Morgunblaðið - 17.12.2006, Síða 20
20 SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Erlent | Valdarán hafa oft sett svip sinn á stjórnskipan mála á Fídjí-eyjum Tíska | Nærbuxnaleysi poppprinsess-
unnar Britney Spears hefur valdið miklu fjaðrafoki í bandarískum fjölmiðlum undanfarið. Þjóðarsálin | Geirfuglar
komust í tísku á Íslandi 1971 þegar þjóðin lagðist á eitt til að kaupa uppstoppað eintak af fuglinum.
VIKUSPEGILL »
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
S
érfróðir segja litlar líkur á öðru en
að valdarán hersins á Fídjí-eyjum
hafi skelfilegar afleiðingar fyrir
íbúana þar og framþróun sam-
félagsins. Valdarán er vitanlega
ekkert grín en því verður vart á móti mælt
að það sem framið var á Fídjí-eyjum í byrj-
un mánaðarins er með þeim undarlegri sem
sagan greinir frá; valdaránið var boðað með
margra mánaða fyrirvara, því var seinkað
vegna rúgbí-leiks og bílaleigubílar voru not-
aðir við framkvæmd þess.
Valdaræningjarnir hafa þegar kallað yfir
sig einangrun á alþjóðavettvangi þar sem
Fídjí-eyjum hefur verið vikið úr Breska
samveldinu. Þetta er raunar í þriðja skiptið
sem Fídjí-eyjar eru reknar úr þeim fé-
lagsskap enda hafa valdarán verið iðkuð þar
af umtalsverðu kappi á undanliðnum árum.
Eftir því sem næst verður komist hefur
stjórnvöldum fjórum sinnum verið komið frá
á síðustu 20 árum eða svo.
Þessi rás atburða hefur haft skelfilegar
afleiðingar einkum fyrir hagkerfið sem mjög
er háð ferðamannaþjónustu. Fídjí saman-
stendur af um 800 eldfjalla- og kóraleyjum í
Suður-Kyrrahafi austur af Ástralíu. Þar búa
um 850.000 manns einkum á eyjunum Viti
Levu og Vanua Levu. Þjóðin skiptist nokk-
urn veginn til helminga í innfædda Fídjí-
menn og Fídjí-menn af indverskum ættum,
afkomendur verkamanna sem á sínum tíma
voru sóttir til eyjanna. Samskipti á milli
þessara hópa eru svo lítil að undrum sætir
en félagsleg spenna hefur löngum sett mark
sitt á samfélagið. Valdarán á eyjunum hafa
oftar en ekki tengst þessari skipan mála.
Valdarán hersins nú í byrjun mánaðarins
var á hinn bóginn framið á öðrum for-
sendum þótt tæpast hafi það komið á óvart.
Lofsunginn fyrir herlögin
Fyrir valdaræningjunum fer Voreqe Bai-
nimarama, yfirmaður hersins, sem þekktur
er undir nafninu „Frank“. Hann hefur
nokkra reynslu af þessum vettvangi þar sem
hann setti herlög í landinu árið 2000 eftir að
algjör upplausn hafði ríkt í nokkra daga í
kjölfar valdaráns kaupsýslumannsins
George Speight. Hann fór fyrir flokki inn-
fæddra þjóðernissinna er steypti af stóli
Mahendra Chauty, sem tekið hafði við emb-
ætti forsætisráðherra, fyrstur Fídji-manna
af indverskum ættum.
Frank, sem þá var nýtekinn við sem yf-
irmaður hersins, varð á augabragði þjóð-
hetja og lofsunginn fyrir að hafa bjargað
sjálfu lýðræðinu á Fídjí-eyjum. Frank fór
fyrir bráðabirgðastjórn þar til forseti hafði
verið valinn og sá síðan til þess að Laisenia
Qarase var skipaður forsætisráðherra.
Flokkur Qarase fór síðan með sigur af hólmi
í kosningum árið 2001 og aftur nú í ár.
Frank hafði á undanliðnum mánuðum
ítrekað varað Qarase við því að hann yrði
sviptur völdum færi hann ekki að kröfum
herforingjans. Ríkisstjórnin hugðist breyta
lögum landsins í því skyni að tryggja
George Speight, sem dæmdur var í lífstíð-
arfangelsi, og öðrum leiðtogum valdaránsins
árið 2000 uppgjöf saka. Sakaruppgjöfin
kynni einnig að hafa náð til hermanna sem
risu upp gegn Frank sex mánuðum eftir
valdaránið árið 2000 og hugðust drepa hann.
Herforinginn tjáði því forsætisráðherranum
að lagabreyting í þessa veru yrði aldrei lið-
in.
Spennan í samskiptum þessara tveggja
manna jókst til muna í októbermánuði þegar
Qarase forsætisráðherra reyndi að setja
Bainimarama af er hann var á ferð í útlönd-
um. Maðurinn sem tilnefndur hafði verið
herstjóri neitaði á hinn bóginn að taka við
embættinu og lýsi yfir hollustu við Frank.
Næstu vikurnar magnaðist orðrómur
mjög um að valdarán væri yfirvofandi.
Frank, sem er annálaður fyrir yfirlýsinga-
gleði og rómaður herkill, sagði raunar ítrek-
að að til blóðbaðs gæti komið yrði kröfum
hans hafnað. Qarase forsætisráðherra átti
síðan fund með herforingjanum sem um
margt var sérkennilegur ekki síst sökum
þess að hann fór fram í skírnarveislu barna-
barns Franks á Nýja-Sjálandi. Virtist þá
sem forsætisráðherrann hefði ákveðið að
verða við flestum kröfum herforingjans.
Þetta nægði Frank ekki. Hann skipaði
hermönnum að hefja skotæfingar í höfuð-
borginni, Suva, og tilkynnti forsætisráð-
herranum að hann myndi ræna völdum hefði
ekki verið fallist á allar kröfur hans 1. des-
ember.
Sögulegur rúgbí-leikur
Fresturinn rann út en ekkert gerðist. Boð
bárust ekki frá Frank og hermenn héldu sig
til hlés. Leit var hafin og fannst Frank loks
á rúgbí-leik þar sem mættust lið hersins og
lögreglunnar. Aðspurður taldi hann ekkert
liggja á að ræna völdum. „Ég stend við kröf-
ur mínar og það sama gildir um frestinn
sem gefinn var. Ég mun greina frá afstöðu
minni eftir rúgbí-leikinn,“ sagði herforing-
inn. Rúmum þremur sólarhringum síðar
skýrði Frank síðan frá því að hann hefði
tekið sér forsetavald. Fyrsta verk hans var
að leysa ríkisstjórnina frá völdum. Hélt
hann því kinnroðalaust fram að þetta emb-
ættisverk hans væri í samræmi við stjórn-
arskrá landsins. Hermenn umkringdu skrif-
stofu og heimili forsætisráðherrans.
Á sama tíma tóku hermenn að aka um
höfuðborgina og fóru sumir þeirra um á
rækilega merktum bílaleigubílum. Vega-
tálmum var komið upp en bílaflotinn vakti
ekki minni athygli. Ein alþjóðleg bílaleiga
greip þá til þess ráðs að auglýsa sérstak-
lega að ekki væri spurt hvaða not menn
hygðust hafa af bifreiðunum, eina krafan
væri sú að gjaldið fyrir þær væri innt af
hendi.
Rúmum sólahring síðar skýrði Frank frá
því að valdaránið væri afstaðið. Til allrar
lukku kom ekki til blóðsúthellinga en hald
manna er að betur auglýst valdarán hafi
aldrei verið framið í sögunni.
Ráðherraembætti auglýst
Frank hefur nú skipað Jona Senilagakali,
77 ára gamlan fyrrum herlækni, forsætis-
ráðherra til bráðabirgða. Sú aðgerð var
einnig um margt sérkennileg ekki síst sök-
um þess að forsætisráðherrann vissi ekki af
því að hann ætti þessa upphefð í vændum
fyrr en Frank greindi frá ákvörðun sinni.
„Ég er afar undrandi, afar undrandi,“ var
það fyrsta sem heimsbyggðin heyrði frá
nýja forsætisráðherranum er hann var innt-
ur eftir því í viðtali hvernig starfið legðist í
hann. Fyrsta verk Senilagakali, sem aldrei
hefur áður komið nærri stjórnmálum, var
síðan að lýsa yfir því að valdaránið hefði
verið ólöglegt þvert á það sem Frank hafði
haldið fram.
Eftir að hafa tryggt völd sín hófst Frank
handa við að reka úr starfi nokkra helstu
stjórnendur lögreglunnar og embættismenn
sem sýnt höfðu mótþróa. Herstjórinn segir
að spilling og rasismi hafi einkennt alla
framgöngu stjórnar Qarase forsætisráð-
herra.
Mikla athygli vakti síðan sú ákvörðun for-
setans að auglýsa í dagblöðum lausar stöður
ráðherra í bráðabirgðaríkisstjórn Fídjí-eyja.
Í auglýsingunni er tekið fram að umsækj-
endur megi ekki hafa verið lýstir gjaldþrota
og krafist er minnst tíu ára starfsreynslu
eða háskólamenntunar. „Umsækjendur eru
vinsamlegast beðnir um að tiltaka á hvaða
sviði stjórnsýslunnar þeir gætu hugsað sér
að starfa,“segir þar og. Þegar síðast fréttist
höfðu um 300 umsóknir borist.
Valdaránið hefur verið fordæmt í ná-
grannaríkjunum og hafa stjórnvöld í Ástr-
alíu t.a.m. lýst yfir því að „hrokafullur ein-
ræðisherra“ hafi tekið völdin í friðsömu
lýðræðisríki í sínar hendur. Alexander Dow-
ner, utanríkisráðherra Ástralíu, bætti því
við að herinn beitti nú „skelfilegum aðferð-
um“ til að þagga niður í andstæðingum
stjórnarinnar nýju. Þannig væri vitað að
fólk sem ritað hefði gagnrýnin bréf og feng-
ið þau birt í dagblöðum sætti nú ógnunum.
Áfall fyrir hagkerfið
Hagvöxtur á Fídjí-eyjum hefur mælst um
3,5% á ári. Heldur hefur hægt á honum að
undanförnu. Rúmur helmingur þjóðartekna
á rætur að rekja til ferðamannaþjónustu.
Frá því í septembermánuði hefur ferða-
mönnum fækkað mjög miðað við meðalár og
er sú þróun rakin til valdaránsins sem flest-
um mátti ljóst vera að væri yfirvofandi. Hið
sama gerðist eftir valdaránið árið 2000. Þá
tók fimm ár að rétta hagkerfið við á ný. Tvö
valdarán árið 1987 höfðu áþekkar afleið-
ingar í för með sér.
Stjórnvöld höfðu kynnt áætlun um efna-
hagsumbætur á árunum 2007 til 2011 en
víst þykir að ekkert verði af þeim. Segja
sérfróðir um málefni Fídjí-eyja að valdarán
Franks sé að sönnu um flest sérkennilegt
en ljóst sé að hagkerfið verði enn á ný fyrir
afar þungu höggi. Áhrifamiklir ættbálka-
höfðingjar innfæddra Fídjí-búa lýstu yfir
því á föstudag að valdaránið væri óþolandi
með öllu og boðuðu þeir að hafnar yrðu í
vikunni viðræður við Laisenia Qarase. Verði
af þeim fundi mun spenna aukast mjög á
eyjunum.
Valdarán að hætti „Franks“
Valdarán hersins á Fídjí-eyjum þykir sæta tíðindum ekki síst sökum þess að það var
afar vel auglýst þótt nauðsynlegt hafi reynst að fresta því um nokkra daga sökum rúgbí-leiks
Reuters
Herstjórinn Frank Voreqe Bainimarama, herstjóri á Fídjí-eyjum, er 52 ára gamall. Hann telur
herinn nauðsynlega kjölfestu í stjórn landsins en er vændur um oflátungshátt og lýðskrum.
ERLENT »
»Næstu vikurnar magn-
aðist orðrómur mjög um
að valdarán væri yfirvofandi.
Frank, sem er annálaður
fyrir yfirlýsingagleði og
rómaður herkill, sagði raunar
ítrekað að til blóðbaðs gæti
komið. Qarase forsætisráð-
herra átti síðan fund með her-
foringjanum sem um margt
var sérkennilegur ekki síst
sökum þess að hann fór fram
í skírnarveislu barnabarns
Franks á Nýja-Sjálandi. Frjálslegur Laisenia Qarase, hinn nýlega af-
setti forsætisráðherra, fær sér kava ásamt
stuðningsmönnum.
Reuters
Óreyndur Jona Senilagakali sver embætiseið
forsætisráðherra Fídjí-eyja. Senilagakali,
sem er fyrrum herlæknir, hefur enga reynslu
af stjórnmálum.