Tíminn - 18.10.1989, Blaðsíða 2

Tíminn - 18.10.1989, Blaðsíða 2
2 Tíminn Miðvikudagur 18. október 1989 Hvatt til frekari uppbyggingar Tímanum hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning: „Á héraðsfundi Skagafjarðarpróf- astsdæmis var eftirfarandi samþykkt gerð með samhljóða atkvæðum allra fundarmanna: „Héraðsfundur Skagafjarðarpróf- astsdæmis, haldinn á Hólum í Hjaltadal 15. október 1989, lýsir ánægju með endurgerð Hóladóm- kirkju og fagnar bættri aðstöðu kirkjunnar á staðnum. Hvetur fund- urinn til frekari uppbyggingar svo að staðurinn megi sem best gegna hlut- verki sínu í kirkjulegu tilliti. Telur fundurinn að góð tengsl kirkju og skóla á Hólastað séu báðum aðilum gagnleg og bendir á nauðsyn þess að komið verði upp húsnæði þessara aðila fyrir minja- og bókasöfn auk skrifstofuhúsnæðis. Þá telur fundurinn sjálfsagt að gætt verði samræmis í kirkjulegri uppbyggingu á Hólum og á Löngu- mýri.“ Sauðárkróki, 16. október 1989, Hjálmar Jónsson." Breska stórfyrirtækið Butler: Rennir hýru auga til Hekluvikurs Fulltrúar breska stórfyrirtækisins Butler, sem sérhæfir sig í framleiðslu húseininga, voru hér á landi í síðustu viku til að kanna aðstæður og áhuga á að reisa stóra verksmiðju sem framleiða mundi þilplötur úr Heklu- vikri og innfluttu gipsi. Fulltrúar fyrirtækisins ræddu þessi mál m.a. við iðnaðarráðherra og fulltrúa Hafnarfjarðar, þar sem einn af þeim stöðum sem til greina koma fyrir verksmiðjuna er í Kapelluhrauni skammt frá álverinu í Straumsvík. Verksmiðjuhúsið yrði um 12 þús- und fermetrar að stærð, en lóðin sem verksmiðjan þyrfti að hafa til umráða er um 40 þúsund fermetrar, auk þess sem hafnaraðstaða þarf að vera góð. Helstu staðir sem til greina koma og þar sem góðar hafnir eru skammt frá, eru við Straumsvík og Grundartanga. Þilplötumar sem framleiddar væm, yrðu fluttar á markað í Bretlandi og er áætlað að árlegur útflutningur gæti orðið um 18 skipsfarmar. Þá mundi verksmiðj- an veita 70 til 80 manns atvinnu, miðað við fulla framleiðslu. Hins vegar hefur hagkvæmniskönnun ekki farið fram og því óljóst hvort hagkvæmara sé fyrir fyrirtækið að flytja vikur óunninn úr landi og vinna hann í Skotlandi. Það sem einkum rekur Butler hingað til lands er Hekluvikurinn. Slíkur vikur þekkist ekki nema á þremur stöðum, þ.e. við Heklu, í Kenýa og á Ítalíu, en ítalir hafa bannað útflutning á vikri. -ABÓ CASE EH dráttarvélin er hlaðin aukabúnafti eins og vökvamilligír sem tvöfaldar hraðasvið gírkassa, lyftutengdum dráttarkrók, læstu ffamdrifi með rafinnsetningu, glæsilegu húsi með lituðu gleri, sóllúgu, útvarpi, sléttu gólfi (XL), vinnuljósum aftan og ffaman og mörgu fleiru Missiö ekki af þessu einstaka tækifæritil aö sameina hagstæö kaup á glæsilegri og vel útbúinni CASEIH dráttarvél og aö fá innifaiiö í veröinu í boöi ftamleiöanda flug og | hótel ásamt námskeiöi í meöhöndlun og notkun CASEIH dráttarvéla. Verflum mefl sýningar á CASEIH á eftiitöldum stöðum kl. 13.00-17.00. Girðingav. Víðihlíð fimmtudag 19. október Vélaval, Varmahlíð mánudag 23. október KÞ. Húsavík miðvikudag 25. október Vélsm. Húnvetninga Blönduósi föstudag 20. október Dieselverk, Akureyri þriðjudag 24. október Ketilás, Skagafirði fimmtud. 26. október Hafið samband við sölumenn okkar efla umhoðsmenn ng fáifl nánari upplvsingar um betta einstaka tilboð. Vélar og þjónusta hf. Jámhálsi 2 Sími 91 -83266 Sala á rauðu ginseng: Sölubann á K-dagur Kiwanishrcyfingarinnar er á laugardaginn. Á myndinni sjást Kiwanismenn pakka K-lyklum til að senda út um land. K-dagur til styrktar geðsjúkum: 1700 innlagnir á ári vegna geðsýki Á hverju ári fara um 1700 innlagð- ir sjúklingar í gegnum meðferð á Geðdeild Landspítalans, auk mikils fjölda sem sækir göngudeildarþjón- ustu. Stærsti hópur þeirra sem eru á fullri örorku eru það vegna meiri- háttar geðsjúkdóma og afleiðinga þeirra. Er hér um að ræða fjórðung þeirra sem metnir eru með 75% örorku eða meira, eða á bilinu 11-1200 einstaklinga. Þessar upplýs- ingar koma fram í tilkynningu frá Kiwanishreyfingunni í tilefni af K- deginum næstkomandi laugardag. Kiwanishreyfingin gengst fyrir K- deginum og þann dag munu Kiwan- ismenn og fjölskyldur þeirra selja K-lykla til ágóða fyrir geðsjúka. Takmarkið er að selja 65 þúsund lykla á 200 krónur stykkið og nota á peningana til að koma upp vernduð- um sambýlum í Reykjavík og á Akureyri. Stór hópur fólks með geðræna kvilla er í miklu húsnæðishraki og á erfiðar uppdráttar en aðrir hópar fatlaðra að fá húsnæði. Þessir ein- staklingar ýmist missa húsnæði hvað eftir annáð eða ráða ekki við að búa einir. Hlutskipti þeirra verður það að fara aftur og aftur til dvalar á sjúkrahúsi. Vegna þessara stað- reynda leggur Kiwanishreyfinin áherslu á að safna fé til áfangastaða og sambýla. Á undanförnum árum hefur sala Kiwanishreyfingarinnar á K-lyklum átt drjúgan þátt í að byggja upp verndaðan vinnustað við Kleppspít- ala, áfangastað í Álfalandi í Reykja- vík og unglingageðdeild Landspítal- ans við Dalbraut. Hefur aðstoð al- mennings í landinu því skipt sköpum fyrir endurhæfingarmöguleika geð- sjúkra. SSH Bsendur / Munið hausttilboðið á CASEIH dráttarvélunum - tryggið ykkur vél í tíma. eftirlíkingu Vegna umfjöllunar fjölmiðla um að sala á rauðu ginsengi hafi verið bönnuð er rétt að taka fram að bannið á ekki við um rauða ginseng- ið frá Ríkiseinkasölunni í Kóreu og Eðalvörur flytja inn. Ginsengið sem búið er að stöðva sölu á vegna vörusvika var innflutt Banaslysið í Ljósavatni Þau sem létust, þegar bifreið sem þau voru í valt í Ljósavatn í S-Þingeyjarsýslu aðfaranótt mánudags, hétu Aldís Björgvins- dóttir, Björgum II, Ljósavatns- hreppi, fædd 30. júní 1942 og Grímur Sigurbjörnsson, Björg- um, Ljósavatnshreppi, fæddur 4. febrúar 1926. Grímur var mágur Aldísar. -ABÓ og selt í Heilsuhúsinu. Svikin fólust í því að hylkin innihéldu ekki það magn ginsengs sem sagt var á um- búðum. Þar var staðhæft að hvert hylki innihéldi 330 millirömm af rauðu ginseng en það reyndist vera milli 90-180 milligrömm við mæling- ar Hollustuverndar og Lyfjaeftirlits- ins. Farið var að rannsaka hylkin vegna grunsemda neytenda um að uppgefið magn af ginsengi væri ekki rétt og bárust kvartanir til Neytenda- samtakanna vegna þess. Vegna þessa mál hefur fyrirtækið Eðalvörur sent frá sér tilkynningu þar sem kemur fram að bannaða ginsengið hafi verið Iéleg eftirlíking af rauða ginsenginu frá Ríkiseinka- sölunni í Kóreu en hið síðarnefnda verði áfram á markaðinum. Síðan segir: „Hið svikna ginseng var ein- göngu selt í verslunum Heilsuhússins og er Eðalvörum algjörlega óvið- komandi. Eðalvörur harma þann misskilning sem mál þetta hefur valdið." SSH

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.