Tíminn - 09.11.1983, Blaðsíða 20

Tíminn - 09.11.1983, Blaðsíða 20
Opió virka daga 9-19 Laugardaga 10-16 HEÐDk Skemmuvegi 20 Kopavogi Simar (91)7 75 51 & 7 80 30 Varahlutir Mikið úrval Sendum um land allt Ábyrgð á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs 5AMVINNU TRYGGINGAR & ANDVAKA ARMULA3 SIMI 81411 ^TBabriel r' höggdeyfar yQJvarahlutir CtTOÍWtt Ritstjorn 86300-Augfysingar 18300- Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306 Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins og afnám samningsréttarbannsins: SAMSTARF EKKI TEKID UPP VID STJÖRNARANDSTÖÐUNA — segir Ólafur G. Einarsson, sem telur samstöðu í rikisstjórn forsendu þess að ákvæðið verði fellt niður ■ „Ég lield að það sé alveg Ijóst að það eru fleiri þingmenn Sjálfstæðisflokksins en þeir \ Guðmundur og Friðrik sem vilja afnám ákvæðisins um bann við samningum, en þingflokknum er einnig alveg Ijóst um hvað hefur verið samið við myndun þessarar ríkisstjórnar,“ sagði Olafur G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisllokksins í samtali við Tímann í gær, er hann var spurð- ur hver afstaða þingflokksins væri til þeirrar hugmyndar sem Guðmundur H. Garðarsson viðr- aði á Alþingi í fyrradag, þess efnis að í meðförum þingsins á bráöahirgðalögum bæri að fella niður ákvæðið um skertan samn- ingsrétt. t.'Olafur sagði að það yrði ekk- ert hlaupið frá þeim ákvörðun- um, nema um það næðist samst- aða samstarfsaðila í ríkisstjórn. Ólafur var spurður hvort sjálf- stæðisinenn með þessari afstöðu, væru að gera Framsóknarflokk- inn ábyrgan fyrir þessu ákvæði laganna og svaraði hann þá: „Nei, nei, við tökum alveg fulla ábyrgð á því að þessi lög eru í gildi. En frá því þessi lög voru sett, þá hefur komið upp sú skoðun frá fleirum en einum og fleirum en tveimur að það skipti ekki máli hvort þetta ákvæði er í gildi, eða ekki og ef það væri til þess að liðka eitthvað til, þá erum við alveg til viðtals að afnema þetta ákvæði, en það er ekki einkamál Sjálfstæðisflokks- ins. Þetta mál varðar stjórnar- flokkana báða og verður ekki leystöðruvísien meðsamkomu- lagi á milli þeirra. Þingflokkur- inn sem slíkur fer ekki að semja Akveðin öfl í Framsóknar- flokknum vilja að forsætisráð- herra fari fram í Reykjavík í næstu kosningum: „EKKITIL VIÐ- RÆÐU UM ÞETTA“ ■ „Það hafa margir minnst á þetta við mig, en ég hcf svarað því til að ég væri ekki til viðræðu um þetta. Ég væri þingmaður Vestfirðinga," sagði Steingrímur Hermannsson, formaður Fram- sóknarflokksins rn.a. í samtali við Tímann í gær, er blaðamaður spurði hann hvað væri hæft í því að ákveðin öfl innan Framsókn- arflokksins í Reykjavík, hefðu farið þess á leit við hann að hann yrði í framboði í Reykjavík í næstu alþingiskosningum, en ekki á Vestfjörðum. Steingrímur upplýsti jafn- framt að nokkrir framsóknar- menn í Reykjavík hefðu komið að máli við sig í haust, og sagst vera óánægðir, og að þeir hefðu farið fram á það að hann mætti á fund hjá þeim. Sagðist hann ætla að verða við óskum þeirra, enda sagðist hann aldrei neita að ræða málin við nokkurn mann. Sagðist hann hafa skilið mál þeirra svo að Ólafur Jóhannesson yrði einnig á þessum fundi. en hann hefur enn ekki verið haldinn. Steingrímur var spurður hvort líta mætti á þesa fundarboðun sem hún væri sett fram til höfuðs Guðmundi G. Þórarinssyni og sagði hann þá: „Það tel ég ckki. Ég myndi ekki taka þátt í slíku," svaraði Steingrímur. -AB við stjórnarandstöðuna og ná þannig meirihluta á þingi, til þess að fella þetta niður." Ólafur var spurður hvort hann teldi að meirihluti þingflokksins væri því fylgjandi að fella niður þetta ákvæði: „Um það vil ég ekkert segja,“ sagði Ólafur. Páll Pétursson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins sagði þegar Tíminn spurði hann í gær hvort einhverjir í þing- flokknum væru sömu skoðunar og þeir Guðmudnur H. Garðars- son og Friðrik Sóphusson: „Allt er þetta til skoðunar og meðferð- ar hér á þinginu, en ekkert til þess að segja frá á þessu stigi." -AB ■ Þeir eru bara fagmannlegir í íshokkíinu strákarnir, en þessir ásamt fleirum léku listir sínar á Tjörninni í gær, og létu bítandi frostið ekkert á sig fá. Tímamynd - Róbert. Þrír gripnir glóðvolgir við irinbrot ■ Þrír menn voru gripnir gióðvolgir í Heilsugæslustöð Kópavogs við Fannborg um eittleytið í fyrrinótt þar sem þeir höfðu brotist inn. Mennirnir voru yfirheyrðir af RLR í gær en talið var líklegt að þeir væru valdir að fleiri innbortum í hús við Fannborg á undanförnum vikum. Þannig hefur þrisvar verið brotist inm" Bókasafn Kópavogs, síðast nú um helgina, og Heilsugæslu- stöðin hefur veri heimsótt áður. Mennirnir hafa áóur komið við sögu hjá RLR. GSH Nýtt laga- safn kemur út um ára- mótin — ef engar sér- stakar tafir verða á útgáf- unni ■ Nýtt lagasafn er væntaniegt um áramótin ef engar tafir verða á útgáfunni. Það er Lagastofnun Háskólans sem stendur fyrir útgáfunni, en rit- stjóri útgáfunnar er Friðrik Ólafsson. Útgáfan haföi aðset- ur sitt í Lögbergi, cn varö að flytja þaöan í haust þegar kcnnsla hófst í lagadeild. Vinnan að útgáfunni fer nú fram í húsakynnum Skákskól- ans, Laugavcgi 40. Að sögn Sigurðar Líndal formanns stjórnar Lagastofn- unar verður nýja lagasafnið umfangsmeira en lagasafnið frá 1973. Að sögn Sigurðar er mikið af lögum sem spurning er um hvort að hafi nokkuð hagnýtt gildi og mætti að ósekju „grisja“ burt. En það er ekki endilega elstu lögin, sagði Sigurður, hcldur t.d. ýmis lög um efnahagsmál sem sett hafa verið á síðustu 10-20 árum og síðan verið leyst af hölmi að hluta til eða öllu leyti af nýjum lögum. Að sögn Sigurðar eru elstu gildandi lög úr Kristni- rctti Árna Þorlákssonar frá 1275 og 47 kapítular úr Jóns- bók frá 1281.1 þessi lög er oft vitnað í málflutningi og öll gildandi ákvæði um reka eru úr Jónsbók. Þessi aldur laga mun vera einsdæmi í Evrópu. -BM dropar Svanasöngur Ellerts í pólitík? ■ Ellert B. Schram ritstjóri I)V sagði á landsfundi Sjálfstæðis- fiokksins að sér þætti bæði rétt og skylt að skýra landsfundarfulltrú- um frá ástæðum þess að hann tók sér fri uin óákveðinn tíma frá alþingisstörfum. Hann sagði m.a. „Eg cins og aðrir stjórnmálamenn hef verið þcirri sök scldur að sjá ekki skóginn fyrir trjánum. Sann- lcikurinn cr sá að stærsta hætta stjórnmálamannsins er sú að hann gleymi hugsjónum sínum og hlut- verki í þágu ilokksins i ákafanum og leitinni að vegtyllum sjálfum sér til handa... Ég hef ekki farið í felur með að ég hef sóst eftir mciri áhrifiim og ég skammast mín ekki fyrir eitt cða ncitt... Eg lít ekki svo á, að ég sé að svíkja kjósendur þegar ég i krafti þess frelsis scm ég hcf sem einstaklingur rís upp og ákvcð hvernig ég geti best þjónað hugsjónum minum og gefið starfs- kröftum mínum útrás. Þvert á móti lít ég á það sem svik við kjósendur, tvískinnung og tvöfeld- ni, ef og þcgar leiðandi öfl i flokki sem kennir sig við frelsi og sjálf- stæði einstaklinga, skilja hvorki né viðurkenna inntak þcirra hug- taka sem flokkurinn hcfur boðað. Stærstu svikin og einustu svikin eru þau að svíkja málstaðinn og hugsjónina og þann málstað sem ég hef barist fyrir mun ég uldrci svíkja. Nú er það svo að okkar ágæti flokkur er ekki cinn um það að vera sjálfuin sé ósamkvæmur. Hégóminn og sjálfsblekkíngin eru allt í kringum okkur: Karlmaður- inn þarf að vera í góðri stöðu og sýnast ánægður, þótt starfið sé innantómt. Konan þarf að standa brosandi við hlið eiginmannsins, þótt hún sé löngu búin að fá nóg af honum.“ Er hér var komið í máli ritstjórans var landsfundar- fulltrfium óspart skemmt, enda hafa eflaust einhverjir þeirra leitt hugann að yfirlýsingu Ellerts í Heígarpóstsviðtali nú fyrir skömmu, þar sem hann upplýsti að áhugamál hans væru íþróttir og Ágústa. „Stöðutáknið er mikilvægara en sannleikurinnu ■ Ekki gat fariö hjá því að menn hortðu undrandi á ritstjórann er hann sagði síðar í máli sínu: „Eg vona að þið skiljið hvað ég cr að fara. Alls staðar er stöðutáknið mikilvægara en sannlcikurinn. Allir verða að sýnast vegna þess að það er meira spurt um útlitið, yfirborðið og metorðin." Þetta sagði maðurinn sem tók sér fri frá störfum á Alþingi um óákveöinn tíma vegna þess að honum var ekki trúað fyrir meiri völdum en þeim sem felast í þingmannsstarf- inu. Hann fékk ekki að verða ráðherra, hann fékk ekki að verða þingflokksformaður - hann átti „bara“ að vera þingmaður. Voru menn vart búnir aö meita þennan boðskap ritstjórans er hann sagði: ■* TViraSBffliSígiflM1 M-t „Mín vegna mega menn hrópa í kór að ég sé farinn í fýlu. Ég er af hreinskilni að vckja athygli ykkar á því að að þingmennska er sýnd- armennska ef ekkert er gert fyrir hana. Pólitík er skrípaleikur ef hún snýst um völd en ckki verk.“ Þótt Ellert lýsti því yfir í lok máls sins að hann væri ekki að hlaupast á brott úr Sjálfstæðisflokknum, þá voru margir fulltrúanna á því að Iokinni þcssari ræðu hans, að hann myndi ekki setjast aftur á Alþingi íslendinga - þetta hefði verið pólitískur svanasöngur Ellerts. Krummi . . . ... nú getum við bruðlað með kjaraskeröinguna á kvöldin og um helgar líka...!!!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.