Morgunblaðið - 05.12.2006, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
þriðjudagur 5. 12. 20
íþróttir mbíþróttir
Dallas Mavericks komið á skrið í NBA-deildinni >> 4
SPENNA Í BARCELONA
EVŔÆÓPUMEISTARAR BARCELONA LEIKA AFAR
ÞÝÐINGARMIKINN LEIK VIÐ WERDER BREMEN >> 2
Kristín Rós kom þriðja
í mark í 100 metra
bringusundi í gær á
tímanum 1.41,26 mínútum en hún
var með fjórða besta tímann eftir
undanrásirnar en þá synti hún vega-
lengdina á tímanum 1.43,76 mínút-
um. Kristín var skráð með fjórða
besta tímann fyrir mótið en Íslands-
met hennar í greininni er 1.35,64
mínútur. Bandarísk stúlka hrósaði
sigri í bringusundinu en sigurtími
hennar var 1.32,86
mínútur sem er nýtt
heimsmet.
Eins og áður segir
voru þetta önnur
bronsverðlaun Kristín-
ar Rósar á mótinu en á
sunnudaginn varð hún
í þriðja sæti í 100
metra baksundi.
Í dag er frídagur hjá
íslensku keppendun-
um en á morgun
keppir Sonja Sigurðar-
dóttir, ÍFR, í 50 metra
baksundi. Á fimmtu-
dag ljúka Íslendingarnir svo keppni.
Þá keppir Kristín Rós í 50 metra
skriðsundi, Sonja Sigurðardóttir
keppir í 100 metra skriðsundi og Ey-
þór Þrastarson, ÍFR, í 50 metra
skriðsundi.
Annað brons
hjá Kristínu
KRISTÍN Rós Hákonardóttir úr
Fjölni í Grafarvogi vann í gær sín
önnur bronsverðlaun í sínum fötl-
unarflokki á heims-
meistaramóti fatlaðra í
sundi sem nú stendur
yfir í Durban í Suður-
Afríku. Að Ólympíu-
móti fatlaða und-
anskildu er heims-
meistaramótið í
Durban nú einn fjöl-
mennasti íþrótta-
viðburður fyrir fatlaða
íþróttamenn.
Á HM fatlaðra í sundi í S-Afríku
Kristín Rós
Hákonardóttir
THIERRY Henry, fyrirliði
enska knattspyrnuliðsins
Arsenal, staðfesti við franska
íþróttadagblaðið L’Equipe í
gær að hann yrði frá keppni
næstu fjórar til sex vikurnar.
Jafnframt hafnaði hann
fregnum um ósætti milli sín
og knattspyrnustjórans,
Arsenes Wengers.
„Ég verð að taka mér hvíld
í einn mánuð, jafnvel hálfan
annan, til að losna við sárs-
aukann,“ sagði Henry og tók
fram að ekki væri aðeins um
eymsli í hálsliðum að ræða,
heldur væri hann líka með
stöðugan verk í lærvöðva.
„Ég hef leikið sextíu leiki á
þessu ári og nú hefur líkam-
inn gefið til kynna að hann
þurfi hvíld.“ Hann sagði að
ekki hefði komið til rifrildis
milli hans og Wengers eftir að
sá síðarnefndi ákvað að velja
hann ekki í leikmannahópinn
fyrir leikinn gegn Tottenham.
„Jú, ég var vissulega reiður
en það var
vegna þess
að mér
fannst
slæmt að
geta ekki
hjálpað
mínu liði.
Það er erf-
itt að
sætta sig
við slíkt en ég reifst ekki við
Arsene Wenger,“ sagði
Henry.
Thierry Henry
Thierry Henry ekki
með í fjórar til sex vikur
ARABÍSKIR fjárfestar hafa
fengið heimild til að fara yfir
bókhald enska knattspyrnu-
félagsins Liverpool og þykja
mjög líklegir til að kaupa
meirihluta í félaginu innan
tíðar. Það er eignarhalds-
félagið Dubai International
Capital í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum sem þar er á
ferð en félagið er í eigu
Maktoum-fjölskyldunnar og
er beintengt ríkisstjórn lands-
ins. Fjölskyldan er þekkt á
Englandi fyrir aðkomu sína
að veðreiðum og hefur getið
sér gott orð á þeim vettvangi.
Miðað við það er talið líklegt
að Rafael Benítez fengi strax
umtalsverða fjármuni í hend-
ur til leikmannakaupa. Talið
er að heildarkaupverðið væri
450 milljónir punda, eða rúm-
ir 60 milljarðar króna. Þar af
er félagið sjálft metið á 170
milljónir punda, gerð nýs leik-
vangs í Stanley Park á 200
milljónir punda, og þá eru
skuldir Liverpool um 80 mi
ónir punda. Félagið m
skuldum er því verðlagt á 2
milljónir punda en til sama
burðar keyptu Eggert Mag
ússon og Björgólfur Gu
mundsson West Ham fy
108 milljónir punda.
Viðræður um kaup á Liv
pool hafa lengi verið í gangi
tveir aðilar hafa gert m
heppnaðar tilraunir til
eignast meirihluta í því á un
anförnum misserum.
Liverpool í hendur
arabískrar fjölskyldu?
VANJA Stefanovic, serbneska
landsliðskonan í knattspyrnu sem
hefur leikið hér á landi undanfarin
þrjú ár, er gengin til liðs við Ís-
lands- og bikarmeistara Vals og
hefur samið við þá til tveggja ára.
Vanja, sem er 27 ára gömul, hefur
leikið 56 A-landsleiki fyrir Serbíu-
Svartfjallaland og kemur til Hlíð-
arendaliðsins frá Breiðabliki þar
sem hún spilaði í ár. Hún missti
reyndar af síðari umferð Íslands-
mótsins vegna meiðsla en skoraði 6
mörk í 8 leikjum fyrir Kópavogs-
liðið. Vanja lék með Fjölni framan
af sumri 2004 en lauk tímabilinu
með KR og spilaði áfram með Vest-
urbæjarliðinu 2005. Í heimalandi
sínu lék Vanja með margföldu
meistaraliði Masinac Nis.
Vanja í raðir Valsara
Reuter
Háloftabardagi Manchester City og Watford gerðu markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í
gærkvöld og er þessi mynd dæmigerð fyrir baráttu leikmanna.
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Bréf 31
Staksteinar 8 Minningar 32/36
Veður 8 Brids 37
Úr verinu 13 Skák 37
Viðskipti 14 Menning 40/44
Erlent 15/17 Leikhús 42
Menning 19 Myndasögur 44
Akureyri 20 Dægradvöl 45
Austurland 20 Dagbók 46/49
Suðurnes 21 StaðurStund 48/49
Landið 21 Víkverji 48
Daglegt líf 22/25 Velvakandi 48
Forystugrein 26 Bíó 46/49
Umræðan 28/31 Ljósvakamiðlar 50
* * *
Innlent
Tvær leiðir koma helst til greina
við að fjármagna tvöföldun Suður-
landsvegar, að sögn Sturlu Böðv-
arssonar samgönguráðherra. Ann-
ars vegar svonefnd skuggagjaldsleið
og hins vegar svokölluð lántökuleið.
Hann telur að hægt sé að ljúka verk-
inu á fjórum árum, fáist nægir fjár-
munir til þess. »Forsíða
Lyfjafyrirtæki nota um 400 millj-
ónir króna á ári til að markaðssetja
lyf hér á landi, að því er heilbrigð-
isráðherra sagði á Alþingi í gær.
Ráðherrann sagði einnig mikilvægt
að skorið yrði á öll hugsanleg hags-
munatengsl lækna og lyfjafyr-
irtækja. »Baksíða
Nýr meirihluti var myndaður í
bæjarstjórn Árborgar í gær. Ragn-
heiður Hergeirsdóttir verður nýr
bæjarstjóri og Þorvaldur Guð-
mundsson og Jón Hjartarson munu
skiptast á um að gegna embættum
forseta bæjarstjórnar og formanns
bæjarráðs. »4
Erlent
Stjórnvöld í Ísrael hyggjast reyna
að forðast átök við herskáa Palest-
ínumenn á næstunni í von um að
ótraust vopnahlé á Gaza haldi, að
sögn Ehuds Olmerts forsætisráð-
herra. Hann segir hins vegar ljóst að
vopnahléið muni ekki koma í veg
fyrir allar árásir Palestínumanna.
Hernum hefur verið skipað að forð-
ast einnig að efna til óþarfa átaka á
Vesturbakkanum. » Forsíða
Enn halda andstæðingar stjórnar
Fuads Siniora, forsætisráðherra
Líbanons, áfram að mótmæla í Beir-
út og krefjast afsagnar stjórn-
arinnar. Ráðherrar Hizbollah-
flokksins drógu sig nýlega út úr
stjórninni. »Forsíða
Hugo Chavez var endurkjörinn
forseti Venesúela á sunnudag og
fékk um 60% atkvæða. Hann hét því
í gær að stuðla að „byltingar-
lýðræði“ í landinu. Chavez notaði
einnig tækifærið til að hella sér yfir
George W. Bush Bandaríkjaforseta
og kallaði hann „djöful“ en sendi hin-
um sjúka Fidel Castro Kúbuleiðtoga
bróðurlega kveðju. »15
FORSTÖÐUMAÐUR fiskveiðimála
hjá NOAA, stofnun sem fer með
málefni hafsins og andrúmsloftsins í
Bandaríkjunum, afboðaði fund með
Einari K. Guðfinnssyni sjávarút-
vegsráðherra sem halda átti um
miðjan þennan mánuð. Ástæða af-
boðunarinnar var „nýlegir viðburðir
tengdir hvalveiðum“ að því er sagði í
svari talsmanns NOAA við fyrir-
spurn Morgunblaðsins. Umræddur
forstöðumaður NOAA, dr. Bill Hog-
arth, er einnig fulltrúi Bandaríkj-
anna í Alþjóðahvalveiðiráðinu.
Einar K. Guðfinnsson sjávarút-
vegsráðherra sagði að Hogarth
hefði ekki verið í sambandi við sig
eða sjávarútvegsráðuneytið varð-
andi afboðun fundarins og hvalveið-
ar ekki verið nefndar í því sambandi.
„Við fengum þau skilaboð að
fundinum hefði verið frestað,“ sagði
Einar. „Við töldum ekki ástæðu til
að lesa neitt mikið í það.“ Hann
sagði að þessir fundir hefðu verið
haldnir frá 1999, þó ekki alveg
reglulega. Þess vegna hefði það ekki
breytt miklu hvort fundurinn yrði
haldinn nú eða síðar. Einar sagði að
ætlunin hefði verið að fulltrúi ráðu-
neytisins ræddi þetta mál við Hog-
arth næstu daga og kvaðst Einar
gera ráð fyrir að það skýrðist þá
nánar.
Einar sagði að afstaða Banda-
ríkjamanna til hvalveiða Íslendinga
kæmi sér ekki á óvart. Hogarth
hefði látið afstöðu sína í ljósi við sig
persónulega og einnig komið henni
til skila með formlegum hætti sem
yfirmaður NOAA. Þá væri afstaða
hans í Alþjóðahvalveiðiráðinu þekkt.
„Ég ítreka að ég les ekki nein
stórtíðindi út úr þessu,“ sagði Einar.
NOAA afboðaði
vegna hvalveiða
Ráðherra telur það ekki mikil tíðindi
SEGJA má að þjóðflutningar séu hafnir milli Aust-
fjarða og Póllands, þar sem hátt í eitt þúsund Pólverjar
sem unnið hafa við að reisa álver á Reyðarfirði fara
heim í jólafrí. Björn S. Lárusson, samskiptastjóri
Bechtel, segir að ólíkt jólunum í fyrra verði þó einhver
starfsemi alveg til jóla, og milli jóla og nýárs. Þar verði
um 2–300 starfsmenn við störf, mest Pólverjar.
Alls starfa milli 1.600 og 1.700 manns við að reisa ál-
verið, meirihlutinn frá Póllandi. Björn segir að þeir
sem ekki fari heim til Póllands í jólafrí verði hér áfram
við vinnu að eigin ósk, sem komi sér ágætlega þar sem
vinna þurfi upp ákveðna verkþætti. Á myndinni má sjá
yfir Eskifjörð og Reyðarfjörð frá Oddsskarði þegar
rökkrið var að skella á.
Morgunblaðið/Helgi Garðars
Þjóðflutningar heim í jólafríið
ÞJÓNUSTA frístundaheimila í
Reykjavík mun hækka um 8,8% í
byrjun næsta árs, samkvæmt
ákvörðun íþrótta- og tómstundaráðs
sem tilkynnt var í gær. Þetta er önn-
ur hækkunin sem tilkynnt er á 11
mánaða tímabili, en í febrúar sl.
hækkaði þjónustan um 5,6%.
Frá og með 1. janúar nk. hækkar
grunngjald fyrir frístundaheimilið
úr 7.500 kr. í 8.160 kr. Gjald fyrir
þjónustu á milli kl. 8 og 14 á daginn,
t.d. á starfsdögum kennara, í jóla- og
páskafríi, hækkar úr 800 kr. á dag í
870 kr. á dag. Ennfremur hækkar
gjald fyrir síðdegishressingu í frí-
stundaheimilunum úr 2.100 kr. í
2.280 kr.
Hinn 1. janúar nk. mun þjónusta
frístundaheimila hafa hækkað um
14,9% frá því í febrúar 2006, fyrst
um 5,6% og nú aftur um 8,8%.
Hækkunin nú er nokkru meiri en al-
mennt í samfélaginu, en frá febrúar
sl. til nóvember sl. hefur verðlags-
vísitala hækkað um 6,7%, eða 6,1% ef
undan er skilinn kostnaður við hús-
næði.
Bolli Thoroddsen, fulltrúi Sjálf-
stæðisflokks í íþrótta- og tómstunda-
ráði, segir áherslu Reykjavíkurborg-
ar hvað varðar þessa þjónustu eins
og aðra að hafa kostnað borgarbúa
eins lítinn og mögulegt sé.
Hvergi ódýrara en í Reykjavík
„Það er alveg ljóst að þessi þjón-
usta er hvergi ódýrari á höfuðborg-
arsvæðinu,“ segir Bolli. Hann bendir
á að eftir verðlagshækkanirnar verði
tímagjaldið 125,50 kr. miðað við 65
tíma á mánuði, sem sé lægra en í öðr-
um sveitarfélögum á höfuðborgar-
svæðinu. Þannig sé sambærileg tala
í Kópavogi 158 kr., í Garðabæ sé hún
238 kr., í Hafnarfirði 171 kr., í Mos-
fellsbæ 185 kr. og á Seltjarnarnesi
220 kr.
Frístundagjöld
hækka um 8,8%
GRÍPA varð til
þess ráðs að lóga
særðum fálka
sem hafði verið
skotinn á Tjör-
nesi í síðasta
mánuði. Rjúpna-
skyttur höfðu
fundið fálkann
vængbrotinn við Bangastaði og var
hann sendur til Reykjavíkur til
dýralæknis. Aðgerð leiddi í ljós að
brotið var það slæmt að engin von
var um bata og var fuglinum því
lógað, segir í frétt frá Náttúru-
stofu Norðausturlands.
Þetta er í annað sinn á u.þ.b.
einu ári sem staðfest er að fálki
hafi verið skotinn í Þingeyjar-
sýslum. Lýsir Náttúrufræðistofa
áhyggjum sínum af innræti þeirra
sem slíkt gera auk þess sem það
kemur óorði á skotveiðimenn í
Þingeyjarsýslum.
Fálki
skotinn
við Tjörnes
LANDSMENN
tóku vel í söfnun-
arátakið Dag
rauða nefsins sem
Barnahjálp Sam-
einuðu þjóðanna,
UNICEF, stóð fyr-
ir 1. desember.
Alls söfnuðust 88
milljónir króna og
er þar með talinn
ágóðinn af sölu rauðra trúðsnefja,
geisladisks Baggalúts „Brostu“ og
söfnunarátaki Bylgjunnar og fram-
lög þeirra heimsforeldra á árs-
grundvelli sem skráðu sig meðan á
átakinu stóð, auk 30 milljóna króna
framlags frá utanríkisráðuneytinu.
Alls skráðu sig 3.950 heimsfor-
eldrar meðan söfnunarátak UNI-
CEF stóð yfir. Heimsforeldrar, sem
styðja verkefni Barnahjálparinnar
mánaðarlega, eru því orðnir 11.600
og á ársgrundvelli styrkja þeir börn
í sárri neyð um 139 milljónir króna.
Árangurinn fór fram úr björtustu
vonum, segir í fréttatilkynningu.
Söfnuðu 88
milljónum
Nefið sló í gegn.