Tíminn - 05.10.1988, Síða 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 5. október 1988
Sr. Heimir Steinsson, sóknarprestur og þjóðgarðsvördur á Þingvöllum,
hefur fallist á eftirleitan vina sinna og gefur kost á sér til kjörs.
Sr. Ólafur Skúlason, dómprófastur og vígsiubiskup, hefur ákveðið að
skorast ekki undan kjörí. Tímamynd Pjelur
Búist við ákvörðun um starfslok fráfarandi biskups á kirkjuþingi í lok þessa mánaðar:
Þrýst er á biskups-
efnin Heimi og Olaf
Á næsta ári mun herra Pétur
Sigurgeirsson, biskup yfir íslandi,
láta af störfum í síðasta lagi sökum
aldurs, en búist er við að hann gefi
yfirlýsingu þess efnis á kirkjuþingi
sem hefst 25. október nk. Af þeim
sökum hafa prestar þjóðkirkjunnar
og leikir menn rætt sín á milli um
hver gæti hugsanlega tekið við því
háa embætti. Samkvæmt heimild-
um Tímans hafa nú þegar myndast
tveir hópar atkvæðisbærra manna
þar sem hvor um sig hefur ákveðið
biskupsefni fyrir sitt leyti. Annar
hópurinn hefurþjappast um núver-
andi vígslubiskup Skálholtsstiftis
og dómprófast, sr. Ólaf Skúlason.
Hinn um sr. Heimi Steinsson,
sóknarprest og þjóðgarðsvörð á
Þingvöllum.
í viðtali við Tímann sagði sr.
Ólafur Skúlason að það hafi verið
leitað til sín víðs vegar að af
landinu og hann beðinn að taka að
sér þetta embætti. „Ég hef ákveðið
að skorast ekki undan kjöri en þess
má reyndar geta að allir prestar og
guðfræðingar eru í kjöri til
biskups," sagði sr. Ólafur.
Sr. Heimir Steinsson, segir að
málið snúist ekki um sig heldur
þann hóp sem komið hafi að máli
við sig og óskað eftir því að hann
gefi kost á sér til kjörs. „Það væri
gikksháttur að banna góðum
mönnum að velta þessum mögu-
leika fyrir sér og því hef ég fallist á
eftirleitan vina minna. Þó er rétt að
benda á að guðfræðingar upp til
hópa eru kjörgengir,“ sagði sr.
Heimir.
Leikir og lærðir kjósa
Eftir því sem Tíminn kemst næst
getur ýmislegt komið á óvart þegar
farið verður að hreyfa þessu á
lokatafli. Atkvæðagreiðslan er
leynileg og skrifleg og tekur nokkr-
ar vikur að framkvæma hana. Þeir
sem kjósa mega næsta biskup eru
um 130guðfræðingarsemerustarf-
andi sóknarprestar og kennarar
við guðfræðideild H.í. auk bisk-
upsritara sé hann guðfræðingur.
Úr 15 prófastsdæmum koma svo 16
leikmenn til að kjósa og einnig eru
allir leikmenn sem sitja kirkjuþing,
níu að tölu, í hóp kjósenda. Kjör-
menn eru því um 155 að tölu.
Hr. Pétur sjötugur í júní
Óvissunni með dagsetningar á
því hvenær núverandi biskup segir
af sér embætti, verður trúlega eytt
á kirkjuþingi sem hefst 25. október
nk. Þar flytur biskup setningar-
ræðu sína og getur fjallað um mál
eins og þessi á opinberan hátt.
Það sem þó liggur fyrir er að
herra Pétur Sigurgeirsson verður
sjötugur þann 2. júní 1989. Fram-
kvæmd laga um réttindi og skyldur
opinberra starfsmanna um
starfslok, hefur verið nokkuð á
reiki undanfarin ár, en oftast er
miðað við afmælisdag embættis-
mannsins, og þá í flestum tilfellum
þegar hann verðursjötugur. Stund-
um er þó vikið út af þeirri reglu og
miðað við þann mánuð sem emb-
ættismaðurinn nær sjötugsaldri, en
í einstaka tilfellum að honum eru
gefnar nokkuð frjálsar hendur að
hætta störfum hvenær sem er á 70.
aldursári.
Prestastefna
og páfaheimsókn
Aðstæður í kirkjunni eru þannig
að biskup gæti ákveðið að stýra
sjálfur prestastefnu á næsta ári, en
hún er haldin síðari hluta júnímán-
aðar, og skila þar afsérembættinu.
Þá er ekki síður líklegt að fráfar-
andi biskup taki eitthvert mið af
komu páfans í byrjun sama mánað-
ar, en gert er ráð fyrir að biskupinn
yfir íslandi stýri þá samkirkjuiegri
messu undir berum himni á Þing-
völlunt. Verður það stórviðburður
í kirkjusögu íslands og mun eðli-
lega krefjast nokkurs undirbún-
ingstíma. Er ekki ólíklegt að frá-
farandi biskup ákveði biskups-
skipti með tilliti til þess að næsti
biskup hafi annað hvort góðan
tíma til undirbúnings fyrir páfa-
heimsóknina og prestastefnu, sem
hvort tveggja verður í júní, eða þá
að biskupsskiptin verði ekki fyrr
en 1. júlí í fyrsta lagi.
Heilsa núverandi biskups getur
öðru fremur átt sinn þátt í að hann
kjósi heldur að láta af störfum fyrr
en síðar á næsta ári. Hann hefur
þegar þurft að hverfa þrisvar frá
störfum um nokurra vikna og mán-
aða skeið vegna veikinda á síðast-
liðnum 17 mánuðum og nú síðast í
júlí. ,
Ekkert framboð
Ljóst er að eftirmaður herra
Péturs Sigurgeirssonar, verður
ekki valinn í skyndi. Um þetta
æðsta embætti þjóðkirkjunnar
gilda s£rstakar reglur um biskups-
kjör.'pap'Sem flestir guðfræðingar
geta átt von á því að verða nefndir
til starfsins. Ekkert framboð verð-
ur og ekki verður heldur um það
að ræða að framboð sé auglýst.
Hins vegar hefur myndast sú hefð
að atkvæðisbærir menn koma sér
saman um ákveðna menn til að
auðvelda kjörið. Síðara kjör fer
síðan fram á milli þeirra þriggja
sem flestir hafa tilnefnt. Fram-
kvæmd kjörsins er nokkuð tíma-
frek og getur tekið vel á annan
mánuð að fá úr því skorið hver
veröur næsti biskup, frá því kjör-
gögn hafa verið útbúin. Þarf fyrst
að skipa kjörnefnd og síðan að
útbúa kjörskrá. Kjörskráin þarf að
liggja frammi í fjórar vikur fyrir
kjörið. Að lokinni kosningu þarf
að líða einnar viku kærutími þar til
talið er. Að því loknu þarf að kjósa
aftur ef enginn einn nær hreinum
meirihluta og er þá kosið á milli
þriggja efstu manna.
Biskupsskipti
1. júlí 1989?
Þá hefur þótt rétt að niðurstaða
liggi fyrir nokkru áður en eftirmað-
ur á stóli á að taka við embætti þar
sem hann þarf vitanlega að segja
öðrum störfum lausum með eðli-
legum fyrirvara.
Verði biskupsskipti 1. júlí á
næsta ári er ekki óeðlilegt að
undirbúningur að biskupskjöri
verði formlega hafinn strax í árs-
byrjun í síðasta lagi. Er þá miðað
við að kjörið taki um tvo mánuði
og því verði lokið þannig að næsti
biskup hafi um þriggja mánaða
aðlögunartíma með tilliti til þeirra
starfa sem hann hverfur frá. KB
Hettufantarnir játuðu allir
Fjórmenningarnir sem hnepptir
voru í gæsluvarðhald vegna innbrots
í Sævargarða 1 á Seltjarnarnesi að-
faranótt sunnudagsins25. september
játuðu innbrotið í fyrradag við yfir-
heyrslur hjá RLR. Rannsókn máls-
ins er á lokastigi og fleiri eru ekki
taldir koma við sögu.
Þrír mannanna brutust inn í húsið,
þar sem þeir rændu tæplega 20
þúsund krónum, skartgripum og
áfengi, auk þess sem þeir réðust á
öldruð hjón sem þar búa, með þeim
afleiðingum að flytja þurfti konuna
á sjúkrahús með sprungna mjaðma-
grind. Fjórði maðurinn tók ekki þátt
í sjálfu innbrotinu, en hann mun
hafa verið á ferð á Seltjarnarnesi
ásamt einum hinna þriggja, fyrr um
kVöldið, og bent á Sævargarða 1 að
því er virðist vegna tilviljunar og
sagt að þar væru mikil verðmæti.
Síðan fara þeir til Reykjavíkur og
leiðir skilja.
Síðar um kvöldið fara síðan þre-
menningarnir út á Seltjarnarnes,
brjótast inn húsið og ráðast að
íbúunum og hafa á brott með sér'
verðmæti.
Daginn eftir koma þeir saman á
nýjan leik og þá fjórði maðurinn
einnig og neyta þeir áfengisins. Þýfið
hefur ekki komið í leitirnar.
Mennirnir hafa allir komið við
sögu lögreglu áður og verða þrír
þeirra í gæsluvarðhaldi til 12. októ-
ber. Fjórði maðurinn varúrskurðað-
ur í gæsluvarðhald til dagsins í dag,
en hann mun hefja afplánun eldri
dóms í dag. -ABÓ
GuðmundurJ.
hættir í ASÍ
Guðmundur J. Guðmundsson for-
maður Dagsbrúnar og Verkamanna-
sambandsins hefur ákveðið að hætta
í miðstjórn Alþýðusambands íslands
á þingi ASÍ sem haldið verður um
miðjan nóvember nk. Þetta kemur
fram í tímaritinu Mannlífi sem út
kemur á föstudag.
Ástæðuna segir Guðmundur vera
þá að ætli menn að halda áfram eftir
sextugt verði þeir að vera haldnir
óseðjandi metnaðargirnd og vera
með fádæmum heilsuhraustir, sem
hann sé hvorugt.
Þá hefur Guðmundur einnig
ákveðið að hætta sem formaður
Verkamannasambandsins á þingi
þess sem haldið verður eftir tæpt ár.
Hins vegar hefur hann hug á að
starfa áfram hjá Dagsbrún.
Átökin viö Bifreiðastöð
Hafnarfjarðar:
Úrskurðaður
í varðhald
47 ára gamall maður búsettur í
Hafnarfirði hefur verið úrskurðaður
í gæsluvarðhald til 26. október nk.
vegna gruns um að hafa lent í
átökum við 37 ára gamlan Reykvík-
ing við Bifreiðastöð Hafnarfjarðar
aðfaranótt sunnudags og veitt hon-
um áverka á höfði.
Maðurinn var fluttur á Borgarspít-
alann þar sem gerð var höfuðaðgerð
á honum. Hann er ekki kominn til
meðvitundar, og er talinn í bráðri
lífshættu. -ABÓ
Hækkun bóta
almanna-
trygginga
í yfirlýsingu ríkisstjórnar Stein-
gríms Hermannssonar um fyrstu að-
gerðir í efnahagsmálum er gert ráð
fyrir sérstökum aðgerðum til að
jafna kjör og bæta afkomu lífeyris-
þega.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, Guðmundur Bjarnason, gaf
út 28. september sl. reglugerð um
3% hækkun bóta almannatrygginga
frá 1. október sl. Hækkun þessi nær
til tekjutryggingar, heimilisuppbótar
og sérstakrar heimilisuppbótar.
Eftir þessa hækkun ergrunnlífeyr-
irinn kr. 9.577, tekjutryggingin kr.
17.620, heimilisuppbótin kr. 5.990
og sérstaka heimilisuppbótin kr.
4.120.
Sú breyting var gerð á bótaflokk-
um almannatrygginga 1. september
1987 að bætt var við nýjum bóta-
flokki, sérstakri heimilisuppbót, sem
tryggja á að bætur einstaklings séu
aldrei undir lágmarkslaunum. Eftir
bótahækkunina nú eru bætur ein-
staklings kr. 37.303 en lágmarkslaun
kr. 33.040. Bætur almannatrygginga
eru því orðnar í dag 13% hærri en
lágmarkslaun.
Leiðrétting
Tíminn greindi frá því í gær að
stúlka hefði slasast á Miðafrétti og
sagt frá þrekraun hennar í framhaldi
af því slysi er hún reið til byggða,
mjaðmagrindarbrotin. Af gefnu ti-
lefni vill Tíminn taka fram að það
voru ekki gangnamenn af Miðafrétti
er voru í för með stúlkunni, eins og
ranglega var hermt í fréttinni.
Það voru gangnamenn sem ætluðu
til smalamennsku á Landbrotsaf-
rétti, og voru þeir á leið í gangna-
mannakofa f Hrossatungu, þegar
slysið varð á Miðafrétti. Landbrots-
afrétt smala bændur úr Landbroti.
Ritstj.