Morgunblaðið - 01.07.2006, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.07.2006, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING ÓHÆTT er að segja að dagskrá Tí- brár, tónleikaraðar Salarins í Kópa- vogi, verður með veglegasta móti næsta vetur. Jónas Ingimundarson er tónlist- arráðunautur Kópavogsbæjar: „Ár- lega eru haldnir í Kópavogi hátt í 150 tónleikar og er Tíbrár- tónleikaröðin meginstoðin í því tón- listarstarfi. Fyrstu Tíbrár- tónleikarnir eru haldnir 7. sept- ember ár hvert, á afmælisdegi Sig- fúsar Halldórssonar tónskálds og heiðursborgara Kópavogsbæjar, en síðustu tónleikarnir 11. maí, þegar við fögnum afmælisdegi Kópavogs,“ segir Jónas. „Við höldum samfellda tónleika- veislu – um það bil ferna tónleika á mánuði – þar sem fram kemur frá- bært tónlistarfólk. Árlega berast okkur umsóknir frá hátt á annað hundrað listamönnum en aðeins hluti þeirra sem sækja um komast að.“ Hver öðrum betri Jónasi er ómögulegt að gera upp á milli tónleika komandi vetrar, en þó er óhætt að gera nokkrum stjörnum sérstök skil: Fyrstan má nefna Vesselin Sta- nev: „Hann er píanóvirtúós af bestu gerð, hefur tekið þátt í samkeppnum um píanóspil á virtustu stöðum í ver- öldinni og hvarvetna fengið gríð- arlega lofsamleg ummæli. Það er ekki spurning að fengur er fyrir okkur að fá hann til að opna Tíbrána í haust,“ segir Jónas. Tónleikar Vesselin Stanev verða haldnir í boði Morgunblaðsins og svissneska vélaframleiðandans Fe- rag. Á efnisskrá tónleikanna verða verk eftir Scarlatti, Schumann, Scri- abin og Liszt. Miklós Dalmay mun halda ferna tónleika þar sem leiknar verða pí- anósónötur Mozarts í heild sinni: „Sá hluti dagskrárinnar er í tilefni af þessu mikla Mozart-ári, þegar 250 ár eru frá fæðingu tónskáldsins, en tónleikar Miklósar verða í nóvember og desember. Þessir tónleikar eru haldnir með stuðningi frá Hruna- mannahreppi, MS og Osta-og smjör- sölunni.“ Í byrjun desember heimsækir landið stórstjarnan Inessa Galante sópran: „Þetta er frábær söngkona. Zubin Mehta lét þau orð falla um hana að fáar söngkonur í veröldinni skörtuðu slíkri rödd sem hún, og verða það að teljast góð meðmæli,“ segir Jónas. Þá mun Hyperion-tríóið halda tónleika þar sem meðal annars verð- ur frumflutt nýtt verk eftir Atla Heimi Sveinsson. Skólakór Kársness fagnar í ár 30 ára starfsafmæli. Í maí heldur kór- inn veglega hátíðartónleika og mun Emilíana Torrini vera sérstakur gestur á tónleikunum en hún var í kórnum á sínum yngri árum. Þá má nefna að Kanadískir dagar verða haldnir í Kópavogi í október og mun Angela Hewitt stórpíanisti halda tónleika á þeirri hátíð, ásamt ýmsum stórstirnum öðrum auk þess sem haldnar verða listsýningar og fleira. Tónlist | Vel yfir þrjátíu tónleikar á Tíbrár-tónleikaröð Salarins í Kópavogi næsta vetur Glæsileg Tíbrá í vændum Vesselin Stanev. Inessa Galante. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson „Við höldum samfellda tónleikaveislu.“ Jónas Ingimundarson, tónlist- arráðunautur Kópavogs. Emiliana Torrini. Miklos Dalmay. Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is FYRSTA stóra einkasýning Jóníar Jónsdóttur verður opnuð í Gallery Turpentine í dag kl. 16. Hún er lík- lega þekktust fyrir að vera ein þríeykisins í Gjörningaklúbbnum eða The Icelandic Love Corporation, eins og þær kalla sig á ensku. „Við erum allar stelpurnar í Gjörningaklúbbnum að halda einka- sýningar á þessu ári og ég ríð á vað- ið,“ segir Jóní. „Það er partur af okkar þroska að fara aðeins út fyrir það samstarf og yfir í sjálfið.“ Lærði að gera draumafangara Jóní útskrifaðist frá skúlptúrdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1996 og stundaði framhaldsnám í Konunglegu listaakademíunni í Kaupmannahöfn 1997–1999. Sýningin byggir að hennar sögn á hugmyndum og stemningum úr raunverulegum ferðalögum og innri ferðum, jafnvel draumum. Yfirskrift sýningarinnar er Að fanga drauma, sem vísar í senn til þess að fanga drauminn um að halda sýningu og sérstaks fyrirbæris úr reynsluheimi Jóníar. Á ferðalagi sínu um Kanada lærði Jóní að gera svokallaða draumafang- ara að sið frumbyggja Ameríku. Slíkir draumafangarar er hringlaga vefnaður sem þjóðtrú frumbyggja segir að fangi drauma og skilji á milli martraða og góðra drauma. Draumafangarinn er á sýningunni persónugerður í samnefndri mynd. Þar má sjá konu ásamt tveimur dætrum. „Myndin sýnir móðurina ásamt dætrunum í venjulegu um- hverfi, þegar ekki er verið að fanga drauma. Upprunalegi draumafang- arinn er orðin gildran hennar,“ segir Jóní. Hægt er að greina kunnugleg tákn úr sögunni af Adam og Evu á myndinni, snák og epli. Yfir mynd- inni er óræð stemmning, hálfgerður óróleiki, en einnig ákveðin vísun til nútímans. „Draumafangarinn er þarna bara í rólegheitunum með snákinn í höfðinu að skera niður epli. Dæturnar eru þarna líka en þá vakn- ar spurningin: „Hvar er Adam?“ Á myndinni er þessi einstæða móðir en enginn draumafangarapabbi.“ Náttúran í fyrirrúmi Ljósmyndir eru áberandi á sýn- ingunni, en þar verða einnig innsetn- ing og skúlptúrar. „Innsetningin er manngerður og draumkenndur skógur sem heitir Svartljósaskógur. Ég vil að fólk upplifi þá stemmningu að koma inn í skrýtinn drauma- skóg.“ Jóní staðsetur einnig drauma- fangaramæðgurnar í skóginum, sem hún segir vera hugmynd sem hafi blundað í henni frá ferðalagi hennar um regnskóga Ástralíu. „Það er mikil náttúra í þessum verkum. Eins og verið sé að reyna að fanga náttúruna í handavinnunni og búningunum.“ Sem dæmi nefnir Jóní að upp úr draumafangaranum vaxi trjágreinar. „Náttúran er alltaf besti vinur manns þegar maður er að gera listaverk og vonandi fær hún að vera það áfram. Vonandi verður henni ekki drekkt,“ segir Jóní og hlær. Sýningin gengur hins vegar að sögn Jóníar minna út á pólitík og meira út á persónulega fagurfræði. „Þetta er að vissu leyti kannski svo- lítið sjálfselsk sýning. Mig langar bara til að gera eitthvað fallegt sem tengist sjálfri mér, náttúrunni, manninum. Vonandi finnst fólki það fallegt líka.“ Myndlist | Jóní Jónsdóttir myndlistarmaður opnar einkasýningu í Gallery Turpentine Fangar drauma og ferðalög Morgunblaðið/Eggert Náttúran er áberandi á sýningu Jóníar Jónsdóttur sem verður opnuð í dag. Sýning Jóníar í Gallery Turpentine stendur yfir næstu þrjár vikur, til 23. júlí. Eftir Hjálmar S. Brynjólfsson hsb@mbl.is 7. september: Opnunartónleikar: Vesselin Stanev 14. september: Djasshljómsveit Eyjólfs Þorleifssonar 20. september: Píanótónleikar: Peter Maté 26. september: Sembaltónleikar: Smiljka Isakovic 8. október: Söngur og píanó: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Víkingur Heiðar Ólafsson 25. október: Astor, Heitor og Albert: Pamela de Sensi, Sigurður Halldórsson, Daníel Þorsteinsson 28. október: Óperugala: Eteri Gvazava, Alin Dubik, Gunnar Guðbjörnsson, Bjarni Thor, Jónas Ingimundarson 3. nóvember: Fiðla og píanó: Réka Szilvay og Heini Kärkkäinen 5. nóvember: Tíu selló: Sellódeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands 13. nóvember: Mozart með Miklós á mánudögum, fyrsti hluti: Miklós Dalmay 15. nóvember: Sjostakovitz fyrir píanó I: Elizaveta Kopelman 17. nóvember: Sjostakovitz fyrir píanó II: Elizaveta Kopelman 20. nóvember. Mozart með Miklós á mánudögum, annar hluti 27. nóvember: Mozart með Miklós á mánudögum, þriðji hluti 1. desember: Tónlist Árna Björnssonar: Sigrún Eðvaldsdóttir, Gunnar Guðbjörnsson, Jónas Ingimundarson 4. desember: Mozart með Miklós á mánudögum, fjórði hluti 8. desember: Söngur og píanó: Inessa Galante og Jónas Ingimundarson 10. desember: Jólatónleikar: Ólafur Kjartan Sigurðsson o.fl. 9. janúar: Sellótónleikar: Sæunn Þorsteinsdóttir 13. janúar: Nýárstónleikar: Hanna Dóra Sturludóttir, Lothar Odinus, Salonhljómsveit Sigurðar Ingva Snorrasonar 19. janúar: Flauta og píanó: Stefán Höskuldsson og Elisaveta Kopelman 27. janúar: Söngtónleikar: Bjarni Thor, Jónas Ingimundarson 6. febrúar: Selló og píanó: Margrét Árnadóttir og Anna Guðný Guðmundsdóttir 15. febrúar: Terem kvartettinn (með fyrirvara) 16. febrúar: Suðrænir tónar og kabarettstemning: Sesselja Kristjánsdóttir og Guðríður Th. Sigurðardóttir 28. febrúar: Fiðla, flygill, feðgin: Elva Rún Kristinsdóttir og Kristinn Örn Kristinsson 6. mars: Söngtónleikar: Viðar Gunnarsson og Jónas Ingimundarson 20. mars: Píanótónleikar: Valgerður Andrésdóttir 24. mars: Heimþrá og útþrá: Hlín Pétursdóttir og Hrefna Eggertsdóttir 1. apríl: Hyperion tríóið: Oliver Klipp, Katarina Troe, Hagen Schwarzrock 11. apríl: Frönsk lýrík og litbrigði: Hallfríður Ólafsdóttir og John Robilette 5. maí: Skólakór Kársness 30 ára, stjórnandi Þórunn Björnsdóttir 6. maí: Sigfús í ljúfri sveiflu: Jón Páll Bjarnason, Reynir Sigurðsson, Gunnar Hrafnsson 11. maí: Píanótónleikar: Víkingur Heiðar Ólafsson Dagskrá Tíbrár veturinn 2006–2007
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.