Morgunblaðið - 06.12.2006, Síða 11
Morgunblaðið/G. Rúnar
Þemakeppni Við verðlaunaafhendingu eru, frá vinstri, Halldór Már Sæ-
mundsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs EJS, sigurvegarinn Árni
Torfason og Jón Agnar Ólason á markaðsdeild Morgunblaðsins.
NÝVERIÐ efndi mbl.is til hönnunarsamkeppni um flottasta þemað fyrir
síður á bloggsvæðinu blog.is.
Fjölmargar tillögur bárust, en verðlaunin fyrir besta þemað voru Dell
Latitude D520-fartölva frá EJS.
Sérstök dómnefnd mbl.is valdi svo besta þemað, en höfundur þess er
Árni Torfason. Hans útlitsþema ásamt innsendingunum sem völdust í 2. og
3. sæti standa notendum blog.is til boða sem útlit frá og með deginum í dag.
Fleiri þemu sem bárust munu svo bætast við á næstunni.
Úrslit í þemakeppni blog.is
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 11
FRÉTTIR
ALLAR líkur eru á því að kona verði í
fjórða sæti á lista Samfylkingarinnar í
Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosn-
ingarnar í vor, að sögn formanns kjör-
dæmisráðs. Ragnheiður Hergeirs-
dóttir, sem vermdi sætið, hefur
tilkynnt að hún muni ekki taka það,
en hún verður bæjarstjóri nýs bæj-
arstjórnarmeirihluta í Árborg.
Prófkjör Samfylkingarinnar í Suð-
urkjördæmi fór fram 6. nóvember, en
stjórn kjördæmisráðs staðfesti úrslit-
in 24. nóvember. Í tveimur efstu sæt-
unum eru alþingismennirnir Björgvin
G. Sigurðsson og Lúðvík Bergvins-
son, í þriðja sæti er Róbert Marshall
og í fjórða sætinu var Ragnheiður
Hergeirsdóttir. Guðrún Erlingsdóttir
er í fimmta sæti listans. Hún lenti í
sjötta sæti í prófkjörinu, á eftir Jóni
Gunnarssyni alþingismanni, „en
vegna reglna um kynjakvóta datt
hann út og Guðrún kom inn“, segir
Kristinn.
Hann segir tvennt hægt að gera í
þeirri stöðu sem upp sé komin. „Ann-
ars vegar er hægt að leita út fyrir rað-
ir þeirra sem voru í prófkjörinu og
hins vegar er verið að skoða þá sem
voru í prófkjörinu. Þá er spurningin
sú hvort einhver af þeim sem lentu
aftar myndi færast upp og þá hver.
Svo er þetta líka spurning um hvort
Guðrún Erlingsdóttir færist upp í
fjórða sætið eða hvort þangað komi
einhver önnur,“ segir Kristinn.
Hlutfall kynjanna sem jafnast
Hann segir samþykktir flokksins í
raun ekki gera ráð fyrir þeirri stöðu
sem komin sé upp eftir að Ragnheið-
ur hætti við að taka fjórða sætið á list-
anum. Uppstillingarnefnd muni vinna
að því næstu daga að ákveða hver taki
sætið en nefndin hafi í störfum sínum
reynt að hafa hlut kvenna og karla
sem jafnastan. Í lögum Samfylking-
arinnar sé kveðið á um að hlutfall
kvenna á framboðslistum eigi að vera
að minnsta kosti 40%.
Kristinn segir að á sunnudag fari
fram kjördæmisfundur í Reykja-
nesbæ. „Þar stefnum við að því að
leggja fram framboðslista fyrir kjör-
dæmisþingið sem tekur síðan endan-
lega afstöðu til listans.“
Líkur á að kona
verði í 4. sætinu
FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis-
flokksins í Suðvesturkjördæmi var
ákveðinn á fundi í Valhöll sl. laug-
ardag. Listinn verður lagður fyrir
miðstjórn flokksins en staðfestingu
miðstjórnar þarf á framboðslista,
svo að hann verði borinn fram í nafni
flokksins.
Listinn er sem hér segir:
1. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
41 árs, menntamálaráðherra,
Hafnarfirði.
2. Bjarni Benediktsson, 36 ára, al-
þingismaður, Garðabæ.
3. Ármann Kr. Ólafsson, 40 ára,
bæjarfulltrúi, Kópavogi.
4. Jón Gunnarsson, 50 ára, fram-
kvæmdastjóri Landsbjargar,
Kópavogi.
5. Ragnheiður Elín Árnadóttir, 39
ára, aðstoðarmaður ráðherra,
Garðabæ.
6. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, 57
ára, bæjarstjóri, Mosfellsbæ.
7. Rósa Guðbjartsdóttir, 41 árs,
bæjarfulltrúi, Hafnarfirði.
8. Bryndís Haraldsdóttir, 29 ára,
varaþingmaður, Mosfellsbæ.
9. Pétur Árni Jónsson, 28 ára, ráð-
gjafi, Seltjarnarnesi.
10. Sigríður Rósa Magnúsdóttir, 45
ára, bæjarfulltrúi, Álftanesi.
11. Sjöfn Þórðardóttir, 34 ára, verk-
efnastjóri, Seltjarnarnesi.
12. Þorsteinn Þorsteinsson, 62 ára,
skólameistari, Garðabæ.
13. Örn Tryggvi Johnsen, 41 árs,
vélaverkfræðingur, Hafnarfirði.
14. Guðni Stefánsson, 68 ára, stál-
virkjameistari, Kópavogi.
15. Gísli Gíslason, 42 ára, lífeðlis-
fræðingur, Álftanesi.
16. Stefanía Magnúsdóttir, 64 ára,
varaformaður VR, Garðabæ.
17. Valgeir Guðjónsson, 54 ára, tón-
listarmaður, Seltjarnarnesi.
18. Hilmar Stefánsson, 26 ára, nudd-
ari, Mosfellsbæ.
19. Elín Ósk Óskarsdóttir, 45 ára,
óperusöngkona, Hafnarfirði.
20. Guðrún Edda Haraldsdóttir, 29
ára, markaðsstjóri, Seltjarn-
arnesi.
21. Almar Grímsson, 64 ára, bæj-
arfulltrúi, Hafnarfirði.
22. Sigurrós Þorgrímsdóttir, 59 ára,
alþingismaður og bæjarfulltrúi,
Kópavogi.
23. Gunnar Ingi Birgisson, 58 ára,
bæjarstjóri, Kópavogi.
24. Sigríður Anna Þórðardóttir, 60
ára, alþingismaður og fyrrver-
andi umhverfisráðherra, Mos-
fellsbæ.
Framboðslisti í Krag-
anum samþykktur