Tíminn - 26.04.1990, Blaðsíða 2

Tíminn - 26.04.1990, Blaðsíða 2
2 Tíminn Fimmtudagur 26. apríl 1990 Listi Framsóknar- flokks á Skagaströnd 1. Magnús B. Jónsson bankamaður 2. Sigríður Gestsdóttir húsmóðir 3. Guðjón Guðjónsson stýrimaður 4. Kristín Hrönn Ámadóttir húsmóðir 5. Sigrún Guðmundsdóttir húsmóðir 6. Einar H. Arason húsvörður 7. Vilhelm Jónsson starfsmaður Síldarverksmiðju ríkisins 8. Eðvarð Ingvason bátasmiður 9. Þorgerður Guðlaugsdóttir afgreiðslumaður 10. Jón Jónsson fyrrverandi framkvæmdastj óri Listinn verður kynntur nánar í næsta tölublaði Einherja. ENSKIR TALA UM MÓRAUÐAR KINDUR Vestur-íslendingurinn Stefanía Sveinbjamardóttir ritaði nýlega grein í Lögberg Heimskringlu, þar sem hún segir frá íslenskum sauð- kindum, sem hún á. Stefanía vekur sérstaka athygli á því, að í blaðinu „Black Sheep Newsletter", sem gef- ið er út í Kanada, nota tveir greina- höfúndar orðið „moorid“ til að lýsa mórauðum kindum. Stefanía segist vera mjög ánægð, að hafa loksins fundið enskt orð, sem hún geti not- að til að lýsa lit mórauðu kindanna sinna Þar sem enska orðið „moorid" frnnst ekki í venjulegum orðabókum, vakn- aði sú spuming, hvort Islendingar i Kanada hefðu náð að skjóta orðinu mórauður inn í enska tungu. Tíminn spurði Magnús Fjalldal, kenn- ara í ensku við Háskóla Islands, hvort hann teldi, að Islendingum heíði tekist að læða orðinu mórauður inn í enskt mál. Magnús fletti upp í stærstu ensku orðabók, sem til er, en hún telur yfir milljón orð og er í 22 bindum. Orðið er til i nokkrum útgáfum og finnst aðeins á Hjaltlandi, norður fyrir Skotlandi og flokkast því undir mál- lýsku. Orðið er komið úr norrænu ein- hvem tímann fyrir árið 1400. Líklegast er þvi, að Hjaltlendingar hafi flutt orð- ið með sér til Kanada. Það vora þvi for- feður okkar á 14. öld, en ekki Vestur- íslendingar á 19. öld, sem komu orðinu mórauður inn í enska tungu. Magnús sagði brýnt að rannsaka, hvað varð um íslensku fólksins, sem flutti til Kanada og einnig- orðaforðann, sem þetta fólk bjó sér til. Mjög algengt var, að Vestur- íslendingar íslenskuðu ensk orð. Dæmi: „Eg fór á karinu í sjoppið.“ Magnús sagðist ekki þekkja dæmi um að íslensk orð þessa fólks hefðu verið aðlöguð ensku. -EÓ Rannsóknastofnun fiskíðnaðarins: Nýrmassagreinir teKinn noiKun Rannsóknastofnun fiskiðnaðaríns heftir tekið i notkun nýjan massa- greini, sem er sá eini sinnar tegund- ar hér á landi. Með tilkomu hans er hægt að hefja ábyggilegar rann- sóknir á lifrænni efnamengun í sjávarlífverum. Massagreininn á að nota við rann- sóknir í viðamildllf úttekt á iífrænni mengun og þungmáimamengun i lífverum og seti, auk þess sem mæld verða næringarsðlt i sjó. Þetta er liður í rannsóknaráædun þrettán þjóða, sem standa að úttektinni á Atlantshafi norðaustanverðu. Markmið áætlunarínnar eru að meta hugsanlega áhættu af neyslu sjávarfangs, meta óæskileg áhrif mengunar á lífríki sjávar og vist- kerfi, kanna núverandi mengun sjávar og fylgjast með breytingum þar á, og aö meta áhrif samræmdra aðgerða gegn losun mengunarefna f hafið. Sigiingamáiastjóri er formaður nefndar, sem sér um verkefnis- stjórn á rannsóknum í kring um ís- land. Auk Rannsóknastofnunar fiskiðnaðaríns, sem firamkvæmir allar mælingar á lifrænum efnum og stærsta hlutann af mælingum þungmálma, eru Hafrannsóknar- stofnun og Geislavarnir rikisins þátttakendur. Mikil áhersla er lögð á, að mæling- ar séu samanburðarhæfar milli þjóða og að sannanlega réttum upp- iýsingum um niðurstöður sé komið til réttra aðila, Þetta er i fyrsta sinn, sem slíkra gagna um lífræna efna- mengun á Islandsmiðum er safnað á kerfisbundinn hátt -ABÓ ísfisksölur í Bretlandi og Þýskalandi vikuna 17. til 20. apríl: 2082 tonn seld ytra í liðinni viku voru seld samtals 2082 tonn af ísfiski á mörkuðum í Bretlandi og Þýskalandi og fengust rúmar 228 milljónir króna fyrir aflann. Þar af voru seld til Bretlands rúm 1677 tonn fyrir rúma 191 milljón króna. Aðeins eitt skip seldi á markaði í Bretlandi í síðustu viku, en það var Páll ÁR 401 með 116,5 tonn og fékkst 106,58 króna meðal- verð fyrir aflann. Þar af voru tæp 69 tonn af þorski, meðal- verð 109,49 krónur, 34,6 tonn af ýsu, meðalverð 122,11 krónur og 13 tonn af ufsa, meðalverð 58,19 krónur. Heildarverðmæti aflans var 12,4 milljónir króna. Úrgámumvoru seld 1561 tonn, meðalverð 114,74 krónur. Þar af voru tæp 488 tonn af þorski, meðalverð 123,08 krónur, af ýsu rúm 502 tonn, meðalverð 131,84 krónur, af ufsa voru 51 tonn, meðalverð 64,20 krónur og af karfa 30 tonn, meðalverð 52,51 króna. Þá voru seld 298 tonn af kola, meðalverð 104,53 krónur, af grálúðu seldust rúm tvö tonn og af blönduðum afla 189 tonn, meðalverð 87,21 króna. Heildar- verðmæti aflans, sem seldur var úr gámum, var 179 milljónir króna. Tvö skip lönduðu í Þýskalands- höfnum. Ögri RE 72 seldi 249 tonn, meðalverð 94,06 krónur og Haukur GK 25 seldi 155 tonn, meðalverð 84,50 krónur. Samsetning aflans skiptist þann- ig, að af karfa voru tæp 332 tonn, meðalverð 90,38 krónur, af þorski voru seld rúm 50 tonn, meðalverð 96,46 krónur, af ýsu tæp tvö tonn og af ufsa tæp 5 tonn. Af blönduðum afla voru 14 tonn og af grálúðu rúmt eitt tonn. Heildarverðmæti aflans, sem seldur var í Þýskalandi nam 36,5 milljónum króna. —ABÓ Fjölskyldan í Húsavík í Kirkjubólshreppi: Matthías Lýðsson og Hafdís Sturíudóttir með bömin þijú, Pétur, Grétar og litlu stúlkuna, fýrsta stúlku- bam í hreppnum í áratugi. Stórtíðindi af Ströndum: Stúlkubarn fætt í Kirkiubólshreppi Aðfaranótt miðvikudagsins 4. apríl fæddist stúlkubam á sjúkrahúsi í Reykjavík. Fæðingin gekk vel og væri ekki frétt umfram aðrar fæðingar, ef ekki væri fýrir þá sök að bamið á lögheimili í Kirkjubólshreppi á Ströndum. Þar hefur ekki fæðst stúlkubam síðan árið 1970. Á sama tíma hafa hins vegar fæöst um 15 drengir í hreppnum. Kynjahlutfall í Kirkjubólshreppi hef- um, enda hefur kvenmannsleysi hvergi ur vakið töluverða athygli á síðustu ár- verið meira á íslandi ef marka má tölur Hagstofunnar. Skv. íbúaskrá 1. des. 1989 átti 41 karlmaður lögheimili í hreppnum, en aðeins 15 konur. Kon- umar vora því aðeins 26,78% af íbúum hreppsins. I þokkabót var yngsta konan þá orðin 26 ára og skv. ibúaskránni vora 18 af körlunum yngri en hún. Foreldrar eina stúlkubamsins í Kirkju- bólshreppi era hjónin Matthías Lýðs- son og Hafdís Sturlaugsdóttir í Húsa- vik. Fyrir eiga þau tvö eldri böm (að sjálfsögðu drengi), Pétur 4ra ára og Grétar 2ja ára. Stefán Gíslason

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.