Morgunblaðið - 01.07.2006, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 01.07.2006, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 31 DAGLEGT LÍF Í JÚLÍ NÚ ER í undirbúningi verkefnið Hús og fólk sem hefur það að markmiði að varðveita upplýsingar um hús og fólk á Flateyri og í Önundarfirði frá síðari hluta 19. aldar fram til loka 20. aldar. Tilgangurinn er m.a. að miðla fróðleik til ferðamanna og annarra áhugasamra um mannlíf, þróun atvinnulífs og menningar á Flateyri og Önundarfirði. Upphafskonur verkefnisins eru þær Jóhanna G. Krist- jánsdóttir og Guðrún Pálsdóttir, báðar búsettar á Flat- eyri og stjórnarmenn í Íbúasamtökum Önundarfjarðar. Þær Guðrún og Jóhanna eru báðar ættaðar úr Önund- arfirði, en langafar þeirra voru bræður, þeir Ebenezer og Guðmundur Sturlusynir frá Dalshúsum í Valþjófsdal. Þær hafa umsjón með verkefninu og samstarfsaðilar eru m.a. Ísafjarðarbær, Önfirðingafélagið og ferðamála- samtök á Vestfjörðum. Gagnasöfnun Nú stendur yfir gagnasöfnun og afrituð verða gögn sem hafa að geyma upplýsingar um hús og fólk á Flat- eyri og í Önundarfirði. Verkefnið getur e.t.v. orðið at- vinnuskapandi á svæðinu og jafnvel dægradvöl fyrir aldraða í byggðarlaginu sem gætu t.d. lært á tölvu í tengslum við gagnasöfnun fyrir verkefnið. Að lokum verður til gagnagrunnur sem getur verið áhugaverður fyrir ferðafólk sem e.t.v. hefur átt forfeður í Önundarfirði. Þá getur fólk skráð nafn þess sem það leit- ar að inn í tölvu og fengið fram mynd af viðkomandi ein- staklingi og húsinu sem hann bjó í, auk annarra upplýs- inga ef tiltækar eru. Að mati þeirra Jóhönnu og Guðrúnar getur verkefnið stuðlað að fjölgun ferðamanna á svæðið. Markmiðið er einnig að auka tengsl á milli brottfluttra Önfirðinga og þeirra sem nú búa í firðinum. Að sögn Jóhönnu verður gagnagrunnurinn ekki á Net- inu, a.m.k. ekki til að byrja með, heldur verður hann að- gengilegur ferðamönnum sem koma á svæðið, t.d. í Fé- lagsbæ eða í Gömlu bókabúðinni við Hafnarstræti. Enn á byrjunarreit Hugmyndin að verkefninu vaknaði í samstarfi Guð- rúnar og Jóhönnu að umhverfisverkefni á árunum 2001 – 2003, vegna þess hve allt var í mikilli niðurníðslu eftir snjóflóðið 1995, að sögn Jóhönnu. „Við höfðum báðar kynnst því erlendis hvernig söfn höfðu verið byggð upp jafnvel aðeins í kring um einstaka atburði og svo var um- ræðan um menningartengda ferðaþjónustu líka komin svolítið á blað hér á Íslandi. Við höfum báðar mikinn áhuga á varðveislu gamalla minja þótt við höfum hvorug reynslu af því að vinna eða byggja upp söfn eða annað slíkt. Þetta þróaðist svona smám saman en hefur þó ekki nema rétt þokast áfram,“ segir hún. Verkefnið er enn á byrjunarreit og þær hafa ekki haft erindi sem erfiði í styrkumsóknum. 100 þúsund króna styrkur verður not- aður til að koma af stað gagnagrunni til að halda utan um gögnin sem fyrir liggja. Hús og fólk  ÖNUNDARFJÖRÐUR Morgunblaðið/Ómar Eftir Steingerði Ólafsdóttur steingerdur@mbl.is Ef fólk hefur upplýsingar um hús og fólk í Önundarfirði sl. 130 ár má snúa sér til Guðrúnar eða Jóhönnu: Guðrún Pálsdóttir, Drafnargötu 6 -425 Flateyri S. 4567671 – 8637671 netfang: gp@snerpa.is. Jóhanna Kristjánsdóttir, Eyrarvegi 9 -425 Flateyri S. 4567626 – 8642943; netfang: johanna@snerpa.is. Íslensk gönguleiðabók um Kaupmannahöfn Íslendingum finnst þeir eiga svolítið í henni Kaupmannahöfn, því þar er ís- lensk saga á hverju götuhorni. Auk þess er borgin fögur á fjölbreyttan hátt og skemmtilegt að rölta um hana. Til að gera slíka göngutúra innihalds- meiri er tilvalið að taka með sér nýút- komna gönguleiðabók Guðlaugs Ara- sonar sem heitir Kaupmannahöfn – ekki bara Strikið. Þar er að finna tíu gönguleiðir, flestar fyrir utan gamla bæinn og hver þeirra er merkt inn á kort. Textinn er með áherslu á sögu Ís- lendinga í Kaupmannahöfn í gegnum tíðina. Hver gönguleið er kennd við dýr sem settu svip sinn á borgina áður fyrr. Þannig er leið kýrinnar til dæmis frá Ráðhústorgi, inn í Latínuhverfið og endar við Jónshús. Guðlaugur segir bókina hafa mælst mjög vel fyrir hjá þeim sem hafa notað hana. „Ég hitti einn slíkan sem ljómaði af ánægju og sagði að þessi bók ætti eftir að verða biblía Íslendinga í Kaup- mannahöfn.“ þá verður m.a. farið til Tíbet og ferðast þar um í eina viku. Unnur Guðjónsdóttir hefur nú skipu- lagt í fyrsta sinn ferð til Kína um jól og nýár. Segir hún að ferðin, sem er tveggja vikna ferð, henti þeim vel sem eiga erfitt með að fara í frí að vori eða hausti, þegar Kínaferðirnar eru venju- lega farnar og á það til dæmis við um kennara. Í ferðinni verður farið til Beij- ing, Xian og Sjanghæ og gengið á Kínamúrinn. Verð ferðanna er kr. 350.000 á mann í þriggja vikna ferð- inni og 250.000 í tveggja vikna ferð- inni og er þá ALLT innifalið, eins og alltaf er í ferðum Kínaklúbbs Unnar. Allir eru velkomnir í ferðirnar. Nánari upplýsingar er að fá hjá Unni í síma 551 2596 og 868 2726 og á vef- síðunni www.simnet.is/kinaklubbur. Netfang Kínaklúbbs Unnar er kina- klubbur@simnet.is. Haustferðir GB Ferða 2006 Sala er hafin á haustferðum GB Ferða. Í boði eru golfferðir til þekktra áfanga- staða hjá GB Ferðum s.s: 1. Orlando (Omni Orlando Resort at ChampionsGate). 2. England (Foxhills Club & Resort, Hanbury Manor, The Springs, The Grove, Worsley Park). 3. Skotland (Rusacks St.Andrews, The Marine Hotel, North Berwick). Þeir sem hafa áhuga á að bóka sig eru hvattir til að gera það strax, því í vor seldist fljótt upp í allar ferðir GB Ferða. GB Ferðir bjóða einnig upp á fimm stjörnu jólaferð til Aspen í Colorado Tvær Kínaferðir eftir Af þremur Kínaferðum Kínaklúbbs Unnar á þessu ári, eru tvær eftir, haustferð 7.–28. september og jóla- og nýársferð 21. desember til 2. janúar. Haustferðin er þriggja vikna ferð, en frá 19-29 desember (10 nætur) þar sem gist verður á svítuhótelinu Aspen Meadows. Svítuverðið er 200.000 krónur á mann í Junior svítu og afsláttur fyrir börnin. Innifalið er flug með Icelandair til Min- neapolis, flug með United Airlines til Denver, flugvallaskattar, 10 nætur í svítu á Aspen Meadows með morg- unverði, ferðir í fjöllin og aðgengi að heilsulind hótelsins. Takmarkað sætaframboð. Menningarferð í miðju Þýskalands Á vegum Úrvals-Útsýnar er fyrirhuguð ferð sem verður sambland af léttri gönguferð um skóga Thüringen, sem kallað hefur verið hið græna hjarta Þýskalands, og heimsókna á mikil menningar- og sögusetur. Dvalið verður í borginni Arnstadt í viku og ýmist gengið þar í nágrenninu í hin- um víðáttumikla Thüringer Wald eða heimsóttar merkar borgir eða frægir kastalar. Farið verður í fótspor Bachs, en hann er fæddur og uppalinn á þessu svæði. Heimsótt verður safn um hann í Eisenach, fæðingarborg hans, og skoðaðar kirkjur í Arnstadt og Weimar, sem hann starfaði í og ferill hans rakinn. Farið á vit Goethes og Schillers í Weimar og komið við í kastalanum í Wartburg, þar sem Lúther dvaldi um skeið og þýddi Nýja testamentið á þýsku. Síðan er farin dagsferð til Dresden og að lokum dvalið í Berlín í tvo daga og farið í skoðunarferðir hvort í sinn hluta borgarinnar. 10.–20. ágúst verða léttar gönguferðir um skógarstíga og heimsóknir á sögu- fræga staði. Fararstjóri verður Tryggvi Sigurbjarn- arson. Morgunblaðið/Ómar FYRIR þá sem hafa hug á að heimsækja stórborgir á Norð- urlöndunum er gott að hafa í huga að Stokkhólmur virðist vera ódýr- asta stórborgin um þessar mundir en Helsinki er næstódýrust. Þetta kemur fram á vef Berlingske Ti- dende þar sem vitnað er í útreikn- inga frá bandaríska fyrirtækinu Mercer Human Resources. Sam- kvæmt þessum lista virðast allar aðrar höfuðborgir Norðurlanda en Kaupmannahöfn vera ákjósanlegar þegar tillit er tekið til buddunnar, því dýrast er að vera til í Köben. Reyndar er Kaupmannahöfn átt- unda dýrasta borg í heiminum öll- um, samkvæmt þessum lista, að- eins borgir eins og Tókýó, London og Moskva eru dýrari. Á þessum lista eru 200 borgir og þar er Moskva langdýrust en Asuncion í Paragvæ er ódýrust. Útreikningur er gerður með því að skoða kostnað á ýmsum vörum og þjónustu, til dæmis áfengi og tóbaki, fatnaði og skóm, húshjálp, matvöru, veitingahúsamat, hót- elkostnaði, samgöngukostnaði, lækniskostnaði, íþróttum og frí- stundum. Vert er að geta þess að listi þessi er nokkuð breytilegur og borgir færast til á honum. Til dæmis fær- ast borgir eins og Dubai, Sao Paolo og Abu Dhabi hratt upp listann þessa dagana. Stokkhólm- ur er ódýr- asta borgin í norðrinu  NORÐURLÖNDIN Stokkhólmur á góðum degi. Hópferð á leik Eiðs Smára Ferðaskrifstofan Express-ferðir ætlar að efna til hópferðar til Danmerkur í lok júlí á fyrsta leik Eiðs Smára Guð- johnsen með Barcelona, en föstudags- kvöldið 28. júlí mæta Evrópumeistarar Barcelona danska liðinu AGF Aarhus í Árósum í sínum fyrsta æfingaleik fyrir næstu leiktíð. Ferðaskrifstofan Express-ferðir hefur tryggt miða á völlinn og skipulagt stutta ferð fyrir þá, sem vilja verða vitni að fyrsta leik íslenska landsliðs- fyrirliðans með hinu sögufræga kata- lónska knattspyrnuliði, en hann var keyptur til félagsins í júní. Flogið verður til Danmerkur 27. júlí. Verð á mann, með gistingu og miða á völlinn, er 54.900 krónur miðað við tvo í herbergi. www.expressferdir.is Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna. Geymið auglýsinguna. Sími 0045 3297 5530 • Gsm 0045 2848 8905 • www.lavilla.dk Kaupmannahöfn - La Villa www.gbferdir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.