Tíminn - 20.08.1993, Blaðsíða 16
16Tíminn
Föstudagur 20. ágúst 1993
Landsþing LFK
6. Landsþing Landssambands framsóknarkvenna verður haldið 8.-10. okt. nk. ð
Hallormsstað og hefst að kvöldi þess 8.
Framkvæmdastfóm LFK
Aðalfundur Skúlagarðs hf.
Aðalfundur I hlutafélaginu Skúlagarði hf., fyrír starfsárið 1992, verður haldinn f
húsnæði félagsins við Lækjartorg, Hafnarstræti 20, 3. hæð, mánudaginn 30. ág-
úst 1993 M. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins III. kafla,
grein 3.4.
2. Onnur mál.
Spómin
Sumarhappdrætti
Framsóknarflokksins 1993
Dregið var I Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins 9. ágúst 1993. Vinningsnúm-
er eru sem hér segin
1. vinningur nr. 2662
2. vinningur — 28222
3. vinningur — 32521
4. vinningur — 4604
5. vinningur—15511
6. vinningur — 4209
7. vinningur — 6912
8. vinningur—19425
9. vinningur — 21816
10. vinningur — 32868
11. vinningur—13957
12. vinningur — 13631
13. vinningur — 35632
14. vinningur — 29225
15. vinningur—12778
Ógreiddir miðar eru ógildir. Vmnings sjal vitja innan árs frá útdrætti. Frekari upp-
lýsingar eru veittar I slma 91-624480.
Framsóknarftokkurínn
Suðurland
Framsóknarfélögin I Ámessýslu efna til samverustundar I Haukadalsskógi nk.
sunnudag 22. ágúst kl. 14.00. Farin verður skoðunarferð undir leiðsögn um
skóginn. Grill verða meö I för og þar getur fólk grillað sitt rómaöa lambakjöt!
Rútuferð verður frá Vöruhúsi KA kl. 12.30. Þátttaka tllkynnist Lóu, vs. 21000
og hs. 63338, og Theódóri, 61189 fyrir laugardag.
Miðstjónarfundur SUF
verður haldinn 27. agúst nk. I iþróttakennaraskólanum á Laugarvatni og hefst
hann M. 19.00.
Dagskrá:
1. Setning
2. Skýrsla stjómar
3. Alyktanir
4. Önnur mál
Héraðsmót framsóknar-
manna í Skagafiröi
verður haldið I Miögarði laugardaginn 28. ágúst
Dagskrá:
Ávarp Jón Kristjánsson alþingismaöur.
Söngur Mánakvartettinn á Sauðárkróki, við hljóöfæriö Heiödls Lilja Magnús-
dóttir.
Einsöngur: Jóhann Már Jóhannsson, við hljóöfærið Sólveig S. Einarsdóttir.
Gamanmál Jóhannes Kristjánsson.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur og syngur fyrir dansinum.
Aliir vetkomnir. Stfómki
Stefna ‘93 — Ráðstefna um
sveitarstjómarmál verður hald-
in laugardaginn 28. ágúst í
íþróttakennaraskólanum á
Laugarvatni.
Ráöstefnustjóri: Þorvaldur Snorrason, formaður FUF Ámessýslu.
Dagskrá
10.00-10.10 Setnlngarávarp, Sigurður Sigurðsson, formaður SUF.
10.10- 11.50 FramstMuerindL
10.10- 10.35 ÓfafúrOm Haraldsson: Markmið og vandamál v/sameiningar
sveitarféiaga.
10.35-11.00 Drifa Sigfúsdóttir Heppileg stærð sveitarfélaga, sameining sveitar-
félaga.
11.00-11.25 Jón Kristjánsson: Verkaskipting rlkis og sveitarfélaga.
11.25-11.50 Páfl Magnússon: Sveitarstjómarmál með augum ungra.
12.00-13.00 Hádegisverður
13.00-13.30 Ávarp, Halldór Asgrlmsson, varaformaður Framsóknarflokksins.
13.30- 15.00 Pallotðsumræður.
Stjómandi Sigurður Sigurðsson, formaður SUF.
Þátttakendur: Drifa Sigfúsdóttir, forseti bæjarstjómar Keflavlkur.
Isólfur Gytfi Pálmason, sveitarstjóri á Hvolsvelli.
Magnea Ámadóttir, bæjarfulltrúi I Hveragerði.
Magnús Stefánsson, sveitarstjóri á Grundarfirði.
Ólafur ðm Haraldsson, framkvæmdastjóri umdæmanefndar SASS:
Páll Magnússon, formaður fulltrúaráðs framsóknarfélaganna i Kópavogi.
Siv Friðlerfsdóttir, baejarfúlltrúi á Seltjamamesi.
15.00-15.10 Ávarp, Ólafia Ingólfsdóttir, formaður KSFS.
15.10- 15.20 Ávarp, Jón Helgason alþingismaöur.
15.20-15.30 Ávarp, Guöni Ágústsson alþinginsmaður.
15.30- 16.00 Kaflihlé
16.00-17.30 Hópvinna
17.30- 18.00 HóparsMla áliti.
18.00-19.30 Sælustund.
19.30- 21.00 Kvöidvwður.
21.00-7777 Sameining sveitarfétaga?
Skrifstofa Framsóknarflokks
verður lokuð frá kl. 12.00
föstudaginn 20.08. vegna
jarðarfarar
Eysteins Jónssonar.
Atvinnulegur upp-
gangur í Kína
Á áttunda þjóðþingi Alþýðulýðveld-
isins Kína, 31. mars árið 1993, flutti
Zou Jiahuha varaforsætisráðherra
skýrslu um efnahags- og félagsmál
og sagði m.a.: „Mikils háttar árangur
hefur náðst á öllum starfssviðum
þannig að kínverskt atvinnulíf er vel
búið til nýs þróunarstigs. í samræmi
við þarfir sósíalísks markaðsbúskap-
ar, gekk efnahagsleg endurskipu-
lagning og opnun atvinnulífs fyrir
umheiminum hraðar fram en
nokkru sinni (ath. á síðustu árum).
Umbætir til sveita gengu lengra en
áður. Útfærð var ábyrgðarskipan
heimilissamninga sem tengdu laun
afköstum og líka önnur ábyrgðar-
skipan. Unnið var að auki að út-
færslu ýmis konar tilhögunar í sa-
myrkjuþjónustu til sveita. Birting
og framfýlgd reglna um breytingar á
starfsháttum iðnfyrirtækja í ríkis-
eigu, varð fyrirtækjum mikil hvatn-
ing til að breyta starfsháttum og
laga sig meira að markaði. Tillögur
um hlutafélagsform og sölu hluta-
bréfa á markaði báru glögglega ár-
angur. Umtalsverðar umbætur hafa
orðið í verðlagningarmálum. Ríkið
jafnar (adjusts) verð bæði á keyptu
korni og seldu og kemur á einu og
sama verðinu bæði við kaup og sölu.
í sumum landhlutum hefur ríkið þó
látið af verðlagningu koms. Enn
voru jöfnuð farmgjöld jámbrauta
sem og verð á kolum og hráolíu en
látið var af verðákvörðun margs
konar framleiðsluvara (capital
goods). Ýmsir markaðir uxu örar en
áður, umbætur voru haftiar á öllum
sviðum húsnæðismála. Umbætur á
félagslegum tryggingum voru
smám saman kynntar..."
„Verg þjóðarframleiðsla 1992 varð
12,8% meiri en á undanfömum ár-
um að raungildi. Allmiklu meira
varð um jarðfræðilegar athuganir
en áður. Heildarfjárfesting í bygg-
ingum og tækjum (fixed assets) á ár-
inu 1992 varð 37,6% meiri en á und-
anfömu ári... Rafmagnsvinnsla jókst
um 12,2 milljónir kflówatta... Verð-
bólga varð 5,4%.
„...Heildarverðmæti innflutnings
og útflutnings varð $165,6 milljarð-
ar, 22% mejri en 1991. Upphæð út-
lends fjármagns sem til féll á árinu
varð 18,8 milljarðar dollara, 62,7%
meiri en 1991 og af þeirri upphæð
vom $11,2 milljarðar fjárfesting út-
lendra fyrirtækja í byggingum og
útbúnaði (direct investment) eða
2,6 sinnum hærri upphæð en 1991.“
Lítil sykuruppskera
á Kúbu
Framan af á þessu ári hefur viðrað
illa fyrir sykurreir á Kúbu, einkum
sakir rigningar. Að auki hefur verið
vöntun á áburði og skordýraeitri.
Cubazucar, sykursala ríkisins, áætl-
ar að sykuruppskera 1993 verði um
4,2 milljarðar tonna eða helmingi
minni en 1992. Ofan á það bætist að
Rússland hefúr fallið frá sykur-
kaupasamningum þeim sem Ráð-
stjómarríkin gerðu við Kúbu. Að
þeim greiddu þau allt að fjórfalt
heimsmarkaðverð fyrir sykurinn. Að
núverandi samningum selur Kúba
Rússum 1,5 milljónir tonna á ári
fyrir 2-3 milljónir tonna af olíu.
Sakir þess hve sykurræktunin hefur
gengið illa í ár, hefur Kúba ekki get-
að staðið við sölusamning sinn við
Rússa og bað 4. júní 1993 um 45
daga frestun á sendingum. Hækkaði
þá heimsmarkaðsverð á sykri um 9
dollara á tonn upp í 285 dollara.
Vemdarstefna
síðustu ára
Efst á dagskrá fundar sjöveldanna í
Tókíó í byrjun júlí 1993 vom vemd-
arráðstafanir á síðustu árum í helstu
iðnríkjum. Samþykkti fundurinn
ályktun um niðurfellingu þeirra.
Verndarráðstöfunum þessum lýsti
Intemational Herald TVibune stutt-
lega 1. júní 1993. „Fremst í þeirri
skrúðgöngu fara Bandaríkin sem áð-
ur voru postuli frjálsrar verslunar
en ríkisstjóm Clintons leggur hart
að Japan að ábyrgjast tilnefnt magn
innflutnings frá allmörgum grein-
um (bandaríks) hátækniiðnaðar og
krefst hún að Mexíkó fallist á strang-
ar reglur um umhverfisvemd og
vinnuaðbúnað."
„EBE er að setja árlegar skorður
við innflutningi japanskra bfla, sem
koma í stað innflutningskvóta aðild-
arlanda þess og er þeim ætlað að
vemda evrópskar bflasmiðjur gegn
fjölþjóðlegri samkeppni. Opinber-
lega eru þær sagðar vera í gildi til
2000 en ekki lengur þótt horfur séu
á að ekki verði frá þeim fallið, fyrr en
liðið hafi fram á næstu öld. Að kröfu
ríkisstjóma flestra aðildarlandanna
hafa stjómvöld (EBE í Brussel) sett
höft á um 40% innflutnings frá
Austur-Evrópu."
„Þá er Japan ekki hlutlaus áhorf-
andi. (Japanska ríkisstjórnin) bann-
aði ekki aðeins innflutning á rís
heldur hefur hún líka beitt sér fyrir
allmörgum „cartel“samkomulags-
gerðum til uppskiptingar minnk-
andi mörkuðum ýmissa starfs-
greina. Þá bindur hún líka aðstoð
við önnur lönd viðskiptasamning-
um.“
„(Höfuðstöðvar) GATT í Genf
viðurkenna opinberlega að 97 tak-
markanir (Formal restraints) á við-
skiptum milli landa hafi verið í gildi
í árslok 1992. í EBE og aðildarlönd-
um þess voru þær flestar, 33 ýmis
konar; næstflestar í Bandaríkjun-
um, 17, þriðju flestar í Austurríki, 7,
og í Japan vom þær 6. Að mati
sumra óháðra aðila tekur íhlutun
ríkisstjóma af einu eða öðm tagi til
um helmings heimaverslunarinn-
ar.“
Skipsdagbók
Kólumbusar á
Söntu Maríu
The Voyage of Christopher Columbus,
Columbus'own joumal of discovery —
restored and translated by John Cumm-
Ins, Weidenfeld and Nicholson.
,Af sjónarhóli okkar í heimi þeim
sem við höfum hlotið að erfðum, í
heimi sem tæknilegar framfarir hafa
smækkað og vísindalegar athuganir
svipt dulúð, sýnist 1942 marka upp-
haf svo mikillar útvíkkunar á þekk-
ingu mannsins á reikistjömu hans,
að ekki átti sinn líka, fyrr en maður-
inn vfirvann þyngdarafl jarðar."
Á þessum orðum hefur John
Cummings inngang sinn. „Dagbók-
in sem Kristófer Kólumbus hélt
(ath. í Söntu Maríu) hefur lengi ver-
ið glötuð. Að hluta hefur hún varð-
veist í afskrift Bartolomé de Las
Casas af henni snemma á 16. öld.
...Langar málsgreinar, á meðal
þeirra aðfaraorð, færslur frá 11.-24.
október og (nokkrar) aðrar að vem-
legum hluta em endurskrifaðar orð
fyrir orð upp úr færslu Kólumbusar
og sennilega án vemlegra brottfell-
inga. Annars staðar breytti Las Casas
frásögn Kólumbusar úr fyrstu per-
sónu („Við sigldum .. að mér telst
til“) í þriðju persónu („Þeir sigldu að
honum taldist til“) bls. 67.
Fernando Kólumbus reit ævisögu
föður síns, sem er til vitnis (ath. um
þetta). Hún birtist í ítalskri þýð-
ingu... Sums staðar þar sem (upp-
skrift) Las Cagas er í þriðju persónu,
viðhefur Femando hina uppmna-
legu frásögn föður síns í fyrstu per-
sónu..." (bls. 69).
Loks á bls. 75-76 dregur Cumm-
ings saman niðurstöður umfjöllun-
ar sinnar í inngangi bókarinnar.
„Þýðing dagbókar (Kólumbusar)
hefur verið gerð með eftirfarandi
hætti:
1. Allar málsgreinar í 1. persónu í
handriti Las Cagas hafa verið þýdd-
ar.
2. Öllum málsgreinum (ath. dag-
bókarinnar) sem Las Cagas hefur
breytt í þriðju persónu, að öllu leyti
eða hluta, er endurbreytt í fyrstu
persónu og þannig þýddar.
3. Fremur em upp teknar og þýdd-
ar úr ítölsku málgreinar í 1. persónu
í gerð Femando Kólumbusar heldur
en tilsvarandi málsgreinar í þriðju
persónu í gerð Las Casas.
4. Á stökum stöðum er inn skotið
þýddu efni úr Historia las Casas eða
gerð Fernando, sem nokkum veginn
áreiðanlega hefur verið í uppruna-
legu dagbókinni, og er það haft inn-
an skástrika og birtingarstaðar þess
getið.
5. Niður em felldar og þess getið at-
hugasemdir sem las Casas hefur
sýnilega fellt inn í (frásögnina)." Bls.
75-76.
RAUTT
UÓS
RAUTT