Morgunblaðið - 17.12.2006, Qupperneq 27
hönnun
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2006 27
„Þetta var hálfgerður heimilisiðn-
aður, sem þróaðist af nauðsyn og
varð smám saman að hönnunar-
og framleiðslufyrirtæki,“ segir
hönnuðurinn David Sandahl um
tilurð Inoodesign, fyrirtækis hans
í Hässleholm í Suður-Svíþjóð. Sú
nauðsyn, sem hann vísar til, var
ör fjölgun í fjölskyldunni, en hann
og kona hans, Sigríður Heim-
isdóttir hönnuður, eignuðust þrjú
börn á skömmum tíma og þeim
umskiptum fylgdi breytt tilhögun
á heimilinu.
Sigríður starfar sem hönnuður
hjá Ikea, en fyrir kemur að þau
hjónin leggi á ráðin um hönnun
sem viðkemur þeirra nánasta um-
hverfi. Hilluna, sem er úr 2 mm
stáli og þolir vel hnjask og átroðn-
ing, hannaði David upphaflega til
þess að bækur barnanna væru
þeim aðgengilegar og ekki að
flækjast út um alla íbúð. „Hillan
er 120 sm, tekur dágóðan fjölda
bóka og er þannig útbúin að börn-
in sjá greinilega framan á bæk-
urnar og eiga því auðvelt með að
velja sér bók þegar lestrarþörfin
kemur yfir þau,“ segir David og
jafnframt að mikilvægt sé að hafa
hilluna í þægilegri hæð fyrir
krakkana.
Hann bendir á að hillan passi
ekki síður vel í eldhúsið og bið-
stofu hjá tannlækni svo dæmi séu
tekin. „Markmið Inoodesign er að
framleiða skemmtileg, hagnýt og
vel hönnuð húsgögn og fylgihluti,
sem endast lengi og auðvelda fólki
lífið. Langtímamarkmiðið er að fá
unga, íslenska hönnuði til að
hanna hluti og húsgögn, sem ég
myndi síðan annast framleiðslu og
dreifingu á,“ segir David.
Auk barnabókahillunnar, sem
fæst í Epal, hefur hann hannað
spagettímæli, sem verið hefur á
boðstólum í Kokku „og selst mjög
vel“, að hans sögn.
Hilla fyrir litla
lestrarhesta
Barnabókahilla Mikilvægt er að hillan sé í þægilegri hæð fyrir krakkana.
Mælir Spaghettímælirinn frá
Inoodesign er vinsæll.
Gjöf til framtí›ar
Legg›u gó›an grunn a› framtí› barnsins
me› Framtí›arbók KB banka.
Me› 5.000 kr. gjafabréfi fær n‡r Framtí›arbókareigandi
2.500 kr. mótframlag frá bankanum.
A› auki fylgir glæsilegt flísteppi öllum 5.000 kr. gjafabréfum
til n‡rra jafnt sem eldri Framtí›arbókareigenda.
fiú getur gengi› frá kaupum á Framtí›arbók í síma 444 7000
e›a í næsta útibúi KB banka.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
4
8
0
6
ÞAKRENNUKERFI
á öll hús – allsstaðar
BLIKKÁS –
Smiðjuvegi 74
Sími 515 8700
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík