Morgunblaðið - 16.11.2006, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 16.11.2006, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2006 41 MINNINGAR ✝ Daníel Daní-elsson fæddist í Hlíðarhúsum í Reykjavík 18. mars 1924. Hann lést á heimili sínu, Þing- holtsbraut 35 í Kópavogi, 7. nóv- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Daníel Krist- ján Oddsson loft- skeytamaður, f. í Hlíðarhúsum í Rvík 21. júlí 1890, fórst með togaranum Reykjaborg 10. mars 1941, og Jóhanna Júlíana Friðriksdóttir, húsfreyja í Rvík, f. 4. júlí 1895, d. 20. júní 1979. Systkini Daníels eru: Friðrik, Oddur, Kristín og Jóhanna, öll látin, en á lífi eru Ágústa, Anna og Guðbjörg. Fyrri kona Daníels var Helga Pétursdóttir frá Tungukoti í V- Húnavatnssýslu, d. 4. október 1971. Sambýliskona Daníels var Helga Geirsdóttir frá Hallanda í Hraun- gerðishreppi, f. 16. ágúst 1923. For- eldrar hennar voru Margrét Þorsteins- dóttir, f. í Lang- holti 28. ágúst 1896, d. 1986, síðar húsmóðir í Hall- anda, og Geir Vig- fússon bóndi í Hall- anda, f. á Eyrarbakka 3. júlí 1900, d. 1975. Systkini Helgu, látin, eru: Karítas Geirsdóttir; Karítas Geirsdóttir; Óskar Geirs- son; og Reynir Geirsson (hálf- bróðir). Á lífi eru Sólveig, Sig- urbjörg, Margrét og Hörður Hansson (uppeldisbróðir). Útför Daníels verður gerð frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Þar sem ég sit við tölvuna og skrifa um þig, afi, á ég erfitt með að trúa því að þú sért farinn. Það er engu líkara en að þú hafir bara skroppið út í búð eða upp í sumarbústað, en það er ekki raunin, þú ert víst farinn fyrir fullt og allt. Þær voru ófáar góðu stundirnar sem við áttum saman í gegnum tíðina, hvort sem það voru ferðir í kolaport- ið, ísbúðina eða upp í sumarbústað með þér og ömmu. Það verður tóm- legt og skrítið að koma á Engjarnar og þú verður ekki þar, að slá og dytta að í bláa samfestingnum með derhúf- una góðu. Við eyddum líka ófáum stundum í kjallaranum á Þinghóls- braut sem var eiginlega þitt afdrep í húsinu, þar kennir ýmissa grasa og allt í drasli, en þó vissir þú hvar allt var, allt hafði sinn stað. Þar fékk mað- ur að smíða og mála eins og maður vildi, enda ógrynni af timbri í þessum blessaða kjallara, þetta eru minning- ar sem aldrei gleymast. Það er því með mikilli sorg og trega í hjarta sem ég kveð þig, afi minn. Takk fyrir allt sem þú kenndir mér, ég á eftir að sakna þín. Baldur Sævarsson. Kynni okkar hjóna af Daníel hófust fyrir um 30 árum, um svipað leyti og við vorum að kynnast, að hann og móðir mín Helga Geirsdóttir frá Hall- anda í Hraungerðishreppi kynntust. Það var ljóst frá fyrsta degi að þar fór ljúfur og traustur maður. Reyndist hann okkur og síðar börnunum okkar Baldri og Helgu vel í alla staði og var þeim góður afi. Daníel var farsæll verkstjóri hjá Eimskip í áratugi, traustur og samviskusamur. 67 ára lét hann af störfum hjá þeim. Eftir það var sumarbústaðurinn sem þau mamma byggðu sér á Engjunum í landi Hallanda helsta áhugamál þeirra. Þau ljómuðu alltaf eins og sólir þegar voraði og hægt var að vera á Engjunum. Þar byggðu líka bústaði systkini mömmu. Var þar oft glatt á hjalla. Hundruðum trjáa var plantað, og gras ræktað í kringum bústaðinn sem varð til þess að sjaldan var dauð stund yfir hádaginn.Var unnið við slátt og trjáklippingar og annað við- hald á sumarhúsinu og við að koma öllu grasinu í burtu. Margar ferðirnar voru farnar á Skóda Formann og kerrunni góðu með hey og önnur að- föng en Formanninn gafst upp nú í haust á Hellisheiðinni blessaður. Þegar kvölda tók fórst þú úr bláa vinnugallanum þínum, sem var þinn einkennisbúningur í sveitinni, og settist í hornið þitt og fengum við okkur stundum smáhressingu og ræddum heimsmálin og sagðir þú okkur frá tímunum fyrir og eftir stríð og margt fleira. En kallið kom snögg- lega, við hefðum viljað hafa þig ögn lengur hjá okkur. Þökkum fyrir allar góðu minningarnar sem við eigum um þig í hjörtum okkar. Hvíl þú í friði Sævar og María. Elsku afi minn, þegar ég frétti að þú værir farinn fá okkur og að ég væri búin að missa góðhjartaðan mann og afa gat ég ekki annað en grátið og minningarnar streyma. Ég man alltaf þegar ég var í pöss- un hjá þér og ömmu, mér fannst það alltaf svo gaman. Ég og þú fórum oft saman í göngutúr, útí sjoppu að taka spólu, eða niður á sjó til að skoða hvað var í fjörunni og tókum við hundinn Gynnes oft með. Þú sagðir frá öllu sem var á ferðinni í fjörunni og sér- staklega fannst mér spennandi að skoða marflærnar þær voru eitthvað svo skrítnar og ógeðslegar. Oft fórum við í kolaportið og fannst mér það nú ekki verra. Þar gafstu mér alltaf lukkupakka og síðan fórstu að kaupa þér síld, þér fannst hún alltaf svo góð að þú borðaðir hana bara beint uppúr dósinni úti í bíl. Svo voru það tímarnir sem við vor- um í sumarbústaðnum. Þar var alltaf nóg að gera og alltaf fannst mér gam- an að hjálpa. Við slógum grasið og var það nú mikið gras og fórum við alltaf með það til hestanna. Mér finnst mjög sorglegt að þú sért farinn frá okkur svona snögg- lega, hefði ég viljað hafa þig lengur. Góði Guð, passaðu afa og líka hana ömmu, því hún hefur misst mest. Takk fyrir allt, elsku afi minn, og segi ég bara eins og þú sagðir alltaf við mig: Núna ert þú komin heim í heiðardalinn. Helga Sigurveig Sævarsdóttir. Fallinn er frá föðurbróðir minn Daníel Daníelsson. Óhætt er að segja að flestum sem til þekktu kom það á óvart þrátt fyrir að sigið væri á efri árin hjá þessum heiðursmanni. Daní- el var fæddur 18. mars 1924 og var fjórði í röð átta barna þeirra hjóna Jóhönnu Friðriksdóttur og Daníels Kristjáns Oddssonar loftskeyta- manns í Hlíðarhúsum í Reykjavík. Eins og algengt var með krakka á þessum árum var hann sendur í sveit að Hvammi í Kjós þar sem hann lærði að vinna eins og hann sagði sjálfur. Hann hóf störf hjá Eimskipafélagi Ís- lands 1941 og starfaði þar alla sína starfsævi, fyrst sem lausamaður á Eyrinni og síðar sem verkstjóri. Eftir starfslok sín hjá Eimskip fylgdist hann þó vel með því sem þar gerðist og áleit það nánast starfsskyldu sína að mæta á þá viðburði sem eldri starfsmönnum félagsins buðust og var einmitt nýkominn frá því að skoða hina nýju vöruskemmu þegar kallið kom. Við Þórunn vorum svo heppin að vera sambýlingar þeirra Daníels og Helgu um nokkurra ára skeið á Þing- hólsbrautinni og fengum þá tækifæri til þess að kynnast þeim nokkuð náið. Hjálpsemi þeirra á þessum árum var ómetanleg. Starfsgleði Dalla voru engin takmörk sett og í hvert sinn sem eitthvað fór í gang við endur- byggingu hússins var hann kominn og áður en maður vissi af var hann búinn að yfirtaka verkið sem vinna þurfti og við enduðum sem aðstoð- armenn hans. Það kom ekki til greina að við fengjum að slá grasið eða moka snjóinn af stéttum umhverfis húsið. Þessi verk átti hann og var hans lík- amsrækt eins og hann sagði. Stóri Dalli eins og hann var oftast kallaður af fjölskyldunni var af alda- mótakynslóðinni og hafði því upplifað miklar breytingar á sinni ævi. Hann fylgdist alltaf mjög vel með þjóðmál- um og var ávallt tilbúinn að ræða það sem efst var á baugi hverju sinni. Hann var sjálfstæðismaður af lífi og sál og hafði unun af rökræðum um stjórnmál. Aldrei þurfti hann að hækka róminn í slíkum umræðum, til þess taldi hann málstað sinn of sterk- an. Ekki veit ég enn hvort hans mat var að hann teldi sig kominn í rökþrot eða að viðmælandinn væri gersigrað- ur þá endaði hann alltaf slíkar um- ræður með spurningunni um hvort maðurinn hefði lesið Jónsbók. Ef ekki þá var viðkomandi náttúrlega ekki viðræðuhæfur um stjórnmál. Á hverjum laugadagsmorgni kom hann yfir til okkar, fyrst og fremst til þess að fá sér kaffisopa, gera létt grín að sjálfum sér, og ekki þótti honum verra ef tækist að æsa kratann svolít- ið upp og helst snúa honum. Það tókst að lokum. Nú þegar komið er að kveðjustund viljum við þakka fyrir allar þær góðu stundir og minningar sem stóri Dalli gaf okkur. Við Þórunn vottum Helgu og fjölskyldu dýpstu samúð okkar. Megi góður Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Hannes Friðriksson. Daníel Daníelsson ✝ Kristín Gunn-arsdóttir fædd- ist á Hæðarenda í Grindavík 3. sept- ember 1926. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Skjóli 7. nóvember síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Gunnar Magnús Ólafsson, f. 13.11. 1898, d. 7.5. 1956 og Ólöf Jónsdóttir, f. 2.3. 1897, d. 17.4. 1966. Systkini Kristínar voru fjögur og eru tvö þeirra látin: 1) Guðrún, f. 1924, d. 1992, 2) Jóna Kristbjörg, f. 1927, d. 1999, 3) Bjarni Guð- mundsson, f. 1930 og 4) Björgvin Ólafur, f. 1936. Kristín kvæntist ung Þórarni Leví Bjarnasyni, f. 8.11. 1909, d. 4.9. 1979. Þau slitu samvistum. Kristín stofnaði síðan heimili með Halldóri Lárusi Guð- mundssyni, f. 1.4. 1909, d. 5.5. 1994. Hún eignaðist með honum tvær dætur, þær eru: 1) Lára leikskólakennari, f. 21.11. 1957. Maki Sigurður Pét- ur Eiríksson bíl- stjóri, f. 29.5. 1955. Börn þeirra eru Þröstur Sigurðsson, f. 16.5. 1979, Sunna Sigurðardóttir, f. 24.3. 1987 og Dag- ur Sigurðsson, f. 20.5. 1990. 2) Hanna leikskóla- kennari, f. 31.7. 1961. Maki 1) Sig- urður Hjálmar Ragnarsson húsa- smíðameistari, f. 12.9. 1960. Þau slitu samvistum. Börn þeirra eru: Hera Sigurð- ardóttir, f. 5.2. 1980, Lára Sig- urðardóttir, f. 5.12. 1985 og Númi Sigurðarson, f. 20.5. 1987. Maki 2) Kristín Jóna Þorsteins- dóttir grafískur miðlari, f. 20.8. 1967. Kristín vann hin ýmsu störf en var lengst af starfs- maður á leikskólum hjá Reykj- arvíkurborg. Kristín verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Við kveðjum þig elsku mamma með uppáhalds ljóðinu þínu, Komdu, litli ljúfur, labbi, pabba stúfur, látum draumsins dúfur dvelja inni’ um sinn, – heiður er himininn. Blærinn faðmar bæinn, býður út í daginn. Komdu, kalli minn. Hér bjó afi og amma eins og pabbi og mamma. Eina ævi og skamma eignast hver um sig, – stundum þröngan stig. En þú átt að muna, alla tilveruna, að þetta land á þig. Göngum langar leiðir, landið faðminn breiðir. Allar götur greiðir gamla landið mitt, sýnir hjarta sitt. Mundu, mömmu ljúfur, mundu, pabba stúfur, að þetta er landið þitt. (Guðm. Böðvarsson.) Þínar dætur Lára og Hanna Elsku tengdmóðir. Auðvitað veit ég hver hún Kristín er, ég hef nú snýtt henni og skeint. Með þessum orðum bauðst þú mig velkomna inn í fjölskyldu þína sem tengdadóttir þín. Þú passaðir mig sem barn og varst mér sem móðir síðastliðin 10 ár. Setið á verönd hins nýja lífs sólin hefur þerrað döggina sem lá á greinum trjánna glitrandi sem gimsteinar niður vatnsins heyrist frá ánni er vatnið rennur viðstöðulaust eitthvert áfram eitthvað svo langt áfram án þess að vera að fara nokkuð sérstakt bara lætur sig fljóta Frostið hefur fangað döggina sem lá á grasinu fangað hana og hneppt í hvítt þang gimsteinn sem liggur á jörðinni fangi þar til sólin hefur brætt frostið svo vatnstraumar renna niður hlíðina markmiðið er áin sem flýtur flýtur niður að sjó og enginn veit að þar flýtur döggin sem var einu sinni fangi en er nú frjáls og flýtur og flýtur Góða ferð, þín nafna Kristín Jóna Þorsteinsdóttir. Amma, áttu mysing? Amma, meg- um við fara í bað? Amma, megum við mála grindverkið? Amma, viltu baka ástarpunga? Amma, megum við elda? Manstu þegar við nenntum aldrei að þurrka okkur eftir bað heldur hlupum um eins og sturluð til að þorna? Manstu þegar við földum okkur alltaf undir rúmi hjá afa þegar við áttum að fara heim? Manstu þeg- ar við fengum að vera inni í búri í vinnunni hjá þér og horfa á þig vinna? Manstu þegar við gátum dúll- að okkur við að klæða upp dúkkulís- ur klukkustundum saman? Manstu þegar þú prjónaðir jólakarlana fyrir okkur? Það voru ein bestu jól sög- unnar. Manstu þegar við þurftum að pissa í grænu fötuna í eldhúsinu þeg- ar afi var í baði? Manstu þegar við lágum í flatsæng í litla herberginu og við skiptumst á að lesa okkur í svefn? Allt sem þú gerðir fyrir okkur og allt sem þú gafst okkur er ómetanlegt. Þú veittir ungum mæðrum okkar styrk og stuðning og gekkst okkur í móðurstað þegar á þurfti að halda. Amma Kristín er fyndnasta amma allra tíma. Í seinni tíð var hún ófeim- in við að láta okkur vita af því ef kíló- in voru farin að hlaðast utan á okkur og hún hikaði ekki við að sleikja tissjú og þurrka manni um munninn. Amma sagðist oft hafa skeint og snýtt hálfri Reykjavík, hún átti sitt í öllum stóru körlunum. Þegar við skoðum gamlar myndir af þér, amma, þá fyrst sjáum við hversu mikil díva þú hefur verið. Það fór ekki fram hjá neinum þegar amma Kristín gekk inn í herbergið, þarna var mikil drottning á ferð. Styrkurinn sem þú sýndir síðustu árin var ótrúlegur. Læknarnir kepptust við að kalla þig gangandi kraftaverk og við sáum það greini- lega að þú vafðir þessum ungu mynd- arlegu mönnum um fingur þér. Orð fá varla lýst söknuði okkar frændsystkinana. Einn máttarstólpi lífs okkar hefur fallið frá og nú þurf- um að gjöra svo vel að standa á eigin fótum. Amma okkar, við vitum að þú og afi fylgist með okkur og munið fylgja okkur um ókomna framtíð. Vonandi líður ykkur eins og sönnum konungs- hjónum á þeim stað þar sem þið eruð núna. Sæl að sinni elsku amma, þínir stóru krakkar, Þröstur (Töddi) og Hera. Elsku amma Kristín. Við munum ávallt minnast þín með gleði í hjarta, þú sem varst okkur alltaf svo góð. Þegar við leiðum hug- ann til þín koma upp margar minn- ingar. Eins og þegar við fengum að sitja í búrinu í Efrihlíð meðan þú varst að vinna, þegar þú tókst okkur strákana með þér í gamla Kolaportið og gafst okkur tombólumiða sem gáfu misskemmtilegar gjafir en það skipti okkur engu máli því það var alltaf svo gaman með þér. Eða þegar við stelpurnar fórum á Laugaveginn og þú keyptir handa okkur límmiða í Tokyo og jafnvel heitt kakó. Þegar það kom sá tími að við feng- um að gista hjá þér heila helgi þá voru það bestu helgarnar sem við gátum upplifað. Við munum enn eftir gömlu þunnu hippadýnunum sem við sváfum alltaf á, hlustuðum á Jónas á Rás 1, þú sagðir okkur söguna um fluguna Mola sem flaug í gegnum skráargatið og við sungum saman úr Fljúga hvítu fiðrildin. Þá fengum við að spila andarspilið eða olsen olsen eftir þínum reglum. Síðan þegar við fórum í búðina renndum við okkur í öllum rennibrautum sem við sáum á leiðinni. Það var líka alltaf jafn gam- an að fá að baka með þér á sunnu- dagsmorgnum áður en við vorum sótt, en það var einmitt það leiðinleg- asta við helgarnar, að fara frá þér. Það er skrýtið að hugsa til þess að við getum ekki lengur komið í heimsókn og fengið ristabrauð sem þú skarst alltaf í fjóra hluta, eggjasúpu eða sí- trónubúðing. Sama hvað maður reyndi heima þá varð það aldrei eins gott og hjá þér.Við eigum heldur aldrei eftir að gleyma því þegar þú last fyrir okkur Einars Áskels bæk- urnar, sagðir okkur sögur frá gamla tímanum og sýndir okkur myndir. Þú hefur gert æsku okkar allra betri og við munum sakna þín mikið. Við verðum að eilífu þakklát fyrir að hafa átt þig, þú ert nefnilega besta amma í heimi. Hvíl í friði, amma Kristín. Þín barnabörn Lára, Númi, Sunna og Dagur. Kristín Gunnarsdóttir Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist val- kosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). . Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.