Morgunblaðið - 03.04.2006, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.04.2006, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 3. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Stykkishólmur | Ferjan Baldur, sem hefur fengið nafnið „Gamli Baldur“ í hugum Hólmara, hefur lokið hlut- verki sínu að flytja fólk og bifreiðar um Breiðafjörðinn. Baldur sigldi úr höfn í Stykkishólmi á laugardaginn áleiðis til Finnlands, þar sem skipið verður áfram notað til ferjusiglinga. Nýir eigendur tóku við skipinu og fimm manna áhöfn sigldi því til nýrra heimkynna. Ferjan Baldur var nýsmíði og smíðuð sérstaklega fyrir siglingar yf- ir Breiðafjörð og sá Skipasmíðastöðin Þorgeir og Ellert á Akranesi um smíðina. Það var í maí árið 1990 sem Baldur kom til Stykkishólms og hóf siglingar yfir Breiðafjörð. Ferjan hefur þjónað hlutverki sínu í 16 ár. Tímamót í ferjusiglingum á Breiðarfirði Þegar Baldur kom úr sinni síðustu áætlun á föstudag bauð samgöngu- ráðherra, Sturla Böðvarsson, til mót- töku um borð í Baldri starfsfólki Sæ- ferða, ásamt öðrum sem tengst hafa rekstri Baldurs á þessum 16 árum. Hann sagði við það tækifæri að nú væru ákveðin tímamót í ferjusigl- ingum á Breiðafirði. Hér áður var Baldur nauðsynlegur til að tryggja samgöngur við suðurfirði Vestfjarða, en nú er hlutverkið að færast yfir í það að þjónusta ferðamenn. Ráð- herra sagði að hann liti svo á að ferju- siglingar yfir Breiðafjörð væru mik- ilvægur hlekkur í samgöngum og ferðaþjónustu. Hann lagði enn frem- ur áherslu á vegirnir á sunn- anverðum Vestfjörðum verði byggðir upp og bættir eins og áætlanir segja til um, breyttar ferjusiglingar hefðu þar engin áhrif. Gamli Baldur verður gerður út frá Turku í Finnlandi og mun stunda reglubundnar ferðir á milli Turku og byggðu eyjanna í kring og eins fara sumarferðir með ferðamenn. Að sögn nýju eigendanna er Baldur fyrsta skipið sem smíðað er á Íslandi og selt er til Finnlands. Barn síns tíma Pétur Ágústsson, framkvæmda- stjóri Sæferða, var mættur niður á höfn að kveðja Baldur. Hann sagði að Baldur hafi reynst vel. „Það hefur aldrei dottið út dagur vegna bilunar þessi ár sem ég hef komið að rekstr- inum. Baldur er barn síns tíma, þó hann sé ekki nema 16 ára gamall,“ segir Pétur. Hann bætir við að „þeg- ar ferjan var hönnuð voru bílar miklu minni en nú og strandferðaskipin sáu um vöruflutninga. Nú eru bílarnir fyrir ferðarmeiri, með tjaldvagna og hjólhýsi í eftirdragi og vöruflutning- arnir hafa færst yfir á þjóðvegina sem þýðir að þeir hafa færst yfir á ferjuna. Það eru breyttir tímar og við erum að bregðast við því með skipta út Gamla Baldri,“ sagði Pétur Ágústs- son er hann horfði á eftir Baldri sigla frá bryggju og finnski fáninn blakti á skipinu í norðanáttinni. Sextán ára þjónustu Breiðafjarðarferjunnar Baldurs lokið og við taka ný verkefni í Turku í Finnlandi Kveðjustund Pétur Ágústsson, framkvæmdastjóri Sæferða, óskar nýjum eigendum vel- farnaðar. Finnarnir fimm sem sigla Baldri til Finnlands hafa dvalið hér í tvær vikur. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Úr höfn Gamli Baldur sem heitir nú Eivor siglir út úr höfninni í Stykkishólmi í síðasta skipti. Fleiri verða ferðirnar ekki yfir Breiðafjörðinn, heldur stefnan tekin til Finnlands á vit nýrra verkefna. Aldrei dottið úr dagur vegna bilunar Eftir Gunnlaug Árnason garnason@simnet.is VESTURLAND Borgarnes | Forvarnar- og vinavika ung- menna stóð yfir í Borgarbyggð og á Akranesi í síðustu viku. Húsráð ungmennahúsa á Akra- nesi og Borgarnesi ásamt Nemendafélagi Fjölbrautaskóla Vesturlands bauð upp á dag- skrá fyrir unglinga og ungmenni m.a. til að sýna fram á að auðvelt er að skemmta sér án vímuefna. Var 10. bekkingum grunnskóla þ.e. verðandi framhaldsskólanemum í haust, boðin þátttaka í þessari vímuefnalausu dag- skrá. Indriði Jósafatsson, æskulýðsfulltrúi í Borgarbyggð, sagði að í raun hefðu það verið ungmennin sjálf í ungmennahúsi, sem vildu gera eitthvað fyrir þennan aldur. „Rann- sóknir og staðreyndir sýna að stórleg aukn- ing verður á neysluvenjum ungmenna á fyrsta ári í framhaldsskólum, en það þarf ekki endilega að vera sjálfsagður hlutur. Ég tel að nokkuð vel sé haldið utan um forvarn- arstarf á grunnskólastigi í flestum sveit- arfélögum landsins en klárlega mætti gera betur fyrir aldursstigið 16–18 ára.“ Dagskrá Forvarnar- og vinaviku var að- allega í ungmennahúsum í Borgarnesi og Akranesi en auk þess kom Nemendafélag Fjölbrautaskóla Vesturlands inn í dagskrána með fjölbreyttum og skemmtilegum hætti. Að sögn Indriða var samstarf um þetta verkefni milli þeirra sem stjórna æskulýðsstarfi þess- ara sveitarfélaga og starfi í ungmenna- húsum. „Boot Camp“-æfing haldin Dagskrá forvarnar- og vinavikunnar var fjölbreytt og var m.a. boðið upp á kaffi- húsakvöld, gestir komu frá Ástráði, félagi læknanema, og voru með kynfræðslu fyrir ungmennin. Halli Reynis trúbador hélt tón- leika í Mími ungmennahúsi og sama kvöld var haldin trúbadorkeppni í Hvíta húsinu á Akranesi. Bílskúrshljómsveitir frá Akranesi og úr Borgarnesi lögðu Bíóhöllina Akranesi undir sig, Trúbador 2006 var tilkynntur og kvennahljómsveit frá Fljótsdalshéraði tróð upp. „Boot Camp“ æfing var haldin í íþrótta- miðstöðinni Borgarnesi og Nemendafélag Fjölbrautaskóla Vesturlands hélt íþróttadag í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. Grunnskólinn í Borgarnesi var með vina- og forvarnarviku fyrir 8. og 9. bekk en 10. bekkingar voru önn- um kafnir í lærdómi vegna samræmdra prófa. Vikunni lauk með vina og paraballi í Félagsmiðstöðinni í Óðali. Undirbúningur forvarnardaganna hefur staðið yfir frá því í nóvember á síðasta ári og segir Indriði marga hafa unnið þar að. „Svo var það eiginlega tilviljun að grunnskólinn hér kom inn í dagskrána en við buðum þeim að vera með þegar þau kynntu vinaviku sem átti reyndar að vera viku fyrr en var færð inn í dagskrána, sem var frábært. Árshátíð- arverk nemendafélagsins í ár er leikritið Ávaxtakarfan og er það sannarlega hluti af þessu líka, en það verk fjallar um mikilvægi vináttu og bræðralags og hve einelti er öm- urlegur hluti af mannlegum samskiptum.“ Indriði segir að sér sýnist að dagskráin hér í Borgarnesi hafi gengið vel og virkilega sé þörf á að vera með svona átaksverkefni, sér- staklega fyrir þennan aldur. „Fagna ber líka hve fyrirtæki sýna þessu mikinn velvilja og ber þar helst að nefna fjárstyrk frá Sparisjóði Mýrasýslu og Oddfellow-stúku auk annarra sem láta sig forvarnir varða. Það sem mér finnst standa upp úr, er hve samstarf þessara sveitarfélaga, húsráða ungmennahúsanna og stjórnar nemendafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands, Akranesi, hefur gengið vel og klárlega gerir dagskrána mun viðameiri og skemmtilegri fyrir ungmennin. Ungmenni á báðum stöðum voru leiðandi í hugmyndavinnu við að setja dagskrá þessa upp og að sjálfsögðu að framkvæma hana.“ Fjölbreytt dagskrá í vinaviku og forvarnarstarfi ungmenna í Borgarbyggð og á Akranesi Auðvelt að skemmta sér án vímuefna Vinkonur á vinaballi Agnes Jónasdóttir, Guðbjörg Helgadóttir og Hanna Laufey Jónasdóttir skemmtu sér vel á vina- og paraballi sem haldið var í félagsmiðstöðinni í lok forvarnarviku. Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur gve@ismennt.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.