Tíminn - 24.10.1989, Blaðsíða 9

Tíminn - 24.10.1989, Blaðsíða 9
8 Tíminn Þriðjudagur 24. október 1989 Þriðjudagur 24. október 1989 Tíminn 9 - |6 m Stefnuræða Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra á Alþingi í gær: Mikill árangur þrátt fyrir hrakspár Steingrímur Hermannsson flutti í gærkvöldi stefnuræðu sína á Alþingi. í ræðunni dró hann saman stöðuna í efnahagsmálum í víðum skilningi og benti á að þrátt fyrir erfið ytri skilyrði og miklar hrakspár stjórnarandstæðinga víða í þjóðfélaginu hafí ríkisstjórninni tekist að vinna þýðingarmikla varnarsigra. Jafnvægi sé að myndast á hinum ýmsu sviðum efnahagslífsins og viðamestu skuldbreytingu hjá undirstöðuatvinnugreinum þjóðarinnar verði lokið um áramótin. Við birtum ræðu forsætisráðherra hér á eftir: Forseti, góðir íslendingar. Þegar ríkisstjórn Framsóknarflokks, Al- þýðuflokks, Alþýðubandalags og Samtaka jafnréttis og félagshyggju tók við 28. septem- ber 1988 var spáð miklum erfiðleikum í íslensku efnahags- og atvinnulífi. Þá hafði á vegum fyrri ríkisstjórnar starfað efnahagsnefnd skipuð fyrst og fremst fulltrú- um atvinnuveganna. Hún kvað útflutnings- og samkeppnisgreinarnar að þrotum komnar og lagði tií róttækar efnahagsaðgerðir, sem fólust í niðurfærslu verðlags og launa. Samtök fiskvinnslunnar lýstu því yfir að fyrirtækin væru að stöðvast og fullyrtu að 15 af hundraði gengisfelling a.m.k., og án tafar, væri nauðsynleg til þess að koma í veg fyrir slíkt. Verslunarráðið spáði a.m.k. 5000 manns atvinnulausum upp úr áramótum og Félag íslenskra iðnrekenda taldi að atvinnuleysi yrði enn meira. Allir þekkja stöðugar hrakspár stjórnar- andstöðunnar og háværar kröfur um miklar gengisfellingar. Ríkisstjórnin hafnaði nýrri óðaverðbólgu og nýrri kollsteypu. Ríkisstjórnin ákvað að freista þess að vinna þjóðarbúið í áföngum en markvisst út úr erfiðleikunum með fjölþættum aðgerðum á ýmsum sviðum útflutnings- og samkeppnisat- vinnuveganna. Skuldbreyting í undirstöðugreinum Með stofnun Atvinnutryggingarsjóðs út- flutningsgreina var ráðist í þá víðtækustu skuldbreytingu sem gerð hefur verið. Hefur nú 5,3 milljörðum króna verið skuld- breytt eða lánað til hagræðingar. Þannig hafa lán verið lengd, vanskilum komið í skil og vextir lækkaðir verulega. Hlutafjársjóði Byggðastofnunar hefur tek- ist að tryggja að u.þ.b. sex hundruð milljónum króna verður breytt út skuldum í hlutafé hjá þeim útflutningsfyrirtækjum sem verst voru stödd. Rétt er að taka fram Byggðastofnun, ríkis- sjóður, og af bönkum ekki síst Landsbanki íslands, hafa tekið mikinn þátt í þessari fjárhagslegu endurskipulagningu. Úr Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins hefur verið greidd sérstök aðstoð til frystingar og er gert ráð fyrir að svo verði út þetta ár. Auk siíkra aðgerða hefur ríkisstjórnin markvisst leiðrétt raungengi hinnar íslensku krónu sem var orðið of hátt. Á mælikvarða verðlags hækkaði raungengi um 5,2 af hundr- aði árið 1988 en mun á þessu ári lækka um a.m.k. 5,9 af hundraði og er þá orðið heldur lægra en á árinu 1987. A mælikvarða launa mun raungengið lækka um 13,4 af hundraði og er það rúmum 5 af hundraði lægra en árið 1987. Mjög mikill fjármagnskostnaður hefur síð- ustu árin verið eitt erfiðasta vandamál ís- lenskra atvinnuvega. Á árinu 1988 voru meðalvextir útlána í bönkum og sparisjóðum 10,3 af hundraði umfram verðtryggingu og höfðu því meira en tvöfaldast frá 1986. Lækkun fjármagnskostnaðar Heildarútlán voru í árslok 1988 um 360 milljarðar króna. Innlendur hluti þessara útlána nam um 220 milljörðum króna. Að teknu tilliti til lægri vaxta á einstökum lána- flokkum, t.d. húsnæðislánum, var arðtaka þessara útlána u.þ.b. 20 milljarðar króna umfram verðtryggingu. Þess ber þó að gæta, að á fastgengistímanum 1987-88 fengu útflutn- ings- og samkeppnisgreinarnar ekki verð- trygginguna bætta nema að hluta og báru því í raun enn hærri vexti af innlendum lánum. Ríkisstjórnin taldi afar nauðsynlegt að lækka þessa háu raunvexti. í því skyni voru vextir af spariskírteinum ríkissjóðs lækkaðir í 6 af hundraði og Seðlabankanum var falið að koma raunvöxtum í bönkum og sparisjóðum í 7 af hundraði. Þetta hefur ekki að öllu leyti tekist enn. Raunvextir hafa þó lækkað að mati Seðlabanka fslands úr 10 af hpndraði í u.þ.b. 8 af hundraði, sem þýðir að sjálfsögðu umtalsverða lækkun fjármagnskostnaðar. í byrj un ársins var grunnur lánskj aravísitöiunn- ar jafnframt lagfærður til nánara samræmis við breytingar á verðlagi og launum. Hefur það leitt til lækkunar á fjármagnskostnaði sem á heilu ári svarar til allt að 4 af hundraði raunvaxtalækkunar við núverandi aðstæður. Raunvextir óverðtryggðra lána hafa hins veg- ar sveiflast mjög og á undanförnum mánuðum verið óhóflega háir. Þrátt fyrir verulegan samdrátt í landsfram- leiðslu hafa ofangreindar aðgerðir borið mik- inn og jákvæðan árangur. Engar þær hrakspár sem ég rakti í upphafi míns máls hafa ræst. Þótt atvinnuleysi hafi aukist nokkuð hefur það ekki orðið nema brot af því sem spáð var. Mjög fá fiskvinnslufyrirtæki hafa stöðvast, enda hefur afkoman batnað verulega fyrir aðgerðir stjórnvalda. Vöruskipti eru talin munu verða jákvæð á þessu ári um nálægt 5 milljarða króna eftir tvö hallaár og þrátt fyrir mikla hækkun á vaxta- greiðslum samfara hækkun erlendra skulda, sem er m.a. afleiðing af lækkun á gengi krónunnar, hefur dregið verulega úr við- skiptahalla. Hann var 3,7 af hundraði lands- framleiðslu á síðastliðnu ári, en er nú talinn verða 2,9 af hundraði. Á þessu ári vega þó flugvélakaup Flugleiða þungt. Þetta er mikils- verður árangur, ekki síst í ljósi þess að hann næst á samdráttartímum í þjóðarbúskapnum. Þróun í átt til jafnvægis Þrátt fyrir mikla lækkun gengis hefur tekist að halda verðhækkunum í skefjum. Mun verðbólga á þessu ári verða nánast sú sama og á sl. ári. Er það ólíkt fyrri samdráttarskeiðum, þvf oftast hefur sigið á ógæfuhliðina að því er varðar verðbólgu og viðskiptahalla við slfkar aðstæður. Þessi árangur í átt til jafnvægis við hin erfiðu ytri skilyrði skapar forsendur fyrir verulegum árangri í baráttunni við verðbólg- una á næsta ári. Úr tekjuhalla ríkissjóðs hefur dregið. Hann mun á þessu ári verða um 1,8 af hundraði vergrar landsframleiðslu í stað 2,8 af hundraði á síðastliðnu ári. Jafnvægi á milli inn- og útlána í peninga- kerfinu hefur batnað. Innlán hafa aukist umfram hækkun lánskjaravísitölu en raun- hækkun útlána hins vegar orðið engin þrátt fyrir nokkra lækkun vaxta. Þrátt fyrir erfiða varnarbaráttu hefur tekist ekki aðeins að verja velferðarkerfið, heldur bæta og auka á ýmsum sviðum. Sem dæmi vil ég nefna hlutfallslega bætta aðstöðu aldraðra og þroskaheftra og að raunvirði aukin framlög til menningarmála. Á þessu ári er talið að landsframleiðslan verði um 3 af hundraði minni en á sl. ári. Lækkun þjóðartekna og erfiðri stöðu atvinnu- veganna fylgir að kaupmáttur atvinnutekna mun lækka á árinu um sjö til átta af hundraði. í þessu sambandi er nauðsynlegt að vekja athygli á því að á árinu 1988 var hlutur launa orðinn u.þ.b. 72 af hundraði af þáttatekjum þjóðartekna og hafði hækkað úr 65 af hundr- aði árið 1986 sem er talið hóflegt. í ár er talið að hlutur launa lækki í u.þ.b. 70 af hundraði. Verðmæti fiskaflans á föstu verðlagi mun lækka á þessu ári um 3,5 af hundraði. Þetta veldur að sjálfsögðu erflðleikum í sjávarút- vegi, sem hefur verið mætt með ýmsum aðgerðum sem áður eru raktar. 1 verslun og þjónustu gætir samdráttarins mjög og fjármagnskostnaður er afar mikill, m.a. vegna mikilla fjárfestinga á undanförn- um árum. Erfiðleikar í loðdýrarækt og fiskeldi eru og mikið áfall fyrir þjóðarbúið. Þótt tekist hafi að afstýra því hruni sem spáð var, eru erfiðleikarnir ekki um garð gengnir. Hafrannsóknastofnun leggur enn áherslu á að dregið verði úr þorskveiðum. f þjóðhags- áætlun er á því byggt að samdráttur í aflaverð- mæti verði um 6 til 7 af hundraði og um 1,5 af hundraði í landsframleiðslu. Þetta verður þá orðið lengsta samdráttarskeið allt frá árunum 1949-1952. Aðgæsla og aðhald ásamt ýmsum aðgerðum sem treysta stöðu atvinnuveganna og atvinnu- lífsins almennt eru enn nauðsynlegar. Ríkisstjórnin styrkt Samstarfsflokkar að fyrri ríkisstjórn töldu því rétt að leita leiða til að styrkja ríkisstjórn- ina. Ákveðið var að ræða við Borgaraflokkinn um stjórnarþátttöku. Þær viðræður stóðu í sumar með nokkrum hléum og leiddu að lokum til þess að mynduð var 10. september sl. ríkisstjórn Framsóknarflokks, Alþýðu- flokks, Alþýðubandalags og Borgaraflokks með stuðningi Samtaka jafnréttis og félags- hyggju. Hin nýja ríkisstjórn byggir í grundvallaratr- iðum á málefnasáttmála fyrri ríkisstjórnar, en með sérstakri áherslu á að snúa samdrætti í vöxt, lækka framfærslukostnað, draga úr fjármagnskostnaði og bæta umhverfið. Ríkisstjórnin mun leggja áherslu á batnandi afkomu atvinnuveganna og stuðla þannig að því að atvinnuástand í landinu verði viðun- andi. Gengi íslensku krónunnar mun því verða skráð með tilliti til rekstrarafkomu útflutnings- og samkeppnisgreina og með hliðsjón af viðskiptajöfnuði við útlönd. Ef sú fiskverðshækkun sem varð 1. október sl. og þær launahækkanir sem framundan eru og lok greiðslna úr Verðjöfnunarsjóði fást ekki bætt- ar með hækkun á verði sjávarafurða erlendis er líklegt að enn þurfi að lækka nokkuð raungengi íslensku krónunnar. Um leið er þó óhjákvæmilegt að gera kröfu til atvinnulífsins sjálfs um endurskipulagningu og aukna hag- kvæmni. í því felst að atvinnuvegirnir verða að búa sig undir að geta starfað með arðbær- um hætti við þau almennu skilyrði sem nú eru f sjónmáli. Almenn skiiyrði verða bætt Skuldbreytingu í gegnum Atvinnutrygg- ingarsjóð útflutningsgreina og eiginfjáraukn- ingu fyrir tilstuðlan Hlutafjársjóðs Byggða- stofnunar mun verða lokið um næstu áramót, enda er þeim tilgangi náð sem til var stofnað. Hins vegar mun rfkisstjórnin beita sér fyrir öðrum almennum aðgerðum til þess að bæta afkomu atvinnuveganna. Á sviði sjávarútvegs má nefna: Fljótlega mun verða lagt fram frumvarp til laga um úreldingarsjóð fiskiskipa. Með því er ætlað að fækka fiskiskipum en auka aflaheim- ildir og bæta rekstrargrundvöll þeirra skipa sem eftir verða í flotanum. Á þessu þingi mun einnig verða lagt fram frumvarp sem ætlað er að draga úr útflutningi á óunnum fiski. Með því er stefnt að bæta afkomu fiskvinnslunnar og auka atvinnu innanlands. Lagt verður fram frumvarp til laga um sérstaka þróunardeild við Fiskveiðisjóð, sem veiti styrki og lán til ýmissa nýjunga og markaðssetningar sjávarafurða. Af hálfu Ríkismats sjávarafurða er gert ráð fyrir að hrinda í framkvæmd sérstöku gæðaá- taki í sjávarútvegi. Þá er gert ráð fyrir að setja uppboðsmörkuðum varanlegan lagagrund- völl. Að endurskoðun fiskveiðistefnunnar er ötullega unnið. Að því mikilvæga verki koma bæði fulltrúar hagsmunaaðila og stjórnmála- flokkanna. Áhersla er lögð á að tryggja öllum byggðum landsins aðgang að auðlindum hafs- ins en jafnframt nauðsynlega stjórnun og vernd fiskistofnanna. Auðlindaskattur er ekki á stefnu þessarar ríkisstjórnar. Á grundvelli búvörulaga frá 1985 og bú- vörusamnings, hefur þegar náðst jafnvægi í framleiðslu mjólkurafurða. Svo er hins vegar ekki í kjötframleiðslu. Því eru hafnar viðræð- ur við fulltrúa bænda um breytingar á búvöru- samningi, sem tryggi betur en verið hefur að þolanlegu jafnvægi verði náð einnig í kjöt- framleiðslunni, þegar búvörusamningurinn fellur úr gildi árið 1992. Er hér um mikið hagsmunamál að ræða, bæði fyrir bændur og þjóðarbúið almennt. Samkeppnisiðnaðurinn hefur notið góðs af lækkun raungengis. Því verður þó ekki neitað að samkeppni við háþróaða erlenda fjölda- framleiðslu hefur á mörgum sviðum reynst erfið. Á þessum opna alþjóðlega markaði, sem íslenskur iðnaður starfar nú, er afar nauðsyn- legt að fylgjast með því að ekki sé erlendis beitt beinum eða óbeinum stuðningsaðgerð- um, sem hlýtur þá að krefjast mótaðgerða okkar íslendinga. Sömuleiðis er nauðsynlegt að standa^Tverði gegn undirboðum og hvers konar öðrum óeðlilegum viðskiptaháttum. Ullariðnaðurinn hefur verið endurskipu- lagður með verulegum opinberum stuðningi, og er þess vænst að hann reynist nú samkeppn- isfær á erlendum mörkuðum. Á vegum iðnaðarráðuneytis og Iðntækni- stofnunar er unnið að vöruþróunarverkefn- um, ekki sxst á sviðum þar sem ísland hefur sérstöðu, t.d. í tengslum við sjávarútveg. Miðað við minnkandi þjóðartekjur verður ekki hjá því komist að kaupmáttur launa falli enn. Auk þess, eins og fyrr segir, eru heildarlaunagreiðslur f þjóðfélaginu hærra hlutfall þjóðartekna en atvinnulífið fær borið. Ríkisstjórnin mun með lækkun framfærslu- kostnaðar leitast við að mæta erfiðleikum þeim sem þetta skapar heimilum f landinu. Lægri skatt á gróft brauð Þvf hefur verið ákveðið að virðisaukaskatt- ur sá, er kemur til framkvæmda um næstkom- andi áramót, verði 13 af hundraði á nauðsyn- legustu innlendum matvælum, mjólk, kjöti, grænmeti og fiski, eða hálfu lægri en á öðru sem skattskylt verður. Jafnframt er í athugun hvort koma megi við samsvarandi raunlækkun skattsins á gróf brauð. Einnig mun ríkisstjómin athuga hvort unnt er að greiða húsaleigubætur til þeirra sem lægri hafa launin og búa í leiguhúsnæði. Þótt fjármagnskostnaður hafi lækkað nokk- uð á þessu ári er hann enn afar erfiður fyrir atvinnulífið og ýmsa einstaklinga. Þegar því er haldið fram að raunvextir hér á landi séu svipaðir og erlendis er nauðsynlegt að hafa í huga að atvinnuvegirnir hér eru almennt orðin um eða undir 10 af hundraði. Er þess vænst að svo geti orðið á seinni hluta ársins 1990. Stjómarráði breytt Þegar til lengri tíma er litið mun hreint og ómengað umhverfi reynast einhver mesti fjársjóður þessarar þjóðar. Á það vill ríkis- stjórnin leggja áherslu með því að leggja fram á Alþingi á ný frumvarp til laga um sérstakt ráðuneyti umíiverfismála. Er gert ráð fyrir að slíku umhverfisráðuneyti verði komið á fót strax í upphafi næsta árs. Jafnframt er í athugun á hvern máta megi hagræða í stjórnarráðinu sjálfu. í því skyni eru stjórnarflokkarnir sammála um að flytja verkefni milli ráðuneyta og fella saman þannig að hámarkshagræðingar sé gætt. Gert er ráð fyrir að þetta geti leitt til fækkunar ráðuneyta úr 13 í 11. Við undirbúning fjárlagafrumvarps fyrir árið 1990 hefur verið gerð ítarleg úttekt á ríkisrekstrinum. Komið hefur m.a. í ljós að á undanförnum árum hafa útgjöld vaxið langt- um hraðar en tekjur og má segja að innbyggð- ur halli sé orðinn á ríkissjóði. Ríkisstjórnin Álver Gert er ráð fyrir að fljótlega ljúki viðræðum við erlenda aðila um stækkun álversins í Straumsvík. Ef viðunandi samningar nást, m.a. um orkuverð, getur sú framkvæmd og þær virkjanir, sem munu fylgja, skipt miklu máli í því erfiða atvinnuástandi sem gera má ráð fyrir, ekki síst suðvestanlands. Áætla má að bygging álvers með 120 þús. tonna fram- leiðslugetu á ári yki hagvöxtinn um 1 af hundraði að jafnaði á tímabilinu 1990-94 og atvinnu um 0,5 af hundraði. í þvi' ástandi þjóðarbúsins sem nú er, er nauðsynlegt að skoða þennan kost vandlega. Á sviði verslunar og þjónustu má gera ráð fyrir umtalsverðum erfiðleikum á árinu 1990. Sá samdráttur sem orðið hefur í sjávarútvegi, minnkandi kaupmáttur og óarðbær fjárfesting á undanförnum þensluárum, fellur nú með fullum þunga á þessar greinar. Við því er lítið unnt að gera af opinberri hálfu. Hins vegar er jákvæð sú viðleitni fjölmargra atvinnurek- enda á þessum sviðum að ná aukinni hag- kvæmni með samruna fyrirtækja og hagræð- ingu. Það er skoðun margra, sem þessi mál þekkja, að upp úr þessum erfiðleikum muni rísa heilbrigðari og sterkari verslunar- og þjónustustarfsemi. Vegna þess mikla samdráttar sem orðinn verður eftir þrjú slík ár í röð, er líklegt að atvinnuástand muni versna á næsta ári. Telur Þjóðhagsstofnun að atvinnuleysi geti aukist úr u.þ.b. 1,6 af hundraði á þessu ári í 2,3 af hundraði að meðaltali á næsta ári. Ef svo reynist mun ríkisstjórnin í samráði við aðila vinnumarkaðarins skoða allar skynsamlegar og viðráðanlegar leiðir til þess að draga úr atvinnuleysi. I því skyni er þegar starfandi samstarfsnefnd þessara aðila og stjórnvalda. langtum skuldsetnari en annars staðar tíðkast. Fjármagnskostnaðurinn verður þá að sjálf- sögðu því meiri. Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka íslands, er vaxtamunur hér 7-8 af hundraði sem mun vera tvöfalt eða þrefalt meiri vaxtamunur en tíðkast erlendis. Innlánsvextir eru sömuleiðis að meðaltali hærri en almennt þekkist. Af þessum ástæðum hefur reynst erfitt að þrýsta útlánsvöxtum niður. Vaxtalækkun á ríkisbréfum? Til þess að gera viðskiptabönkum kleift að lækka vexti umtalsvert er nauðsynlegt að leggja áherslu á hagræðingu í bankakerfinu. Að því er stefnt með sameiningu banka og ítarlegri athugun einstakra banka á eigin rekstri. Þá kröfu verður jafnframt að gera til Seðlabanka íslands að hann gegni því forystu- hlutverki sem honum er ætlað á peningamark- aðnum og stuðli að hagkvæmari rekstri og lækkun raunvaxta. Eins og fyrr segir reið ríkissjóður á vaðið sl. vor og lækkaði vexti á spariskírteinum í 6 af hundraði. Frekari lækkun vaxta á vegum ríkissjóðs er í athugun, enda lækki almennir vextir bankakerfisins í kjölfarið. Á næstu árum mun hið íslenska peninga- kerfi í vaxandi mæli tengjast peningakerfi Evrópulandanna. Til þess að það geti gerst er nauðsynlegt að það þróist til samræmis við það sem þar tíðkast. Vaxtamunur og hag- kvæmni verður t.d. að vera sambærilegt. tsland er eina landið sem býr við verðtrygg- ingu fjármagns. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að afnema þá verðtryggingu og sjálfvirkar viðmiðanir hvers konar. Verður það gert þegar verðbólga á sex mánaða mælikvarða er telur að jöfnuði í ríkisrekstrinum verði ekki náð nema á 2 til 3 árum. Það fjárlagafrumvarp sem nú er lagt fram gerir ráð fyrir u.þ.b. þriggja milljarða króna halla. Það telur ríkis- stjórnin verjanlegt á því samdráttarskeiði sem nú er. Óbreytt skatthlutfall Við gerð fjárlagafrumvarpsins hafa verið gerðar ýmsar róttækar breytingar og lagfær- ingar, bæði á tekju- og útgjaldahlið. Hlutfalli skatta af þjóðartekjum verður haldið óbreyttu um 26,5 til 27 af hundraði landsframleiðslu. Að sjálfsögðu þýðir þetta minni tekjur fyrir ríkissjóð vegna lækkunar á landsframleiðslu. Hins vegar er gert ráð fyrir ýmsum lagfæringum og tilfærslum í skatta- kerfinu, sem m.a. munu stuðla að lækkun á verði matvæla og um leið á framfærslukostn- aði heimilanna. Tekjuskattskerfið allt mun verða tekið til athugunar með meiri jöfnuð að markmiði þótt vafasamt sé, að það geti komið til framkvæmda á næsta ári. Á útgjaldahlið er gert ráð fyrir verulegum sparnaði á ýmsum sviðum hins opinbera reksturs. Ekki mun með því verða dregið úr velferðarkerfi því sem okkur íslendingum hefur tekist að byggja upp. Heldur er um að ræða margvíslega hagræðingu og sparnað. Endurbætur í félagsmálum, heilbrigðis- og tryggingamálum og menntamálum eru í stöðugri athugun. Markmiðið er að bæta og auka hagkvæmni og skilvirkni, um leið og dregið er úr kostnaði. Á þessu haustþingi mun verða lagt fram frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 1989 og er þar um góða nýbreytni að ræða. Jafnframt er gert ráð fyrir að leggja fram áætlun um þróun ríkisfjármála næstu 3 árin. Með því er ætlunin að skapa meiri framsýni og festu í þjóðarbú- skapnum sem er að sjálfsögðu einnig afar mikilvægt. Úr vöm í sókn Við íslendingar nálgumst nú botninn á þessu samdráttarskeiði. Þá mun vörn verða snúið í sókn. Þá mun vöxtur þjóðarbúsins hefjast á ný. Ekki er síður mikilvægt að vel sé að því staðið en að vörninni á samdráttartíma. Satt að segja hefur okkur oft gengið erfiðlega að stjórna okkar málum á vaxtartx'mum. Þótt athuganir Hafrannsóknastofnunar bendi ekki til þess að framundan séu sterkir árgangar nytjafiska, má ætla að þessu sam- dráttarskeiði í sjávarútvegi ljúki á næsta ári og þá geti hafist hægfara aukning afla. Sam- kvæmt þeim spám er árleg aflaaukning þó lítil og því sá hagvöxtur sem af henni leiðir töluvert minni en spáð er í öðrum löndum Vestur-Evrópu. Af þessum ástæðum er afar nauðsynlegt að leitað verði einnig annarra leiða til að auka hagvöxtinn. Það verkefni hefur ríkisstjórnin þegar hafið. I landinu býr mikil þekking, t.d. á sviði sjávarútvegs og alls þess sem sjávarútveginum tengist, svo sem skipasmíða, gerð veiðarfæra og vélbúnaðar hvers konar. íslensk fyrirtæki hafa þróað hátæknibúnað sem gjörbreytt hefur vinnslu sjávarafurða. Með samstilltu átaki og réttri markaðssetningu getur þetta orðið grundvöllur mikils útflutnings. Fiskeldið, sem við hafa verið bundnar miklar vonir, hefur átt í óvæntum erfiðleikum. Þeir stafa að hluta af lækkun verðs erlendis, en einnig, og ekki síður, af gífurlegum fjármagnskostnaði. Enginn dregur þó í efa að við þá ágætu aðstöðu, sem hér er með heitu vatni og hreinu, verði fiskeldið fyrr eða síðar mjög mikilvæg atvinnugrein. Ríkisstjórnin hefur gert fjölmargt til þess að stuðla að vexti og viðgangi fiskeldis og mun halda því áfram. Orka sú, sem í fallvötnunum býr, mun með hverju ári verða okkur íslendingum dýrmæt- ari, því orkuverð mun fara mjög hækkandi erlendis. Hún getur því í vaxandi mæli orðið grundvöllur að mikilvægri framleiðslu. Könnunum á því sviði mun verða haldið áfram. Ég hef áður sagt að hreint umhverfi geti orðið mesti fjársjóður þessarar þjóðar. Á því sviði er að vísu ýmsu ábótavant en úr því má bæta. Hreint umhverfi, hreint loft og vatn og góð ómenguð fæða mun draga að vaxandi fjölda ferðamanna. Þeim fer ört fjölgandi, ekki síst íbúum stórborganna, sem leita hollustu, bæði andlegrar og líkamlegrar. Það getum við boðið. Slíkum ferðamönnum fer fjölgandi sem koma hingað til lands. Athygl- isverð er mikil fjölgun þeirra sem árlega gista íslensk bændaheimili. Sú ferðaþjónusta hefur vaxið hröðum skrefum. Sama er að segja um þann fjölda ferðamanna sem árlega sækir í hestaferðir um hálendi landsins og býður birginn veðri og vindum, svo eitthvað sé nefnt. Erlendir sérfræðingar halda því fram að auðvelt sé að margfalda þann fjölda ferða- manna sem hingað sækir ár hvert eftir kyrrð, útivist og heilsubót. I þvx' sambandi er tvennt mikilvægast. í fyrsta lagi er nauðsynlegt að þróa slíka þjónustu skipulega og markvisst og án óðagots og offjárfestingar. í öðru lagi er nauðsynlegt að kynna þá ímynd landsins að það sé hreint og ómengað og þjóðin heilbrigð. Reyndar mun, ef tekst að festa slíka ímynd í huga erlendra manna, það reynast hvað mikilvægast í sölu afurða okkar á erlendum mörkuðum. í vaxandi mæli er áhersla lögð á gæði og ómenguð matvæli. Fyrst og fremst eigum við íslendingar þó að læra að meta þennan fjársjóð sem við eigum og nýta hann sjálf til betra lífs. Fleira er auður en það sem í krónum er talið. Énginn þarf að efast um að framtíðarkostir þessarar þjóðar eru stórkostlegir. Hitt er staðreynd, eins og fyrr segir, að okkur fslendingum hefur sjaldan eða aldrei tekist að ráða okkar eigin málum á uppgangstímum svo vel fari. Því eru nokkur undirstöðuatriði nauðsynleg þegar vörn er lokið og sókn til bættra lífskjara hefst á ný. í fyrsta lagi er nauðsynlegt að atvinnuveg- irnir hafi viðunandi hagnað. Þá geta þeir lækkað sínar skuldir og tryggt atvinnu, en jafnframt fjárfest í hófi og treyst þannig bæði hagvöxtinn og atvinnuöryggið. I öðru lagi má verðbólga alls ekki vaxa á ný. Við íslendingar verðum í vonlausri stöðu í hinu opna samstarfi þjóðanna, jafnvel þótt verðbólga væri hér aðeins lítillega meiri en hjá samstarfsþjóðum okkar. Ég leyfi mér að taka svo djúpt í árinni að allt mun reynast unnið fyrir gíg ef ekki tekst að hemja verðbólguna. í þriðja lagi vil ég leggja áherslu á að fjármagnskostnaður verður að lækka. Því verða bæði vextir og skuldir fyrirtækjanna að lækka og erlendar skuldir þjóðarinnar. Þær munu aukast á þessu ári, ekki síst vegna mikillar lækkunar á gengi íslensku krónunnar, en þær munu lækka ört á næstu árum ef jafnvægi skapast, verðbólga er lítil og við eyðum ekki umfram efni. Slík atriði sem ég hef nú rakið mun ríkisstjórnin hafa að leiðarljósi. Hún mun í því sambandi treysta á samstarf við aðila vinnumarkaðarins, bæði launþega og vinnu- veitendur. Sameinuð getur ísienska þjóðin gert hvað það sem nauðsynlegt er. EFTAogEB Óðum dregur að því að lönd Fríverslunar- bandalagsins og lönd Evrópubandalagsins setjist niður og ákveði hvernig þeirra tengsl skuli verða. Enginn efast lengur um það að í Vestur- Evrópu er að myndast afar voldug ríkjasam- steypa. Engin þjóð á þessu svæði getur einangrað sig frá þeirri þróun. Það getum við íslendingar ekki, til þess erum við allt of háðir Vestur-Evrópulöndunum, m.a. markaðslega. Þeir stjórnmálaflokkar sem að núverandi ríkisstjórn standa, telja fulla aðild að Evrópu- bandalaginu ekki koma til greina fyrir okkur íslendinga. Samkvæmt grundvallarsáttmála bandalagsins fylgir fullri aðild afsal yfirráða yfir náttúruauðlindum til lands og sjávar. Það þolir okkar sjálfstæði ekki. I raun er ég sannfærður um að full aðild reynist óþörf. Ég tel að við getum náð fram þeim kostum sem við kjósum helst án fullrar aðildar. Viðræður við fjölmarga forystumenn Evrópubandalags- ins gefa eindregið til kynna mikinn skilning á sérstöðu okkar. Sú sérstaða felst m.a. í fábrotnum atvinnuvegum, fámenni þjóðar- innar og fjarlægð landsins frá höfuðstöðvum hinnar nýju ríkjasamsteypu. í þessu sambandi er rétt að hafa í huga að eftir leiðtogafundinn í Osló hefur þeirri skoðun mjög vaxið fylgi að stefna beri að svonefndri tveggja stoða lausn, þar sem stoðirnar tvær í Vestur-Evrópu verði EB-ríkin annars vegar og EFTA-ríkin hins vegar, sem bindist samningum um náið samstarf á fjöl- mörgum sviðum en án samruna. Þá er mikil- vægast fyrir okkur að frjáls verslun verði með fisk og yfirþjóðlegar stofnanir engar innan EFTA. Óþarft er að hræðast það sem framundan er. Við getum gengið hiklaust til viðræðna og samninga um frambúðartengsl íslands við Evrópubandalagið, með samræmingu á ýms- um sviðum og samstarf á öðrum sviðum að markmiði. Mikilvægast er að við stöndum saman. Á það mun ríkisstjórnin leggja höfuð- áherslu, m.a. með því að stofna til ítarlegrar umræðu hér á Alþingi um þessi mál 23. ■ nóvember næstkomandi. Góðir íslendingar. Hér á landi hefur ekki áður verið gerð tilraun til samstarfs fimm stjórnmálaflokka og sam- taka um ríkisstjórn. Þeir flokkar sem að ríkisstjórninni standa, hafa vissulega ólíkar skoðanir á mörgum mikilvægum málaflokk- um. Þeir eru hins vegar allir félagshyggju- flokkar, þeir leggja áherslu á jafnræði með landsmönnum og vilja standa vörð um vel- ferðarkerfið. Þeir hafa sameinast um að vinna þjóðina út úr þeim erfiðleikum, sem samdrátt- urinn veldur, og eru ákveðnir í að ýta úr vör á nýja framfarabraut. Stjórnarandstaðan finnur að vísu þessari ríkisstjórn allt til foráttu. Stjórnarflokkarnir láta sér það í léttu rúmi liggja. Þeir leggja höfuðáherslu á að ná samstöðu með þjóðinni um þau erfiðu en mikilvægu verkefni sem framundan eru. (Millifyrirsagnir og fyrirsögn eru Tímans)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.