylgjurokki skemmti hann sér mjög vel. Hvað hina klassísku leikara varðaði þá átti maður í mestu erfiðleikum með að greina það sem þeir vom að gera, hljómur þeirra kom þó í gegn stöku sínnum og þá líkt og nettur syntheziser væri notaður undir trommu- og bassa keyrslunni. Þetta vom sem sagt þmmugóðir tónleikar þegar allt er talið en senni- lega em þeir jafnframt þeir síðustu á þessu ári, af þessari stærðargráðu þar sem um 800 manns vantaði upp á til að þeir bæru sig og varla em margir til sem vilja leggja út í þetta með þá áhættu hangandi um hálsinn. -FRI ■ Sellóleikaranum gekk ilia að láta heyra í sér

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.