Morgunblaðið - 09.11.2006, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 09.11.2006, Blaðsíða 60
60 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Nei, kannski seinna. Engu að síður er gott ráð að hægja aðeins á tímans gangi með æf- ingum í þessum dúr. Annars er þrekhjólið af einföldustu gerð, smíðað í Vestur- Þýskalandi á níunda áratug síðustu aldar. Búið er að hjóla um 1.100 km á hjólinu og enn er það í fínu standi. Víkverji nær púlsinum upp í tæp 180 slög á mínútu – sem er víst aðeins of mikið, heyrði hann sagt einhvern tíma. x x x Og úti loga jólaljósin. Það færenginn flúið þau. Í raun líður árið hratt. Fljótlega upp úr ára- mótum koma páskarnir og síðan er stutt í verslunarmannahelgina. Um leið og búið er að ganga frá úti- legudótinu er réttast að huga að jólaseríunni og búa sig í leiðinni undir páskana og jafnvel versl- unarmannahelgina svona í leiðinni. Þeir sem vilja freista þess að hægja aðeins á gangi tímans og prufa vestur-þýska þrekhjólið mega senda Víkverja tölvupóst og panta tíma. Jólaljósin hafa veriðkveikt! Eru jólin virkilega að koma? Þetta er of mikið fyrir Víkverja. Honum finnst eins og versl- unarmannahelgin sé nýliðin. Tíminn flýgur hratt, það er greini- legt, og alltaf hraðar og hraðar. Eða það finnst Víkverja. Þetta er sjálfsagt bara ald- urinn. En eitt er þó gott að iðka til að snúa þessari óheilla- þróun við, nefnilega setjast á þrekhjól á heimili Víkverja og puða í korter. Þegar sett er í þriðja gír á árvítans hjólinu virðist hver mínúta verða að klukkutíma og oft finnst Víkverja sem úrið hljóti að hafa hægt á sér, annað- hvort vegna alvarlegrar bilunar eða þá að óþekktarúrið er beinlínis að stríða hjólandi manninum. Þeg- ar puðið er orðið nánast óþolandi er Víkverji orðinn svo reiður út í klukkuna og ekki síst hjólið að all- ar hans hugsanir snúast um að ná sér einhvern veginn niðri á þessum tækjum. Kannski væri hægt að semja ódauðlegt kvæði upp úr þessum þjáningum? Úrið er eins og hjólið og hjólið snýst og snýst?          víkverji skrifar | vikverji@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF: ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. dagbók Orð dagsins: En hjálparinn, andinn heilagi, sem fað- irinn mun senda í mínu nafni, mun kenna yður allt og minna yður á það, sem ég hef sagt yður. (Jóh. 14, 25.) Í dag er fimmtudagur 9. nóvember, 313. dag- ur ársins 2006 velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Of hátt miðaverð Mig langar til að kvarta yfir of háu miðaverði í bíó þessa dagana! Að hækka úr 800 krónum í 900 krónur! Er þetta ekki of mikið? Gaman væri ef þetta verð lækkaði nú að- eins, um 200 til 300 krónur! Með bestu bíókveðjum, Ólafur Jónas Sigurðsson Útlendingavandamál? Mér finnst alveg makalaust hvernig er búið að snúa út úr ummælum Magnúsar Þórs Hafsteinssonar á Alþingi um frjálst flæði vinnuafls til landsins. Allt í einu er þetta orðið að umræðu um útlendingavanda- mál. Svo kynda fjölmiðlar undir ruglið. Á Rás 2 lét Eiríkur Berg- mann dæluna ganga og tengdi Frjálslynda við þjóðernisöfgaflokka í Evrópu sem beinlínis boða hatur gegn þjóðum og kynþáttum. Þetta var svo spyrt við viðtal við Ásgeir Hannes Eiríksson sótbölvandi í beinni, sem er einmitt af því sauða- húsi sem Eiríkur Bergmann lýsti. Öfgamenn í sína áttina hvor, en frjálslyndir eru mitt á milli og eru bara að benda á mál sem brenna á íslenskum verkalýð. Hvaða mannskap ætlar Svein- björn Sigurðsson ehf. að ráða sem verktaka, eins og þeir segjast ætla að gera? Ætli það verði þeir Íslend- ingar sem fengu að fjúka á dög- unum? Guðmundur Benediktsson, Akranesi. Fyrirspurn Ég sakna þess mikið að bílaþvotta- stöðin í Sóltúni skuli vera hætt. Ég vonast til að hún verði starfrækt annars staðar því mikil þörf er fyrir svona stöð fyrir fatlaða, sem aðra. Vonandi getur einhver gefið mér svar við því hvort hún verði starf- rækt áfram. Ingibjörg. Þeir sem vita hvaða menn eru þarna að spila vinsamlegast hafið samband við Jón Kr. Ólafsson GSM 847-2542. Hverjir eru á myndinni? árnað heilla ritstjorn@mbl.is 95 ára af-mæli. Í dag, 9. nóvem- ber er níutíu og fimm ára frú Ásta Jónas- dóttir Hjallaseli 55. 80 ára af-mæli. Í dag, 9. nóvem- ber, er áttræður Höskuldur Jónsson, fyrr- verandi síma- verkstjóri, Kol- beinsgötu 52, Vopnafirði. Hann verður að heiman í dag. WWW.HASKOLABIO.ISSTÆRSTA KVIKMYNDAHÚS LANDSINS HAGATORGI • S. 530 1919 Varðveit líf mitt fyrir ógnum óvinarins KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK 20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍNUM GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI BESTA MYND MARTINS SCORSESE TIL ÞESSA SJÁIÐ EINA BESTU MYND ÁRSINS. BETRI LEIKHÓPUR HEFUR EKKI SÉST Í KVIKMYND Í LANGAN TÍMA eeeee V.J.V. TOPP5.IS eeee T.V. KVIKMYNDIR.IS eee H.J. MBL eeee Davíð Örn Jónsson – Kvikmyndir.com eeeee Hallgrímur Helgason – Kastljósið eeee H.S. – Morgunblaðið eeee DV eeeee Jón Viðar – Ísafold MÝRIN kl. 5:50 - 7 - 9 - 10:15 B.i. 12.ára. THE LAST KISS kl. 8 - 10:30 B.i. 12.ára THE QUEEN kl. 5:45 B.i. 12.ára. THE DEPARTED kl. 9 B.i. 16.ára. BÖRN kl. 6 - 8 B.i.12.ára. FRÁ HANDRITSHÖFUNDI „MILLION DOLLAR BABY“ OG „CRASH“ the last kiss Vel gerð og rómantísk með þeim Zach Braff („Scrubs“, „Garden State“), Rachel Bilson („The O.C.“ þættirnir) ofl. eeee EMPIRE MAGAZINE BÖRN KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASONeeeÓ.H.T. RÁS2eeeeHEIÐA MBL eeeeSV, MBLeeeMMJ, KVIKMYNDIR.COMeeeEGB, TOPP5.IS Brúðkaup | Gefin voru saman 15. júlí sl. af sr. Jónu Kristínu Þorvaldsdóttur í Hallgrímskirkju þau Gróa Ólöf Þor- geirsdóttir og Daði Rúnar Jónsson. Ljósmynd: Sissa. Dómari við héraðsdóm í NewYork kvað upp þann úrskurð í fyrradag að selja mætti málverk Picasso, Angel Fernandez de Soto, á uppboði í Christiés. Fyrr hafði dóm- arinn bannað sölu þess vegna lög- sóknar manns sem sagðist vera rétt- mætur erfingi að verkinu. Sá sem lögsótti, Julius H. Schöps, sagði að nasistar hefðu neytt fyrr- verandi eiganda þess, þýska banka- stjórann Paul von Mendelssohn- Bartholdy, til að selja það á 4. ára- tug síðustu aldar. Hann erfði Bartholdy og taldi sig því eiga verk- ið. Málverkið er metið á 60 milljónir dollara og var selt í góðgerðarskyni í Christiés í New York í gær. Fólk folk@mbl.is BreskileikarinnJude Law hef-ur mikinn áhuga á því að leika vonda karlinn í James Bond mynd. Hann segir hins vegar að sér hafi aldrei verið boðið að leika Bond sjálfan, þrátt fyrir þrálátar sögusagnir þess efnis. „Mér var aldrei boðið að leika Bond. En ef ég myndi einhvern tímann leika Bond, þá gæti ég aldrei leikið vonda karlinn, sem er nokkuð sem ég hef mikinn áhuga á að gera,“ seg- ir Law. Þá segir Law að uppáhalds vondu karlarnir sínir í Bond myndunum séu þeir sem séu á einhvern hátt lík- amlega undarlegir, til dæmis Jaws sem var með tennur úr málmi. „Hvað varð um óþokkana sem voru líkamlega afbrigðilegir? Þeir ættu að koma aftur, þeir voru bestir.“    Leikkonan Lindsay Lohan hefurengan áhuga á söngvaranum Robbie Williams. Williams er sagður hafa reynt að draga Lohan á tálar í næturklúbbnum Hyde í Los Angeles en Lohan sýndi tilraunum hans lít- inn áhuga. Að sögn heimildarmanna slúðurfrétta- veitunnar BangShowbiz gekk Williams upp að Lohan, hvíslaði ein- hverju í eyra hennar, en Lohan sýndi því engan áhuga. Vitni að þessu segir Williams hafa verið í klúbbnum í rúman klukku- tíma og reynt við nær allar konur á svæðinu. Þegar Lohan hafi ekki haft áhuga hafi Williams orðið kafrjóður og yfirgefið staðinn skömmu síðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.