Morgunblaðið - 20.11.2006, Síða 28

Morgunblaðið - 20.11.2006, Síða 28
28 F MÁNUDAGUR 20. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Nýjar íbúðir til sölu Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200 Rúmgóðar íbúðir á góðum stað í Grafarvogi Nýjar íbúðir í lágreistum og fallegum fjölbýlishúsum við Gull-engi 2–6. Engjahverfið er gróið og heillandi hverfi á fgóðum stað í Grafarvoginum. Stutt er í alla þjónustu, í næsta nágrenni eru leik-, grunn- og framhaldsskóli og þjónustumiðstöðin Spöngin aðeins steinsnar frá. Húsin eru sérlega vönduð og viðhaldslétt, hönnuð af Tekton arkitektum. Útveggir eru með steiningaráferð og viðarklæddir að hluta og lóð frágengin með snjóbræðslu í hluta hellulagðra göngustíga. Aðeins níu íbúðir eru í hverju húsi, sex íbúðir eru fimm herbergja (130–140 fm), tvær fjögurra herbergja (120 fm) og ein þriggja herbergja (100 fm). Landslagsarkitektastofan Landslag sá um hönnun lóðar og leiksvæðis. Íbúðirnar eru bjartar og rúmgóðar og er þeim skilað fullbúnum án gólfefna en með flísalögðum þvottahúsgólfum og baðherbergjum. Innréttingar eru vandaðar og hægt er að velja milli þriggja viðartegunda í innréttingum og hurðum. Heimilistæki eru frá AEG eða sambærileg, með burstaðri stáláferð. Salerni eru vegghengd og sturtubaðker fylgir flestum íbúðum. Íbúðirnar eru 3ja, 4ra og 5 herbergja, 102–140 fm. Verð frá 24,7 millj. GULLENGI – REYKJAVÍK 3ja, 4ra og 5 herbergja H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA ÞRASTARHÖFÐI – MOSFELLSBÆ 3ja–4ra, 5 herbergja ÍAV er að ljúka byggingu glæsilegra fjölbýlishúsa við Þrastar- höfða sem er fallegt og vel staðsett hverfi vestast í Mosfells- bæ. Húsin eru tveggja og þriggja hæða. Öll hönnun miðast við að viðhald verði í lágmarki og þarfir fjölskyldufólks í fyrir- rúmi. Skóli, leikskóli og íþróttahús/sundlaug eru í aðeins 100 metra fjarlægð. Sérinngangur er af svalagangi eða beint af jarðhæð í hverja íbúð. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án gólfefna, að undanskild- um baðherbergjum og þvottahúsgólfum sem eru flísalögð. Sér þvottahús er í öllum íbúðum. Innréttingar eru vandaðar frá Brúnás. Heimilistæki eru AEG með burstaðri stáláferð. Örfáar íbúðir eru óseldar. Til afhendingar strax. Verð frá 21,4 millj. Söludeild okkar er að Höfðabakka 9 s. 530 4200 Ítarlegar upplýsingar um eignirnar á vefsíðu okkar www.iav.is Glæsilega hannaðar íbúðir Ásakór er vandað þriggja hæða fjölbýlishús með lyftu og 6 íbúðum á hæð. Sérinngangur er í hverja íbúð og fylgir eitt bílastæði hverri íbúð. Svalagangar 2. og 3. hæðar eru með glerskermum. Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna en með flísalögðum baðherbergis- og þvottahúsgólfum. Innréttingar eru vandaðar frá HTH. Þvottaherbergi er í öllum íbúðum. Húsið er vel stað- sett þar sem stutt er í skóla, leikskóla og aðra þjónustu. Íbúðirnar eru 3ja og 4ra herbergja, 98–110 fm. Örfáar íbúðir eru óseldar. Til afhendingar strax. Verð frá 22,9 millj. með sér stæði í bílageymslu ÁSAKÓR 2–4 – KÓPAVOGI 3ja–4ra herbergja SÓLTÚN – REYKJAVÍK 2ja–3ja herbergja Húsið vinstra megin er númer 8–12 og húsið hægra megin 14–18 www.iav.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.