Morgunblaðið - 02.12.2006, Síða 59

Morgunblaðið - 02.12.2006, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006 59 menning Afmælisþakkir Innilegar þakkir færi ég öllum þeim sem heiðruðu mig og glöddu með heimsóknum, gjöf- um, símskeytum og símtölum í sambandi við 90 ára afmæli mitt 20. nóvember sl. Sérstakar þakkir færi ég stjúpbörnum mínum og börnum þeirra fyrir myndarlega afmælisveislu sem gerði mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. Halldór Jónsson frá Garpsdal, Álfaskeiði 64, E5, Hafnarfirði. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 SKO; þetta voru ekki leiðinlegir tón- leikar. Magni sýndi t.a.m. flotta takta í flutningi á gamla Deep Purple/Kula Shaker-smellinum „Hush“ og stemn- ingin reis líkast til hæst þegar „Smells Like Teen Spirit“ var leikið og sungið af öllum þeim krafti sem býr í þeirri furðulega vel heppnuðu tónsmíð. Þá sýndi Dilana og sannaði að hún er frábær og fjölhæf söng- kona og sjarmerandi á sinn sirk- uslega hátt. Toby og Storm skiluðu hins vegar engu sem gæti kallast eft- irminnilegt, nema hugsanlega á mælikvarða laugardagskvölds á Öl- veri. Josh var einna áhugaverðastur, hóf leikinn með nokkrum frum- sömdum lögum sem voru eins konar kassagítars-R&B með alltof mörgum krúsídúllum í söngnum. Stór hluti áhorfenda var á aldr- inum 12–16 ára og þeir sem voru við neðri mörkin voru margir hverjir í fylgd foreldra sinna. Við þessu var að búast en það sem kom undirrituðum á óvart var fjöldi fólks sem virtist vera u.þ.b. 25–35 ára. Margir þessara voru vel slompaðir, og brostu ekki mikið heldur störðu á sviðið (skjáinn) og klöppuðu höndunum saman eins og eftir skipun. Á sviðinu dönsuðu líkast til brostn- ir draumar þeirra, fólk á svipuðum aldri (Josh yngstur, 26 ára; Storm elst, 37 ára) sem hefur uppskorið vin- sældir og frægð. Rock Star er gott dæmi um þörfina fyrir samsömun, staðfestingu sjálfsins, það er sjón- varpsþáttur (og nú tónleikar) þar sem „hver sem er“ getur komist að og vera sveitapiltsins Magna í þætt- inum/tónleikunum styrkir tilfinningu fyrir því að „litla íslenska ég“ geti verið með. Enda var Magni hylltur eins og kóngur þetta kvöld. Hinir söngvararnir/keppendurnir þökkuðu honum fyrir veru sína á Íslandi, og fimm þúsund manns sungu fyrir hann afmælissönginn. Í grein sem heimspekingurinn Gunnar Hersveinn reit í Lesbók Morgunblaðsins sagði hann að fjöl- miðlar hefðu farið „yfir strikið því þeir mögnuðu ímynd [Magna] á þann hátt að hún varð óháð hans eigin per- sónu. […] Líf hans var hneppt í viðjar sjónvarpsins og ekkert var markvert nema það hefði verið myndað.“ Tón- leikarnir voru einmitt skyldari sjón- varpsþætti en venjulegum tónleikum – þeir voru einskonar framlenging á þáttaröðinni Rock Star þar sem einn söngvari af öðrum steig á sviðið og flutti ólík lög til að sýna fram á fjöl- hæfni sína. Vissulega var fjarlægð skjásins að einhverju leyti rofin, t.d. þegar söngvararnir stukku út í sal, en þetta voru samt sjónvarps- stjörnur; tilbúnar persónur sem lifn- uðu við. Magni, nú á heimavelli, var m.a.s. farinn að gangast upp í per- sónunni sem fjölmiðlar hafa áskapað honum, hann lét undan eftirlíking- unni af sjálfum sér: hann var orðinn ofurverulegur. Listrænt séð gerðist ekkert á þessum tónleikum. Þetta var inn- antóm afþreying – stundum var það skemmtilegt eins og ég nefndi í upp- hafi, en stundum var það ólýsanlega pínlegt, eins og þegar Magni og Josh reyndu að klæða Toby úr skyrtunni. Þeim tókst það að hálfu en hann klár- aði dæmið sjálfur og reif skyrtuna ut- an af sér við mikinn fögnuð tónleika- gesta. Þannig voru tónleikarnir eitt stórt samansafn klisja, allt frá laga- vali til gítarsólóa, til hreyfinga söngv- aranna o.s.frv. Þessi eina kvöldstund átti að koma í staðinn fyrir að hlusta í alvörunni á rokkplötur eða sækja rokktónleika; hún átti að vera nægi- legur rokkskammtur fyrir nýríkt lið sem hefur ekki tíma fyrir raunveru- lega menningu, en alveg eins og með hundrað dollara „diploma“ á Netinu kemur engin skyndilausn í staðinn fyrir að vinna heimavinnuna sína. Ofurverulegur Magni Morgunblaðið/Ómar Rokkstjarna „Þá sýndi Dilana og sannaði að hún er frábær og fjölhæf söngkona og sjarmerandi á sinn sirkúslega hátt.“ TÓNLIST Laugardalshöll Tónleikarnir fóru fram fimmtudaginn 30. nóvember. Rock Star Houseband & Magni, Dilana, Toby, Storm, Josh –  Atli Bollason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.