Fréttablaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 58
34 27. mars 2009 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari tilkynnti í gær tvær breytingar á íslenska landsliðshópnum sem mætir þeim skoska á Hampden Park í Glasgow á miðvikudaginn. Þeir Heiðar Helguson og Birkir Már Sævarsson verða fjarverandi vegna meiðsla en í þeirra stað valdi hann þá Ármann Smára Björnsson og Birki Bjarnason. Báðir leika þeir í Noregi. En þar með er meiðslasögu íslenska landsliðsins ekki lokið. Ólafur sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að 99 prósent líkur væru á því að Brynjar Björn Gunn- arsson myndi einnig missa af leiknum þar sem hann meiddist um helgina. Þetta eru sérlega slæm tíðindi fyrir íslenska lands- liðið þar sem annar sterkur varnartengiliður, Stefán Gíslason, er í banni í leiknum. Birkir sagðist hins vegar í samtali við Fréttablaðið fagna því að vera kominn í A-landsliðið. „Þetta er auðvitað eitthvað sem ég hef stefnt að undanfarið og er ánægður með að fá tækifærið nú,“ sagði Birkir. „Ég veit nú lítið um hvort ég fæ að spila en ég mun gera mitt allra besta á æfingum og sjá svo til.“ Birkir á að baki fjölda leikja með unglingalandsliði Íslands en fær nú tækifærið með A-liðinu þó svo að hann sé gjaldgengur í U-21 liðið í tvö ár enn. Hann hefur lengi búið í Noregi þar sem hann er á mála hjá Viking í Stafangri. Þar lék hann sinn fyrsta leik aðeins átján ára gamall en hann sló í gegn á síðasta tímabili er hann var lánaður til spútnikliðsins Bodö/Glimt. Það gerði það að verkum að hann hefur unnið sér fast sæti í byrjunarliði Viking á tímabilinu sem nú er nýhafið. „Ég held að ég sé búinn að spila ellefu leiki í röð í byrjunarliðinu,“ sagði Birkir og telur þá æfingaleiki með. Tveimur umferðum er lokið í norsku úrvalsdeildinni. „Við erum þrír á miðjunni og ég hef verið að spila sem sóknartengi liður vinstra megin. Það hentar mér vel og er mín óskastaða,“ sagði Birkir en hann hefur mikið spilað á hægri vængnum með íslenska U-21 landsliðinu. Aðspurður segir Birkir möguleika Viking á tímabilinu góða. „Við erum með gott lið og eigum fullt erindi í toppbaráttuna.“ BIRKIR BJARNASON: VALINN Í LANDSLIÐSHÓPINN Í FYRSTA SKIPTI VEGNA MEIÐSLA LEIKMANNA Það var alltaf stefnan að komast í landsliðið SJÁÐU MYND INA! SPILA ÐU LEI KINN! 199 kr/skeytið. Vinningar afhendir í ELKO Lindum. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. STÆRSTA BOND MYND ALLRA TÍMA KOMIN Á DVD OG BLU-RAY 9. HVER VINNUR ! ELDRI BOND MYNDIR Á TILBOÐI! SENDU SMS EST BOND Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! VINNINGAR ERU QUANTUM OF SOLACE Á Á DVD, TÖLVULEIKIR, DVD MYNDIR, PEPSI OG MARGT FLEIRA. KÖRFUBOLTI KR-ingar geta slegið Íslandsmeistara Keflavíkur út úr úrslitakeppni Iceland Express deildar karla í kvöld vinni þeir þriðja leik liðanna í DHL-Höll- inni. Keflvíkingar eiga enn eftir að vinna KR í vetur en þetta verð- ur sjöunda tilraun liðsins. Sigurður Ingimundarson, þjálf- ari Keflavíkur, gat ekki leynt pirringi sínum út í Jón Arnór Stefánsson í sjónvarpsviðtali eftir annan leik undanúrslitaeinvígis liðanna. Það var kannski skiljan- legt enda þurfti landsliðsþjálfar- inn enn á ný að horfa upp á besta körfuboltamann landsins fara illa með hans menn. Þetta var í sjötta sinn í röð sem Jón Arnór Stefánsson hitt- ir úr 50 prósent skota sinna eða betur á móti Keflavík í vetur og í fimmta sinn í sex leikjum liðanna þar sem hann skorar 24 stig eða meira á móti Íslandsmeist- urunum. KR hefur unnið alla sex leiki sína á móti Kefla- vík í vetur og Jón Arnór hefur skorað 26,8 stig að meðaltali í þeim. Jón Arnór hefur alls skorað 161 stig í leikj- unum eða 60 stigum meira en næsti maður - Keflvíking- urinn Sigurður Gunnar Þor- steinsson. Leikurinn á þriðjudag- inn er annar leikurinn í vetur þar sem Jón Arnór nær að skora 35 stig á Kefla- vík- urliðið en í báðum tilfellum hitti hann úr 60 prósent skota sinna. Jón Arnór hefur verið óstöðv- andi fyrir utan þriggja stiga lín- una í leikjunum en hann hefur sett niður 23 af 41 skoti sínu fyrir utan þriggja stiga línuna á móti Keflavík. Þetta gerir hina ótrú- legu 56,1 prósents skotnýtingu á þriggja stiga körfum auk þess sem hann skorar 3,8 þrista að meðaltali í leik. Það hefur ekki dugað Keflvík- ingum heldur að brjóta á kappan- um því Jón Arnór hefur sett niður 40 af 44 vítaskotum sínum eða 90,9 prósent skotanna. Jón Arnór hefur nú sett niður sextán víta- skot í röð á móti Keflavík þar af öll þrettán í úrslitakeppninni. Jón Arnór hefur líka hugsað um félaga sína því hann hefur gefið 27 stoðsendingar í leikjunum sem er jafnmikið og leikstjórnendurn- ir Jakob Sigurðarson og Sverrir Þór Sverrisson. Þá er ótalin frammistaða Jóns Arnórs í vörninni þar sem töl- fræðin telur nú sjaldnast en kapp- inn er þó með flesta stolna bolta af öllum leikmönnum í þessum sex leikjum sem er vitnisburð- ur um framlag hans í vörninni. Annar er að hann hefur nánast lokað á Hörð Axel Vilhjálmsson í leikjum en Hörður er aðeins með 31 prósents skotnýtingu á móti KR í vetur. - óój KR-ingar geta komist í lokaúrslit Iceland Express-deildar karla í körfubolta í kvöld: Geta þeir stoppað Jón Arnór? SVAKALEGUR Jón Arnór Stefánsson hefur verið sjóðheitur í öllum leikj- unum á móti Keflavík í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/VIILHELM FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen glímir nú við magakveisu sem hélt honum frá æfingu með Bar- celona í gær. Læknar liðsins sendu íslenska landsliðsmanninn heim og óvíst er hvort hann er fær um að ferðast til Íslands í dag eins og fyrirhugað var. Eiður Smári verður þó örugg- lega með á móti Skotum í næstu viku en gæti tekið takmarkaðan þátt í undirbúningnum fyrstu dagana eftir að íslenski hópurinn kemur saman. Fréttir af skoska landsliðinu eru heldur ekki góðar því varnar- maður Celtic, Stephen McManus, varð í gær fimmti leikmaður liðs- ins sem getur ekki tekið þátt í leiknum á móti Hollandi á laugar- dag. Þeir Paul Hartley, David Weir, Kirk Broadfoot og Kris Comm- ons eru þegar komnir á langan meiðslalista Skotanna. - óój Landsleikurinn við Skota: Eiður er veikur MAGAKVEISA Eiður Smári Guðjohnsen missti af æfingu með Barcelona í gær. NORDICPHOTOS/AFP > Birgir Leifur í hópi efstu manna Birgir Leifur Hafþórsson lék mjög vel á fyrsta hring á Opna Andalúsíu-mótinu á Spáni í dag en þetta sterka mót er hluti af Evrópumótaröðinni. Birgir Leifur lék holurnar átján á 69 höggum, eða þremur höggum undir pari. Hann er í 11. sæti eftir fyrsta dag, aðeins tveimur höggum á eftir efstu mönnum en meðal þeirra er Skotinn Colin Montgomerie. Birgir Leifur fékk þrjá skolla, fjóra fugla og örn á skrautlegri ferð sinni í gegnum fyrri níu holurnar en á seinni níu spilaði hann af miklu öryggi og hélt sig á þremur högg- um undir pari. KÖRFUBOLTI Haukakonur eru aðeins einum sigri frá því að vinna þriðja Íslandsmeistaratitilinn á fjórum árum eftir 74-65 sigur á KR í loka- úrslitum Iceland Express-deildar kvenna í gær. Haukar voru með frumkvæðið í leiknum en KR kom alltaf til baka. Haukar hafa unnið tvo síðustu leiki einvígisins og geta tryggt sér titilinn í DHL-höllinni á sunnudagskvöldið. Lokasekúndur leiksins voru svakalegar. Fyrst skoraði Slavica Dimovska þriggja stiga körfu og kom Haukum í 61-58 þegar tvær sekúndur voru eftir og allt Hauka- liðið fagnaði eins og þær væru búnar að vinna. Ragna Margrét Brynjarsdóttir gerði síðan þau mistök að brjóta á Hildi Sigurð- ardóttur í þriggja stiga skoti og Hildur setti öll þrjú vítin niður og tryggði KR framlengingu við litlu minni fögnuð KR-liðsins. Svo virtist vera sem stemningin yrði öll með KR-liðinu sem hafði nánast risið upp frá dauðum, en í framlengingunni var nánast bara eitt lið á vellinm. Haukarnir unnu framlenginguna 13-4 og eru komnir í lykilstöðu. „Maður hélt að ákveðið „móment“ væri komið til okkar þegar Hildur jafnaði en Haukarnir voru ekki lengi að stela því til baka,“ sagði Jóhannes Árna- son, þjálfari KR, eftir leikinn. „Þetta var háspenna – lífshætta,“ sagði Yngvi Gunnlaugsson, þjálf- ari Hauka, eftir leik. „Þetta var frábær karakter hjá stelpunum. Þær lenda í þeirri stöðu að missa leikinn í framlengingu en í stað þess að hengja haus þá börðu þær sig saman og ég sá það á andlitinu þeirra að við vorum ekki að fara að tapa þessu.“ Ragna Margrét Brynjarsdóttir var frábær á lokamínútum leiks- ins en hún gerði einnig þau mis- tök að gefa Hildi þrjú víti. Ragna Margrét skoraði hins vegar fimm fyrstu stig Haukanna í framleng- ingunni. „Ég ætlaði að bæta fyrir þetta og tel mig hafa gert það ásamt öllu liðinu. Bæði liðin mættu tilbúin til leiks en við vildum þetta meira,“ sagði Ragna Margrét og þjálfarinn var líka ánægður með hana. „Þetta er búin að vera reynslu- mikil úrslitakeppni fyrir hana og ég get ekki annað en samgleðst henni að hún skyldi koma okkur á sigurbraut. Ég er rosalega ánægð- ur með hvernig hún brást við. Auð- vitað hefði allt getað gerst en hún var frábær í framlengingunni,“ sagði Yngvi en Ragna Margrét var með 10 stig og 6 fráköst í 4. leik- hluta og framlengingu. Hildur Sigurðardóttir, fyrir- liði KR, virtist vera að færa KR annað líf þegar hún tryggði lið- inu framlengingu en það var eins og spennufallið hefði tekið allan kraftinn úr liðinu. „Við fögnuð- um eins og vitleysingar þegar við jöfnuðum en það var framlenging eftir. Við vorum að elta þær allan leikinn,“ sagði Hildur. „Við vorum að spila á móti frá- bæru liði og þær sýndu í þessum leik breiddina sem er í liðinu með því að fá stig úr öllum áttum,“ sagði Jóhannes Árnason, „Við lítum svo að á að það séu tveir leik- ir eftir og fjórar æfingar á þessu tímabili. Við ætlum bara að njóta þess,“ sagði Jóhannes. ooj@frettabladid.is Háspenna – lífshætta á Ásvöllum Haukakonur eru komnar í 2-1 í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn eftir 74-65 sigur á KR í fram- lengingu. Ragna Margrét Brynjarsdóttir var allt í öllu í lokin þegar dramatíkin og spennan var engu lík. HART BARIST Það var ekkert gefið eftir í gær en hér hefur Haukakonan Kristrún Sigur- jónsdóttir sloppið framhjá KR-ingnum Guðrúnu Ámundadóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.