Fréttablaðið - 11.03.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 11.03.2009, Blaðsíða 4
4 11. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR www.ellingsen.is TB W A\ RE YK JA V ÍK \ S ÍA 35–50 % AFSLÁ TTUR AF ÖLLU M CO LUMB IA FATNA ÐI COLUMBIA- DAGAR 5.–14. mars VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 20° 10° 7° 6° 7° 11° 8° 5° 4° 5° 23° 13° 13° 29° 2° 11° 16° 2° 1 1 -1 0 1 6 6 7 6 2 -1 15 -4 -1 2 31Á MORGUN 5-15 m/s, hvassast á Vest- fjörðum. 8 -5 FÖSTUDAGUR 5-10 m/s 6 15 10 5 3 5 5 6 8 -6 -4 -1-1 ÞRÓUNIN Í DAG Núna með morgnin- um er víða hvasst og sumstaðar stormur, einkum þó nyrst og vestast á Vestfjörðum. Það lægir snögglega sunnan og vestan til núna fyrir hádegi en hvasst verður á norðurhluta lands- ins eitthvað fram á kvöldið. Rigning verður sunnan til í fyrstu en síðan skúrir. Snjókoma eða slydda verður nyrðra og eystra en úrkomuminna í kvöld. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur ELDSVOÐI Mikil hætta skapaðist vegna gassprenginga þegar mikill eldur braust út á efstu hæð versl- unar- og skrifstofuhúss við Síðu- múla 34 í gær. Hvorki fólk sem var innandyra þegar eldurinn braust út né slökkviliðsmenn sem börðust við eldinn slösuðust, þó litlu mætti muna. Þakíbúð á efstu hæð hússins er ónýt og reyk- og vatnsskemmd- ir eru töluverðar á hæðunum fyrir neðan. Allt tiltækt lið slökkviliðs og lögreglu var kallað að húsinu laust eftir klukkan fjögur. Þorvaldur Geirsson varðstjóri, sem stjórn- aði aðgerðum slökkviliðsins í gær, segir að töluverð hætta hafi skap- ast um tíma. „Unnið var að því að bræða tjörudúk á þak hússins og því voru margir gaskútar þarna uppi. Nokkrir þeirra sprungu sem skapaði töluverða hættu.“ Þorvald- ur telur að á milli 60 og 70 menn hafi unnið á vettvangi, enda var allt tiltækt lið kallað út. „Fyrsta verk okkar var að láta rýma húsið og senda reykkafara inn. Eftir að körfubílarnir voru komnir vorum við fljótir að kæla gaskútana og slá á yfirborðseldinn.“ Slökkvilið var um það bil hálfa klukkustund að ráða niðurlögum eldsins og hófst þá handa við að rjúfa þekjuna, reyk- ræsta og forða vatnsskemmdum á neðri hæðum. Um þrjátíu manns voru við störf í húsinu þegar eldurinn braust út. Á meðal þeirra var Árni Guðmunds- son, starfsmaður í versluninni Mótor sport á neðstu hæð hússins, sem hljóp til með slökkvitæki þegar hann fann reykjarlykt. Hann sneri við í stigaganginum þegar reykur- inn var orðinn gríðarþykkur. Hann fann vel fyrir gassprengingunni. „Húsið lék á reiðiskjálfi og brak flaug af þakinu og niður á götu.“ Óttar Ingvarsson, einn eigenda hússins, segir það óskemmtilega reynslu að sjá eign sína hverfa í eldhafið. Skrifstofur hans á fjórðu hæð eru illa farnar af vatni og reyk. Hann segir útilokað að meta skemmdir en þær séu umtalsverð- ar. „Það er hrikalegt að verða vitni að þessu. Það er allt á kafi í vatni og allt ónýtt á efstu hæðinni.“ Það er til marks um hversu fljótt eldur- inn breiddist út að frá því að Óttar fann reykjarlykt liðu um 15 mín- útur þangað til eldhafið hafði náð mikilli útbreiðslu. „Þegar ég kom niður á götu stóðu eldtungurnar út um gluggana á hæðinni fyrir ofan þar sem ég sat.“ svavar@frettabladid.is Gassprengingar ollu hættu í stórbruna Mikil mildi er að enginn slasaðist í stórbruna við Síðumúla í gær. Sprengingar á þaki ógnuðu lífi og limum slökkviliðsmanna og starfsmanna í húsinu. Húsið er mikið skemmt. Um 30 manns voru innandyra. 70 komu að slökkvistörfum. ELDSVOÐI „Slökkviliðsmennirnir eru búnir að fullvissa mig um að hand- ritin hafi sloppið,“ sagði Sigfríður Björnsdóttir, starfsmaður Íslensku tónverkamiðstöðvarinnar, sem var við störf í Síðumúla 34 þegar eldur braust út í húsinu í gær. Grátandi tjáði hún blaðamanni á vettvangi að hún hafi verið viss um að um 80.00 þúsund handrit af íslenskum tónverkum væru orðin eldi að bráð. „Ef illa hefði farið hefði þetta verið óbætanlegur skaði fyrir íslenska menningarsögu. Þetta er fyrir tón- list þjóðarinnar eins og það væri fyrir sögu listmálunar að kviknaði í Listasafni Íslands. Þarna eru til dæmis handrit Jóns Leifs.“ Hildigunnur Rúnarsdóttir, stjórnarformaður ÍT og tónskáld, staðfestir orð Sigfríðar. „Það eru verk frá 1920 til þessa dags, þó ein- staka handrit séu eldri. Nú viljum við bara komast í nýtt húsnæði. Það er löngu orðið tímabært að móta heildstæða stefnu um það starf sem tónskáld hafa unnið að í fjörutíu ár. Það hefur lengi verið talað við fjár- veitingarvaldið um að fá eldheldar geymslur undir þessi verðmæti. Á það hefur ekki verið hlustað.“ Fyrir um áratug kviknaði í húsi samföstu Síðumúla 34 þar sem gall- erí í eigu Péturs Þórs Gunnarsson- ar, eiganda Gallerís Borgar, var til húsa. - shá Ómetanleg handrit með verkum íslenskra tónskálda í hættu í Síðumúla: Tónlistararfur Íslands í hættu VEL SLOPPIÐ Hildigunnur Rúnarsdóttir stjórnarformaður og Sigfríður Björns- dóttir starfsmaður óttuðust að ómetan- legur skaði hefði hlotist af eldinum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI BRUSSEL, AP Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna, sagði á fundi í höfuðstöðvum Atlantshafsbanda- lagsins í Brussel í gær að sér þætti að næsti framkvæmdastjóri bandalagsins ætti ekki endilega að vera Evrópumaður. Hefð er fyrir því að fram- kvæmdastjórinn sé Evrópumaður þar sem hernaðarlegur yfirmaður er ávallt Bandaríkjamaður. Með þessu er Biden talinn vera að lýsa stuðningi við að kanadíski varnar- málaráðherrann Peter Mackay taki við af Hollendingnum Jaap de Hoop Scheffer í júlí. Evrópsku NATO-ríkin hafa flest lýst stuðn- ingi við danska forsætisráðherr- ann Anders Fogh Rasmussen. - aa Val framkvæmdastjóra NATO: Kanadamanni teflt fram BIDEN Í BRUSSEL Varaforsetinn ásamt framkvæmdastjóra NATO, Jaap de Hoop Scheffer. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Farbanni yfir Viggó Þór Þórissyni, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna, fellur úr gildi í kjölfar dóms Hæstaréttar í gær. Til að svo verði þarf Viggó þó að leggja fram 10 milljóna króna tryggingu. Farbannið er það lengsta hing- að til hér á landi. Viggó hefur verið í farbanni frá 13. apríl 2007, eða í samtals tæplega 23 mánuði. Viggó er grunaður um að hafa gefið út tilhæfulausar ábyrgðar yfirlýsingar að upphæð um 200 milljóna bandaríkjadala, sem samsvarar um 22 milljarða króna. - bj Lengsta farbanninu að ljúka: Þarf að leggja fram tryggingu ÍÞRÓTTIR Líklega eru um og yfir þúsund Íslendingar á leið úr landi í kringum páskana til að spila golf, að mati Björns Eysteinssonar, golfstjóra Express ferða. Tvö hundruð kylfingar eru á leið með þeim til Spánar í apríl og sagt var frá því í Fréttablaðinu í gær að yfir 500 væru á leið með Vita-ferðum á svipaðar slóðir. Björn segir að selst hafi upp í ferðir þeirra á völlinn Real de Faula á örfáum vikum. Ekki hafi viðrað til golfiðkunar á Íslandi upp á síðkastið sem kunni að skýra ásóknina. Gera má ráð fyrir því að fjöldi fólks fari með öðrum ferðaskrifstofum utan í golfferðir um páskana. - sh Golfarar streyma úr landi: 200 kylfingar í viðbót í sólina NORÐUR-ÍRLAND, AP Leiðtogar kaþ- ólskra og mótmælenda á Norður- Írlandi sýndu fulla samstöðu í gær og lýstu yfir eindregnum vilja til að brjóta á bak aftur klofningshópa úr Írska lýðveldis- hernum, sem hafa reynt að lífga glæður borgarastyrjaldar. Sameiginleg yfirlýsing þeirra var gefin út eftir að samtök, sem nefna sig Continuity IRA, lýstu ábyrgð sinni á morði á lögreglu- þjóni í fyrrinótt, aðeins tveimur dögum eftir að önnur klofnings- samtök úr IRA, sem nefna sig Hið sanna IRA, myrtu tvo her- menn skammt frá Belfast. - gb Lögreglumaður myrtur: Andstæðingar standa saman STJÓRNMÁL „Það er nokkuð ljóst að ég mun ekki gera þetta en ég er að íhuga þessa miklu hvatn- ingu sem ég hef fengið,“ sagði Jóhanna Sig- urðardóttir forsætisráð- herra í gær um formannsmál í Samfylking- unni. Hart hefur verið lagt að henni að gefa kost á sér í for- mannsembætt- ið en hún hefur fram til þessa alfarið hafnað slíkum áskorunum. „Það hefur aldrei staðið til að ég myndi gera það og sú staða hefur ekki breyst,“ sagði Jóhanna í gær en kvaðst engu að síður ætla að hugsa málið. - bþs Jóhanna um formannsmál: Segir nokkuð ljóst að hún gefi ekki kost á sér JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR SÍÐUMÚLI 34 Fjöldi slökkviliðsmanna barðist við eldinn og slökkti hann á um 30 mínútum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M GENGIÐ 10.03.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 185,2606 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 111,95 112,49 155,07 155,83 142,18 142,98 19,08 19,192 15,91 16,004 12,31 12,382 1,1383 1,1449 163,94 164,92 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.