Tíminn - 02.08.1996, Síða 10
Hagvrðingaþáttur
Punktur
Mörgum ömurlegt þykir það
hve þrengt er að ráðherrans vonum.
Drottin gefi nú Davíð að
dugi punkturinn honum.
Aðalsteinn Sigurðsson
Fortíð
Ég man þá tíð sem mörgum finnst nú góð
Er manndóm varð að sýna á hverjum degi
og flestir vildu efla íslands þjóð
með auknu frelsi leggja nýja vegi.
En nú er önnur öldin víst er það.
Menn elta bara stórveldin og þegja.
í villudraumum sveima sitt á hvað
og sjaldan nokkrar betri leiðir eygja.
Aðalsteinn Ólafsson
Allt viö sama
/ sókninni er heldur heitt,
að halda fund er bannað.
Söfnuðurinn segir eitt,
séra Flóki annað.
Það frumstceða dáir Flóki mest,
fólkinu réttir steina.
Til að siða pokaprest
„pereat" mœtti reyna.
Grámann
Enn um klerka
Klerkur einn með glœpa geð
gimdir sínar vekur.
Himnaríkis mœtti með
mittisorminn skekur.
Pétur Stefánsson
Ástandið í kirkjunni
íÞjóðkirkjunni hímirhnípinn flokkur.
Hörmulegt að viðurkenna það.
Drottinn hefur yfirgefið okkur,
andskotinn tók völdin hans í stað.
Drottinn vildi dœtrum með og sonum
deila mörgum gæðum hér á jörð.
Ættum við ekki að biðja um hjálp frá Honum
og helga vora sál með þakargjörð?
Vigfús frá Brúnum
Hagyrðingamót að Núpi
Hið árlega hagyrðingamót verður haldið að Núpi
við Dýrafjörð 24. ágúst nk. Allir hagyrðingar og
hollvinir stökunnar eru velkomnir. Ráðsmaður
mótsins yrkir eftirfarandi til væntanlegra móts-
gesta:
Hagyrðingar hlustið nú á þetta
og hollvinir sem eigið lipran fót.
Elli Kjaran er að láta detta
auglýsingu um næsta kvæðamót.
Það verður háð að Núpi núna bráðum
svo næst er rétt að hringja það í eyra.
Og hótelstjórann hafa með í ráðum
um hugsanlega gistingu og fleira.
Elís Kjaran Friðfinnsson
Tilstand
Fötin geta fólkið prýtt,
frúr og megtar karla,
þó er sagt í kjól og hvítt
klæðist Össur varla.
Búi
Botnar og vísur sendist til Tímans
Brautarholti 1
105 Reykjavík P.s. SKRIFIÐ GREINILEGA
Föstudagur 2. ágúst 1996
Gubrún Agnarsdóttir
Kom mér fyrst
og fremst á óvart
„Ég hef verih í ýmsum verkefnum
en ég er ah taka upp mín fyrri störf
núna eftir verslunarmannahelgi,
en ég hef veriö ah ganga frá ýmsu
og ljúka ýmsum verkefnum sem
hafa safnast fyrir/' sagbi Gubrún
Agnarsdóttir þegar Tíminn hafbi
samband vib hana á dögunum til
ab forvitnast hvab væri ab frétta af
henni, en lítib hefur heyrst frá
Gubrúnu síban fljótlega eftir for-
setakosningar, en þá mátti skilja af
umræbunni í þjóbfélaginu ab á
döfinni væri ab stofna stjómmála-
flokk um fylgib vib Gubrúnu Agn-
arsdóttur í forsetakosningunum.
Gubrún vill ekki orða það þannig,
aðspurð, að hún hafi verið að skoða
möguleikann á því að gera eitthvað
meira úr hreyfingunni sem skapaðist
í kring um hana, heldur hafi hún
orðið vör við mikinn áhuga.
„Það er ekkert sérstakt að frétta af
því í sjálfu sér. Ég ætla einmitt að
fara að senda blaðinu svar við opnu
bréfi Árna Gunnarssonar um þetta
efni. Ég hef verið utan bæjarins með-
al annars og sá ekki Tímann fyrr en
ég kom í bæinn fyrir stuttu," segir
Guðrún.
Hlóð utan á siq
„Eins og kemur nú fram í minni
grein þá kom þetta mér fyrst og
fremst á óvart að verða vör við þenn-
an mikla áhuga. Ég átti ekkert von á
því, ég bjóst ekkert við því, svoleiðis
að ég lét þess getið. Það má segja að
þetta hafi kannski hlaðið utan á sig
því menn settu þetta umsvifalaust í
samhengi við þær umræður um
sameiningu vinstri flokkanna eða
Þjóðvaka og Alþýðuflokks sem voru
efst á baugi í umræðunni, en sem
það átti ekkert skylt við í raun. Svo
það var nú kannski ansi mikið orð-
um aukið eöa a.m.k. sett í rangt sam-
hengi að mínu mati. En hvort eitt-
hvað verður úr þessu eða ekki, það
veit ég auðvitað ekki neitt frekar en
þú. Það er mjög óljóst allt og spurn-
ing hvernig þetta mun þróast og það
er undir fólkinu sjálfu komið fyrst og
fremst."
-Hefur þessi vinna legið í láginni
síðan fljótlega eftir kosningar?
„Það hefur engin vinna verið í
gangi. Við getum sagt sem svo að
það sé ekkert sérstakt á seyði. Fólk er
í sumarleyfum hér og þar. Það hafa
ýmsir hringt í mig og lýst yfir áhuga,
en ég hef haft nógu öðru að sinna.
Svo þarf að gera upp kosningabarátt-
una og finna fé til þess að brúa bilið
eins og gengur."
Guðrún viðurkennir að kosninga-
baráttan hafi kostað töluvert fé eins
og hjá öðrum frambjóðendum. „Ég
býst nú við að ég hafi verið í lægri
kantinum, en nóg er það samt." Hún
segir það ekki alveg ljóst hversu há
fjárhæð standi út af borðinu. „Það er
verið að bíða eftir því að allar greiðsl-
ur komi inn, sem ekki eru enn
komnar inn, það er verið að gera upp
happdrætti og annað. Eins að reikn-
ingar berist og þeir eru náttúrulega
enn að koma. Mér sýnist þetta eigin-
lega dragast þannig að það verði ekki
fyrr en í ágústlok eða september sem
hægt verður að gera þetta almenni-
lega upp þannig að öll kurl séu kom-
in til grafar."
Lítib hefur fariö fyrir
Guörúnu Agnarsdóttur
forsetaframbjóöanda
síöan umrceöur um nýja
stjórnmálahreyfingu í
kring um fylgi hennar
bar hvaö hœst skömmu
eftir forsetakosningar.
Traustir menn í fjár-
málum
Aðspurð hvort Guðrún sé farin að
sjá einhverjar leiðir til að fjármagna
kosningabaráttuna og hvort þaö
verði hennar persónulega fjármögn-
un segist hún vera svo heppin að í
þeim hópi sem tók að sér að annast
fjármálin séu afskaplega ábyrgir og
traustir einstaklingar sem hlaupi
ekkert í burtu þó framboðinu sé lok-
ið. „Þannig að við munum auövitað
reyna að finna í sameiningu ein-
hverjar leiðir til að fjármagna þetta."
Hún segir búið að stinga upp á ýms-
um leiðum, en ekkert sé búið að
ákveða. „Það eru bæði þessar hefð-
bundnu leiðir og kannski eitthvað
aðeins óhefðbundnari en það er ekki
búið að ákveða neitt og veröur vænt-
anlega ekki gert fyrr en ljóst er
hversu mikið þetta er endanlega."
Guðrún segir ljóst að upphæðin fari
ekki yfir milljónatuginn, „en mér
finnst það samt alveg nóg þó það
haldi sig í einni tölu, því flestir hafa
ekki handbært þannig fé, að
minnsta kosti hef ég þab ekki.
Þetta er raunverulega spurning
um þab hverjir hafa tök á því að
bjóða sig fram til svona embættis,-
hvort þab verða í framtíðinni ein-
ungis þeir sem eiga greiðan aðgang
ab fjármagni eða ráða yfir því sjálfir,
eða hvort það verður svokallað
venjulegt fólk og með hverjum hætti
verður þá hægt að tryggja einhverja
lágmarksfjármögnun sem fólk síðan
getur bætt einhverju við ef það vill.
Eg hugsa að það sé skynsamlegt að
setja einhverjar reglur og jafnvel
tryggja einhvern lágmarksstuðning
fyrir slík framboð, ég held að það sé
mjög skynsamlegt," segir Guðrún og
á þá við fjármagn frá hinu opinbera,
en vill hún að fjárframlög til forseta-
frambjóðenda verði beinlínis sett á
fjárlög?
„Ja, ég held ab það sé nauðsynlegt
að velta því fyrir sér hvernig á ab
standa að því þannig að lýðræði,
lýðræðislegur réttur verði tryggður.
En auðvitað er ekki hægt að veita
ótakmörkuðu fé í þetta frekar en
annaö. Viö horfumst jú í augu vib
tillögur að miklum niðurskurði á
þjónustu vib gamalt og veikt fólk og
við vitum auðvitað að það er ekki til
ótakmarkað fé. En hins vegar er líka
nauðsynlegt ab tryggja eblilega lýð-
ræðishefð í landinu. Aubvitað eru
breyttir tímar, fjölmiðlun og annað,
sem gera það að verkum að menn
nýta sér t.d. auglýsingar meira held-
ur en verib hefur og svo framvegis.
Það er margt sem spilar inn í þetta
og eflaust þarf að sníða þessu öllu
hæfilegan stakk."
Sátt og ánægb
En það er rólegt framundan hjá
Guðrúnu á hinu pólitíska sviði. „Ég
er fyrst og fremst að fara að snúa mér
að mínum störfum eins og ætlunin
var.
Ég er í raun mjög sátt og ánægð að
hafa fengið tækifæri til að taka þátt í
þessu og öðlast þessa reynslu og afar
þakklát öllu því góða fólki sem lagði
málum okkar lið." -ohr