Tíminn - 26.03.1986, Blaðsíða 2
Miðvikudagur 26. mars 1986
2 Tíminn
Hér má sjá hóp manna sem tengist Uglu útgáfunni. F.V. Sverrir Hauksson prensmiðjustjóri, Árni Einarsson frkv.stj.
Máls og menningar, Halldór Guðmundsson útgáfustjóri, Guðmundur Bcnediktsson prentsmiðjueigandi, Árni
Sigurjónsson ritstjóri Uglu útgáfunnar, Þorleifur Einarsson stjórnarformaður og Anna Einarsdóttir stjórnarmaður
í Máli og menningu. Innfellda myndin sýnir bækurnar í 1. pakka Uglu útgáfunnar. (T iinainvnd Sverrir)
Uglan:
Fimm kiljur fyrir
fimmhundrud kall
„Við crum að storka þcirri hug-
mynd að íslendingar séu óforbetran-
legir gyllinga- og harðspjaldamenn
með þessari útgáfu og leggjum meg-
in áherslu á þýddar skáldsögur, bæði
heimsbókmenntir og vandaðar
spennu- og skemmtisögur," sagði
Halldór Guðmundsson útgáfustjóri
Máls og menningar a blaðamanna-
fundi sem haldinn var í tilefni út-
komu fyrsta bókapakka Uglunnar-
íslenska kiljuklúbbsins. Þessi bóka-
pakki er stærsta átak Máls og
menningar í kiljuútgáfu til þessa og
eru í honum fimm bækur. Bóka-
klúbburinn Uglan var stofnaður fyrir
hálfu öðru ári til þess að efla kilju-
formið í bókaútgáfu hér á landi.
Áskriftaherferð fyrir bækur klúbbs-
ins fór í gang fyrir nokkrum vikum
og er ætlunin að gefa út á tveggja
mánaða fresti bókapakka sem inni-
heldur þrjár til fjórar bækur, og var
þetta sá fyrsti þeirra sem kom út í
gær.
Bækurnar í þessunt fyrsta pakka
eru: Stríð og friður fyrsta bindi, eftir
Leo Tolstoj, en þetta er fyrsta verkið
í heimsbókmenntaröð Uglunnar.
Hér er um að ræða endurútgáfu á
þýðingu Leifs Haraldssonar sem ver-
ið hefur ófáanleg lengi. Vitni deyr
eftir P.D. James er spennusaga í
tveimur bindum í þýðingu Álfheiðar
Kjartansdóttur. Aðalsöguhetjan í
þessari sögu er Dalgliesh lögreglu-
foringi sem menn ættu að kannast
við úr sjónvarpsþáttum. Veggjakrot
er lítil aukabók þar sem nokkrum
vel völdum slagorðum íslensks og
erlends veggjakrots hefur verið safn-
að saman. Þessi bók á að vera
lesendum til „ábyrgðarlausrar
skemmtunar" eins og segir í frétt
Uglunnar um hana. Jörð í Afríku
eftir Karen Blixen í þýðingu Gfsla
Ásmundssonar er nú endurútgefin
en hún hefur ekki verið fáanleg í
mjöglangantíma. Óskarsverðlauna-
kvikmyndin í ár er einmitt gerð eftir
þessari sögu og er verið að sýna
myndina í Laugarásbíói um þessar
mundir.
Hver pakki til áskrifenda kostar
kr. 498, en sumar þeirra bóka sem
út verða gefnar verða einnig seldar í
verslunum.
Bækur Uglunnar eru prentaðar í
Prentsmiðju G. Benediktssonar, en
prentsmiðjan gerði tilboð í fram-
leiðsluna sem var fyllilega sambæri-
legt við það verð sem stórar erlendar
kiljuverksmiðjur bjóða. Guðmund-
ur sagði við blaðamenn í gær að
þrátt fyrir litla fyrirgreiðslu til prent-
iðnaðarins almennt teldi hann ekki
ástæðu til að flytja inn prentverk og
að með örlítið meiri skilningi stjórn-
valda gætu íslendingar vel verið
samkeppnishæfir á þessu sviði. „Ef
við fengjum sömu fyrirgreiðslu og
prentsmiðjur á meginlandi Evrópu
gætum við tekið að okkur prentverk
fyrir útgáfufyrirtæki þar“, sagði
Guðmundur: B.G.
Myndin sýnir sendiherrahjónin ásamt formanni Indlandsvinafélagsins. F.v. Lilan Anand, Þóra Einarsdóttir, og
Roop Krishan Anand. Tímamynd Sverrir.
„Möguleiki á meiri tengslunr
-segir hr. Anand, hinn nýi sendiherra Indlands
Þriðjudaginn 18. mars s.l. afhenti
hr. Roop Krishan Anand, hinn nýi
sendiherra Indlands á íslandi forseta
íslands trúnaðarbréf sitt. Hr. Anand
hcfur aðsetur í Osló en þangað kom
hann fyrir um tveimur mánuðum.
Blaðamaður Tímans hitti hr. An-
and aö máli í hófi sem indlandsvina-
félagið hélt honum aö hcintili hjón-
anna Guðmundar Sveinssonar
skólameistara og konu hans Guð-
laugar Einarsdóttur.
Hr. Anand sagðist hafa notað
fyrsta tækifæri sem gafst til að koma
hingað til fslands og að hann hefði
mikinn áhuga á að cfla tengsl land-
anna bæði á hinu efnahagslega og
menningarlega sviöi. Sagðist hann
hafa átt annríkt þessa daga sent
hann hafi verið hér og átt viðræður
við ýntsa íslenska ráðamenn auk
þess að afhenda trúnaðarbréf sitt.
„Ég tel að grundvöllur geti verið
fyrir mun mciri efnahagslegri sam-
vinnu milli landanna, ög má í því
sambandi benda á möaulcika á að
flytja ál frá Indlandi sem unnið yrðiá
íslandi. Einnig er ég sannfæTður um
að við getum mikið lært af íslending-
unt varðandi úthafsveiðar, en
strahdlengja Indlands er löng og
fiskveiðar töluvcrt mikilvæg
atvinnugrein," sagði hr. Anand.
Menningarleg tengsl taldi hr. An-
and ekki síður mikilvæg og sagði að
í bígcrö væri að stofna lil Indlands-
viku hér á landi í júní í sumar, þar
sem íslendingum yrði kynnt ýmislegt
af því sem cr að gerast á Indlandi.
Sagðist hann vona að slíkt yrði til
þess að treysta samband landanna
enn frekar. í framhaldi af þessu væri
jafnvei hugsanlegt að koma upp
svipaðri kynningu unt ísland á Ind-
landi.
Hr. Anand hefur starfað í indversku
utanríkisþjónustunni síðan 1972 og
áður gegnt sendiherrastöðu á þrem
stöðurn, Kóreu, Argentínu og Sen-
egal. Kona hans er Lilan Anand.
Sendiherrahjónin fóru aftur til Osló
á sunnudag.
-BG
Feröaþjónusta bænda:
Ferðaþjónusta til
boða á 72 bæjum
Alls 72 bæir, hringinn í kringum
landið, eru nú orðnir aðilar að
Ferðaþjónustu bænda, samkvæmt
nýjum glæsilegum og greinargóðum
litmyndabæklingi sem samtökin hafa
gefið út fyrir árið 1986. í bæklingn-
um er að finna upplýsingar um þá
þjónustu sem stendur til boða á
hverjum bæ fyrir sig, sem er breyti-
leg frá einum bæ til annars og mjög
fjölbreytt. Einnig hefur verið ákveð-
inn samræmdur verðlisti fyrir gist-
ingu og fæði, sem getur verið allt frá
morgunverði eingöngu upp í fullan
sólarhringskost.
Gisting fyrir manninn í tveggja
manna herbergi ásamt morgunverði
kostar um 750 krónur fyrir nóttina,
um 1.080 kr. nteð hálfu fæði og um
1.500 með fullu fæði. Hálft gjald er
fyrir börn á aldrinum 4-11 ára (sem
ekki er ólíklegt að njóta mundu
sveitardvalar öðrum fremur) og frítt
fyrir börn undir 4 ára aldri.
Fyrir hjón með tvö börn, annað
yngra en 4 ára, mundi því gisting og
morgunverður (t.d. í hringferð um
landið) kosta rúmlega 13 þús. kr. í
vikuferð, gisting og hálft fæði 18.900
og með fullu fæði rúmlega 26 þús.,
eða rúmlega 6.500 kr. á mann á
„ferðaskrifstofu/auglýsingamáli".
Á sumuni bæjum er einnig mögu-
legt að leigja sumarhús, t.d. fyrir 3-5
í viku fyrir um 7.500 kr. eða hjólhýsi
fyrir um 5.400.
Auk þess að geta víða tekiö þátt í
heyskap yfir sumarið, réttum á
haustin eða öðrum bústörfum er á
mörgum bæjum boðið upp á hesta-
leigu og silungsveiði, á nokkrum
stöðum eru litlar einkasundlaugar.
Fyrir þá sem ferðast vilja ódýrara
stendur víða til boða gisting í svefn-
pokaplássi fyrir um 335 kr. á mann
yfir nóttina og sömuleiðis eru víða
lítil tjaldstæði við bæi mcð hrein-
lætisaðstöðu.
Möguleikarnir eru því margir og
gæti óefað verið gaman fyrir þéttbýl-
isfólk, sem margt dvaldi í sveit í
æsku, að rifja upp kynnin við sveit-
irnar og siá bá brevtingu sem þar
hefur átt sér stað og koma um leið
börnurn sínum í snertingu við hús-
dýrin og ýmiss undur náttúrunnar
hvort sem cr til fjalls eða í Ijöru.
-HEI
Rúmlega 108 þús. útlendingar til landsins 1985:
Vetrarferoamönn-
um stórfjölgaði
Hin mikla fjölgun erlendra ferða-
manna hingað til lands á síðasta ári
varð fyrst og fremst á síðustu mánuð-
um ársins og einnig þeim fyrstu, en
lítil yfir sumartímann. Hjá íslend-
ingum sjálfum varð fjölgunin lang
mest á fyrstu mánuðum ársins.
Kontur erlendra ferðamanna
mánuðina sept.-des. s.l. voru tæp-
lega 22 þús., sem var um 38%
fjölgun frá árinu á undan og um
14.700 fyrstu fjóra mánuði ársins,
sem var rúmlega 19% fjölgun frá
1984. Lang flestir kontu þó enn
mánuðina maí-ágúst, eða um 60.900,
en fjölgunin á því tímabili var aðeins
tæp 7% milli ára. í heild komu
hingað 97.443 erlendir ferðamenn á
síðasta ári, sem var 14,4% fjölgun
frá 1984. Þar til viðbótar komu hér
við rúmlega 10.800 farþegar er-
lendra skemmtiferðaskipa, sem var
48% fjölgun frá 1984, þegar þeir
voru að vísu fremur fáir.
Komum íslenskra ferðalanga til
landsins fjölgaði einnig milli ára, um
6.6% og urðu 95.662. Meira en
helmingur fjölgunarinnar varð á
tímabilinu jan.-apríl, eða um 20%.
Nokkuð innan við helmingur ís-
lensku ferðalanganna kom heim yfir
sumartímann, maí-ágúst og litlu
fleiri en árið áður. Fjölgun á síðustu
mánuðum ársins varð einnig hlut-
fallslega lítil.
-HEI
Framsóknarflokkurinn:
Framboðslistinn
í Reykjavík
Á fjölmennum fundi í Fulltrúaráði framsóknarfélaganna í Reykjavík
sem haldinn var s.l. mánudag var einróma samþykktur meðfylgjandi
framboðslisti Framsóknarmanna í Reykjavfk við borgarstjómarkosning-
arnar í vor. Listinn er að jöfnu skipaður konum og körlum.
1. Sigrún Magnúsdóttir, kaupmaður
2. Alfreð Þorsteinsson, forstjóri
3. Þrúður Helgadóttir, iðnverkakona
4. Hallur Magnússon, nemi
5. Margeir Daníelsson, framkvæmdastjóri
6. Sveinn Grétar Jónsson, verslunarmaður
7. Helgi S. Guðmundsson, markaðsfulltrúi
8. Sigurður Ingólfsson, deildarfulltrúi
9. Guðrún Einarsdóttir, kennari
10. Dr. Þór Jakobsson, veðurfræðingur
11. Friðrik Jónsson, nemi
12. Bryndís Einarsdóttir, ritari
13. Kristrún Ólafsdóttir, kennari
14. Valdimar Kr. Jónsson, prófessor
15. Höskuldur B. Erlingsson, símsmiður
16. Anna Margrét Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur
17. Jóhanna Snorradóttir, bankamaður
18. Snorri Sigurjónsson, rannsóknarlögreglumaður
19. Sigríður Hjartar, lyfjafræðingur
20. Matthildur Stefánsdóttir, ritari
21. Steinúnn Þórhallsdóttir, nemi
22. Guðrún Flosadóttir, húsmóðir
23. Sesselja Guðmundsdóttir, hárgreiðslunemi
24. Finnbogi Marínósson, verslunarstjóri
25. Sigríður Jóhannsdóttir, sjúkraliði
26. Helgi Hjálmarsson, arkitekt
27. Björg Sigurvinsdóttir, húsmóðir
28. Páll R. Magnússon, húsasmiður
29. Dóra Guðbjartsdóttir, húsmóðir
30. Kristján Benediktsson, borgarfulltrúi