Morgunblaðið - 17.12.2006, Side 32
tónlist
32 SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Sparidagar eldri borgara
Hótel Örk
Hefjast 18. febrúar 2007
- Fjölbreytt dagskrá alla daga
- Þriggja rétta kvöldverður öll kvöld
- Gunnar Þorláksson skemmtanastjóri
- Hádegisverður innifalinn (nýtt!)
Verð 29.800,- krónur á mann í tvíbýli
(5 nætur með kvöldverði og skemmtidagskrá)
Skemmtileg jólagjöf!
Gjafabréf á Sparidaga eldri borgara fást á Hótel Örk og
Hótel Cabin, Borgartúni 32 Reykjavík.
Nánari upplýsingar
og pantanir í síma
483 4700
F
undarstaður okkar þre-
menninga er Hvíta-
sunnukirkjan Fíladelfía
við Hátún, þar sem
Óskar starfar. Hann er
stjórnandi Gospelkórs Reykjavíkur
og hefur sem slíkur staðið fyrir
margþættri starfssemi undanfarin
ár. Óskar er einnig með aðstöðu til
að vinna tónlist í kirkjunni og hún
var og vettvangur fyrir æfingar
hjá Sálinni og kórnum, þegar
nefndir tónleikar voru undirbúnir.
„Þessi Sálartónlist (með tilvísun
í hljómsveitina) hafði lengi verið
mér ofarlega í huga,“ útskýrir
Óskar, þegar þeir félagar eru
spurðir um aðdragandann.
„Hún passar mjög vel við gosp-
el, þráðurinn á milli er svo stuttur.
Lögin bjóða hreinlega upp á að
það sé unnið með þau svona. Ég
var búinn að vera með þetta í
hausnum í mörg ár, og kórinn hef-
ur sungið Sálarlög í brúðkaupum,
þá þessi rólegu, fallegu ástarlög.
En ég var síðan staddur á Höfn í
Hornafirði í nóvember í fyrra, og
var þar með gospelnámskeið. Þar
spunnust umræður um að það væri
nú gaman að prufa eitthvað nýtt.
Þá barst Sálin í tal. Sama kvöld
hringdi síminn og þá var það Jói
Hjöll (trymbill Sálarinnar) og var
hann staddur á Akureyri. Þá höfðu
þeir verið að ræða um sama hlut!
Hérna hefur yfirvaldið verið með í
för.“
Guðmundur Jónsson, gítarleik-
ari og aðallagahöfundur Sálarinn-
ar, setti sig síðar í samband við
Óskar og óðar var ákveðið að kýla
á verkefnið.
Næsta póstnúmer við
„Ég man eftir þessu,“ rifjar
Stefán upp. „Þegar við vorum á
Akureyri, þá vorum við að ræða
okkar á milli hvað væri nú sniðugt
að gera. Okkur langaði til að
kynna okkar tónlist eftir öðrum
leiðum en þeim hefðbundnu, þ.e.
að gefa út plötu, spila, gefa út
plötu o.s.frv. Við höfum starfað
með Sinfóníuhljómsveitinni, gerð-
um þennan söngleik og gáfum út
órafmagnaða plötu árið ’99. Við er-
um alltaf að leita leiða til þess að
hafa eitthvað til að hlakka til, hafa
eitthvert verkefni til að takast á
við.“
Stefán sá svo um að skipuleggja
tónleikahaldið, og Óskar fór í út-
setningar og naut aðstoðar eins
kórfélagans, Þóru Gísladóttur, í
fjórum lögum en hún syngur
ásamt Stefáni í laginu „Þú trúir
því“ sem er annað spánýrra laga á
plötunni. Guðmundur kom þá að
útsetningarvinnunni líka og hann
og Óskar köstuðu á milli sín hug-
myndum.
„Ég sá líka um að ritskoða laga-
valið,“ segir Óskar. „Við syngjum
ekki neitt sem við stöndum ekki
fyrir, þ.e. Gospelkórinn. En þessi
lög sem valin voru fjalla um ástina
og allt þetta góða í heiminum. En
við myndum ekki taka þátt í því að
Hin sanna sálartónlist
Í haust leiddu Sálin hans Jóns míns og Gospelkór
Reykjavíkur saman hesta sína í troðfullri Laugar-
dalshöll. Geisla- og mynddiskur með upptökum
frá tónleikunum er nú ein söluhæsta útgáfa þessara
jóla og verða síðbúnir útgáfutónleikar haldnir með
sömu liðsskipan og á sama stað 30. desember.
Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við Stefán Hilm-
arsson og Óskar Einarsson um tiltækið.
Stemmning Sálin og Gospelkór Reykjavíkur koma fram í troðfullri Laugardalshöll. Tónleikarnir eru nú komnir út á geisladiski.
Gjöfult samstarf Stefán Hilmarsson og Óskar Einarsson.
Morgunblaðið/Kristinn