Morgunblaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ERT ÞÚ
INNBROTI
AÐBÍÐA EFTIR
Öryggiskerfi fyrir heimili & fyrirtæki
· 6 eða 10 öryggissvæði
· Þráðlausir jaðarhlutir
· Símaúthringjari með talvél
· Skjáljós eða stafrænn skjár
· Íslenskar leiðbeiningar
Verð frá kr.:
27.700,-
SAMSTAÐA er regnhlífarsamtök
baráttuhópa sem hafa fækkun um-
ferðaslysa á Íslandi að markmiði.
Innan samtakanna eru m.a. „Vinir
Hellisheiðar“ sem hefur tvöföldun
Suðurlandsvegar og bætta lýsingu
þar sem helsta baráttumál. Steinþór
Jónsson, talsmaður samtakanna,
segir að ekki þurfi að horfa lengra en
til tvöföldunar Reykjanesbrautar til
að sjá hversu miklum máli fram-
kvæmdin skiptir.
Samstaða stóð m.a. fyrir því að
krossar voru reistir við Kögunarhól í
Ölfusi til að minnast þeirra sem látist
hafa í bílslysum á Suðurlandsvegi.
„Við í Samstöðu segjum, eins og allir
eru byrjaðir að tala um; horfum til
Reykjanesbrautar og færum árang-
urinn þaðan yfir á aðra vegi. Það
finnst okkur afar jákvæð umræða,“
segir Steinþór sem barðist ötullega
fyrir tvöföldun Reykjanesbrautar en
þar hefur ekki orðið banaslys vegna
framanákeyrslu síðan tvöfaldað var.
Steinþór segir
samtökin ekki
sætta sig við
2+1-lausn á Suð-
urlandsvegi. „Að
okkar viti er um
bráðabirgða-
lausn að ræða.
Þegar fram-
kvæmdin er að
enda komin eru
liðin tvö, þrjú ár og þá hefur umferð
enn aukist.“
Steinþór bendir á tvöföldun
Reykjanesbrautar á milli Hafnar-
fjarðar og Kópavogs sem dæmi um
framkvæmd sem hófst í raun of
seint. „Það er mjög vont að hefja
framkvæmdir ofan í þetta umferð-
armagn sem þar er komið og kallar á
tafir. Við viljum benda á að ef við
horfum aðeins lengra fram í tímann
og reynum kannski að taka fram úr
okkur þá lendum við ekki eins oft í
þessum vandamálum.“
Horft verði til
Reykjanesbrautar
Steinþór Jónsson
„MARKMIÐIÐ er að ná tíu þúsund
undirskriftum og afhenda sam-
gönguráðherra,“ segir Eyþór Arn-
alds, bæjarfulltrúi sjálfstæðis-
manna í Árborg. Hann átti
frumkvæðið að undirskriftasöfnun
sem fram fer á vefsvæðinu sud-
urlandsvegur.is – áskorun til sam-
gönguráðherra um að tvöfalda Suð-
urlandsveg, án tafar.
Um miðjan dag í gær höfðu um
9.100 manns skrifað undir en undir-
skriftasöfnun hófst fyrir tæpum
þremur vikum. „Það fjölgaði mikið
um helgina og um tvö þúsund
manns skráðu sig frá laugardegi,“
segir Eyþór og bætir því við að
flestir líti svo á að ef farið verður í
2+1-veg, sé illa farið með al-
mannafé. „Þetta verður bráða-
birgðaframkvæmd sem er hugs-
anlega ónýt ef kemur til þess að
leiðirnar verði aðskildar almenni-
lega, eins og menn hafa verið að
leggja til að undanförnu.“
2.000 undir-
skriftir frá
laugardegi
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
UNNIÐ er að verkhönnun á Suðurlandsvegi
fyrir Vegagerðina um þessar mundir. Sam-
kvæmt upplýsingum frá aðstoðarvegamála-
stjóra eru forsendurnar 2+1-vegur með veg-
riði alla leið á milli akstursstefna og gert er
ráð fyrir að vinnu verði lokið í byrjun næsta
árs. Framkvæmdir ættu að geta hafist í kjöl-
farið, eða í vor. Formaður samgöngunefndar
Alþingis segir ekkert að því að fara nýjar leiðir
í vegagerð og lítur jákvæðum augum á hug-
myndir um einkaframkvæmd. Tvennt lést í
slysi á Suðurlandsvegi um helgina eftir að
tveimur bifreiðum, hvorum úr sinni áttinni,
lenti saman og mikill þrýstingur á tvöföldun.
Í Morgunblaðinu í gær var haft eftir Sturlu
Böðvarssyni samgönguráðherra að stefnt væri
að því að tvöfalda stofnleiðir út úr Reykjavík,
bæði Suðurlandsveg og Vesturlandsveg.
Sturla sagðist jafnframt áhugasamur um
einkaframkvæmd, þar sem hún gæti hraðað
framkvæmdum, en tryggingafélagið Sjóvá
kynnti nýverið hugmynd um að ráðast mætti í
tvöföldun Suðurlandsvegar með einkafram-
kvæmd sem ríkið myndi greiða á tilteknum
tíma með skuggagjaldi í hlutfalli við umferð.
Um ákvörðun sína vísar ráðherra í endurskoð-
aða samgönguáætlun sem lögð verður fyrir Al-
þingi í janúar nk.
Fækka má slysum um 40% með 2+2
Í drögum að samgönguáætlun 2007–2012
kemur fram að haldið verði áfram að breikka
umferðarmestu vegi með aðskilnaði aksturs-
stefna. „Í fyrsta áfanga verða Vesturlands-
vegur og Suðurlandsvegur út frá Reykjavík
gerðir sem 2+1-vegir. Gerð verði úttekt á um-
hverfi stofn- og tengivega og lagðar fram til-
lögur til úrbóta.“ Í drögunum kemur einnig
fram að samkvæmt athugunum verkfræðistof-
unnar Línuhönnunar á slysatíðni mismunandi
vegaflokka megi áætla að við breytingu á 1+1-
vegi í 2+1-veg lækki tíðni allra slysa um 25–
30% og tíðni slysa með meiðslum um 45%.
Þegar 1+1-vegi er hins vegar breytt í 2+2-veg
má vænta þess að tíðni allra slysa lækki um
40% en tíðni slysa með meiðslum um 55%.
Fyrirvari er þó gerður um að aðstæður geti
skipt máli.
„Það hefur verið ákveðið að byggja þarna
þennan 2+1-veg og eftir því vinnum við þang-
að til annað verður ákveðið,“ segir Gunnar
Gunnarsson aðstoðarvegamálastjóri. „Það er
verkfræðistofa að vinna að verkhönnun á veg-
inum. Verið er að hanna svokallaðan 2+1-veg
með vegriði alla leið á milli akstursstefna.“
Hann telur framkvæmdir geta hafist í vor, þ.e.
ef forsendur verksins breytast ekki.
Gunnar segir að ekki hafi verið rætt mikið
um tvöföldun Suðurlandsvegar og því liggur
ekki fyrir hvort frekari undirbúningsvinnu
þurfi til ef ákveðið verður að hverfa frá 2+1-
lausninni. Tvær leiðir koma til greina ef ákveð-
ið verður að tvöfalda veginn, annars vegar
2+2 með miðjuvegriði eða tvöföldun sambæri-
leg Reykjanesbrautinni. „Það hefur ekki verið
farið djúpt í það hvor leiðin yrði hagkvæmari,“
segir Gunnar og bætir því við að Vegagerðin
hafi ekki fjármagn til framkvæmda alla leið
eins og er, verið sé að endurskoða vegaáætlun
og vonast til að aukið fjármagn verði veitt.
Guðmundur Hallvarðsson, formaður sam-
göngunefndar Alþingis, segir að ef hægt sé að
tryggja fjármagn til tvöföldunar Suðurlands-
vegar sé eðlilegt að það sé skoðað. „Mér finnst
að við eigum ekki að vera fastir í viðjum van-
ans í sambandi við vegagerð og ekkert að því
þó að við förum nýjar leiðir.“ Ef fjármagn fæst
hins vegar ekki tryggt segir Guðmundur brýnt
að hefjast handa við að leggja 2+1-veg í stað
þess að bíða eftir fjármagni. Tryggja verði ör-
yggi vegfarenda og hugsanlega sé hægt að
bæta við veginn síðar.
Enn er unnið að verkhönnun á Suðurlandsvegi og gert ráð fyrir að henni ljúki strax eftir áramót
Framkvæmdir
við 2+1-veg geta
hafist í vor
Stefnt að því að tvöfalda stofnleiðir út úr
Reykjavík en óvíst er með framkvæmdina
Í HNOTSKURN
»Tvöföldun Suðurlandsvegar fráRauðavatni að Selfossi er talin kosta
á milli fimm og sjö milljarða eftir því
hvaða útfærslur yrðu á tengingum.
»Endurbygging leiðarinnar með 2+1-aðferðinni með vírleiðurum myndi
hins vegar kosta um tvo milljarða.
»Með því að breyta 1+1-veg í 2+1minnkar tíðni allra slysa um 25–
30%. Með því að tvöfalda veginn minnk-
ar slysatíðni hins vegar um 40%.
Morgunblaðið/RAX
Hraðann eða lífið? Það sem af er ári hafa 27 látið lífið í umferðinni, átta fleiri en í fyrra. Þar
af eru sextán karlmenn og ellefu konur. Átta þeirra sem létust voru um eða undir tvítugu.
Morgunblaðið/Júlíus
Banaslys Fimm ára stúlka og karlmaður á þrítugsaldri létust í alvarlegu umferðarslysi á
Suðurlandsvegi á laugardag. Bílarnir lentu hvor framan á annan, við tilraun til framúraksturs.