Tíminn - 20.07.1989, Blaðsíða 2

Tíminn - 20.07.1989, Blaðsíða 2
2 Tíminn Fimmtudagur 20. júlí 1989 Borgarráð: Fyrirspurn um þjónustuíbúðir Á síðasta borgarráðsfundi bar Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi framsóknarflokksins fram fyrirspurn varðandi það hversu mörgum íbúðum hefði verið úthlutað til aldraðra á síðastliðnu ári. Fyrirspurn- in er í tveimur liðum. í fyrsta lagi hversu margar af þessum íbúðum væru byggðar með þjónustukjama og í öðra lagi hversu margar þessara íbúða væru án þjónustukjarna. Sigrún sagði í samtali við Tímann að kveikjan að fyrirspurninni væri grein eftir Hrafn Pálsson sem birtist í Tímanum 6. júlí síðastliðinn, en þar hafi Hrafn haldið því fram að alltof mikið væri byggt af dvalar- heimilum þar sem fólk vilji almennt vera sem lengst á eigin heimili og sjá sjálft um sín mál. Því eigi áherslan að vera á eflingu heimilisþjónustu sem stuðli að slíku fyrirkomulagi. Sigrún sagði jafnframt að hana væri farið að gruna að byggðar væru ósköp venjulegar blokkir með litlum íbúðum sem kallaðar væru „íbúðir fyrir aldraða" en þar væri ekki boðið upp á neina sérstaka þjónustu fyrir íbúana og í fæstum tilfellum væru byggðir þjónustukjarnar við slíkar blokkir. Sigrún sagðist ennfremur telja að íbúðir af þessu tagi væru yfirleitt dýrari þar sem talað væri um að þær væru sérhannaðar fyrir aldr- aða. „Mér finnst svo skrítið hvað þetta blómstrar núna, það virðast allir verktakar vera að byggja fyrir aldraða og ég tel rétt að upplýsingar af þessu tagi liggi fyrir hjá borgaryf- irvöldum." SSH Samtök verslunarskólanema á Norðurlöndum: Fyrsta eintak Krabbameinsbókarinnar var afhent forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, en hún er verndari Krabbameinsfélagsins. Viðstaddir vorn Jóhannes Tómasson ritstjórí bókarinnar og Almar Grímsson formaður félagsins. Krabbameinsfélagið: Gefur út bók um krabbamein Berjastfyrir hags- munum íslands í EB Samtök verslunarskólanema á Norðurlöndum héldu sinn fyrsta aðalfund í Osló fyrir skömmu, en samtökin voru stofnuð á síðasta ári. Börkur Gunnarsson, tvítugur forseti nemendafélagsins í Verslunarskóla íslands var kjörinn varaformaður samtakanna, en helsta baráttumál íslendinga á þessum fundi var að fá stuðning samtakanna við að Danir settu ekki takmarkanir á framhalds- nám fslendinga í Danmörku árið 1992, þar sem íslendingar eru ekki aðilar að Efnahagsbandalagi Evr- ópu. Börkur Gunnarsson sagði í samtali við Tímann að mjög vel hefði verið tekið í það mál af öllum aðilum. Hann sagði að fulltrúar frá öllum Norðurlandaþjóðunum nema Svíþjóð hefðu mætt á fundinn, en Frístund sf. kaupir Nesco Nú nýverið keypti verslunarfyrir- tækið Frístund rafeindatæki sf. vöru- umboð þau sem áður voru seld hjá Nesco Laugavegi hf. Frístund raf- eindatæki sf. er til húsa í Skútuvogi 11, Reykjavík. Pær vörutegundir sem Nesco flutti inn eru nú allar til sölu hjá Frístund og einnig öll eftirþjónusta tækja. Viðgerða- og varahlutaþjónusta Frístundar flytur innan skamms í Skútuvog 11, á sama stað og sölu- deildin. GS Hönnum auglýsingu FRÍTT þegar þú auglýsir í Tímanum AUGLÝSINGASÍMI S80001 vonast er til að Svíar bætist brátt í hópinn. Tilgangur samtakanna er að vernda hagsmuni verslunarskóla á Norðurlöndunum og skiptast á upp- lýsingum og jafnvel koma upp nem- endaskiptasambandi. „Ef við byggj- um þessi samtök rétt þá ættu þau að geta orðið mjög öflug. Parna eru fulltrúar fyrir hátt á annað hundrað þúsund nemendur,“ sagði Börkur. Samtökin verða rekin með stuðningi fyrirtækja á Norðurlöndunum, en mesta vinnan mun lenda á herðum forseta og varaforseta þeirra, og gerir Börkur því ráð fyrir að ferðast töluvert fyrir málstaðinn. Hann sagði að samtökin yrðu töluvert notuð til að þrýsta á mál í einstökum löndum sem eru mikilvæg fyrir nem- endur þar, og nefndi hann sem dæmi að vel mætti hugsa sér að þau berðust fyrir niðurfellingu skatta á námsbókum á íslandi. Næsti aðalfundur samtakanna er ráðgerður eftir tvö ár. LDH- HELLUR MED TREFJABLÖNDU Hjálparhellan hf. í Kópavogi hef- ur hafið framleiðslu á svokölluðum trefjahellum, til notkunar jafnt á gangstíga og bílastæði, sem og innan húss. Að sögn Friðriks Sigurmundsson- ar eins af eigendum fyrirtækisins er blandað plasttrefjum við steypuna sem notuð er í kjama hellunnar. „Það gerir það að verkum að mögu- legt er að hafa hellurnar þynnri og léttari, og um leið að auka styrk þeirra, samanborið við hefðbundnar þykkari hellur án trefja," sagði Friðrik. „Krabbameinsbókin“ er heiti á nýrri bók sem Krabbameinsfélag Islands hefur gefíð út og hefur hún að geyma margháttaðan fróðleik um krabbamein. Bókin er skrifuð af læknum, hjúkrunarfræðingum og fleirum en við vinnslu hennar var reynt að safna saman ýmsum gagnlegum upplýsingum fyrir sjúklinga og vandamenn þeirra. Frumkvæði að samantekt bókarinnar átti Óskar heitinn Kjartansson gullsmiður en hann féU frá áður en verkinu lauk. Bókin er 108 blaðsíður og fjalla fyrstu kaflamir um almenn atriði varðandi krabbamein og meðferð þess. Þá eru fjórar frásagnir um reynslu krabbameinssjúklinga og síðan koma tíu kaflar um nokkur algengustu krabbamein karla og kvenna. Eru þeir kaflar skrifaðir af læknum. f lokin eru kaflar um aðstoð og þjónustu sem hægt er að leita eftir. Hugmyndin með þessari bók Krabbameinsfélagsins er að lesend- ur geti þar fundið upplýsingar um krabbamein, fái ábendingar um þjónustu fyrir krabbameinssjúklinga og að hún verði til að efla baráttu- gleði allra sem segja þurfa krabba- meini stríð á hendur. f fréttatilkynningu frá Krabba- meinsfélaginu segir ennfremur: „Krabbamein hefur oft verið talinn dauðadómur en með framförum í læknavísindum á síðustu árum má segja að svo sé ekki lengur. krabba- mein er sjúkdómur en ekki dauða- dómur. I bókinni kemur fram í samtölum við sjúklinga, að nauðsyn- legt sé að vera bjartsýnn og halda í vonina um lækningu. Baráttugleði ætti að vera kjörorð krabbameins- sjúklingsins og aðstandenda hans.“ Nokkrir velunnarar Krabba- meinsfélagsins hafa stutt útgáfuna fjárhagslega, m.a. fjölskylda Öskars Kjartanssonar. Trefjarnar gefa steinsteypunni nýja eiginleika s.s. meiri sveigjan- leika, betri hitaleiðni og því hentug- ar ofan á snjóbræðslulögn, auk þess sem létt er að vinna með þær. Fíngerð sementsblanda er notuð á efsta lag hellunnar, sem gefur þeim þétt yfirborð og því fallega áferð, og betra veðrunarþol. Hellur af þessari gerð hafa verið framleiddar um nokkurra ára skeið og þykja hentugar bæði fyrir gang- stíga sem og á bílastæði, auk þess sem þær hafa verið lagðar innanhúss. Hjálparhellan hf. er til húsa í Vestur- vör 7, Kópavogi. -ABÓ Einar og Friðrik Sigurmundssynir eigendur og starfsmenn Hjálparhellunnar hf. sem framleiðir svokallaðar trefíahellur. Tímamynd pjctur Nefnd um rekstur Sinfóníuhljómsveitar íslands: Fjölga þarf spilurumog hlustendum Nefnd sem skipuð var af mennta- málaráðherra í vor til að fara ofan í reksturinn á Sinfóníuhljómsveit íslands hefur skilað af sér. Helstu niðurstöður nefndarinnar eru þær að fjölga beri fastráðnum hljóð- færaleikurum í hljómsveitinni upp í 78-80 manns samhliða almennri endurskoðun á rekstrinum, mark- aði hennar, viðfangsefnum og áætl- anagerð. Þá telur nefndin að endurskipuleggja þurfi umsýslu Sinfóníunnar þannig að nýta megi betur það fé sem varið er til stofnunarinnar á fjárlögum. Þá tel- ur nefndin að hljómsveitin nái ekki eyrum nægilega margra aðila og vill að hún auki starfsemi sína t.d. í skólum, vinnustöðum og Sjón- varpinu. Það að hljósveitin starfar í húsnæði á þremur mismunandi stöðum hafi leitt til þess að vinnu- hagræðing og starfsmannatengsl séu ekki eins og best verður á kosið. í nefndinni sátu: Guðrún Ágústsdóttir, aðstoðarm. mennta- málaráðherra, Elfa Björk Gunn- arsdóttir framkvstj. ríkisútvarpsins og stjórnarmaður í Sinfóníunni, Haukur Ingibergsson, deildarstjóri í Fjárlaga- og hagsýslustofnun, Sæ- björn Jónsson form. Starfsmanna- félags Sinfóníunnar, og Runólfur B. Leifsson, deildarstjóri í mennta- málaráðuneytinu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.