Tíminn - 22.02.1992, Blaðsíða 15

Tíminn - 22.02.1992, Blaðsíða 15
Laugardagur 22. febrúar 1992 Timinn 15 Lögreglan fann merki um átök í herbergi þeirra félaga á mótelinu áhyggjur. Hann sagði að þeir hefðu beðið eftir því að Waters fengi lánið, þá hefði Waters leyst út hluta af peningunum og þeir lagt af stað. Hann sagði að Waters hefði ætiað að keyra sig til Kansas City í þakklætis skyni fyrir hjálpina. Flemming sagðist hafa þambað bjór og hámað í sig morfín á leiðinni og verið hálfmeðvitundarlaus er þeir komu til Victorville. Hann sagðist því ekki muna eftir því að fara út úr bfln- um inn á mótelið. Óvænt uppákoma Hann skýrði síðan frá því að þegar hann loks rankaði við sér hefði hann verið bundinn við rúmið og Waters hefði dansað allsnakinn í kringum sig. „Ég veit hvað þú vilt og ég ætla að veita þér það,“ sagði Flemming að Waters hefði sagt. Flemming sagðist hafa glaðvaknað með það sama. Hann sagði að það hefði ekki farið á milli mála að Waters hefði ætlast til að þeir hefðu kynmök, en kvaðst ekki hafa getað hugsað sér neitt slíkt. „Waters var hommi," sagði hann. „Það er ég ekki.“ Flemming sagðist hafa losað sig úr böndunum og ráðist á Waters. Þeir flugust á um stund og Flemming náði yfirhöndinni. Hann náði í reipið og vafði því um háls Waters. „Ég var ekki að reyna að kyrkja hann, heldur vildi ég sýna honum hvemig tilfinningin væri,“ sagði Flemming. Hann sagðist hafa borið Waters, blóðugan og spriklandi, inn á baðher- bergiö og hent honum ofan í baðkar- ið. Síðan kvaðst hann hafa tekið fögg- ur sínar og komið sér burt. Flemming sagði að hann hefði hvorki barið né stungið Waters og að hann hefði verið á lífi þegar hann yfir- gafhótelið. Hann kvaðst síðan hafa haldið til Los Angeles og farið þaðan með flugvél til Kansas City. Þar naut hann lífsins með greiðslukorti og peningum Wat- ers þar til lögreglan handtók hann. Vogun vinnur - vogun tapar Á meðan á réttarhöldunum stóð hélt Flemming því fram að hann væri sómamaður sem hefði bara verið að reyna að hjálpa kunningja sínum. Vin- áttan tók þó snöggan enda þegar Wat- ers batt hann við rúmið og fór að dansa nakinn í kringum hann. Flemming viðurkenndi að hafa barið Waters, vafið reipinu um háls hans, stolið peningunum hans og greiðsiu- korti, en harðneitaði að hafa myrt hann. Saksóknari lagði ekki trúnað á sögu hans. Það gerði þessi nýi kviðdómur heldur ekki. Þann 1. ágúst 1991 komst kviðdómur að þeirri niður- stöðu að hann væri sekur um morð að yfirlögðu ráði. Niðurstaöan kom Flemming greinilega á óvart, því hann hafði treyst á að verða sýknaður. Flemming hafði hafnað málamiðiun sem hefði getað orðið til þess að hann hefði þurft að sitja inni í mesta lagi 12 ár. Hann ákvað að freista gæfunnar og tapaði. Þann 12. september 1991 var Flemming dæmdur í ævilangt fang- elsi án möguleika á náðun. RÁDNING Á KROSSGÁTU Á myndinni til vinstri sést ice Waters í kvengervi. Á til hægri stendur hann meö handlegginn um axlir Bills Flemming. tilraun lokinni var hann færður aftur í fangelsið og undir strangari gæslu. Réttarhöldin hófust í maí 1990. Sak- sóknari hélt því fram að sakbomingur hefði notfært sér tilfinningakreppu Waters til að lokka hann með sér til Colorado með loforðum um gull og græna skóga í þeim tilgangi að myrða hann og ræna. Verjandinn hélt því aftur á móti fram að sakbomingur hefði aðeins tekist á við Waters í sjálfsvöm og að einhver annar hefði myrt Waters. Hann sagði að fjármunir þeir sem Waters hafði undir höndum hefðu ekki verið það miklir að þeir hefðu getað orðið ástæða til morðs. Kviðdómendur ósammála Saksóknari taldi sig vera með unnið mál og kom það því mjög á óvart þeg- ar kviðdómendur komu sér ekki sam- an um niðurstöðu og níu þeirra mæltu með sýknu en þrír með sekt Ákveðið var að bjóða Flemming málamiðlun þess eðlis að hann játaði sig sekan um annars stigs manndráp og hlyti 15 ára dóm. Flemming neit- aði því, þar sem hann taldi að hann ætti góða von um sýknu eftir útkom- una úr réttarhöldunum. Því varð að halda önnur réttarhöld. Þau voru að mörgu leyti svipuð hin- um fyrri og Flemming kom í vitna- stúku til að tala máli sínu. Hann sagði að hann hefði verið ný- sloppinn úr fangelsi í Flórída og hefði verið á leið til Kansas City á puttanum þegar Waters tók hann upp í. Hann sagði að þeim hefði orðið vel til vina. Hann sagði að Waters hefði verið ákaflega miður sín sökum dauða vinar síns tveimur árum áður og hefði átt þá ósk heitasta að draga sig í hlé frá sam- félaginu. Því hefðu þeir soðið saman söguna um búgarðinn til þess að hann gæti látið sig hverfa án þess að vinir hans og ættingjar hefðu af honum INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800 KMTTLitiúl k/wtt uos rzZ, uos/ Uráð

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.