Morgunblaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 58
58 SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Sími 533 4800
539,7 fm glæsilegt einbýli á fallegum stað á Arnarnesinu. 1.255 fm sjávarlóð. Húsið
skiptist í stofu, borðstofu, eldhús, forstofuherbergi, arinstofu, sjónvarpshol, sólskála
og hjónaherbergi á efri hæð. Á neðri hæð er glæsileg sundlaug með koníakstofu inn-
af, baðherbergi, gufubað, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla.
Tvöfaldur bílskúr. 7928. V. 153 m.
Opið hús í dag milli kl. 13 og 15.
Haukanes 10 – Opið hús
– Ö r u g g f a s t e i g n a v i ð s k i p t i ! –
Hraunbæ - Þakíbúð með bílskúr
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Stórglæsileg 87,5 fm 3ja herbergja „þakíbúð“ á 10. og efstu
hæð með einstöku útsýni í eftirsóttu húsi fyrir eldri borgara í
Árbænum. Íbúðinni fylgir 24,6 fm bílskúr. Eignin skiptist í hol,
stofu, borðstofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Sér
geymsla í kjallara. Félagsmiðstöð Reykjavíkurborgar er sam-
byggð húsinu þar sem ýmisleg þjónusta s.s. matur er í boði. Útsýnið er einstakt, húsið er staðsett hátt
yfir sjávarmáli og er 10 hæða. Íbúðin er með glugga á þrjá vegu og hefur útsýni frá Bláfjöllum og allan
hringinn upp í Mosfellsdal. Aðeins tvær íbúðir eru á hæð. Verð 32,5 millj. 6178
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
FLÉTTUVELLIR 8
FLÉTTUVELLIR 37
FLÉTTUVELLIR 47
DREKAVELLIR 21
Hraunhamar hefur fengið í einkasölu glæsilegt
einbýlishús með bílskúr, alls um 230 fm, vel stað-
sett á Völlunum í Hafnarfirði. Frábær staðsetning,
stutt í skóla og leikskóla. Til afhendingar í desem-
ber 2006. Verð 32,9 millj. no115668
Magnús Emilsson, löggiltur fasteignasali
Hraunhamar kynnir glæsilega hannað einbýlishús
208,7 fm á einni hæð með innbyggðum bílskúr.
Húsið er tæpir 170 fm og bílskúrinn tæpir 40,0 fm.
Samkv. teikningu skiptist eignin í anddyri, lítið hol,
rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi og snyrt-
ingu, þrjú rúmgóð barnaherbergi, snyrtingu og bað-
herbergi með baðkari og sturtu. Stofa og eldhús í
sama rými. Innangengt er úr þvottaherbergi í rúm-
góða geymslu og bílskúr. Geymslan er með góðum
gluggum og sérinngangi. Eignin er seld í fokheldu
ástandi að innan en fullbúin að utan án lóðarfrá-
gangs. Allar nánari uppl. veita sölumenn Hraunhamars. no76068
Sérlega fallegt og vel skipulagt einbýlishús á
einni hæð. Eignin er samtals 209 fm en þar af er
bílskúr 36 fm. Til afhendingar nú þegar, fullbúið
að utan en rúmlega fokhelt að innan. Góð eign.
Hagstætt verð 33 millj. no117285
Hraunhamar kynnir stórglæsilegt og skemmtilega
hannað einbýli á nýtískulegan hátt (funki stíll) af
Vektor hönnun og ráðgjöf. Húsið er hannað
þannig að lítið mál er að breyta innra skipulagi
hússins. Afhendist fullbúið að utan, fokhelt að
innan. Sjá skilalýsingu seljanda. Hægt er að nálg-
ast teikningar hjá Hraunhamri og nánari upplýs-
ingar veita sölumenn. Húsið er til afhendingar nú
þegar. no102448
GLÆSILEG SÉRBÝLI Í VALLARHVERFI Í HAFNARFIRÐI
ÞAÐ verkefni sem bíður okkar í
dag er að fara yfir þann stóra
málaflokk sem lýtur að útlend-
ingum og innflytjendum. Það er
mál dagsins og nánustu framtíðar.
Samfylkingin er mjög meðvituð
um þetta mikilvægi og hefur því
lagt fram þingsályktunartillögu
sem lýtur að slíkri heildarend-
urskoðun og stefnumótun sem fara
þarf í.
Umræða um stöðu útlendinga á
efalaust eftir að aukast verulega í
takt við þá fjölgun sem orðið hefur
á flutningum fólks til landsins á
umliðnum árum og opnun Evrópu
og samfara aukinni
þörf fyrir vinnuafl.
Mig langar hér að
nefna hér nokkra mik-
ilvæga þætti sem fara
þarf í en markmið
heildarstefnumótunar
verður að samræma
og tryggja réttindi út-
lendinga og innflytj-
enda sem hingað koma
hvort sem er vegna at-
vinnu, fjölskyldusam-
einingar eða sem
flóttafólk.
Samþætting
Samþætting sem lykilhugtak og
hugmyndafræði er það sem ber að
hafa í huga þegar heildar-
stefnumótun af þessu tagi er ann-
ars vegar. Hún tekur t.d. til þess
að allir minnihlutahópar mætist og
blandist samfélaginu á þann hátt
að þeir haldi í sína eigin menningu
og haldi sínum sérkennum ásamt
því að aðlagast íslensku þjóðfélagi
og tileinka sér t.d. tungumálið, fá
aðgang að allri þjónustu fyrir fjöl-
skyldur sínar, svo sem í leikskóla
og skóla og aðgang að íslenskum
vinnumarkaði. Samþætting þarf
einnig að taka til þátta eins og
vinnustaða, búsetu, náms, skóla-
göngu og stuðnings.
Lög og reglugerðir
Mikilvægt er að farið verði heild-
stætt yfir lög um út-
lendinga, atvinnurétt
og búsetu ásamt
reglugerðum.
Markmið slíkrar yf-
irferðar er að gera
samræmda löggjöf og
tryggja að framsal
valds verði sem
minnst og margar
þeirra valdheimilda
sem nú eru í reglu-
gerðum verði færðar
inni í löggjöfina.
Gegnsæi skal haft að
leiðarljósi. Þetta er
mikilvægt til þess að þeir sem lögin
ná til skilji og átti sig á rétti sínum
og jafnframt að þeir sem vinna
með lögin hafi góða heildarsýn.
Fagleg yfirsýn – innflytj-
endaráð
Brýnt er að innflytjendaráð fái
stoð í lögum þannig að það hafi
skýra stöðu og að hlutverk þess sé
skilgreint.
Á öllum Norðurlöndunum hafa
sambærileg ráð skýra lagastoð til
þess að geta gripið inn í mál og
komið með stefnumótandi aðgerðir/
hugmyndir og tillögur.
Nauðsynlegt er að skoða þessi
mál á Norðurlöndunum svo að við
getum styrkt stöðu okkar og sótt
fyrirmyndir þangað, lært af mis-
tökum þeirra enda hefur þessi
málaflokkur sterka og skýra stöðu
þar, bæði í lögum og stjórnsýslu.
Sérstakar stofnanir þar sinna m.a.
málsvarshlutverki útlendinga og
innflytjenda. Slíku er ekki til að
dreifa á Íslandi og úr því þarf að
bæta.
Margt, margt fleira …
Það er gríðarlega yfirgripsmikið
verk sem áætlað er að fara í þegar
heildarstefnumótun í þessum mála-
flokki er annars vegar. Er bent á
sem flesta þætti sem taldir eru
mikilvægir.
Nauðsynlegt er að skoða sér-
staklega stöðu kvenna og sjá
hvernig lög um útlendinga og lög
um atvinnurétt vinna hvor gegn
öðrum í erfiðum tilvikum, eins og í
ofbeldishjónaböndum og skilnaði af
þeim sökum. Skoða þarf og styrkja
sérstaklega stöðu barna af erlend-
um uppruna.
Á það ekki hvað síst við í
menntakerfinu.
Túlkaþjónusta þarf að vera meiri
og markvissari, ekki hvað síst í
sifjamálum og gagnvart rétt-
arvörslukerfi þar sem fólk getur
staðið berskjaldað.
Það þarf að skoða veitingu at-
vinnuleyfa, um að þau tilheyri fólk-
inu sjálfu en ekki atvinnurekanda
eins og nú er ef viðkomandi starfs-
maður kemur utan Evrópusam-
bandsríkis.
Eins og hér má sjá hef ég ein-
ungis nefnt brotabrot af því sem
tekið er á í þingsályktunartillög-
unni sem nú liggur fyrir Alþingi Ís-
lendinga. Ég skora á þá sem áhuga
hafa á þessum málaflokki og láta
sig þessi mál varða að kynna sér
tillöguna. Hún tekur á flestu því
sem skoða þarf í þessum málum og
aðeins fátt eitt getur komist að í
þessum greinarstúf. Samfylkingin
situr ekki hjá í þessum málaflokki
og saman vinnum við að því mark-
miði að gera gott samfélag fyrir
alla, líka útlendinga hvaðan sem
þeir koma.
Stefnumótun í málefnum
útlendinga og innflytjenda
Guðrún Ögmundsdóttir skrifar
um málefni innflytjenda »… markmið heildar-stefnumótunar verð-
ur að samræma og
tryggja réttindi útlend-
inga og innflytjenda
sem hingað koma …
Guðrún Ögmundsdóttir
Höfundur er alþingismaður.
Fréttir í tölvupósti
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn