Tíminn - 02.08.1996, Page 3
Föstudagur 2. ágúst 1996
3
íslensk stjórnvöld stóöu
illa oð verki í nýlegum
samningum, segir stjórn
Farmanna- og fiski-
mannasambandsins:
Víti til
vamabar
í nýlegum samningum ís-
lenskra ráöamanna viö út-
lendinga um veiöar hér viö
land var illa staöiö aö verki
gagnvart hagsmunum Is-
lendinga. Slík vinnubrögö
eru víti til vamaöar og þess
vegna mega þau ekki endur-
taka sig í yfirstandandi deilu
viö Dani, segir í ályktun sam-
bandsstjómar Farmanna-og
fiskimannasambands ís-
lands.
Þar er skorað á ríkisstjórn ís-
lands að standa dyggilega vörð
um rétt íslendinga til að miða
við Kolbeinsey sem grunnlínu-
punkt sem og aðra grunnlínu-
punkta sem eru útverðir ís-
lensku efnahagslögsögunnar.
Segir að þessi réttur íslendinga
sé bæði sögulegur og lagalegur.
Bent er á að byrjað hafi verið
að nota Kolbeinsey sem
grunnlínupunkt við útfærslu
fiskveiðilögsögunnar í 4 sjó-
mílur árið 1952 og hún hafi
verið notuð áfram við síðari
útfærslur landhelginnar. Við
þessar útfærslur hafi engin
þjób gert athugasemd vib
notkun Kolbeinseyjar sem
gmnnlínupunkts, né aðra
grunnlínupunkta efnahagslög-
sögunnar. Það hafi ekki verið
fyrr en árib 1988 sem Danir
gerðu athugasemdir við Kol-
beinsey og Hvalbak sem
grunnlínupunkta efnahagslög-
sögunnar, þó íslensk stjórn-
völd hafi gefið út hnit efna-
hagslögsögunnar árið 1979.
Segir að nánast undantekn-
ingalaust í heiminum séu eyjar
og sker notuð sem grunnlínu-
punktar efnahagslögsögu við-
eigandi landa. -ohr
Mjólkursamlagiö í Búöardal framleiöir osta úr sauöamjólk frá Hvanneyri:
íslenskir sauðaostar á
markaö eftir mánub?
„Viö emm aö fara í gang meö
aö laga hérna tilraunaost úr
sauöamjólk. Það er reyndar
ekki alveg búiö aö negla þaö
niöur hvenær þaö verður, en
viö fömm sennilega í þaö eftir
viku, tíu daga," sagöi Siguröur
Rúnar Friðjónsson, mjólkur-
samlagsstjóri í Búöardal, í
samtali viö Tímann í gær. Um
er aö ræöa úrvinnslu á þeirri
sauöamjólk, sem fellur til í til-
raun sem verið er að gera á
Bændaskólanum á Hvanneyri
meö fráfæmr og mjólkun áa.
Sigurbur segir að ostarnir
komi líklega á markað eftir rúm-
an mánuð, í byrjun september,
eða strax og þeir em tilbúnir. Þá
verði varan kynnt þannig að
fólk geti nálgast hana. „Við ætl-
um að reyna ab taka eitthvað af
þessum heimsþekktu merkjum
sem sauðamjólkin hefur aðal-
lega verib notub í, einhvers
konar grábaost eða fetaost, en
hann er grískur og upprunalega
úr sauðamjólk." Gert er ráð fyrir
ab tilraun verði gerð með a.m.k.
þrjár til fjórar tegundir af sauöa-
osti.
Ekki er um mikið magn að
ræða, enda er málib ennþá á til-
raunastigi, en um tíu lítrar af
sauðamjólk á dag berast til
Mjólkursamlagsins í Búðardal
og kemur mjólkin ýmist ný eba
frosin.
Um það hvort stefnt sé að
stórframleiðslu í framtíðinni
segir Sigurður að ákvörðun
verði tekin þegar útkoman úr
tilrauninni liggi fyrir. Það eigi
eftir að koma í ljós hvernig
mjaltirnar koma út og hvort
bændur hafi áhuga á að útvega
þessa vöm, „og í öbm lagi hvað
kemur út úr þessum ostalögun-
um og hvort þetta er eitthvað
sem við getum selt. Að sjálf-
sögðu stefnum við í eitthvert al-
vömdæmi ef bændur geta
mjólkaö og neytendur vilja vör-
una."
Ekki var búið ab taka ákvörð-
un um hvað ostarnir komi til
með að kosta, þegar Tíminn
ræddi við Sigurð í gær.
-ohr
Samtök endurhœföra mcenuskaddabra mótmœla harölega áformum stjórnar Sjúkrahúss Reykjavíkur aö leggja
niöur Endurhcefingardeildina á Grensás.
Samtök endurhœföra mœnuskaddaöra um niöurlagningu Grensásdeildar:
Mótmæla harölega
Verbur Sementsverk-
smibjan einkavædd?
Meö því aö leggja niöur End-
urhæfingardeildina á Grensás
er kastaö fyrir róöa rúmlega
20 ára starfi, reynslu og þekk-
ingu á endurhæfingu mænu-
skaddaöra. Hætt er viö aö
þrautþjálfaö starfsfólk dreifist
á aörar sjúkrastofnanir og þar
mun starfsreynsla og þekking
ekki nýtast sem skyldi í kom-
andi framtíö.
Þetta kemur fram í ályktun
félagsfundar Samtaka endur-
hæfðra mænuskaddaðra sem
haldinn var fyrir skömmu, og
mótmæla samtökin harðlega
þeirri ákvörðun stjórnar Sjúkra-
húss Reykjavíkur að leggja
Grensásdeildina niður.
-ohr
„Það liggur ekkert fyrir um
þaö á þessu stigi hvort Se-
mentsverksmiðja ríkisins
veröur einkavædd," segir
Benedikt Árnason, hagfræö-
ingur hjá iönaöar- og viö-
skiptaráöuneytinu.
Einkavæðingarnefnd, sam-
ráðsnefnd nokkurra rábuneyta
um framkvæmd einkavæðingar,
bauð út úttekt á fyrirtækinu,
þ.e. að meta stöðu þess og verb-
mætis, meðal verðbréfafyrir-
tækja. Þau em nýbúin að skila
inn tilboðunum, það á eftir að
ákveða hverju þeirra verður tek-
ið, en að sögn Benedikts er gert
ráð fyrir að úttekt muni liggja
fyrir um miðjan september. Þá
mun einkavæðingarnefnd
skoba málið meb ráðuneytinu
og síðan verður eitthvaö lagt til
fyrir ráðherra. Hvort ráðherra
leggur fram fmmvarp til breyt-
inga á lögum um Sementsverk-
smiðju ríkisins á tíminn eftir ab
leiba í ljós.
Sementsverksmiðja ríkisins er
eina sementsverksmiðjan á ís-
landi og skiptir því gríðarlegu
máli fyrir ibnaöarhagsmuni Is-
lendinga. „Hvort sem þessi ein-
okunarstaða fyrirtækisins teljist
sjónarmiö með einkavæðingu
eða ekki, þá er ljóst að ríkisvald-
ið mun alltaf hafa í huga hvort
fjárfestar ætli sér í langtímafjár-
festingu á staðnum eða ekki."
En Sementsverksmiðjan hefur
verið starfrækt í tæp 40 ár á
Akranesi, hún er einn af burðar-
ásum Akranesbæjar og að
mörgu leyti andlit bæjarfélags-
ins
• -gos
L#TT#
VINNINGSTÖLUR
MBVIKUDAGINN
humUOLUR
Vlnningar FJðldl vfnntnga Vlnnlng»- upphaoö
1. -• 1 48.910.000
2 ÍóS* 0 672.950
3. »*<« 4 59.130
4. —• 195 1920
C 3*« O. .aó«ui 721 220
Samtals: 921 49.644.220
MtaMrvmM Ákknd:
50.352.490 1.442.490
Uppfeinoar im vinningstöíur fást omg I sVnsvara
568-1511 eíaGfœnunCm0riaQO€611 cg l toxtava'pi á söu 4K
31.07 1996
Stjórn Verzlunarmannafélags Reykjavíkur hefur ákveðið að taka upp gamla venju og halda
uppá frídag verslunarmanna hér í Reykjavík. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn í Laugardal
hefur verið tekinn á leigu og verður opinn öllum félagsmönnum VR, svo og öllum
Reykvíkingum án endurgjalds mánudaginn ö.ágúst n.k.
Garðarnir verða opnir milli kl. 10:00 og18:00 þennan dag.
Dagskrá Húsdýragarðsins:
10:45 Hreindýrum gefið
11:00 Selum gefið
11:30 Hestar teymdir um garðinn
12:00 Refum og minkum gefið
13:00 Fuglagarðurinn opinn (í 1 klst.)
13:30 Kanínum klappað/Klapphorn
14:00 Svínum hleypt út
15:00 Hestar teymdir um garðinn
16:00 Selum gefið
16:30 Hestar, kindur og geitur settar í hús
17:00 Svínum gefið
17:10 Mjaltir í fjósi
17:45 Refum og minkum gefið
Dagskrá Fjölskyldugarðsins:
14:00 Trjálfur og Mímmli
14:30 Hljómsveitin Hálft í hvoru
15:00 Brúðubíllinn
16:00 Trjálfur og Mímmli
16:30 Hljómsveitin Hálft í hvoru
Verið velkomin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn á frídegi
verslunarmanna 5. ágúst 1996. Opið frá kl.10:00 til 18:00
VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR