Morgunblaðið - 04.12.2006, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 04.12.2006, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 4. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Berg Ebba Benediktsson bergur@mbl.is FJÓRAR konur og tveir karlar röð- uðust í efstu þrjú sætin í forvali Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs til lista fyrir Reykjavík- urkjördæmin tvö og Suðvesturkjör- dæmi vegna alþingiskosninganna í vor. Völdu kjósendur þrjá frambjóð- endur í hvert sæti og síðar mun upp- stillingarnefnd flokksins raða þeim niður á lista. Flest atkvæði í fyrsta sæti hlaut Ögmundur Jónasson þingmaður en Katrín Jakobsdóttir, varaformaður flokksins, og Kolbrún Halldórsdóttir þingkona hlutu einn- ig kosningu til að leiða listann í ein- hverju kjördæmanna. Flest atkvæði í fyrsta og annað sætið hlutu Guðfríður Lilja Grétars- dóttir, sagnfræðingur og formaður Skáksambands Íslands, Álfheiður Ingadóttir varaþingkona og Árni Þór Sigurðsson borgarfulltrúi. Verður kynjakvóta beitt? Í reglum sem samþykktar voru fyrir forvalið kemur fram að kosn- ingu í annað sæti hljóti þeir þrír frambjóðendur sem fái flest atkvæði í fyrsta til annað sæti, þó þannig að efstu tvö sæti listanna verði skipuð þremur körlum og þremur konum. Verði þessari reglu beitt er líklegt að Álfheiður Ingadóttir, sem fékk færri atkvæði en Guðfríður Lilja verði færð niður í þriðja sæti á ein- hverjum listanum og Gesti Svavars- syni, sem fékk flest atkvæði í fyrsta, annað og þriðja sæti í forvalinu, verði gefinn kostur á að taka sæti Álfheiðar. Ákveði Gestur að þiggja ekki boðið, eins og hann hefur lýst yfir, er ekki útilokað að uppstilling- arnefnd bjóði næsta karlframbjóð- anda sætið en það er Paul Nicolov. Að sögn Svanhildar Kaaber, for- manns kjörstjórnar, verður uppröð- un á lista með þeim hætti að kjör- stjórnin kemur saman og gerir tillögu að þremur listum á grund- velli kosninganna sem síðan þarf að samþykkja á félagsfundi í hverju kjördæmi fyrir sig. Spurð að því hvort reglunni um jafnan fjölda karla og kvenna í efstu sæti verði fylgt og kona færð niður um sæti segir Svanhildur að uppstillingar- málin verði rædd á fundi kjörstjórn- ar. „Kjörstjórnin ætlar að hittast næst á miðvikudaginn kemur og þá verður unnið í þessu,“ segir Svan- hildur. Á kjörskrá vegna forvalsins voru 1.796, greidd voru 1.093 atkvæði og var kjörsókn því um 61%, 35 at- kvæði voru auð eða ógild. Niður- stöður forvalsins lágu fyrir um mið- nætti á laugardaginn. „Þetta var óvenju glæsileg kosn- ing sem konurnar fengu, þingmenn- irnir fengu einnig glæsilega kosn- ingu, varaformaðurinn kemur sterk inn og svo kemur Guðfríður Lilja eins og stormsveipur inn í þetta auk þess sem Álfheiður og Árni Þór geta vel við unað,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, sem vildi ekki tjá sig um hvort hann teldi að beita ætti kynjakvóta við uppstill- ingu á listanum. Konur hlutu góða kosningu  Forval Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmum og Suðvesturkjördæmi fór fram um helgina  Ögmundur Jónasson hlaut örugga kosningu til að leiða einn af listunum þremur Morgunblaðið/ÞÖK Eftirvænting Frambjóðendur og aðrir gestir biðu spenntir eftir úrslitum forvalsins á kosningavöku sem haldin var á laugardagskvöld. Í HNOTSKURN »Alls buðu 30 manns sig fram íforvalinu en markmið þess var að velja fjóra efstu frambjóð- endurna í kjördæmin þrjú. »Sérstök uppstillingarnefndmun nú gera tillögu um upp- röðun á lista sem háð er sam- þykki félagsfundar í hverju kjör- dæmi fyrir sig. »Alls voru fjórar konur í sexefstu sætunum, sjö í tólf efstu og níu í 14 efstu.                                                  ! "        "# #   $  %     &  ' ( #     ) * " + " !      )                 „Menn hafa haft á orði að nið- urstaðan úr for- valinu hefði í öll- um tilvikum orðið góð í ljósi þess mannvals sem var í boði. Nú liggur nið- urstaðan fyrir og við þurfum að horfa fram á brautina og þá horfum við til al- þingiskosninganna á vori komanda. Mín tilfinning er sú að við höfum fljúgandi byr í seglin,“ segir Ög- mundur Jónasson þingmaður sem flest atkvæði fékk í fyrsta sæti for- valsins. „Það sem mér er kannski efst í huga er að horfa ekki einvörð- ungu til þeirra sem skipuðust í efstu sætin heldur einnig hinna fjöl- mörgu áhugasömu og kraftmiklu einstaklinga sem eru að hasla sér völl í pólitíkinni í fyrsta skipti. Það er mikil gerjun framundan,“ segir Ögmundur. „Fljúgandi byr í seglin“ Ögmundur Jónasson KOLBRÚN Hall- dórsdóttir þing- kona mun að öll- um líkindum leiða einn lista flokksins en hún hlaut þriðja mesta fjölda atkvæða í fyrsta sætið í for- valinu. Hún kveðst ánægð með nið- urstöðuna. „Mér finnst þetta staðfesta okkar kraft- mikla flokkstarf. Við í þingflokknum fáum góða kosningu, unga fólkið fær fína kosningu og konur fá góða kosningu,“ segir Kolbrún. Hún bendir einnig á að fólk sem gegni embættum innan flokksins hafi náð góðum árangi og nefnir sér- staklega gengi Katrínar Jak- obsdóttur varaformanns og Auðar Lilju Erlingsdóttur, formanns Ungra vinstri grænna, sem hafnaði í fjórða sæti. „Þetta finnst mér sýna að flokksmenn ganga í takt,“ segir Kolbrún. „Flokksmenn ganga í takt“ Kolbrún Halldórsdóttir „ÉG TEL þetta stórglæsilega niðurstöðu og finnst merkilegt að finna þann mikla byr sem málefni VG hafa í samfélaginu,“ segir Álfheiður Ingadóttir, vara- þingmaður VG, sem hlaut næst- flest atkvæði í fyrsta til annað sæti í forvalinu. Spurð um það sjónarmið sem kæmi fram í reglum um forvalið og varðar jafna stöðu karla og kvenna í efstu sætum listans segir Álfheið- ur að vissulega gæti það haft áhrif á niðurröðun uppstillingarnefndar. „Það eru mörg sjónarmið sem koma til greina við röðun á þessa þrjá lista, þar eru auðvitað kynja- sjónarmið og þessar reglur en svo er það líka svo margt annað sem taka þarf tillit til,“ segir hún. VG með mikinn byr Álfheiður Ingadóttir „ÉG ER alveg himinlifandi með niðurstöðuna,“ segir Katrín Jak- obsdóttir, ís- lenskufræðingur og varaformaður VG, sem hlaut næstflest at- kvæði í fyrsta sæti í forvalinu og mun því að öllum líkindum leiða einhvern listanna. „Þessi úrslit sanna að það er ekki sjálfgefið að konum gangi illa í prófkjörum,“ segir hún. Þá er Katrín ánægð með framkvæmd for- valsins og hversu frambjóðendur stilltu auglýsingum í hóf. „Við höf- um meira verið að vinna inn á við í þessu forvali,“ bendir Katrín á en þetta er í fyrsta skipti sem hún skipar sæti ofarlega á lista. „Ég hef verið í stuðningssætum áður, en nú ákvað ég að það væri að hrökkva eða stökkva, og ég stökk!“ „Höfum unn- ið inn á við“ Katrín Jakobsdóttir „ÉG SÓTTIST eftir öðru sæti og fékk það og er himinlifandi og þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt og að vera boðin vel- komin í hópinn,“ segir Guðfríður Lilja Grét- arsdóttir sagnfræðingur og forseti skák- sambands Íslands. „Mér líst rosa- lega vel á þetta í heildina og er ánægð með hvað konur fengu góða kosningu. Þær hafa átt mjög á brattann að sækja í prófkjörum annarra flokka. En hér eru komnar fjórar konur inn í sex efstu sætin sem er mjög sterk yfirlýsing af hálfu Vinstri grænna. Mér finnst þarna vera reynsluboltar í pólitík- inni í bland við ný og fersk andlit. Ég tel þetta sterkan byrjunleik í þeirri skák sem er framundan 12. maí,“ segir hún. Sterkur leik- ur í skákinni Guðfríður Lilja Grétarsdóttir ÁRNI Þór Sig- urðsson borg- arfulltrúi hlaut kosningu sem mun að öllum lík- indum skila hon- um í annað sæti einhvers listans. „Það var raun- hæft frá mínum bæjardyrum séð að ná öðru sæti og ég er mjög ánægður með þessa niðurstöðu,“ segir Árni. „Þetta var fyrir flokksmenn og þetta fór vel fram. Það var góður andi milli fram- bjóðenda og ekki neinar auglýsinga- herferðir. Við héldum sameiginlega fundi og útbjuggum sameiginlegan kynningarbækling, þetta gekk mjög vel upp og gæti verið öðrum flokk- um til eftirbreytni. Það sama á við um þetta fyrirkomulag að halda sameiginlegt forval fyrir kjördæmin þrjú. Það gekk að mínu viti afar vel upp,“ segir Árni Þór. „Flokkum til eftirbreytni“ Árni Þór Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.