Morgunblaðið - 17.12.2006, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2006 47
Eitt sinn hlustaði ég á erindi skipu-
lagsfræðings sem taldi það einkenni
íslenskrar ákvarðanatöku að hún færi
fram eftir skoðanaskipti almennings
og stjórnmálamanna. Sérfræðingum á
viðkomandi sviði væri ýtt til hliðar og
ekki á þá hlustað. Þetta kemur upp í
hugann nú þegar rætt er um vegabæt-
ur á Suðurlandsvegi.
Umferð og viðeigandi vegir
Við skulum áður en lengra er haldið
átta okkur á umferðinni til og frá
borginni árið 2005. Sjá töflu. Ádu er
meðalumferð á dag allt
árið. Sdu er með-
alumferð á dag á sumr-
in. Jafnframt skulum
við skoða við hvaða um-
ferð hver veggerð hent-
ar að mati verkfræðinga
og annarra sérfræðinga
(eftirfarandi tölur eru
fengnar úr tveimur
skýrslum Línuhönn-
unar). Venjulegur 1+1
vegur getur annað að
hámarki 15.000 bílum á
dag en þegar umferð fer
að nálgast þessa tölu
verður framúrakstur
nánast óframkvæmanlegur og að-
stæður til framúraksturs verða auðvit-
að erfiðar og hættulegar miklu fyrr.
2+1 vegur hentar vel þegar umferð er
orðin ádu 5.000 eða sdu 8.000. Slíkur
vegur getur annað umferð upp að
15.000–20.000 bílum á dag. 2+2 vegur
getur annað umferð upp að 45.000–
55.000 bílum á dag.
Hvaða veggerð er hentugust á
Suðurlandsvegi?
Krafan um vegabætur á Suður-
landsvegi snýst fyrst og fremst um
aukið umferðaröryggi. Fram hefur
komið að umferðaröryggi sé næstum
eins mikið með 2+1 vegum og með
2+2 vegum enda er í báðum tilvikum
skilin að umferð úr gagnstæðum átt-
um. Með það í huga sem og tölurnar
um umferð, hvaða veggerð er þá hent-
ugust á Suðurlandsvegi? Vart þarf að
taka fram að 2+1 vegur er dýrari en
1+1 vegur og 2+2 vegur er miklu dýr-
ari en 2+1, sérstaklega ef gerðir eru
tveir sjálfstandandi vegir hlið við hlið.
Ekki verður annað séð en 2+1 veg-
ur henti fyrir allar þrjár meginleið-
irnar frá borginni. Ósjálfrátt verður
manni hugsað til þess fólks sem nú
væri enn á lífi ef fjármunirnir sem
voru notaðir til að tvö-
falda Reykjanesbraut-
ina hefðu verið notaðir
til að leggja 2+1 vegi
bæði til Keflavíkur og
Selfoss. Það kann þó að
vera að það hafi verið
skynsamlegt að taka
skrefið strax í 2+2 veg
til Keflavíkur þar sem
umferðin er orðin það
mikil og vaxandi að hún
er að komast á seinni
helming flutningsgetu
2+1 vegar. Umferð um
Suðurlandsveg er minni.
Ef litið er á þann kafla
Suðurlandsvegar sem er á milli
Þrengslavegar og Selfoss virðast eng-
in rök mæla með því að þar verði gerð-
ur 2+2 vegur í stað 2+1 vegar. Tillaga
Vegagerðarinnar um að Suðurlands-
vegi verði breytt í 2+1 veg þar sem
fyrirfram verði gert ráð fyrir breikk-
un í 2+2 veg síðar hljómar því afar
skynsamlega.
Nú eru tvö ljón í veginum
Tvennt gerir það að verkum að nú
virðist erfitt að taka ákvörðum um
2+1 veg. Annars vegar er það sú stað-
reynd að lítil sem engin reynsla er af
2+1 vegi á Íslandi og ýmsar rang-
hugmyndir virðast vera á sveimi um
slíka vegi. Nokkurra kílómetra kafli
hefur verið í rúmlega ár á Suðurlands-
vegi en það er ekki nóg.
Hins vegar, að of lengi hefur verið
beðið með ákvörðun um hvað skuli
gera á Suðurlandsvegi þannig að óþol-
inmæði vegfarenda hefur nú breyst í
reiði og tilfinningahita sem erfitt er að
rökræða á móti. Þessi tilfinningahiti
hefur af einhverjum ástæðum allur
farið í þann farveg að 2+2 vegur sé
eina lausnin. Síðan verður slys þar
sem tveir vegfarendur látast. Öllum
hlýtur að vera ljóst hversu slæm sú
staða er að fara fyrst að huga að
ákvörðunartöku við þessar aðstæður.
Tvær tillögur
Til þess að ákvarðanir um vegakerf-
ið lendi ekki í sömu ógöngum í fram-
tíðinni eru hér settar fram tvær til-
lögur:
1. Gerður verði 2+1 vegur á löngum
kafla þar sem umferð er mikil en þó
ekki það mikil að þörf sé á taf-
arlausum úrbótum. Með öðrum orðum
sé nægur tími til að taka yfirvegaða
ákvörðun. Þetta verði gert til að fá
mikla reynslu af 2+1 vegi. Lagt er til
að slíkur vegur verði lagður á milli
Borgarness og Hvalfjarðarganga en
þar er umferðin nú um eða undir 4.000
bílum á dag.
2. Samgönguyfirvöld setji sér ein-
falda reglu um það hvenær breytt sé
um veggerð. Ef umferð fer t.d. yfir
ádu 5.000 skuli veginum breytt í 2+1
veg og ef umferð fer t.d. yfir ádu
12.000 skuli veginum breytt í 2+2 veg.
Þessum mörkum má síðan breyta með
tímanum í ljósi reynslunnar.
Vegaumræða missir jarðtengingu
Jón Þorvaldur Heiðarsson
fjallar um umferðaröryggi og
vegagerð
»Krafan um vegabæt-ur á Suðurlandsvegi
snýst fyrst og fremst
um aukið umferðarör-
yggi.
Jón Þorvaldur
Heiðarsson
Höfundur er sérfræðingur hjá RHA –
Rannsókna og þróunarmiðstöð Há-
skólans á Akureyri.
Umferð árið 2005 ádu sdu
Reykjanesbraut (Hafnarfj.-Vatnsleysa) 9.700 11.000
Vesturlandsvegur (Mosfellsb.-Grundarhv.) 6.400 8.000
Suðurlandsvegur (Reykjav.-Þrengslav.) 7.800 10.200
Suðurlandsvegur (Þrengslav.-Hveragerði) 6.100 7.900
Suðurlandsvegur (Hveragerði-Selfoss) 6.500 8.400
Fyrst voru það Orðin tóm og nú Glamm!!
Þetta er diskurinn sem allar hugsandi konur og allir hugsandi karlar vilja fá undir geislann.
Á þessum nýja og glæsilega geisladiski les Jón Norland 24 ljóð
eftir sjálfan sig sem sonur hans, Sverrir Norland, hefur samið
skemmtilega og kröftuga tónlist við.
Sverrir leikur auk þess
á kassa- og rafgítara, bassagítar og slagverk.
Geisladiskur handa öllum þeim sem
unna íslenskri tungu og góðri tónlist.
Hér ræður engin hálfvelgja ríkjum!
Diskurinn fæst í öllum helstu bókaverslunum og plötubúðum.
Forlag misskilinna skálda
X
S
TR
E
A
M
D
E
S
IG
N
S
N
0
6
11
0
03
mbl.issmáauglýsingar