Réttur - 01.10.1985, Blaðsíða 15
Kjöldafundiir 1. mars 1978 gegn kaupráni
Hamskiptin 1983
Með stjórnarskiptunum 1983 tekur
hermangara- og braskarastéttin algera
forustu í pólitík yfirstéttarinnar, svo sem
rakið er annarsstaðar í hefti þessu.
Undirgefnin undir bandaríska innrásar-
herinn verður takmarkalaus og vígbúnað-
ur hans stóraukinn. braskarar láta greipar
sópa um eigur ríkis og bæja svo sem þeir
frekast þora, — og á starfsstéttir landsins
er nú ráöist með meiri fruntaskap en
þekkst hafði um áratugi: launin skorin
niður um þriðjung, kaupgjaldsvísitala
bónnuð, umbætur i húsnæöis- og trygg-
ingamálum stórum rýrðar og síðan átti að
alnema samningsfrelsi allra félaga hins
vinnandi fólks, en ríkisstjórnin hvarf þó
frá þ\ í, eftir að hafa sýnt harðstjórnarhug
sinn svo rækilega að hverjum hugsandi
vinnandi manni átti að vera ljóst hvern
íjandmann hann hafði þar sem íhalds- og
Framsóknarflokkur var.
En hvað um starfsstéttirnar?
Hví er nú ekki tekið á móti af sama
harðfylgi og 1942?
Hvaða breyting hefur oröið á hugarfari
hinna vinnandi stétta síðan þá?
Yfirstéttin hefur notað fjölmiðla sína,
volduga og vægðarlausa, til að reyna að
hernema hug alþýðustéttanna, villa þeim
191