Morgunblaðið - 02.12.2006, Side 64

Morgunblaðið - 02.12.2006, Side 64
64 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK eeee DV eeee Davíð Örn Jónsson – Kvikmyndir.com eeeee Jón Viðar – Ísafold eeeee Hallgrímur Helgason – Kastljósið 5 Edduverðlaun besta mynd ársins, besti leikar ársins, besti leikstjórinn, besti aukaleikarinn og besta tónlistin (Mugison) eeee T.V. KVIKMYNDIR.IS eee H.J. MBL FRÁFÖLLNUHINIR HAGATORGI • S. 530 1919 WWW.HASKOLABIO.IS / KEFLAVÍK SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ FLUSHED AWAY m/ensku tali kl. 6 LEYFÐ CASINO ROYALE kl. 8 B.I. 14 SANTA CLAUSE 3 kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ THE LAST KISS kl. 8 B.I. 12 ADRIFT kl. 10:15 B.I. 16 - ÍTÖLSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ - 23. nóv - 3. des. NATIVITY STORY kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára THE DEPARTED kl. 8 B.i. 16 ára BÖRN kl. 4 - 6 B.i.12.ára MÝRIN kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 B.i. 12.ára A SCANNER DARKLY ÓTEXTUÐ kl. 10:40 B.i. 16.ára UOMO IN PIÚ, L' (Honum er ofaukið) Sýnd kl. 3:40 FATE COME NOI (Gerið eins og við) Sýnd kl. 5:50 CUORE ALTROVE, IL (Með hjartað á öðrum stað) Sýnd kl. 8 CASA DALLE FINESTRE CHE RIDONO, LA (Húsið með hlæjandi glugga) Sýnd kl. 10:10 Sýningartímar á allar myndir sem sýndar eru á ítölsku kvikmyndahátíðinni Gegn framvísun miða sem var framan á morgunblaðinu Á laugardaginn Býður áskrifendum sínum í bíó1fyrir2eeeS.V. MBL BÖRN ROFIN PERSÓNUVERND kvikmyndir.is eeee H.J. Mbl. FLUSHED AWAY Frá framleiðendum og SÝND BÆÐI MEÐ ÍSKLENSKU OG ENSKU TALI Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna STÓRKOSTLEGASTA SAGA ALLRA TÍMA LIFNAR HÉR VIÐ Í STÓRBROTINNI MYND SEM ENGINN MÁ MISSA AF. UPPLIFIÐ HINA SÖNNU MERKINGU JÓLANNA 76.000 gestir! flugstrákar eee V.J.V. Topp5.is FRÁFÖLLNUHINIR eeeee V.J.V. TOPP5.IS / AKUREYRI STURTAÐ NIÐUR m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ FLUSHED AWAY m/ensku tali kl. 6 - 8 LEYFÐ NATIVITY STORY kl. 8 - 10 B.I. 7 THE GRUDGE 2 kl. 10 B.I. 16 SANTA CLAUSE 3 kl. 2 - 6 LEYFÐ DA ZERO A DIECI (Frá einum upp í tíu) Sýnd kl. 4 á allar sýningar merktar með appelsínugulu á laugardögum og sunnudögumSPARBÍÓ 450kr Það er tímabært að hefja 1. desember til vegs á ný. Spurning er hvort þessi dagur gæti ekki orðið vettvangur fyrir dýpri umfjöllun um einhvern þátt í sögu sjálfstæðisbaráttu okk- ar bæði fyrr og nú. Nú stöndum við á tímamótum í utanríkis- og öryggismálum. Þótt ekki skuli gert lítið úr því umræðuefni, sem tekið var til meðferðar í gær, hefði t.d. verið við hæfi að fá Geir H. Haarde forsætisráð- herra eða Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra til þess að flytja stefnumarkandi ræðu um utanríkispólitík okkar Íslendinga á nýjum tímum. Það hefði líka verið hægt að fá nýj- ar kynslóðir sagnfræðinga okkar til þess að skoða sjálfstæðisbaráttuna á ný út frá sjónarmiðum nútímans. Og þannig mætti lengi telja. Víkverji skorar á Stúdentaráð Há- skóla Íslands, sem sér um dagskrána þennan dag, að endurskoða afstöðu sína og vinnubrögð til hátíðahald- anna 1. desember. En auðvitað má segja, að umsjón stúdentaráðs byggist á gamalli hefð sem auðvitað má breyta. Er ekki orðið tíma-bært að sýna full- veldisdegi Íslendinga, 1. desember, þá virð- ingu, sem honum ber. Dagurinn er þar að auki fánavígsludagur, eins og Pétur Sig- urgeirsson biskup vakti athygli á í grein hér í blaðinu hinn 17. júní sl. Sú var tíðin, að 1. desember var hátíðleg- ur haldinn og stundum stóðu miklar deilur um dagskrá hátíðahalda stúdenta þennan dag. Í nokkra síðustu áratugi hafa hátíðahöld stúd- enta vakið takmarkaða athygli enda ekki mikið í þau lagt. Eldri kynslóðir Íslendinga hafa hins vegar áhuga á þessum degi. Þær kynslóðir, sem fylgdust með sjálf- stæðisbaráttunni, líta á 1. desember sem helgan dag. Fyrir skömmu hafði lesandi Morg- unblaðsins á tíræðisaldri samband við Víkverja og hafði mestar áhyggj- ur af því, að Íslendingar yrðu búnir að missa sjálfstæði sitt á nýjan leik, þegar kæmi að því að halda 100 ára afmæli fullveldisins hátíðlegt. Og átti þá við, að hugsanlega yrði Ísland bú- ið að ganga í Evrópusambandið fyrir hundrað ára afmælið.       víkverji skrifar | vikverji@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF: ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. dagbók Orð dagsins: Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upp- lokið verða. (Matt. 7, 7.) Í dag er laugardagur 2. desember, 336. dagur ársins 2006 velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Maður, líttu þér nær ÉG VAR alveg stórhneyksluð á fréttinni í Kastljósi 29. nóv. sl. þar sem fjallað var um greinina um vist- fólkið á Grund „sem birtist“ í Ísa- fold. Við megum bara þakka fyrir að hafa þetta erlenda fólk sem hugsar um aldraða foreldra okkar, því alla vega megum við ekki vera að því. Þetta er þolinmótt og þjónustulund- að fólk sem gerir sitt besta til að tala okkar tungumál. Móðir mín hefur verið um hríð á Grund og er 91 árs. Henni líður bara vel og er ein í herbergi sem er hlýtt og notalegt. Hún fer í bað einu sinni í viku og finnst það alveg nóg. Svo fær hún permanent og hárgreiðslu reglulega. Ég er í ættingjabandi Grundar en þar eru 280 meðlimir, 1 fyrir hvern dvalarmann. Þar var boðað bréflega til fundar. Fékk ég mitt bréf viku fyrir fund sem var 27. nóvember, að mig minnir. Það mættu 18 manns. Hvar voru hinir? Björg Björgvinsdóttir. Þakkir ÉG VIL þakka fyrir sunnudags- leikritið Sandbylur eftir Thorstein Marinósson sem flutt var núna í nóv- ember í Ríkisútvarpinu. Frábært leikrit, vel flutt með smáskammti af dulrænu ívafi sem sjaldgæft er í nú- tímaskáldskap. Þakkarvert væri líka að fá að heyra endurflutning á leik- ritinu Frakkinn eftir Gogol með Þor- stein Ö. Stephensen í aðalhlutverki. Hann átti marga skínandi spretti á leikvangi listarinnar. Guðrún Jacobsen. Stöð 2 og Sjónvarpið Í SAMBANDI við Stöð 2. Ég er ósátt yfir því að borga afnotagjald þegar margir geta horft á Stöð 2 í opinni dagskrá þegar þeir vilja, ligg- ur við, því hún er svo mikið opin. Því velti ég því fyrir mér hvers vegna ég sé að borga afnotagjöldin. Eins fer í taugarnar á mér þessi metingur á milli sjónvarpsstöðva, vegna þess að maður er neyddur til þess að borga af Sjónvarpinu. Það er ekki hægt að bera þessar stöðvar saman. Fólk ræður hvort það kaupir afnot af Stöð 2 en ræður ekki hvort það kaupir aðgang að Ríkis- sjónvarpinu. A.K. Búseta í atvinnuhúsnæði ÞAÐ hefur verið fjallað mikið um það í fjölmiðlum að útlendingar og íslenskir öryrkjar búa í húsnæði sem er atvinnuhúsnæði, en eru ekki mannabústaðir og því ótryggðir. Því velti ég því fyrir mér hvort taka eigi á leigu húsnæði á Keflavíkurflugvelli fyrir þetta fólk og hafa strætisvagna sem keyra það, þar er nægilegt hús- næði. Þá getur fólkið litið eftir hús- næðinu í leiðinni. Að hafa fólk í atvinnuhúsnæði er til algjörrar skammar. Helgi Björnsson. Sammála Reyni ÉG TEK heilshugar undir það sem Reynir skrifar Í Velvakanda fimmtudaginn 30. nóv. sl. um Árna Johnsen. Ef ég tek gamlan ref og læt í búr og hef hann þar í búri í 2 ár er hann í mínum huga enn þá refur þegar hann kemur aftur út. Þá eru töpuð tvö atkvæði til Sjálf- stæðisflokksins. Sigrún Magnúsdóttir. Karlakvöld í Ríkissjónvarpinu! MÉR ofbýður að konur skuli ekki sjást í skemmtidagskrá Ríkissjón- varpsins á laugardagskvöldum og það á árinu 2006. Í skemmtiþætti Jóns Ólafssonar talar hann við hvern karlinn á fætur öðrum, síðan tekur Spaugstofan við, sem skipuð er 5 körlum. Við Íslendingar eigum fullt af hæfileikaríkum tónlistarkonum og leikkonum, sem eiga að fá tækifæri til að koma fram til jafns við karla. Sem skattgreiðandi hafna ég því að skattpeningum mínum sé eytt í skemmtiþætti þar sem körlum er hampað en konur sniðgengnar. Kristín Jóhannsdóttir. Sony Ericson gsm-sími týndist SONY Ericson gsm-sími með ól týndist sl. laugardag, 25. nóv., lík- lega í Mosfellsbænum. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 617 6151.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.