Morgunblaðið - 05.12.2006, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006 17
Verð 9.990.- stgr.Verð 15.900.- stgr.
Roberts útvarp. 4 analog
stöðvaminni. FM/MB og LB útvarp.
Bassa og Diskant stillir. Stór
hljómmikill hátalari. Heyrnatólatengi.
Gengur einnig fyrir rafhlöðum.
Tangent Uno
Tangent Uno FM útvarp. Mjög vandað
útvarp með góðum hljómburð. 12 / 220
volt. Aux inngangur. Hátalara
útgangur. Rec út. Heyrnatólatengi.
Bassa útgangur. Til í svörtu, hvítu, eik,
valhnotu og háglans rauðu.
Verð nú 29.995.- stgr.
Verð áður: 34.995.-Verð áður; 24.995.-
Verð nú 29.995.- stgr.Verð nú 19.995.- stgr.
Verð nú 7.995.- stgr.
Verð áður 9.995.-
Verð áður 15.995.-
með MP3 afspilun
4x 50 wött. Útvarp með
stöðvaminni. Geislaspilari.
Aux in. 2x aux út
Verð nú 8.995.- stgr.
Lava bílgeislaspilari
Verð nú 14.995.- stgr.
Verð nú 38.995 stgr.
Edesa Þvottavél –
EDL1036
Þvottamagn 6 kg.
Rafeindastýrð. Val um
1000/800/600/400/200/1000/0
vindingu.
Stór hurð 30 cm.
Orkuflokkur A.
Verð áður 59.995.-
Karaoke diskar í miklu úrvali
Verð nú 9.995.- stgr.
Verð áður 19.995.-
Verð áður 19.995.-
Stórglæsilegt Wi-Fi Internet útvarp (Háglans
svart). Hér þarf ekkert loftnet, aðeins þráðlausa
nettengingu og þá er hægt að nálgast
þúsundir útvarpsstöðva útum allan heim.
Einnig er hægt að hlusta á tónlistina úr
tölvunni í gegnum það.
DVD / Karaoke spilari. 2x mic fylgir. 1 DVD Karaokediskur að
eigin vali. Scart. S-video. VGA. Scartsnúra fylgir.
Verð áður 34.995.-
60 stöðva minni í sendi.
Framlengir fjarstýringar.
Sendir Audio / video merki.
Þráðlaus loftnets sendir - Cablelink75
DAEWOO Örbylgjuofn – AGKOR69Y5
20 Lítra. 800w. 5 mismunand hitastillingar. 35 mín tímastillir.
White Knight
Barkaþurrkari –
CL447
Tekur 6 kg af þvotti.
Tvær hitastillingar.
Tímastilltur 120 mín max.
Hæg kæling síðustu 10 mín.
Krumpuvörn. Lógsigti. 2 metra
barki.
Íslenskar leiðbeiningar.
Pottasett með 40% afslætti
Verð 4.995.- stgr.
Verð 8.995.- stgr.
Rafmagns skrúfjárn með
díóðuljósi.
Verkfærataska með bitum
fylgir. Sveigjanlegt skaft.
Batterí NI-Cd (mAh ) 600.
Hleðslutími 3 - 5 tímar. 0,4 kg
JCBD-CSK4840
JCB 12V hleðsluborvél
– JCBD-CD12
12 volt Ni-Cd 1,3 Ah. 2 hraða 0-300 / 0-1000.
Togkraftur 11 Nm. 13 mm patróna.
Endurhleðsla 1 klst. þyngd 1,9 kg.
Taska fylgir.
Verð nú 29.995.- stgr.
Verð nú 22.995.- stgr.
LG hljómtækjasamstæða – LGLXW-250
Útvarp FM/AM 18 stöðva minni. Öflugur 2x20w magnari.
Segulbandstæki ofaná stæðunni. CD spilari sem les MP3.
Fjarstýring.
SCOTT ferða DVD spilar
með 7” LCD skjá – AGDPXi-78
Divx. 220/12 volta. USB tengi. Kortarauf fyrir SD / MS / MMC.
Hljóð inn og út.
AV inn og út. Coaxial út. Innbyggt batterí. Fjarstýring.
Roberts útvarp. 4 analog
stöðvaminni. FM/MB og LB útvarp.
Bassa og Diskant stillir. Stór
hljómmikill hátalari. Heyrnatólatengi.
Gengur einnig fyrir rafhlöðum.
Tangent Uno
Tangent Uno FM útvarp. Mjög vandað
útvarp með góðum hljómburð. 12 / 220
volt. Aux inngangur. Hátalara
útgangur. Rec út. Heyrnatólatengi.
Bassa útgangur. Til í svörtu, hvítu, eik,
valhnotu og háglans rauðu.
Roberts Radio – R9928
Verð nú 21.995 stgr.
Verð nú 99.900 stgr.
Verð áður 26.995.- Hö
nn
un
:d
es
ig
n.
is
Elfunk 28” sjónvarp – AG2840
2 x Scart. RCA. S-vhs. Útgangur fyrir heyrnatól. Fjarstýring.
Íslenskt textavarp. B: 74,5 cm - H: 47 cm - D: 48 cm
“28
sjónvörp
LG hljómtækjasamstæða - LGLFU-850
Verð áður 39.995.-
Verð frá
6.995.-
Verð áður 29.995.-
CD spilari sem spilar MP3, WMA. USB tengi. 2 x 80w.
4 EQ Mode(Flat/Rock/Pop/Classic).
Verð 15.900.- stgr. Verð 9.990.- stgr.
Gæða útvörp
Karaoke pakki
Mikið úrval af
SMÁtækjum
Internet útvarp
Yfir 5.000 stöðvar
LG Ryksugur
í miklu úrval i
Acoustic Energy Wi-Fi útvarp – AE17
Höfðaborg. AFP. | Heimurinn stendur
frammi fyrir sykursýkisfaraldri
sem hefur áhrif á líf hátt í 400 millj-
óna manna, á sama tíma og skortur
á hreyfingu og líkamsrækt og mikil
neysla ruslfæðis leiðir til þess að
einstaklingar þróa með sér sjúk-
dóminn fyrr á lífsleiðinni.
„Stærsta áskorunin er að upplýsa
heimsbyggðina um umfang farald-
ursins,“ sagði Pierre Lefebvre, frá-
farandi forseti alþjóða sykursýk-
issambandsins, IDF, á fjögurra
daga ráðstefnu þess í Höfðaborg.
Þá sendi sambandið frá sér yf-
irlýsingu þar sem sagði, að sjúk-
dómurinn hrjáði nú þegar 246
milljónir manna á heimsvísu.
„Fyrri tölur vanmátu umfang
vandans, á meðan svartsýnustu
spár voru nokkuð fyrir neðan töl-
una í dag. Ný gögn benda til, að
heildarfjöldi fólks sem lifir með
sjúkdómnum muni aukast verulega
og ná 380 milljónum innan 20 ára ef
ekkert verður að gert.“
Jafnframt kemur fram í yfirlýs-
ingunni, að sjúkdómurinn dragi 3,8
milljónir manna til dauða árlega,
sem sé svipað og af völdum eyðni.
Að sögn Lefebvre má rekja aukna
tíðni hans m.a. til offitu og breytts
lífstíls ungmenna á síðustu 20 ár-
um, þar sem þau hafi kosið tölvu-
spil í staðinn fyrir hreyfingu utan-
dyra.
Vara við
sykursýkis-
faraldri
Manila. AFP. |
Daniel Smith,
undirliðþjálfi í
bandaríska sjó-
hernum, var í
gær dæmdur af
filippískum rétti
í fjörutíu ára
fangelsi fyrir að
hafa nauðgað
ungri konu. Mál-
ið hefur vakið mikla reiði á Fil-
ippseyjum og fögnuðu stjórnvöld
úrskurðinum sem „sigri“ lýðræð-
isins og réttlætisins.
Þrír liðsmenn hersins til viðbót-
ar, sem voru ákærðir vegna atviks-
ins, voru hins vegar sýknaðir.
„Mér þótti leitt að þeir þrír
skyldu vera sýknaðir en er einnig
ánægð með að sá fjórði var dæmd-
ur,“ sagði hin 22 ára gamla Suzette
Nicolas, sem var nauðgað í sendi-
bíl eftir að hafa varið kvöldstund
með hinum ákærðu í nóvember í
fyrra.
Segist saklaus af ákærum
Smith fullyrti hins vegar fyrir
rétti að hann hefði haft mök með
Nicolas með hennar vilja og hefur
lögfræðingur hans lýst því yfir að
dómnum verði áfrýjað.
40 ár fyrir
nauðgun
Daniel Smith
♦♦♦
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
MARGIR hafa gert sér vonir um að
lýðræðisumbætur yrðu gerðar í ríki
Muammars Gaddafis Líbýuleiðtoga
eftir að hann ákvað að koma til móts
við vesturveldin 2003 og hætta til-
raunum sínum til að smíða kjarn-
orkuvopn. Svo er þó ekki raunin og
segja sérfræðingar í málefnum Líb-
ýu að um sé að kenna baráttu í innsta
hring valdamanna. Sonur Gaddafis,
Seif al-Islam, er sagður vilja umbæt-
ur en varaforseti þingsins, Ahmed
Ibrahim, berst með oddi og egg gegn
tilslökunum.
Gagnrýnt er að Vesturveldin hiki
nú við að gagnrýna stjórnarfarið í
landi Gaddafis vegna ánægjunnar
með að hann skuli hafa söðlað um og
ákveðið að eiga samstarf við þau um
baráttu gegn hryðjuverkum og vilji
auk þess samstarf í olíuiðnaði.
Mannréttindasamtökin Human
Rights Watch í New York kröfðust
þess í yfirlýsingu í gær að stjórn-
arandstöðuleiðtoganum Idrees Mo-
hammed Boufayed, 49 ára gömlum
lækni, yrði þegar í stað sleppt úr
haldi í Líbýu. Hann var kallaður á
fund öryggislögreglunnar í höfuð-
borginni Trípólí 5. nóvember og hef-
ur ekkert heyrst frá honum síðan.
Boufayed kom til landsins í septem-
ber eftir 16 ára útlegð í Sviss og
hugðist efla nýjan flokk, Þjóðarsam-
tök umbótasinna, sem hann hafði
stofnað fyrir 18 mánuðum. Er talið
að hann hafi nú verið fluttur á geð-
sjúkrahús en andleg heilsa hans mun
hafa verið slæm í varðhaldinu.
„Ég tel að Idrees Mohammed
Boufayed sé enn eitt fórnarlamb
baráttunnar í Líbýu milli þeirra sem
vilja lýðræðisumbætur og hinna sem
vilja að stjórnarfarið verði óbreytt,“
sagði Suleiman Bouchuiguir, sem
býr í Sviss og er leiðtogi mannrétt-
indasamtaka Líbýu. „En allir Líbýu-
menn eru í varðhaldi, það eina sem
breytist er stærð fangelsisins. Menn
eru alltaf gíslar hópsins sem ræður
og réttlausir.“
Áður en Bandaríkin tóku á ný upp
full stjórnmálatengsl við Líbýu í maí
á þessu ári hafði áðurnefndur Ahm-
ed Ibrahim fordæmt Bandaríkin og
kallað þau „ríki andstyggðarinn-
ar … sem aðeins á skilið bölbænir“.
Gerði hann það þegar minnst var
loftárásar sem Bandaríkjamenn
gerðu á landið fyrir tveim áratugum.
Saad Djebbar, aðstoðaryfirmaður
deildar Norður-Afríkumála við Cam-
bridge-háskóla, segir að myndast
hafi spillt yfirstétt fyrrverandi bylt-
ingarmanna sem vilji engu breyta.
„Seif al-Islam er ekki að reyna að
steypa stjórninni ofan frá eða breyta
henni heldur er hann á móti ýmsu í
fari hennar, þ.á m. spillingu, skrif-
ræði, lélegum vinnubrögðum … og
segir að tími sé kominn til að sækja
fram og láta ráðamenn útskýra gerð-
ir sínar í einhverjum mæli,“ segir
Djebbar.
„Allir Líbýumenn
eru í varðhaldi“
Reuters
Leiðtogi Muammar Gaddafi í Líbýu.