Tíminn - 19.07.1983, Page 2
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ 1983
fréttir;
■ Lögreglan í Árbæ þurfti að
eltast við nokkuð óvenjulega
afbrota„menn“ aðfaranótt
sunnudags. Hún fékk nefnilega
tilkynningu um að nautgripahóp-
ur væri að spóka sig í húsagörð-
um við Jaðarsel í Breiðholti.
Þegar lögreglan kom á staðinn
fann hún 10 nautkálfa á rölti eftir
götunni en hópurinn hefur sjálf-
sagt verið á leiðinni niður í
Mjódd að skoða næturlífið.
Lögreglan snéri hópnum við
og rölti á eftir honum upp að
Vatnsenda. Þar sem skilið var
við nautin. Lögreglan í Árbæ
vissi ekki til þess að kálfarnir
hefðu valdið nokkrum skemmd-
um í Breiðholtinu. -GSH
■ Lögreglan eða „Midnight cowboys“ að kúarektorsstörf um í Breiðholti. Tímamyndir Sverrir
LÚGREGLAN í NAUTGRIPA-
REKSTRI í BREIÐHOLTINU
Humarköss-
um stolið á
Grundarfirði
■ Humrakössum var stolið
úr frystihúsinu á Grundarfirði
um síðustu helgi. Þetta er í
annað skiptið á stuttum tíma
sem humri er stolið úr frysti-
geymslum þarna á staðnum.
Að sögn lögreglunnar í
Grindavík er ekki vitað hvað
miklu var stolið nú um helgina
í fyrra sinnið, 4. júlí, voru
teknir 3 kassar og verðmæti
þeirra mun vera um 20.000
krónur. Ekki hefur enn tekist
að upplýsa þessa þjófnaði en
auðvelt mun vera fyrir óráð-
vanda að komast óséðir að
frystigeymsiunum.
- GSH
' 'fj' ’ 1
Fjármagn-
aði helgar-
skemmtun-
ina með
innbroti
■ Maður nokkur fjármagn-
aði helgarskemmtunina með
því að fara inn í íbúð við
Lerkihlíð á aðfaranótt laugar-
dags og steia þar 2000 krónum
úr veski. Skemmtunin stóð þó
ekki lengi því kona sem býr í
íbúðinni kont að þjófnum við
iðju sína. Þjófurinn lagði þá á
flótta en konan gat lýst honum
það vei að lögreglan hafði
uppá honum skömmu seinna.
Og maðurinn játaði verknað-
inn.
Þá var einnig brotist inn í
Álftamýrarskóla aðfaranótt
laugardags. Þar var brotinn
upp peningaskápur í skrifstofu
með kúbeini og stolið strætis-
vagnamiðum og ávísanahefti.
Ekki hefur enn tekist að upp-
lýsa það mál. -GSH
Humarvertld
lýkur fyrir
mánadar-
mótin
■ Sjávarútvegsráðuneytið hefur á-
kveðið að síðasti veiðidagur á yfirstand-
andi humarvertíð verði miðvikudaginn
27. júlí næst komandi.
í frétt frá ráðuneytinu segir, að ástæða
þessarar ákvörðunar sé sú, að humarafl-
inn var orðinn um 2.400 lestir 14. júlí
síðast liðinn en heildarkvótinn á þessari
vertíð var ákveðinn 2.700 lestir.
- Sjó.
Komum farþega til íslands:
Islendingum fækkar
útlendingum f jölgar
■ Samkvæmt yfirliti Útlendingaeftir-
litsins um komu farþega til íslands frá
áramótum og til síðustu mánaðarmóta
kemur í ljós að íslendingum hefur fækk-
að verulega, frá sama tíma í fyrra, en
útlendingum hefur aftur á móti fjölgað.
Frá áramótum til 30. júní í ár komu
þannig 30.623 íslendingar til landsins á
móti 33.273 á sama tíma í fyrra en þetta
er um 10% fækkun. Útlendingar sem
komu voru aftur á móti 28.946 í ár á móti
28.151 á sama tíma í fyrra.
Ef litið er til júnímánaðar eingöngu
kemur í ljós að í ár komu hingað til lands
9456 íslendingar á móti 10.691 í sama
mánuði í fyrra. Útlendingar voru 12.273
í júní í ár en 11.737 í júní í fyrra.
Flestir útlendinganna í júní í ár koma
frá Bandaríkjunum eða 3366, næst flestir
frá Vestur-Þýskalandi eða 1648. Hins-
vegar komu aðeins 5 Austur-Þjóðverjar
hingað í júní.
Tónleikar
endurteknir
í Norræna
húsinu
■ Bergþóra Árnadóttir, Pálmi Gunn-
arsson og Tryggvi Húbner endurtaka í
kvöld tónleika sína í Norræna húsinu, og
hefjast þeir kl. 21. Þau héldu tónleika
þann 12. þessa mánaðar sem þóttu
takast svo vel að nú endurtaka þau þá.
Megin uppistaða í efnisskrá þeirra eru
lög Bergþóru við ljóð margra okkar
þekktustu skálda og einnig efni væntan-
legrar plötu Bergþóru, sem nýlega er
lokið upptöku á.
Sérstakur gestur kvöldsins í kvöld
verður Magnús Þór Sigmundsson, sem
leikur m.a. lög af plötu sinni „Draumur
aldamótabamsins".
Ennisvegur
opnaður
■ Á sunnudaginn var Ennisvegur
opnaður fyrir almennri umferð. Hann
er nýr vegur, um 2,2 km að lengd og
lagður í fjörunni framan við Ólafs-
víkurenni.
Gamli vegurmn, sem uggur uppi í
Enninu, var gerður 1963-1964. Þessi
20 ára gamli vegur var mikið mannvirki
á sínum tíma og hefur þjónað íbúum á
Nesinu vel. Umferð um hann hefur þó
alltai verið nokkurt hættuspil vegna
grjóthruns og snjóflóða og slysatíðni
þar hcfur verið há.
Það var fyrirtækið Hagvirki hf. sem
sá um að leggja nýja veginn, og hefur
framkværad verksins gengið hraðar en
í upphafi var búist við. Verktaki tekur
sér frí í sumar, en hefst handa á ný í
haust og lýkur verkinu að fullu fyrir 1.
maí á næsta ári. Næsta sumar verður
svo lagt slitlag á veginn og verður þá
áætlaður heildarkostnaður orðinn um
80-85 milljónir króna.