Tíminn - 02.07.1991, Qupperneq 10
10 Tíminn
Þriðjudagur 2. júlí 1991
Karl Sighvatsson
Síðbúin kveðja
í raun var Karl Sighvatsson stór
partur af heilli kynslóð. Tónlistin,
klæðnaðurinn, göngulagið, klipp-
ingin, hammondið, hakan, hrein-
skilnin.
Ég get ekki sagt að ég hafi þekkt
Kalla Sighvats náið og trúlega
hleypti hann fáum að sínum innsta
kjama, þrátt fyrir heila kynslóð
kunningja. Kalli var alltaf tilbúinn
að ræða heima og geima og fór ekki
í grafgötur með eigin skoðanir, en
einhvern veginn fékk ég á tilfinn-
inguna að Kalli væri á krossgötum
allt sitt líf.
Tónlistarhæfileikamir leyndu sér
ekki, en undir yfirborðinu kraumaði
músíkgáfa tónskáldsins sém leitaði
farvegs og átti eftir að blómstra.
Eftir hin villtu, trylltu ár Bítla og
Rúllandi steina, Blóma og Trúbrota
hélt Kalli á vit náttúru í orðsins
fyllstu merkingu.
Heilsa, „Mentalphysics", hollt fæði.
Man ég vel eftir litlu leynifuhdun-
um í Kópavogi þar sem heilsusam-
legir hlutir voru ræddir ofan í kjöl-
inn og ýmsar hugmyndir reifaðar.
Kalli tók að sér að ræða við peninga-
mennina, ósmeykur að vanda. Ann-
ars skiptu peningar ekki höfuðmáli,
hippahugsjónin réð ferðinni og má
ég til með að hafa eftir skondna fjár-
málasögu um Kalla Sighvats, sem
ég sel ekki dýrari en ég keypti.
Þegar Karl Sighvatsson hellti sér út
í spilamennskuna á sínum ung-
lingsárum, fór ekki á milli mála að
peningar streymdu inn í hæfilegum
skömmtum. í stað þess að leggja
fyrir eða fjárfesta í framtíðinni, lagði
Kalli öll sín laun ofan í hatt sem
honum hafði áskotnast. Það var
ósköp handhægt að teygja sig í hatt-
inn, þegar að þrengdi, en hratt var
lifað og alltaf kom það Kalla jafn
mikið á óvart þegar gripið var í
tómt, hatturinn tómur, peningarnir
búnir.
Stórt skref var stigið, þegar tekið
var af skarið um tónlistarnám í Vín-
arborg og áframhaldandi nám í
Bandaríkjunum.
Þrátt fýrir miklar vegalengdir og
langar fjarvistir, þá var það orðinn
fastur liður að við Kalli Sighvats
hittumst á krossgötum í Reykjavík.
Við ræddum lífið, tilveruna og tón-
listina af gagnkvæmum áhuga og
skilningi, með hlýju í garð hvors
annars.
Karl, ég mun sakna þessara funda,
þegar ég kem heim í sumar.
Kalli Sighvats var alltaf á ferð og
flugi, jafnvel þó hann stæði kyrr og
eirði aldrei lengi á sama stað. Að
setjast í helgan stein var ekki uppi á
teningnum. Húseign í Hveragerði
breytti engu þar um.
Síðast hittumst við í september. „Á
næstu grösum." Það lá vel á Kalla
Sighvats: brúnn og sællegur, ný-
kominn frá Kaliforníu. Tilbúinn að
segja upp organistastöðunum fyrir
austan. Hammondið aftur komið í
tísku, nóg að gera í spilamennsk-
unni. Jafnvel á leið til annarra landa.
Allt opið.
Karl Sighvatsson á krossgötum
eina ferðina enn.
SOFANDI BARN
Nú er bamið sofnað
og brosir í draumi
kreppir litla fingur
um leikfangið sitt.
Fullorðinn vaki
hjá vöggu um óttu,
hljóður og spurull
hugsa ég mitt.
Það glepur ekki svefninn
ergull sitt bamið missir
úr hendinni smáu
og heyrirþað ei.
Þannig verður hinsta
þögnin einhvemtíma.
Ég losa kreppta fíngur
um lífíð mitt og dey.
Jón úr Vör
Ástvinum sendum við samúðar-
kveðjur.
Sverrír Guðjónsson
Elín Edda Ámadóttir
H BÓKMENNTIR I
Björn Eysteinsson, konur og niðjatal
NIÐJATAL Björas Eysteinssonar, Guðbjargar
Jónasdóttur, Helgu Sigurgeirsdóttur og
Kristbjargar Pétursdóttur.
Ritstj.: Gtsli Piisson
Útg.: Bókaútgift n Hofi, Vatnsdal, 1991
Það er all sérstætt að bændur til
sveita stundi bókaútgáfu, en sem
betur fer eru til dæmi þess í Húna-
þingi og kannski víðar. Gísli Páls-
son, bóndi á Hofi í Vatnsdal, hefur
undanfarin ár gefið út nokkrar bæk-
ur og er nýjasta barn hans Niðjatal
Björns Eysteinssonar og eigin-
kvenna hans og ráðskonu. Ekki er
ætlun mín að bera sérstakt lof á
Niðjatalið vegna þess eins að það er
gefið út í Vatnsdal. Það mun hins
vegar vera nokkuð sönn umsögn, að
telja bókina vel gerða og skemmti-
lega uppsetta, auk þess sem við-
fangsefnið er áhugavert.
Bjöm Eysteinsson er áhugaverð
persóna vegna einbeitni sinnar og
hörku, en fær seint góða einkunn
fyrir alúð og nærgætni. í persónu-
lýsingu Björns segir að hann muni
„hafa verið kátur og skemmtilegur,
framtakssamur, stríðinn, ótrúlega
fljótur til svars og hitti ætíð í mark.
... hann efaðist ekki um ágæti sitt
eða ættingja sinna. Hann var brjóst-
góður og hafði til að vera stórgjöfull,
en stórbokki var hann. Tæplega var
hann ástúðlegur faðir eða um-
hyggjusamur maki...“ Ekki hefur
það heldur heyrst að Birni hafi verið
talið hughvarf um ævina.
Tveimur konum kvæntist hann og
bjó síðast með ráöskonu sinni í
óvígðri sambúð. Guðbjörg Jónas-
dóttir frá Tindum átti með honum
börnin Jónas og Guðrúnu. Guðbjörg
og Björn slitu hjúskap og flutti hún
síðar með seinni manni sínum til
Ameríku, en andaðist árið 1916 af
hjartabilun. Helga Sigurgeirsdóttir
frá Víðidalstungu var síðari eigin-
kona Björns og áttu þau saman sjö
börn. Hún bjó með Birni þann tíma
er hann flutti fram á heiðar í harð-
indunum í lok nítjándu aldar. „Hafi
Björn verið afreksmaður, var hún
kvenhetja." Helga lést úr nýrnasjúk-
dómi aðeins 46 ára að aldri. Eftir
andlát hennar hóf hann sambúð
með Kristbjörgu Pétursdóttur, ráðs-
konu sinni, og áttu þau saman tvo
syni. Af þessu fólki er kominn sá
ættbogi sem nú hefur komist á eina
bók. Sannast þar með sú fullyrðing í
umsögn um Björn að „börn hans og
niðjar eru ótrúlega stolt af honum“.
Margt þjóðkunnra manna er af
honum komið og ætla ég ekki að
nefna þar einn öðrum fremur, enda
væri það að æra óstöðugan. Kemst
ég þó ekki hjá því að nefna Björn
Þorsteinsson prófessor, en eftir
hann birtist í bókinni skemmtileg
ræða er hann flutti á niðjamóti afa
síns árið 1979. Má segja að lokaorð
hans lýsi ættinni vel: „Við ættlerarn-
ir þurfurri ekki að halda ættarmót til
þess að minning Björns lifi. Hann
hefur séð um það sjálfur, en það er-
um við sem njótum þess að vera
komin af Birni Eysteinssyni."
Bókin er á margan hátt aðgengileg
og er mikil hjálp af myndunum sem
birtast hér af nær öllum niðjum og
venslafólki. Flýtir það mikið fyrir
þeim sem fletta vilja í svona bók
sjálfum sér til glöggvunar og yndis.
Þá eru í bókinni fjölmargar myndir
úr Vatnsdal og öðrum heimkynnum
ættföður og niðja. Þetta er ekki
fyrsta bók útgefanda í þessum flokki
og hefur hann nú sama hátt á og áð-
ur, að númera ekki ættliði eins og
gert er víðast. Dálítið er þetta ein-
kennilegt við fyrsta lestur, en reyn-
ist fljótlega algjör óþarfi. Það minn-
ir lesandann á að hann er ekki að
lesa afurðaskýrslur eða ættbækur ís-
lenskra hesta, heldur ágæta bók um
fólk. Bókin verður læsilegri og verð-
ur að lokum handgengnari en ella.
Kristján Björnsson
Eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir og amma
Ólöf Ólafsdóttir
Grundargerðl 21, Reykjavík
sem lést þriðjudaginn 25. júní veröur jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 3. júlí kl. 15.00.
Siguijón Auðunsson
Ólafur Hjörtur Sigurjónsson Krístín Hafsteinsdóttír
Jórunn Siguijónsdóttír
Vilberg Sigurjónsson Sigrún Andrésdóttir
Hólmfríður Sigurjónsdóttir Níls Axelsson
Guðrún Sigríður Sigurjónsdóttir
ogbamaböm
Bleikjuseiði til sölu
til áframeldis eða sleppingar í vötn og tjarnir.
Stærð: 50-150 gr.
Vil kaupa eldisker 10-30 rúmm.
Sími 98-68863.
----------------------------------------------^
Bróðir minn
Jón Guðmundsson
bóndl á Sklphyl
lést í Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 30. júní.
Elísabet Guðmundsdóttir
_____________________________________________/
Útboð
Tilboð óskast í vinnu og efnisliði í uppsteypu og
þakfrágang vegna viðbyggingar við Félagsheim-
ilið Hlaðir á Hvalfjarðarströnd.
Einnig uppsteypu á útisundlaug. Jarðvinna er
undanskilin.
Tilboðsgögn afhendast frá og með miðvikudeg-
inum 3. júlí, hjá Arkitektastofunni við Austurvöll,
Pósthússtræti 17, Reykjavík, gegn 5000 kr.
skilatryggingu.
Kvöid-, nætur- og hdgidagavarsla apóteka f
Reykjavík 28. júni til 4. Júlí er f Laugavegs-
apóteki og Hoitsapóteki. Það apótek sem fyrr
er nefnt annast eitt vörsluna frá kl. 22.00 að
kvöldi til Id. 9.00 að morgni virka daga en Id.
22.00 á sunnudögum. Upplýsingar um læknis-
og lyfjaþjónustu eru gefnar f sima 18888.
Neyðarvakt Tannlæknaféiags Islands
er starfrækt um helgar og á stórhátlðum. Slm-
svari 681041.
Hafnarfjörðun Hafnarfjarðar apótek og Norð-
urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá
kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug-
ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar í símsvara nr. 51600.
Akureyd: Akureyrar apótek og Stjömu apótek
eru opin virka daga á opnunartima búða. Apó-
tekin skiptast á sfna vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er
opið I þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum tlmum er lyfja-
fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar i
sima 22445.
Apótek Keflavfkur Opið virka daga frá k. 9.00-
19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna frl-
daga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá ki.
8.00-18.00. Lokað í hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
Selfbss: Selfoss apótek er opiö til kl. 18.30.
Opið er á laugardögum og sunnudögum kl.
10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til
kl. 18.30. Opiö er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garðabær Apótekið er opið rúmhelga daga kl.
9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Alnæmisvandnn. Samtök áhugafólks um
alnæmisvandann vilja styðja smitaða og sjúka
og aðstandendur þeirra, slmi 28586.
Læknavakt fyrir Roykjavfk, Seitjamames og
Kópavog er i Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur alla
virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugardög-
um og helgidögum allan sólarhringinn.
Á SeHJamamesi er læknavakt á kvöldin kl.
20.00-21.00oglaugard. kl. 10.00-11.00. Lokaöá
sunnudögum.
Viljanabeiðnir, sfmaráðleggingar og tlmapant-
anir I slma 21230. Borgarspftalinn vakt ffá kl. 08-
17 alla virka daga fýrir fólk sem ekki-
hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (sími
696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild)
sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sólar-
hringinn (sími 81200). Nánari upplýsingar um
lyfjabúðir og læknaþjónustu enjgefnar I sím-
svara 18888.
Ónæmisaðgerðir fyrir fulloröna gegn mænusótt
fara fram á Heðsuvemdarstöð Reykjavikur á
þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér
ónæmissklrteini.
Garðabær Heilsugæslustöðin Garðaflöt 16-18
er opin 8.00-17.00, slmi 656066. Læknavakt er I
síma 51100.
Hafhaifjörðun Heilsugæsla Hafnarijarðar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga Id. 8.00-
17.00, slmi 53722. Læknavakt sími 51100.
Kópavogur Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Sími 40400.
Keflavfk: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á
Heilsugæslustöð Suðumesja. Sími: 14000.
Sálræn vandamál: Sálfræðistöðin: Ráðgjöf f sál-
fræðilegum efrium. Slmi 687075.
Landspftalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 tll
kl. 20.00. Kvennadeidm: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl. 15-
16. Heimsóknartlmi fyrir feður kl. 19.30-20.30.
Bamaspitali Hringsins: Kl. 13-19 alla daga.
Öldrunariækningadeild Landspitalans Hátúni
10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Landa-
kotsspítali: Allavirka kl. 15 til kl. 16ogkl. 18.30
til 19.00. Bamadeild 16-17. Heimsóknartími
annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Borg-
arspitallnn í Fossvogi: Mánudaga til föstudaga
kl. 18.30 til 19.30 og eftir samkomulagi. Á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 15-18.
Hafriarbúðir Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvíta-
bandið, hjúkrunardeild: Heimsóknartlmi frjáls
alla daga. Grensásdelld: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu-
daga kl. 14-19.30. - Heilsuvemdarstöðin: Kl.
14 til kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavlkur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Neppsspíteil: Alla
daga kl. 15.30 tilkl. 16ogkl. 18.30 til kl. 19.30.
- Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópa-
vogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á
helgidögum. - Vifilsstaðaspítali: Heimsóknar-
timi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - St
Jósepsspftali Hafnarfirði: Alla daga kl. 15-16
og 19-19.30.
Sunnuhlfð hjúkrunarheimili I Kópavogi: Heim-
sóknartími kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavikuríæknishéraðs og heilsu-
gæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólarhring-
inn. Slmi 14000. Keflavfk-sjúkrahúsið: Heim-
sóknartimi virka daga kl. 18.30-19.30. Um
helgarog á hátlöum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-
19.30. Akureyri- sjúkrahúsið: Heimsóknartími
alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-20.00. Á
bamadeild og hjúkrunardeild aldraöra Sel 1:
Kl. 14.00-19.00. Slysavarðsstofuslmi frá kl.
22.00- 8.00, slmi 22209. Sjúkrahús Akraness:
Heimsóknartlmi Sjúkrahúss Akraness er alla
daga kl. 15.30-16.00 og kl. 19.00-19.30.
Reykjavfk: SeHjamames: Lögreglan slmi
611166, slökkviliö og sjúkrabiffeið slmi 11100.
Kópavogur. Lögreglan slmi 41200, slökkvlliö
og sjúkrabifreið simi 11100.
Hafnarfjörðun Lögreglan slmi 51166, slökkvilið
og sjúkrabifreið sími 51100.
Keflavfk: Lögreglan simi 15500, slökkvilið og
sjúkrabill sími 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138.
Vestmanneyjan Lögreglan, slmi 11666,
slökkvilið simi 12222 og sjúkrahúsiö simi
11955.
Akuieyri: Lögreglan slmar 23222, 23223 og
23224, slökkviliö og sjúkrabifreið slmi 22222.
Isafjöröu': Lögreglan slmi 4222, slökkvilið slmi
3300, brunaslmi og sjúkrabifreið slmi 3333.