Tíminn - 02.08.1996, Qupperneq 18
18
Föstudagur 2. ágúst 1996
Eldfjallasaga Islands á ensku
Vaka-Helgafell hefur sent frá sér
bók á ensku um eldvirkni á ís-
landi. Höfundur er Ari Trausti
Guömundsson og bókin nefnist
Volcanoes in Iceland. 10,000
Years of Volcanic History. Hún
var gefin út um leið og bók Ara
Trausta og Halldórs Kjartans-
sonar Earth in Action. sem kynnt
var í blaðinu í gær.
í bókinni er fjallað um eld-
stöðvar á íslandi og sögu eld-
virkni á undanförnum tíu þús-
und árum, lýst er mismunandi
eldstöðvum og greint frá sam-
skiptum manns og jarðelda í
aldanna rás. Bókina prýðir fjöldi
litmynda ásamt skýringar-
myndum og kortum. Þá fylgir
Fréttir af bókum
henni ítarleg nafna- og atriðis-
orðaskrá.
í kynningu frá útgefanda seg-
ir: „Ari Trausti Guðmundsson
byggir í bók sinni á nýjustu
rannsóknum og kenningum í
jarðfræði íslands. Hann skýrir í
stuttu máli meginþættina í jarð-
eldasögu landsins, gerir ljósa
grein fyrir megineldstöðvum
hér á landi og setur efnið fram á
aðgengilegan hátt, þannig að
leikir jafnt sem lærðir geta nýtt
sér það. Volcanoes in Iceland er
einkar falleg og áhugaverð bók
— tilvalin gjöf handa vinum og
viðskiptamönnum erlendis."
Volcanoes in Iceland er 136
blaðsíður að lengd. Hún er seld
á kynningarverði í sumar, 2.980
krónur, en fullt verð bókarinnar
er 3.975 krónur. ■
Atök og uppskipting evrópsku
stórveldanna á fjórða áratugnum
The Popular Front and Central Europe,
eftir Nicole jordan. Cambridge University
Press, xvii + 348 bls., S 59,95.
í bók þessari, sem út kom
1992, túlkar Nicole Jordan
stefnu Frakklands í utanríkis-
málum út frá sjónarmiðum
franska herforingjaráðsins, eink-
um helsta áhrifamanns þess,
Gamelins hershöfðingja, fremur
en frönsku ríkisstjórnarinnar og
setur þannig fram endurtúlkun
— „reconceptualisation" —
hennar. í ritdómi í Joumal of
Modem History, fyrsta hefti 1996,
sagöi Jon Jacobson: „... megin-
markmið herforingjaráðsins var
að næsta stríð gegn hernaðar-
legu forræði Þýskalands í Evrópu
yrði háð utan fransks landsvæð-
is og að kostnaði af því, í manns-
lífum og peningum, yrði dreift á
bandalag ríkja."
„Eftir að hernámi banda-
manna í fyrri heimsstyrjöldinni
á Rínarhéruðum lauk að fullu og
fyrr en til stóð 1930 ... tók Ga-
melin að líta svo á, að sú yrði af-
leiðing heimkvaðningar herja
þeirra, að Þýskaland mundi inn-
an tíðar hernema héruðin að
nýju og á eftir endurhervæðingu
þeirra mundi fylgja hernaðarleg
ásókn austur á bóginn. Jafn-
framt féll Gamelin frá þeirri hug-
mynd, að franskur liðsafli veitti
Rínarhémðunum hervernd og
stæði að refsiaðgerðum vegna
brota Þjóöverja á Versalasamn-
ingnum. Gegn hugsanlegri
hernaðarlegri ásókn þeirra í Mið-
Evrópu sá hann aftur á móti þær
hernaöarlegar aðgerðir með
þunga á langri víglínu, og allt til
Italíu stæðu að henni hermenn
bandalags Póllands ... Tékkó-
slóvakíu, Júgóslavíu og Rúmen-
íu, en franskar liðsveitir héldu
skjótlega inn í Belgíu til að
hindra tangarsókn Þjóðverja um
hana. Að hernaðarlegum hug-
myndum Gamelins gat Ítalía
hvort heldur tengst Mið- Evrópu
eða Vestur-Evrópu eða skilið
þeirra á milli; hins vegar gat Pól-
land hvort heldur tengt Mið-
Evrópu við Austur-Evrópu eða
skilið þeirra á milli. Bretland
skipaði ekki háan sess í ráðagerð-
Fréttir af bókum
um Gamelins, þangað til hern-
aðarleg áform hans gliðnuðu
sundur 1938, en fram til þess var
því ætlað ... að leggja til hergögn
og að hafa milligöngu við þver-
lynda Belga (bls. 91). Þegar þýsk-
ar liðsveitir endurhervæddu Rín-
arhémðin í mars 1936, tóku
hernaðarleg áform franska her-
foringjaráðsins ekki meginbreyt-
ingum, heldur styrkti innrásin
það í skoðunum sínum. Og felldi
það þær ekki að diplómatískri
framvindu þess árs; til umfjöll-
unar tók það hvorki samkomu-
lagsgerð Þýskalands við Austur-
ríki í júlí né vaxandi vinsemd
Ítalíu og Þýskalands, sem bar til
ræðu Mussolinis í nóvember um
öxulinn Róm-Berlín."
„Að allstórum hluta lýtur bók
Nicole Jordan að viðleitni ríkis-
stjórnar Léons Blum á alþjóðleg-
um vettvangi frá júní 1936 til
febrúar 1937 til að koma á
bandalagi milli Frakklands og
Litla Bandalagsins (þ.e. Tékkó-
slóvakíu, Júgóslavíu og Rúmen-
íu) — og var ekki öðru sinni við
það leitast á millistríðsárunum.
Tilefni þess var, að Nicolas Titu-
lesco og Eduard Benes æsktu, að
Litla bandalagið léti til sín segja í
evrópskum öryggismálum. Á
það bandalag leit Blum öðru
fremur sem aðgerð til að styðja
Tékkóslóvakíu gegn Þýskalandi.
Um það hafði franska utanríkis-
ráðuneytið efasemdir og batt
fulltingi Frakklands því, að ríki
Litla bandalagsins semdu um
gagnkvæman stuðning og að
bandalag á milli Frakklands og
Tékkóslóvakíu hefði forgang.
Breska utanríkisráðuneytinu
gramdist að hafa ekki verið haft
með í ráðum og neitaði að veita
þessum ráðagerðum stuðning.
Út um þúfur fóm þær að miklu
leyti sakir andstöðu Júgóslavíu,
sem kaus samningsgerð við ítal-
íu sem frá var gengið í mars
1937. í frönskum utanríkismál-
um uröu þessar þreifingar af-
drifaríkar. I álitsgerð, sem pólit-
íska nefnd utanríkisráðuneytis-
ins samdi fyrir ríkisstjórn Blums,
var lagt til að horfið yrði frá
virkri stefnumörkun í Mið-Evr-
ópu nema með þátttöku Bret-
lands. Til þess tíma verður rakin
sú stefna, sem leiddi til
Munchenarsamkomulagsins
hálfu öbru ári síðar ... en ekki
viðbragða við endurhervæðingu
Rínarhéraðanna, eins og venja
hefur verið."
Síðan em í bók þessari vendi-
lega raktar viðræbur Bretlands
og Frakklands við Rábstjórnar-
ríkin 1937-39 um hernaðarlega.
samvinnu, sem árangur báru
ekki. ■
Viöey um verslunar-
mannahelgina
Fyrir þá íbúa Reykjavíkur og
nágrennis, sem ekki leggja í
langferðir um þessa miklu
umferöarhelgi, er gott að vita
af Viðey. Ferðin þangað meö
Maríusúðinni tekur ekki
nema 5 mínútur og þá eru
menn komnir í friðsælt og
fallegt umhverfi og geta not-
ið útivistar, farið í messu og
þegið veitingar í sögufrægri
Viðeyjarstofu. Göngustígar
eru komnir um alla eyna, svo
er hestaleiga ab starfi og ljós-
myndasýning í Viðeyjar-
skóla. Fjölskyldufólki er
einnig velkomið ab tjalda í
Vibey sér að kostnabarlausu,
en um það þarf að sækja til
rábsmannsins í síma 568
0535.
Alla þrjá daga helgarinnar
verða skipulagðar skoðunar-
ferðir um eyna. Á laugardag kl.
14.15 verður gönguferð um
suðurströnd Austureyjarinnar.
Á sunnudag verður messa kl.
14. Sr. Kristján Valur Ingólfs-
son skólameistari í Skálholti
messar. Eftir messu verður
staðarskoðun. Á mánudag
verður aftur gönguferð kl.
14.15. Þá verður fyrst hugað að
örnefnum, er tengjast minn-
ingum um Jón Arason Hóla-
biskup, en síðan gengið yfir á
Vestureyju og m.a. skoðaður
steinn með áletrun frá 1821, er
tengst gæti ástamálum ungs
fólks í Viðey á þeirri tíð. Steinn-
inn er við rústir Nautahúsanna
og þaðan verður gengið um
norðurströnd eyjarinnar, en
síðan heim að Stofu aftur. Loks
verður kvöldganga á þriðjudag
kl. 20.30. Þá verður fyrst geng-
ið um austurhluta túnsins,
hugað að örnefnum þar, en síð-
an farið með gamla túngarðin-
um yfir á norðurströndina og
meðfram henni vestur í Eiðis-
hóla, en þaðan heim að Stofu.
Friðjón Guörööarson
sýslumaður
Rangæinga,
sextugur
ÁRNAÐ HEILLA
Norðfjörður er notalegur,
nokkuð er þangað langur vegur,
þegar héðan ekið er.
Þar í bœ er Friðjón fœddur,
fljótt var orðsins maetti gœddur.
í krafti þess á kostum fer.
Rauði baerinn reyndist góður,
rammefld stjóm og vígamóður,
sem á klámm körlum sást.
Fjaran þakin fugli og gróðri,
fiskiskiþin komu úr róðri,
með afla sem aldrei brást.
Síðar varð hann sýslumaður,
saetið skipar viðmótsglaður,
margur afhans mildi naut.
Þegnum vill hann gott eittgera,
gleði og sorgir með þeim bera.
Auralitlum létta þraut.
Hingað kom úr Homafirði,
Hvolsvöllur er nokkurs virði,
jökulbungan björt og hrein.
Frítt og bjart er fjallabandið,
þó fegra þyki Austurlandið,
sem frá aesku á öll hans bein.
í veislusölum virkur er hann,
valin gidlkom gestum ber hann,
glaðir hlátrar glymja þá.
Við sumarhús er saela og friður,
sígrœn tré og fossaniður.
Fýll í bergi friðland á.
Um söfn í Skógum hugsar haerra,
hús er risið bjart og staerra,
og burstakirkja að baetast við.
Víðar laetur til sín taka,
til em þeir, sem ennþá vaka.
Skara í eld og leggja lið.
Pálmi Eyjólfsson