Morgunblaðið - 06.12.2006, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 21
SUÐURNES
„MÉR fannst byrjunin ganga mjög vel og
dvölin lagðist vel í mig. Það koma síðan dagar
þegar allt gengur á afturfótunum og maður
verður þungur í skapinu. Undir þeim kring-
umstæðum er gott að eiga góðan vin eins og
Karl,“ segir Vilhjálmur Þór Jónsson, 22 ára
Keflvíkingur sem stundar nám við íþrótta-
lýðháskólann í Sönderborg í Danmörku.
Vilhjálmur Þór var á starfsbraut í Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja og vann um tíma á
leikskóla. Hann hafði um tíma reynt að komast
í skóla sem hentar honum, meðal annars til
Bandaríkjanna. Vegna andlegrar fötlunar
sinnar kom Vilhjálmur alls staðar að lokuðum
dyrum, þar til móðir hans, Brynja Sigfúsdótt-
ir, komst í samband við Ungmennafélag Ís-
lands sem hefur samstarfssamninga við
íþróttalýðháskóla í Danmörku. Við athugun
UMFÍ kom í ljós að íþróttalýðháskólinn í
Sönderborg var reiðubúinn að taka við Vil-
hjálmi ef liðveitandi fengist með honum. Karl
F. Jörgen Jóhannsson, tvítugur Norðfirð-
ingur, bauð sig fram í það hlutverk og þeir fé-
lagar hafa stundað námið í Sönderborg í vetur
og gengur vel. Sagt er frá dvöl þeirra í grein
Jóns Kristjáns Sigurðssonar, ritstjóra í Skin-
faxa, tímariti UMFÍ, sem kemur út á næstunni
og birt viðtöl við Vilhjálm og móður hans, Karl
og fleiri sem að málinu koma. Byggt er á
greininni í umfjöllun þessari.
Gott að setjast niður með vini
Vilhjálmur Þór hefur stundað íþróttir og
tónlistarnám og hefur það verið honum gott
veganesti út í lífið, að sögn móður hans. Hann
hefur meðal annars verið í kringum lið meist-
araflokks Keflvíkinga í körfubolta og sá um að
leikmenn hefðu nóg vatn að drekka.
Vilhjálmur segist viss um að hann hafi mjög
gott af dvölinni í Sönderborg og hún hafi gert
hann að sterkari einstaklingi. Flest hafi leikið í
lyndi en þegar hann missi fótanna verði allt
ómögulegt og þá sé gott að setjast niður með
Karli og ræða málin. „Þegar mér líður aftur á
móti vel er gaman að lifa,“ segir Vilhálmur
Þór.
Hann segist sjá lífið í öðru ljósi. Gott sé að
bæta öðru tungumáli í safnið, þótt danskan
hafi verið erfið. Hann segist verja öllum frí-
stundum í íþróttasalnum og nefnir að hann
hafi einnig fundið sig sérstaklega vel í mynd-
listinni.
Brynja Sigfúsdóttir, móðir Vilhjálms, segir
áframhaldandi skólagöngu Vilhjálms óljósa.
Það hafi verið tilraun að senda hann í íþrótta-
lýðháskólann en hún er viss um að námið eigi
eftir að nýtast honum vel.
Víkkar sjóndeildarhringinn
Karl Jörgen Jóhannsson segir að með því að
fara með Vilhjálmi til Sönderborg hafi sér gef-
ist kjörið tækifæri til að víkka sjóndeild-
arhringinn, þroskast og taka meiri ábyrgð en
hann hafi gert til þessa. „Þetta hefur tvímæla-
laust nú þegar þroskað mig og ég ætla að vona
að veran í Danmörku eigi eftir að nýtast mér í
framtíðinni,“ segir Karl.
Hann segir að samstarfið við Vilhjálm hafi
oftast gengið vel. „Eins og í öllum hjónabönd-
um slettist stundum upp á vinskapinn en okk-
ur Vilhjálmi hefur tekist að leysa þau vanda-
mál sem upp hafa komið hverju sinni.“ Segir
Karl að Vilhjálmur sé glaðsinna og auðvelt að
kynnast honum. Þá sé hann mikill áhugamað-
ur um íþróttir og hafsjór af fróðleik um marg-
ar greinar.
Karl er sjálfur mikill áhugamaður um
íþróttir og hefur keppt á skíðum og leikið
knattspyrnu með liði Fjarðabyggðar í knatt-
spyrnu, auk þess sem hann hefur æft badmin-
ton og frjálsar íþróttir og lagt stund á kajak-
róður og fjallgöngur. Hann hyggst leika með
knattspyrnuliði í Sönderborg eftir áramótin til
að koma sér í góða æfingu fyrir sumarið.
Um 40 Íslendingar stunda nám í vetur í
þeim sex íþróttalýðháskólum í Danmörku sem
UMFÍ hefur samið við. Skólarnir eru vítt og
breitt um Danmörku og hefur hver sína sér-
stöðu. Hægt er að stunda nám í skólunum í
fjóra, fimm eða níu mánuði og í þeim er hægt
að ná sér í þjálfararéttindi í flestum íþrótta-
greinum. Í Skinfaxagreininni kemur fram að
hægt er að sækja um styrk til UMFÍ auk þess
sem skólarnir veita afslátt af skólagjöldum.
Gott að eiga vin þegar illa gengur
Ljósmynd/Jón Kristján Sigurðsson
Íþróttamenn Vilhjálmur Þór Jónsson og Karl Jörgen Jóhannsson eru mikið í íþróttasalnum
eftir skóla. Vilhjálmur er sérstakur körfuboltaáhugamaður en Karl meira fyrir fótboltann.
Í HNOTSKURN
»Yfir 40 Íslendingar stunda nám í vet-ur í þeim sex dönsku íþróttalýðhá-
skólum sem UMFÍ starfar með.
»Vilhjálmur Þór Jónsson er fyrstiandlega fatlaði einstaklingurinn sem
fær skólavist í Sönderborg og verkefnið
er tilraun hjá skólayfirvöldum.
»Áður hafði hann alls staðar komið aðlokuðum dyrum.
Vilhjálmur Þór Jónsson og
Karl Jörgen Jóhannsson
eru í íþróttalýðháskóla í
Sönderborg í Danmörku
LANDIÐ
Borgarfjörður | Myndarleg húsa-
kynni eru á Mið-Fossum í Andakíl
sem formlega voru tekin í notkun
um síðustu helgi. Þarna eru um
2.700 fm² undir þaki, reið-
skemma, hesthús fyrir um 80
hross og vélageymsla. Og utan-
dyra er fullkominn skeiðvöllur.
Allar byggingar og umhverfi
þeirra er einstaklega snyrtilegt
hjá eigendum Mið-Fossa, Ár-
manni Ármannssyni og Láru
Friðbertsdóttur.
Við vígsluathöfnina, sem á
sjötta hundrað manns sótti, stað-
festi landbúnaðarráðherra, Guðni
Ágústsson, samning Landbún-
aðarháskóla Íslands á Hvanneyri
og eigendanna um full afnot skól-
ans af mannvirkjum endurgjalds-
laust næstu 12 ár. Hestamanna-
félögin Faxi í Borgarfirði og
Grani á Hvanneyri fá sömu kjör.
Myndarleg uppbygging
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Ölfus | Mikið var um að vera á hesta-
og vörusýningunni Skeifnaspretti
2006 sem haldin var í Ölfushöllinni,
skammt austan Hveragerðis, um
helgina.
Góð hestasýning var á Skeifna-
spretti og auk þess mikil dagskrá
fyrir áhugafólk um hestamennsku
með sýningum og fyrirlestrum. Þá
var kynning rúmlega tuttugu fyrir-
tækja á vörum og þjónustu tilheyr-
andi hestamennskunni.
Í Ölfushöllinni var sýning á akrýl-
myndum Þórkötlu Elínar Sigurðar-
dóttur sem er grafískur hönnuður og
hefur málað hestamyndir frá barn-
æsku.
Margir gestir voru á sýningunni
og þangað komu líka ferfættir gestir.
Meðal þeirra voru mánaðargömlu
folöldin Hans og Gréta frá Feti. Líf
þeirra er kraftaverki líkast frá því
þau misstu móður sína skömmu eftir
fæðingu. Meðal annarra gesta má
nefna Eldjárn frá Tjaldhólum sem
kynntur er sem hæst dæmdi klár-
hestur í heimi og Stáli frá Kjarri sem
kynntur var sem hæst dæmdi stóð-
hestur í heimi.
Sýning á
hestum
og vörum
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Hestamyndir Þórkatla Elín Sigurðardóttir hefur málað hestamyndir frá
því hún var barn. Hún sýndi akrýlmyndir í Ölfushöllinni.
JÓLATILBOÐ
FÓLK EHF
Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7 ::: 103 Reykjavík
Sími 588 4422 ::: www.folk-ehf.is
TÍSKA GÆÐI BETRA VERÐ