Tíminn - 21.02.1988, Blaðsíða 8

Tíminn - 21.02.1988, Blaðsíða 8
8 Tíminn Sunnudagur 21. febrúar 1988 Norröna er tígulegt skip og um borð er fjölbreytt aöstaöa til dægrastyttingar. Að sumra áliti verður siglingin skemmtilegasti hlutinn af fríinu. 0ÞRI0TANDI“ - segir Emil Kristjánsson í spjalli um siglingar með Norröna á komandi sumri í sumar hefjast enn að nýju hinar mjög svo vinsælu ferðir færeysku ferjunnar Norröna, en það var árið 1975 að gamli Smyrill tók að sigla til Seyðisfjarðar og þaðan til Færeyja og Norðurlanda. Það skip var aðeins 2400 lestir, en hið nýja skip er 8100 lestir og sá aðstöðu og þægindamunur sem skipaskiptin höfðu í för með sér var mikill, eins og mörgum íslendingi er kunnugt. Norröna kom hér fyrst 1983. Það er hlutafélagið „Smyrill Line“ sem gerir út Norröna og við slógum á þráðinn til umboðsaðilanna, Ferðaskrif- stofu ríkisins, á dögunum og inntum Emil Kristjánsson, fulltrúa, eftir þeim ferðum sem boðið verður upp á á komandi sumri. „Viðtökur íslendinga við þessum ferðum urðu strax góðar og á síðasta sumri telst okkur til að farþegafjöld- inn hafi verið um 1700 manns. Það má segja að ferjan sigli þrjár leiðir. Þær eru Þórshöfn - Seyðis- fjörður - Þórshöfn, Þórshöfn - Hanstholm (Danmörku) - Þórshöfn, og loks Þórshöfn - Leirvík - Björg- vin og til baka - Leirvík - Þórshöfn. Sé miðað við Seyðisförð er leiðin því Seyðisfjörður, Þórshöfn, Hastholm, Þórshöfn, Leirvik, Björgvin, Leirvík, Færeyjar, Seyðisfjörður." TEKUR UMÞUSUND FARÞEGA „Ferjan tekur um þúsund farþega og 250 bíla og nú gætum við litið á verðhliðina, en segja má að sjaldan hafi verið eins ódýrt að fara með ferjunni og núna. Ef við tökum mið af fjögurra manna fjölskyldu, sem siglir til Dan- merkur, en kemur heim frá Bergen, líkt og margir gera, þá gæti þetta litið svona út. (Við gerum ráð fyrir að tvö barnanna séu innan við 15 ára aldur og að þau hafi fjölskyldubílinn með): Þau mundu fá þægilegan fjögurra manna klefa með salerni og sturtu; þetta mundi kosta þau 69.800 krónur og áætlum við að þriðja barnið sé með og sé undir sjö ára aldri, flyti það með fyrir 1650 krónur. Þetta eru verðin á mesta annatímanum. En sé þetta fólk á ferðinni þann 2., 9., eða 16. júní, verður þetta mun ódýrara. Þá færi þetta 69.800 króna dæmi niður í 60.350 krónur. Einnig mundi ferðin lækka, ef farið væri frá Noregi eftir 7. ágúst. Þá lækkaði ferðin niður í 61.800. MARGTTIL ÞÆGINDAAUKA „Um borð í skipinu fást fjögurra og tveggja manna klefar með sturtu og salerni, en líka fjögurra manna klefar, sem aðeins eru með hand- laug. Ódýrust eru aftur svonefnd svefnpláss, en þá er átt við 6-12 manna klefa, jrar sem ekki fylgja rúmföt og er þessi aðstaða einkum ætluð unglingahópum, sem ferðast vilja sem ódýrast og gefa minni gaum að þægindum. Dekkpláss eru Sunnudagur 21. febrúar 1988 Tíminn 9 Norröna getur flutt 250 bifreiðar og í fyrra urðu farþegar um 1700 á sumrinu. Meðal fagurra staða í Færeyjum er þorpið Gjógv, sem erá norðurströnd Austureyjar. óþekkt fyrirbæri lengur. Allir hafa því samastað og eru ekki að flækjast fyrir öðrum. En svo fást líka lúxus- klefar með tvíbreiðum rúmum og sérstökum þægindum. en þeir eru þó ekki nema fimm. Um borð er að finna ákaflega fínan veitingastað og sem dæmi vil ég nefna að þar er geysimikið hlað- borð í boði á kvöldum. Það er svo vinsælt að miklu fleiri nota sér það en „á la carte-1 seðilinn. Þarna má líta marga íslenska og færeyska sér- rétti og ótal margt annað, auk for og eftirrétta. Þetta kostar innan við 600 krónur ísl. Líka er hægt að borða enn ódýrara í veitingabúðinni aftur á skipinu. Þar er barnakrókur með allra handa leiktækjum. Enn er að nefna píanóbar, þar sem margir sitja fram eftir nóttu og næturklúbbur. Þar er stór bar og hljómsveit. Þetta rými er um daga notað undir kvikmyndasýningar. Og ekki má gleyma fríhöfninni, sem er opin á verslunartíma og engin örtröð. Enn eru spilakassar fyrir þá sem gaman hafa af slíku og sóldekk- ið kemur að góðum notum, því iðulega eru sólríkir daga á leiðinni. Sjálfur hef ég tvívegis farið með Norröna ásamt fjölskyldunni og reynsla mín hefur verið sú að þegar menn eitt sinn hafa komist upp á lag með þetta, vilja menn endilega halda áfram að ferðast sjóleiðina. Ekki síst eru það börnin sem ýta á mann, því þetta er svo skemmtilegur ferða- máti. Oft verður siglingin ánægjuleg- asti hlutinn af sumarfríinu. Skipið er með svo nýtískulegan stöðugleika- búnað, að þarna sjást ekki votir dúkar né brúnir á borðum, til öryggis ( veltingi. Þess þarf ekki. Ferðin til Danmerkur tekur tvo sólarhringa, en mörgum finnst líka ógleymanlegt að staldra við í Færeyj- um, því þetta er ákaflega skemmti- legur staður að koma til, þótt of fáir hafi uppgötvað það, en þangað er ekki nema átján tíma sigling. Það er um að gera að hafa bílinn með, sé farið þangað, því þar er margt hægt að aka og nóg að sjá. Færeyjasigling fyrir áðurnefnda fjöiskyldu mundi ekki kosta nema 43.140 krónur. Á utantímabilsafslætti yrðu þetta 37.750. Nú er talsvert um að hópar heimsæki Færeyjar og slái sér saman um rútu, en ef um sex manna hóp er að ræða, flytjum við rútuna frítt. Enn er allt of lítið um að fólk staldri við á Hjaltlandseyjum. Ég mundi mjög mæla með þriggja daga ferð til Færeyja og sólarhringsvið- stöðu á Hjaltlandseyjum, meðan skipið fer til Noregs. Af því yrði enginn svikinn og menn kynnast grannlöndum sem of fáir hafa farið til. Það eru ótal möguleikar. Einn er sá að fara til Danmerkur, halda suður Evrópu og koma heim um Skotland, en við erum með ágæta samninga við skosk ferjufélög um flutning til Leirvíkur frá Aberdeen. Ég mæli með að fólk kynni sér vel áætlunina okkar og við munum þeg- ar gera verðtilboð." llllllli_VlS^A&A!lIIOJR_ll!!llillllltllll!ll!íliillllÍ!l!!!l!il!!llllll!!Il!!liillllllllll!llllllllllllllllllIlÍ!illil „Hver vill telja kærleik synd?u 15. þáttur Fyrstu tvær vísurnar eru eftir Kristjón Jónsson frá Skarði í Haukadal. Hver vill telja kærleik synd. Hver vill lasta blæinn. Hver vill banna Ijúfri lind að líða beint í sæinn. Ást er dropi lífs af lind leikur, þrá og styrkur. Ástleysi er sorg og synd svívirðing og myrkur. Hinn kunni hagyrðingur Jón S. Bergmann, kvað svo. Eg er fremur fótasár forna þrekið brestur. Eg hef samfellt sautján ár sofnað næturgestur. Jón kvað einnig þessa vísu, og er sagt að hann hafi þá verið einbúi, en þó köttur deilt með honum húsnæðinu. Þó mér bregðist heillin hlý hentar síst að kvarta. Meðan ég á ítök í einu kattarhjarta. Jón Jónsson, bóndi á Gilsbakka í Skagafírði fór eitt sinn að fínna bróður sinn Ara á Þverá í Eyjafirði. Jón kom síðkvelds að Þverá og kvað draugslegri röddu á glugga vísu þessa. Seint á kvöldin sækir að sá er húsum ríður. Ari, komdu út á hlað afturgangan bíður. Jón Guðbrandsson í Skáley og á Vogi um síðustu aldaniót, var eitt sinn í kaupavinnu hjá Birni Stefánssyni bónda á Reynikeldu á Skarðsströnd. Jón hvað svo er honum þótti dragast að matmálstími kæmi. Tekur nú að tæmast görn tíminn finnst mér langur. Jeg vil fá að jeta Björn jeg er orðinn svangur. Páll Helgason á Akureyri hlýddi á Matthías Jóhannessen lesa upp Ijóð sín í útvarpi og kvað. Áður fyrr hér orti Matthías sem almenningur feginn, las og skildi. Nú hér yrkir annar Matthías sem enginn skilur, feginn þó hann vildi. Síðustu vísumar eru eftir Bjama Jónsson, gullsmið frá Gröf í Víðidal. Ágjöf Bölvuð ellin. ógnar mér allt að velli mylur. Á mig hella árín sér eins og fellibylur. Lasleiki Það er ósköp af mér dregið ég ætti að vera á hælinu. Og aldrei hefi ég áður legið ófullur í bælinu. Hestavísa Ég átti margan mætan hest mjúkan hefi ég ganginn kannað. Þeirra skemmtun þótti mér best þangað til ég reyndi annað. Kristmundur Jóhannesson Giljalandi Haukadal371. Búðardalur Sími 93-41352 TÖLVU NOTENDUR Við í Prentsmiðjunní Eddu hönnum, setjum og prentum allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000 NOTAR ÞÚ? V' 15% kynningarafsl.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.